Tíminn - 21.03.1984, Page 9

Tíminn - 21.03.1984, Page 9
Ari Teitsson: Þankar um lax ■ Nýlega hafa birst í Tímanum tvær greinar um nýtingu laxastofnsins.önnur eftir Örn Þorleifsson í Húsey, en hin eftir Einar Hannesson starfsmann Veiði- málastofnunar. í grein Einars er að finna ýmsar fullyrðingar sem þarfnast nánari um- fjöllunar: Vannýting Einar telur fullyrðingar um vannýt- ingu laxastofnsins órökstuddar, svo er alls ekki. Veiðimálastofnunin hefur ein- mitt ásamt fleirum gengist fyrir útgáfu sérrits íslenskra landbúnaðarrannsókna (10.2. 78) þar sem Philip R. Mundy og fléiri segja orðrétt um Elliðaár (bls. 55) „Niðurstöðurnar gefa til kynna að flestir nýliðar fást ef hrygningarstofninn er um 2000 fiskar og að mest ganga í ána 5 fullorðnir laxar á hvern gotfisk. Sam- sinna veiðilanda og ákveða sjálfir á hvern hátt það er gert. Vafasamur áróður Undarleg þykir mér sú ályktun Einars Hannesonar að áróðúr fyrir aukinni nýtingu laxins í ánum ýti undir sjávar- veiðikröfur. Ég fæ ekki betur Séð en sterkustu rök gegn sjávarveiði séu að bændur sýni fram á að þeir geti og vilji, með aukinni stangaveiði eða öðrum hætti, fullnýtt laxinn í ánum og að miklu ódýrara sé að veiða laxinn þegar hann gengur í árnar en elta hann út um sjó með ærnum útgerðarkostnaði. Félagslegar ákvarðanir í okkar laxveiðilögum eru mjög skýr ákvæði um veiðifélög. Séu veiðifélög stofnuð og starfi cftir lögunum virðist mér eðlilegt að félögin hafi ekki aðeins „býsna frjálsar hendur um nýtingu veiði- vatna", heldur verði löggjöfinni breytt þannig að félögin sjálf ákveði og beri ábyrgð á nýtingu veiðinnar. Boðað hefur verið að breytinga sé að vænta á laxveiði- lögunum og verður fróðlegt að sjá hvort bændum verður við þá breytingu treyst til að gæta eigna sinna í veiðihlunnind- um. Hrísum 15. mars 1984 „Nautið ekki nefna má” ■ Ari Teitsson. kvæmt þessu mætti veiða stærri hluta laxagöngunnar í Elliðaánum.“ í sama riti (bls. 173) segja Ole A. Mathisen og Þór Guðjónsson veiðimála- stjóri. „Laxveiðin á íslandi er fyrst og fremst stangveiði. Þar af leiðir að aðal- hlutverk veiðiyfirvalda er ekki að ná veiðiálagi sem gefur hámarksafrakstur í laxafjölda heldur að halda ánægju veiði- manna í hámarki. Þess vegna verður alltaf að vera verulega meiri laxafjöldi í ánni eftir veiðitíma en nauðsynlegt er fyrir hrygningu." Þá er einnig fróðlegt að kynna sér frásagnir manna um laxveiði fyrri ára, þegar fleiri veiðiaðferðir voru notaðar, má þar t.d. nefna skýrslu Bjama Sæm- undssonar um laxveiði á Suðurlandi en sú skýrsla birtist í Andvara 1897. Ekki er því ástæða til að draga í efa að veiða mætti meiri lax í ýmsum ám landsins. Þetta er þó aðeins lítill hluti þessa máls. Meginmálið er ef til vill að of mikil hrygning leiðir oft til ofbeitar í ánum. Þetta er auðskilið öllum þeim sem vanir eru beit búfjár. Augljóst virðist að hver flatareining botns í laxveiðiá getur skilað ákveðnu fæðumagni fyrir laxaseiði (trúlega þó mismiklu eftir ár- ferði). Einhvers staðar hljóta því að liggja þau fjöldamörk seiða sem gefa bestu nýtingu fæðunnar. Það hve mikið veiði hefur minnkað síðustu ár með kólnandi árferði bendir einmitt til að víða hérlendis sé a.m.k. í köldu árferði of mörg seiði í ánum. Hefði fæðufram- leiðsla