Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 13

Tíminn - 21.03.1984, Blaðsíða 13
, v>i ?‘i ■ ‘ -* r yj ;o j í’ /í5ií/ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1984 0S* 21 heimilistfminn umsjón: B.St. og K.L. „Partí-salat“ fyrir f jóra ■ Fjölbreytni í matargerð hefur aukist hér á landi og má sjálfsagt þakka það meira úrvali af grænmeti í verslunum og eins að með almennari ferðum til útlanda taka ferðalangamir með sér heim ýmsar nýjungar í matargerð sem þeir kynnast erlendis. Það er ekki síst ýmiss konar salöt sem setja svip sinn á matarborðið hjá okkur nú, og salötin eru líka mjög heppileg, því að í þau notar maður það sem fýrir hendi er, svo sem grænmeti, ávexti, kjöt, fisk, ost og ýmiss konar krydd, og svo er hægt að láta hugmyndaflugið ráða. Munið að skola allt grænmeti vandlega og þerra áður en það er sneitt niður, - og gætið þess að bera salat alltaf fram vel kalt. „Partí-salat“ fyrir f jóra 1 salathöfuð, 250 g tómatar, pipar, lauksalt, 300 g steiktur brytjaður kjúkl- ingur, Vi agúrka, 1 græn paprika, 125 g sveppir, 1 dl sólselja (dill), salt, Vi tsk estragon, V* tsk basilikum, 1 msk krydd- edik, 125 g áleggspylsa, 125 g Goudaost- ur (17%) Skolið og þerrið salatblöðin. Rífið þau eða klippið niður í skál (1 stóra skál, eða 4 litlar). Skolið tómatana og skerið í sneiðar. Raðið þeim ofan á salatið og stráið pipar og lauksalti yfir. Fjarlægið húðina af kjúklingnum. Skerið hann í 1-2 cm stóra bita og raðið ofan á tómatana. Skolið agúrkuna og skerið í sneiðar. Hreinsið sveppina og skerið í sneiðar. Skolið paprikuna, fjarlægið kjarnann og skerið í lengjur. Blandið saman í skál agúrku, sveppum, papriku og 'h dl af sólselju. Kryddið með salti, pipar, estragon, basilíkum og krydd- edikinu. Leggið þetta sem þriðja lag í skálina. Skerið kjötið og ostinn í ræmur og leggið ofan á. Raðið 'A af tómötunum yfir. Sósa 100 g olíusósa (mayonnaise) 2 dl sýrður rjómi, 1 tsk sinnep, salt, 1 tsk kryddedik. Hrærið saman olíusósu, sýrðum rjóma, sinnepi, salti og kryddediki. nm- ið sósunni yfir salatið og skreytið með 'A Berið salatið fram með • brauði og smjöri. ■ Ekki veit ég hvað garðyrkju fræðingar segja við því, að setja stofublómin „á Pilluna“, en í bresku blaði segir ein blómakona frá góðri reynslu í þessum efnum. Hún segir frá aðferð sinni til að koma rækt í stofublómin sín og sendir mynd af sjálfri sér og „hinni hamingjusömu yukka- plöntu“, en sú planta tók best við sér við kúrinn. Alison Joseph sagðist hafa heyrt að gott væri fyrir plöntur að fá hormóna-gjöf, og þá datt henni í hug að nota P-pillu úr sínum ■ Yukkaplantan, sem var á Pillunni, og frúín, (sem vonandi hefur ekki gleymt að taka sinn skammt) Plantan þreifst vel á Pillunni! eigin meðalaskáp og sjá hvað tóku þau heldur betur vaxtarkipp Yukka-plantan hennar Alison gerðist. Hún leysti eina Pillu upp og nýir sprotar uxu í allar áttir. var sérstaklega vesældarleg, en í lítra af heitu vatni, lét það siðan öll blómin urðu gróskuleg og nú er hún komin með mörg ný, kólna og vökvaði svo pottaplönt- falleg, - nema ein gömul og græn og falleg blöð og eigandinn urnar sínar vel og vandlega. ráðsett gúmmíplanta, sem föln- er stoitur af blóminu sínu, svo í nokkra daga skeði ekkert aði og dó á nokkrum dögum. sem sjá má af meðfylgjandi með blómin, en svo skyndilega Pillan átti greinilegaillavið hana! mynd. Logandi appelsínur ■ Nú eru mjög góðar appelsínur fáanlegar í verslunum, þá er um að gera að nota þær sem mest, og hér komum við með eftirrétt úr appel- sínum, sem kallaður er Logandi appelsínur. Það má reikna með einni til einni og hálfri appelsínu á mann, en þær eru sneiddar í þunnar sneiðar. Brúnið appelsínusneiðarnar í örlitlu smjöri á pönnu, og stráið flórsykri og hökkuðum möndlum yfir sneiðarnar. Hitið nokkra desi- lítra af koníaki og hellið yfir app- elsínusneiðarnar og kveikið í rétt áður en þær eru bornar fram. Með appelsínunum skal bera fram ískaldan þeyttan rjóma. ■ Ef pannan er falleg, þá er ágætt að bera appelsínuréttinn fram á pönnunni en ekki setja sneiðarnar á fat Þrjár sem ein: — bleikog hvítperlu- •* festi og gullkeðja ■ Hér er langri, bleikri festi tvívafið um hálsinn, og með henni notuð sver gyllt keðja. Þrjár sem ein: Hér eru notaðar saman ein ijósbleik festi, ein mall- orca-perlufesti og mjó perlufesti með gylltum perlum inn á milli. ■ Bleiki liturinn er enn vin- sæll í vor eins og hann hefur verið í allan vetur. Má því búast við, að bleikt og hvítt verði mikið notað í vor- og sumarklæðnaðinn. Ef þið eigið bleikar eða hvítar perlufestar þá er alveg upp- lagt að vefja þær saman og jafnvel að snúa líka með þeim gylltri keðju og nota þær svo saman allar þrjár sem eina festi. Eins getur það verið fal- legt við ljósan sumarfatnað, að nota saman ekta (?) kór- alfesti og ekta (?) perlufesti snúnar saman og gullkeðju með. Stórir eyrnalokkar við- eigandi eru líka mikið notað- ir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.