Tíminn - 22.03.1984, Side 9
FIMMTUDAGUR 22. MARS 1984
FIMMTUDAGUR 22. MARS 1984
•Y/
r t * '
iþróttir!
KR-Haukar
í úrslitum?
Draumur Einars Bollasonar
■ Draumur Einars Bollasonar, KR-
ings og þjálfara Hauka í Hafnarfirði gæti
orðið að veruleika, það er að Haukar og
KR leiki til úrslita í bikarkeppni Körfu-
knattleikssambands íslands. Einar hefur
iátið hafa það eftir sér, að þetta væri
hans draumaúrslitaleikur, þetta væri
leikur sem hann gæti ekki tapað. - En
draumurinn gæti orðið veruleiki vegna
þess að í undanúrslitum bikarkeppninn-
ar drógust saman Keflavík og KR, og
Valur og Haukar, Keflavíkingar og Vals-
menn fengu heimaleik.
- SÖE.
Gottlieb
vann Einar
■ Gottlieb Konráðsson frá Ólafslirði
vann í skíðagöngu 20 ára og eldri sem
keppt var í í Hlíðarfjalli við Akureyri uin
helgina, mölið var 15 km. bikarmót.
Einar Ólafsson frá ísafirði varð annar,
og þriðji varð Pröslur Jóhannsson ísa-
firði.
í 17-18 ára flokki sigraði Haukur
Eiríksson Akureyri, Bjarni Gunnarsson
ísafirði varð annar og Finnur V. Gunn-
arsson Ólafsfirði þriðji.
í flokki 15-16 ára, þar sem gengnir §
voru 7,5 km. sigraði Ólafur Valsson frá j
Siglufirði, annar varð Baldvin Kárason !
Siglufirði og þriðji varð Ingvi Óskarsson
Ólafsfirði.
í flokki 13-14 ára sigraði Þórir Hákon-
arson Siglufirði, annar varð Magnús
Erlingsson Siglufirði og þriðji Sveinn
Traustason Fljótum.
í flokki 16-18 ára stúlkna sigrað Stella
Hjaltadóttir ísatirði, Svanfríður Jóhann-
csdóttir Siglufirði varð önnur og Svan-
hildur Garðarsdóttir Isafirði þriðja.
Auður Ebenezeisdóttir ísafirði sigr-
aði í flokki 13-15 ára stúlkna, önnur varð
Ósk Ebenezersdóttir fsafirði og þriðja
Harpa Óðinsdótir Ólafsfiröi, ásamt Ey-
rúnu Ingólfsdóttur ísafirði.
-gk Akureyri/SÖE
Johnston
meðtvö
■ Þrír leikir voru í ensku knattspym-
unni í fyrrakvöld, Watford vann Sunder-
land 2-1 heima, Leicester og Everton
gerðu jafntefli 1-1, og Luton og Birming-
ham einnig 1-1.
Maurice Johnston skoraði bæði mörk
Watford, cn Gary Rowcll fyrir Sundcr-
land. Paul Walsh skoraði fyrir Luton,
Kevin Richardson fyrir Everton en Gary
Lineker jafnaði fyrir Leicester.
í annarri deild gerðu Middlesbro og
Derby markalaust jafntefli í Middles-
borough.
- SÖE.
Meistaramót
í badminton
■ Unglingameistarmót íslands í
badminton 1984 verður á Akranesi dag-
ana 24-25. mars næstkomandi. Keppt
verður í flokkum hnokka og táta (10-12
ára), sveina og meyja (12-14 ára),
drengja og telpna (14-16 ára) og pilta og
stúlkna (16-18 ára).
Meistarmót íslands í badminton 1984
verður haldið í Laugardalshöllinni í
Reykjavík dagana 31. mars og 1. apríl
næstkomandi. Keppt verður í meistara-
flokkum, öðlingaflokkum (40-50 ára) og
æðsta flokki (50 ára og eldri). Þá verður
keppt í öllum greinum karla og kvcnna.
Þátttökutilkynningar eiga að berast BSÍs
í síðasta lagi 23. mars.
- SÖE.
Evrópukeppni meistaraliða:
LJVERP00L VARD SIÖTTA
BRESKA UÐÍÐ ÁFRAM
ÍEvrópukeppnunum í gærkvöld, vann Benfica 4-1
■ Liverpool varð sjötta breska liðið
sem komst áfram í undanúrslit Evrópu-
keppnanna í knattspyrnu, er liðið sigraði
Bcnfíca Lissabon í Portúgal 4-1 í
gærkvöld, frábær frammistaða breskra.