ánna hins vegar verið vannýtt hefði kólnandi árferði ekki átt að hafa veruleg áhrif á niðurgöngu seiða úr laxveiðiám. Samkvæmt athugunum Árna Helgasonar fiskifræðings hjá Veiðimálastofnun virðist einmitt sem laxaseiði í Selá í Vopnafirði hafi vaxið mjög hægt árin 1980 og 1981 og þau ár lítið gengið til sjávar. Kann þar að vera fundin skýring á lítilli laxveiði 1982 og 1983 sem einmitt tengist of miklum seiðafjölda miðað við fæðuframleiðslu áa. Sé þama að finna skýringu á miklum sveiflum í laxveiði get ég ekki láð Emi Þorleifssyni og öðrum bændum þó þeir vilji fá að nýta betur en áður möguleika ■ í Morgunblaðinu 6. apríl 1982 birtist smágrein eftir Sigurð Jónsson, Borgarfirði eystra. Hún er mjög eftirminnileg. Ég endursegi hana hér í örfáum orðum. Árið 1936 gaf gömul kona sonarsyni sínum 40 krónur og lagði inn á sparisjóðs- bók í útibúi Landsbanka fslands á Seyðis- firði. Þessi upphæð var þá nálægt verðgildi fjögurra líflamba. Árin liðu og krónumar 40 bættu við sig vöxtum og vaxtavötum allt til áramóta 1981-1982. Þá fyrst var tekið út úr bókinni og hún tæmd og eyðilögð. Inneignin eftir 45 ára samfellda ávöxtun bankans var krónur 6.55 - sex krónur fimtíu og fimm aurar- (nýkrónur). Þær nægðu þá til að kaupa 140 grömm af 1. fl. dilkakjöti. Þessi frásögn af sparifé litla drengsins - andvirði fjögurra sláturdilka - sem bank- anum var trúað fyrir til varðveislu en gerði lítið betur en nægja sem burðargjald eins sendibréfs eftir 45 ára ávöxtun bankans, sýnir á eftirminnilegan hátt hið sorglega stjómleysi ísl. ráðamanna í vaxtamálum síðustu áratugina, enda talið að aðeins á tíu árum hafi þessi lögvemdaði ránsskapur numið 750 milljörðum gamalla króna. En á hverjum bitnaði einkum þessi dæmalausa eignaupptaka? Skarðaði hún ekki aðallega eignir efnamannanna í þjóðfélaginu? Nei, þeir þurfa ekki aðstoð- ar banka til að ávaxta sparifé sitt! Fjár- munaflutningurinn var frá öðrum t.d. börnum og gamalmennum. Afdrifaríkust var eignaupptakan á inn- stæðum bamanna - andvirði hagalagð- anna þeirra eða samansafnaðra skildinga, sem þeim hafði áskotnast í sparibaukinn sinn. Þótt þetta væru að vísu smáar upphæðir að undanteknu erfðafé, voru þær stórar í augum bamanna og vonbrigðin því sár, þegar þessi aleiga þeirra varð að engu eins og litfögur sápukúla við minnstu snert- ingu. En þarna tapaðist annað og meira en spariaurar bamanna. Með þeim glataði þessi uppvaxandi kynslóð ýmsum þeim fomu dyggðum, sem best hafa dugað ísl. þjóð til að þrauka af harðæri á liðnum öldum, s.s. sparsemi, nýtni og hagsýni, en hlaut í staðinn hemjulausa kröfugerð og eyðslusemi. Og tortryggnin skaut föstum rótum í huga þessa æskúfólks gagnvart bönk- unum, sem erfitt mun reynast að uppræta, þótt þeir hafi nú bætt ráð sitt, a.m.k. að eigin sögn. Þeir verða því vissulega lengi að öðlast tiltrú almennings á ný. Minningarsjóðir eða gjafasjóðir látinna manna, er stofnaðir vom til styrktar ýmsum verkefnum af eldmóði hugsjóna, en oftast litlum efnum, sættu vitanlega sömu eignaupptökunni og spariaurar bamanna. Nú er svo komið fyrir mörgum þessum sjóðum, að þeim er með öllu fyrirmunað að gegna hlutverki sínu, og árleg færsla þeirra er einungis sóun á pappír og tíma manna við endurskoðun og samþykktir, oft