Ronnie Wheelan skaut Liverpool vel
áfram, skoraði tvö mörk, Craig Johnston
eitt. Stórsigur Liverpool kemur nokkuð
á óvart, liðið náði aðeins að sigra
Benfica 1-0 á Anfield Road í Liverpool,
og Benfica hefur unnið með þremur til
sjö mörkum í síðustu leikjum sínum í
UEFA-keppnin:
Tottenham rédi
í Austurríki
Frá Gísla A. Gunnlaugssyni íþróttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Tottenham réð lögum og lofum í Aust-
urríki, þegar liðið mætti Austria Wien í
Vínarborg. 1800 enskir áhorfendur fylgdu
Tottenham á völlinn, og sköpuðu usla í
Austurríki, sem áætlað var. Allmargir
áhorfendur enskir voru teknir fastir meðan á
leiknum stóð, en undir lokin hafði skapast ró
á pöllunum.
Tottenham lék kraftmikla vörn, hóf vörn-
ina strax í sókninni. Austurríkismönnunum
gekk illa að byggja upp, og vörn Englending-
anna var sterk með Clemence í markinu á
nýjan leik. Á 15. mínútu náði Tottenham
forystu, en Alan Brazil komst einn í gegn,
1-0 í hálfleik.
Prohaska jafnaði fyrir Austria á 60. mínútu
úr víti, eftir að Gary Stevens hafði fellt
Niylasi. Á 82. mínútu braust Gary Stevens
upp að hornfána, en bjargað var í horn.
Stevens tók hornspyrnuna sjálfur, en eftir að
Austria mistókst að hreinsa frá, skoraði
Osvaldo Ardiles með þrumuskoti af 14 metra
færi í slána og inn í vinkilhorninu. Niylasi
jafnaði á 87. mínútu, og Tottenham komst
áfram.
-GÁG/SÖE
portúgölsku meistarakeppninni.
Leikur Dynamo Berlin og AS Roma*
þótti slakur. Berlín sótti öllu meira allan
Ieikinn, en Falcao og Conti sérstaklega
sköpuðu oft hættu í skyndisóknum Róm-
verja. Staðan 0-0 í hálfleik, en Oddi
varamaður í Romarliðinu skoraði eftir
frábæran undirbúning Cerezo og Falcao.
Eftir þetta slappaði Rómarliðið af, og gaf
nokkuð eftir. Andreas Thom jafnaði á
76, mínútu, og Ernst skoraði sigurmark-
ið á 86. mín.
McGee með þrennu
Mark McGee skoraði öll mörk Aber-
deen gegn Ujpest Dozsa í Skotlandi.
Leikurinn var framlengdur, staðan 2-0
eftir venjulegan leiktíma. Tveir aðrir
leikir voru framiengdir í gærkvöld, leikir
Nottingham Forest og Sturm Grax í
UEFA-keppninni, og leikur Sparta Prag
og Hadujuk Split í Evrópukeppni bikar-
hafa. GÁG/SÖE
3
umsjón: Samúel Öm Erlingsson
Evrópukeppni bikarhafa:
SCHUSTER 0G MARAD0NA
LENTU í SKUGGA R0BS0N
■ Tvö af frægustu félögum, Evrópu,
Máiichester Utd. frá Englandi og Barce-
lona frá Spáni léku að nýju í Evrópu-
keppni bikarhafa í gærkvöld. Lið
Manchester Utd. er metið á rúmar 260
milljónir króna, hvorki meira né minna,
en komast þó leikmenn þeirra hvað verð
áhrærir ekki í hálfkvisti við lið Barce-
lona, því það er metið á hvorki meira né
minna 660 milljónir króna. Fyrrí
leiknum lauk með 2-0 sigri Barcelona,
og voru leikmenn Man. Utd. óheppnir
þar. Leikurinn í gær var spegilmynd
leiksins um daginn, nema United hafði
yfírhöndina allan tímann.
Lið United fór varlega af stað, lék
rólega, byggði upp hættulegar sóknir og
seig á hægt og bítandi. Lið Barcelona
■ Einar Vilhjálmsson álti gott
fyrsta mót í spjótkastinu um síðustu
helgi. Einar sigraði heimsmethafann
Tom Petranoff, kastaði rúma 85
metra, og sigraði í skólakeppni Un-
iversity of Texas við UCLA.
Úrslit í gærkvöld:
Evrópukeppni meistaraliða:
Dundee Utd Skotlandi-Rapid Wien Austumki................1-0 (2-2)
IDundee kemst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli).
Dynamo Beriin Þýskalandi-AS Roma ftalíu.................2-1 (2-4)
Dinamo Bukarest, Rúmeníu-Dynamo Minsk Sovét.............1-0 (2-1)
Benfica, Portúgal-Liverpool Englandi ................... 4-1(5-11
Evrópukeppni bikarhafa:
Manchester Utd, Englandi-Barcelona Spáni................3-0 (3-2)
Shaktyor Donetsk, Sovét-Porto Portúgal .................1-1 (3-4)
Juventus, Ítaliu-Haka Valkeokoska Finnlandi.............1-0 (2-0)
Aberdeen, Skotlandi-Ujpest Dosza Ungverjaland ..........3-0 (3-2)
UEFA-keppnin:
Austria Wien, Austumki-Tottenham, Englandi........ .....2-2 (2-4)
Hadjuk Split Jugóslavíu-Sparta Prag, Tékkóslóvakíu .....2-0 (2-1)
Spartak Moskva Sovét.-Anderiecht Belgíu.................1-0 (3-4)
Sturm Graz Austumki-Nottingham Forest Englandi..........1-1 (1-2)
BIARTSÝNN A FRAMHAUNB
Arsenalklúbburinn
til Englands
■ Arsenalklúbburinn nefnast eldhress
samtök, sem hafa höfuðstöðvarnar á
Selfossi. Klúbburinn var stofnaður fyrir
um einu ári, og hefur 125 félaga. Klúbb-
urinn mun gangast fyrir utanlandsferð
20.-23. apríl n.k. til Englands, á heima-
völl Arsenal, Highbury, til að sjá leik
liðsins við Tottenham Hotspur. Verð
fyrir manninn er á bilinu 9 þúsund til 9
þúsund og 5 hundruð. Hægt er að panta
ferð fyrir 24. mars í síma 1344 á Selfossi
á kvöldin. Þeir sem hafa hug á að ganga
í Arsenalklúbbinn geta skrifað klúbbn-
um utanáskriftin er: Arsenalklúbburinn,
box 6, 802 Selfoss. -SOE
Japanir kenna
júdó hjá JSÍ
um helgina
■ Tveir Japanir munu kenna júdó á
vegum Júdósambands íslands um næstu
helgi í íþróttahúsi Kennaraháskóla
Islands. Japanirnir munu kenna bæði
laugardag og sunnudag. Annar þessara
Japana var heimsmeistari árin 1969 til
1971, svo eitthvað ættu þessir kappar að
geta kennt júdómönnum okkar. -SÖE
— segir Einar Vilhjjálmsson spjótkastari sem sigraði
um helgina — Oddur varð annar í 400 metra hlaupi
■ Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið, og mjög ánægður
með það sem ég hef verið að gera, í undirbúningi og
keppni", sagði Einar Vilhjálmsson, spjótkastarinn sterki,
í samtali við Tímann í gær. Einar keppti um síðustu helgi
á fyrsta móti sínu í ár, og sigraði þar sjálfan heimsmethaf-
ann í spjótkasti, jafnframt því að sigra í spjótkasti á
mótinu. Einar kastaði 85,12 metra, og Petranoff varð
annar með 80,40 metra. Keppnin var skólakeppni milli
Universrty of Texas, skóla Einars, Odds Sigurðssonar og
Oskars Jakobssonar, og UCLA, háskólans í Los Angeles.
Oddur Sigurðsson keppti einnig á mótinu, varð annar í
400 metra hlaupi, og náði betri árangri en hann hefur
áður náð svo snemma á keppnistímabili.
„Þetta er alveg ljómandi, þetta gekk
framar vonum“, sagði Einar. „Það var
frekar óvænt að ég tók þátt í þessu móti.
■ég reiknaði ekki með því fyrir keppnis-
tímabilið. Eg sló til, skólinn þurfti að fá
stig, og mótið virtist mjög spennandi þar
sem Petranoff hafði tilkynnt þátttöku,
hann keppti sem gestur. Mótið var líka
skemmtilegt, gott veður og fínt“, sagði
Einar.
Einar sagði að Oddur hefði átt mjög
gott hlaup í 400 metrunum. Hann hefði
hlaupið á 46,6 sekúndum á handtíma-
töku, sem jafngilti 46,8 á rafmagnstíma-
töku. „Árangur Odds lofar góðu“ sagði
Einar, „Oddur leiddi hlaupið allt þar 'Atil
50 metrar voru eftir, þá komst einn fram
úr honum“.