á fjölmennum fundum. Líklega hafa aðaleigendurnir að spari- fé landsmanna verið gamla fólkið - beint eða óbeint. Stærsta hluta þess átti það í vonum - í lífeyrissjóðunum, sem ætlað var það hlutverk að gera fjárhag þess bærilegan á elliárunum. Þessir sjóðir guf- uðu upp í höndum stjórnendanna svo í gjaldþrot stefndi. Verðtrygging útlánavar því tekin upp þeim til bjargar. Lífeyrir ríkisstarfsmanna er þó undan- tekning. Hann er verðtryggður hjá sam- félaginu. Það skýrir ef til vill hvers vegna forsvarsmenn ríkisstarfsmanna eru oft óragir við að kasta sprekum á verðbólgu- eldinn með óraunhæfum kaupkröfum, sem brenna upp fjármunum hinna, er ekki búa við gulltryggingu. Ég ætla þó, að allstór hluti af sparifé gamla fólksins hafi legið inni í bönkunum á nafni eigendanna á almennum sparisj- óðsbókum. Margt af þessu fólki hafði gengið í harðan skóla heimskreppunnar miklu á þriðja og fjórða áratugnum, - eina skólann, sem flestir áttu kost á að sitja. „Nútíð mun fyrir því naumast óra“ hve þrotlaust erfiði menn þurftu þá á sig að leggja til þess eins að hafa í sig og á. Þá þýddi ekkert að kalla á Rikismömmu, þótt eitthvað amaði að. Þessi stranga lífsreynsla kenndi þessari þynslóð nægju- semi og nýtni - og að spara - spara hvem afgangseyri og leggja til hliðar til að mæta hugsanlegum áföllum morgundagsins. Þegar svo loksins að þetta fólk hlaut að víkja úr leiknum og seldi eigur sínar, bættist oft drjúgur peningur við áður saman sparaðan arð af ævistritinu, er það hugðist nota í ellinni. Allt þetta sparifé var nánast gert að engu eins og gjöf gömlu austfirsku kon- unnar. Þetta gamla fólk hefði því flest orðið að styðjast við vonarvölinn á elliárunum hefðu ekki tryggingamar kom- ið til bjargar, sem í mörgum tilfellum sýna nú okkur ellilífeyrisþegum ofrausn eins og skuldabyrði þjóðarinnar er orðin uggvæn- leg, t.d. þeim sem jafnframt fá mikla fjármuni úr eigin lífeyrissjóðum. Þar og víðar í tryggingakerfinu er þörf á ítarlegri rannsókn, því víða leynast þar ljótar meinsemdir, sem þyrfti að fjarlægja.. Og hvert fór svo allt þetta gjafafé? Ákaflega víða. Það blasir við okkur hvert sem auga er rennt. Auðvitað fór stærsti hlutinn til þeirra, sem greiðastan aðgang höfðu að bönk- unum. Barist var um þessi fágætu lán, sem í framkvæmd þurfti ekki að endurgreiða nema að litlum hluta. Gagnstætt því sem áður þekktist var nú ■ Jóhannes Björnsson greiðasti vegurinn til mikils ríkidæmis að skulda - skulda sem allra mest. Á þessum árum var lánsemi manna metin eftir fjölda og þó einkum stærð þeirra lána, sem þeim hafði tekist að klófesta. Þessi nýja lífs- skoðun komst inn á þing og hefir efalaust átt stóran þátt í ásókn alþingismanna í erlendar lántökur á vegum ríkisins með þeim sorglegu afleiðingum að efnahags- legt sjálfstæði þjóðarinnar er í hættu, verði hún fyrir stóráföllum. En lánið reyndist misskipt eins og löngum áður. Hvalskurðinum lauk um síðir. Og þeir, sem komu seint á hvalfjöru- na og var ætlað að greiða fenginn að fullu, þóttust illa settir hjá. Enginn skyldi því undrast, þótt þeir mynduðu öflug samtök og „krefðust" þess að ríkisstjómin reki annan hval að landi í líki nýrra „gjafalána" eða myndar- legrar erlendrar lántöku á kostnað hinna ófæddu! Hér verður ekki reynt að benda á hina „lánsömu“ nema sjálfa bankana, því sök þeirra tel ég mesta svo og ríkisstjóma okkar, sem löngum hafa verið fjarstýrðar af þrýstihópunum eða verðbólgu- rekendum (launþegafomstunni). Eins og vænta mátti af stjómendum hvalskurðar, drogu bankamir ekki tómar þjóttur í hlutarkast sitt. Þeir tóku brátt að reisa glæsilegar bankahallir „fyrir sína pen- inga“, og fjölgun þeirra var með slíkum ógnarhraða, að trúlega hefðu þeir haldið eitthvað í við gullhringinn Draupni, sem af dmpu „átta jafnhöfgir níundu hverja nótt“, eins og segir í Snorra-Eddu, hefðu ekki ríkisstjómir okkar eytt mörgum hugarfóstmm þcirra. Já það var ekki undarlegt, þótt í bankakerfið hlypi mikil sæld, þegar það skilaði ekki nema sem svaraði hluta einnar harðgreipar af fjórum dilkum eftir 45 ára leigu! Ég efa það ekki, að bankastjórarnir okkar hafa oft í einrúmi - með roða í kinn - leitt hugann að þessum viðskiptum sínum fyrir bankanna hönd við „óvitana í fjármálum" - börnin og gamalmennin -, sem í grandleysi trúðu þeim fyrir sparifé sínu, og að þeim hafi sett illan beyg um afleiðingamar. Það má ráða af því, að þeir hafa gripið til sömu varúðarreglu og best dugði sjómönnum okkar fyrr á öldum gegn illhvelum! Jón Ámason segir frá því í þjóðsögum sínum að einhver „algildasta varúðarregla á sjó“ sé sú, „að nefna aldrei hval heldur ávallt „stórfisk" við hvern hval sem maður á,“ eins og fram kemur í eftirfarandi vísu, þar sem háskalegustu illhvelin eru talin upp: „Varastu búra, hross og hund, / haltu svo fram um langa stund; / stökklinum stýrðu frá, / nautið ekki nefna má / nokkur maður sjónum á“. Væri hið rétta nafn einhvers slíks hvals nefnt, var hann vís að æða að skipinu og granda því og áhöfn- inni. Brygði einhver út af þessari reglu, en skipshöfn næði samt landi, hafði sá hinn sami gerst sekur um „sjóvíti". Þar með hafði hann „fyrirgjört mötunni sinni", sem skiptist á milli skipsfélaga hans, svo hann varð „að éta þurrt til vertíðarloka". Bankamenn okkar margir - og raunar fleiri - virðast ákaflega hræddir við hið meinlausa, tæra orð: Vextir (ft. af vöxtur) og verjast „vítunum“ af mikilli hugvits- semi og leikni. Þeir myrkva þetta orð með ýmsum hætti, stundum með öfugmælastíl. T.d. getur hið gamalkunna orð: Okur- vextir táknað nú stórfellda rýmun á verðgildi inneignar. Bankamennimir tala um „nafnvexti“ svo og „raunvexti“, en loka svo fyrir alla skilningshimnu almenn- ings með viðbótinni: „Jákvæðir raunvext- ir“ og „neikvæðir raunvextir“. Og fleira má nefna þessu líkt, s.s. „jákvæða og neikvæða ávöxtun sparifjár", og loks „jákvæða vexti" og neikvæða vexti“. Trúlega myndi einhver glotta, ef Sigurj- ón Rist, vatnsmælingamaður tilkynnti nei- kvæðan vöxt í Súlu! Þetta stofnanamál, sem hér hefir verið tínt saman, skilur almenningur hreinlega ekki, enda til þess ætlast. Hins vegar skilur hann mæta vel ótta bankamannanna við „vítin“, nefni þeir eignaupptökuna í bönkunum réttu nafni. Ef almenningur hætti að leggja inn sparifé sitt í banka, fengi margur banka- maðurinn „pokann sinn“ og missti „mötu- na sína" - þrettánda mánuðinn úr launaár- inu-, og yrði „að éta þurrt“ til lokadagsins. Ytri-Tanga, 93.1984. JóhiMM BjonMOft.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.