- Nú átti Sigurður Einarsson gott kast
STJARNA STUTTGART
SKÍN NÚ AD NVJU
Ásgeir skoraði eitt af fjórum mörkum gegn
Úerdingen
■ Ásgeir Sigurvinsson lék vel í fyrra-
kvöld, og hefur nú tekið þá skyldu á sig
að taka vítaspyrnur fyrir Stuttgart, en
vítaspymur hafa verið höfuðverkur hjá
liðinu í vetur. Tímamynd Róbert
Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni íþróttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi:
■ „Við voram sannariega taugaóstyrk-
ir í upphafí, og það var áreiðanlega
sýnilegt að áfötlin að undanförnu hafa
sannarlega sett svip sinn á leik okkar. En
eftir fyrstu tvö mörkin náðum við okkur
á strik, og það mikilvægasta var að ná að
sigra. Nú verður ferðin til Kölnar um
næstu helgi talsvert léttari, við erum
aftur meðal þriggja efstu og allir mögu-
leikar ennþá opnir", sagði Helmut Bent-
haus þjálfari Stuttgart eftir 4-0 sigur
Stuttgart á Bayem Úerdingen í Búndes-
lígunni í fyrrakvöld.
Stuttgart lék frekar dauflega í fyrri
hálfleik. Niedermayer léku með að nýju
eftir meiðsli, og kunna þær breytingar að
hafa haft nokkuð að segja. Frískasti
leikmaður Stuttgart í fyrri hálfleik var
Ohlicher, sem skoraði fyrsta markið á
27. mínútu eftir sendingu frá Niederm-
ayer. Á 45. mínútu var svo dæmd
vítaspyrnu á Uerdingen, eftir að Wales-
búinn Thomas í liði Uerdingen brá
Ohlicher innan vítateigs. Ásgeir Sigur-
vinsson tók vítaspyrnuna og skoraði
örugglega, staðan í hálfleik 2-0.
f síðari hálfleik lék Stuttgart mun
betur, og 18500 áhorfendur þekktu nú
aftur liðið sem leikið hafði svo vel eftir
áramótin. Leikur liðsins var allur annar
og var vel stjómað af Ásgeir Sigurvins-
syni sem ásamt Ohlicher var besti maður
liðsins. Á 47. mínútu bætti Comeliusson
þriðja markinu við eftir sendingu frá
Ohlicher, tólfta mark Svíans í vetur.
Tveimur mínútum fyrir leikslok náði
Bem Förster að skora fjórða markið
með þrumuskoti af 20 metra færi beint
úr aukaspyrnu.
Úerdingen átti aldrei möguleika gegn
Stuttgart í leiknum, þrátt fyrir slakan
fyrri hálfleik Ásgeirs og félaga. Lands-
liðs-„sweeperinn“ Herget lék ekki með
Úerdingen vegna meiðsla, en í stað hans
lék Dietman Klinger sem vegna síend-
urtekinna brota á leikmönnum Stuttgart
var rekinn útaf á 65. mínútu, og varð þar
með átjándi leikmaðurinn í Búndeslíg-
unni í vetur til að sjá rauða spjaldið.
Aldrei áður hefur svo mörgum verið
vikið útaf á einu keppnistímabili í
Bundeslígunni, í fyrra var t.d. einungis
tólf mönnum vikið af leikvelli allt
-•keppnistímabilið.
-GÁG/SÖE
Petranoff
um síðustu helgi?
„Já, alveg hreint, það er geysilega
gaman að því hve Sigurður er að koma
upp. Hann á örugglega eftir að gera
betur í ár, hefur æft mjög vel og ér mjög
sterkur, þetta lofar góðu,“ sagði Einar
Vilhjálmsson.
Næsti stórviðburður hjá íslenska
frjálsíþróttafólkinu í Bandaríkjunum er
4. apríl, Texas Relays-leikarnir. Þá mun
Óskar Jakobsson keppa í fyrsta sinn í ár,
og flestir ísle: dingarnir ytra munu verða
þar. - SÖE
Landsflokkaglíman
um helgina
■ Landsflokkagl,man 1984 verður
glímd um helgina. Keppt verður í 6
flokkum, þremur flokkum fullorðinna,
og þremur yngri flokkum. Keppendur
era 25, frá fjórum félögum, 10 frá HSÞ,
10 frá KR, 3 frá Víkverja og 2 frá
Ármanni. Þrír keppendur verða í yflr-
þyngd, fjórir í milliþyngd og fimm í
léttþyngd. Tveir keppendur verða í
unglingaflokki, fimm í drengjaflokki og
sex í sveinaflokki.
Glímt verður í íþróttahúsi Vogaskóla
í Reykjavík, og hefst glíman klukkan
17.00 á laugardag. -SÖE
tók á móti Englendingunum lanet úti á
THflTTeSTrangst ö ð u t a k t flcTemgelF
vel upp framan af. Þjóðverjinn Schuster
og Argentínumaðurinn Maradona báru
af í liði Barcelona framan af, en döluðu
þegar á leið, og stjörnur United fóru að
skína, engin þó skærar en Bryan
Robson.
Smám saman urðu Englendingar
hættulegri. Muhren gaf vel fyrir og hætta
skapaðist, og Whiteside skaut í slá. Á
23. mín. kom fyrsta markið, hornspyrna
Wilkins var skölluð áfram til Robson
sem kastaði sér áfram og skallaði stór-
glæsilega í netið. Er á leið þyngdist
sóknin enn, og á 50. mínútu skoraði
mark sitL
Bryan Róhson annað_______________
leiknum. Moses gaf fyrir af hægn kanti.
knötturinn barst til Wilkins inni í víta-
teignum sem skaut hörkuskoti sem
markvörðurinn hélt ekki. Robson náði
frákastinu og ýtti knettinum yfir mark-
línuna.
Stórkostleg stemmning skapaðist á
áhorfendapöllum á Old Trafford, er
Man Utd. hafði unnið upp muninn. Og
strax á 53. mín skoraði United enn.
Frank Stapleton skoraði með föstu skoti
af 10 metra færi. Nokkur rangstöðulykt
var af markinu, en það gilti. Barcelona
náði ekki að svara, komst ekki í færi.
GÁG/SÖE
Southampton skelHi Wednesday
og fer áfram í bikarnum
■ Sonthampton mun leika gegn Ever-
ton í undanúrslitnm ensku bikarkeppn-
innar í knattspyrnu. Southampton vann
stórsigur á Shefficld Wednesday í öðrum
leik liðanna í 8 liða úrslitum í fyrrakvöld
5-1, en leikið var á the Dell, heimavelli
Sonthampton.
Sheffield Wednesday byrjaði leikinn
af krafti, og skoraði fyrsta markið, Peter
Shirtliff eftir hornspyrnu. Peter Shilton
hélt Southampton á floti framan af með
góðri markvörslu, og Steve Williams
jafnaði svo óvænt fyrir Southampton
með glæsiskoti beint úr aukaspyrnu.
Skömmu síðar skoraði Wednesday
sjálfsmark, og síðan hallaði undan fæti
hjá liðinu. Mark Wright skoraði með
skalla þriðja markið, Steve Morgan
fjórða og David Armstrong fimmta.
Þrjú síðustu mörkin komu í síðari hálf-
leik, þá réði Southampton lögum og
lofum á vellinum.
í hinum undanúrslitaleiknum leikur
Watford við þriðjudeildarlið Plymouth
Argyle. Báðir leikirnir verða 14. apríl.
-SÖE
■ FH varð á dögunum íslandsmeistari í stúlknaflokki í innanhússknatt-
spyrnu, en keppt var á Akranesi. Til úrslita léku ÍA og FH, og sigruðu
FH-stúlkurnar í spennandi leik 2-1. Á myndinni er signrlið FH ásamt þjálfara
sínum. Standandi frá vinstri eru Guðrún Ögmundsdóttir, Helga Sigurðardótt-
ir, Sandra Antonsdóttir og Albert Eymundsson þjálfari. Krjúpandi eru Helga
Guðmundsdóttir til vinstri og Sigrún Skarphéðinsdóttir til hægri.
Vfkingsmótið íborðtennis:
GUNNAR OG RAGNHILDUR BEST
■ Gunnar Finnbjömsson Erainum og
Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB vora
best á Víkingsmótinu í borðtennis, sem ,
haldið var í Fossvogsskóla og Laugar-
dalshöll um síðustu helgi. Gunnar sigraði
Stefán Konráðsson Víkingi í æsispenn-
andi leik í úrslitum meistaraflokks karla
2-1, 21-18, 18-21 og 21-19. RagnhUdur
sigraði Ástu Urbancic Eminum í úrsUta-
leik í kvennaflokki 2-1 21-15, 17-21 og
21-12. Þetta var fimmti sigur RagnhUdar
á Víkingsmótinu á jafnmörgum áram.
Úrslit urðu þessi á mótinu:
Mcistaraflokkur karla:
1. Gunnar Finnbjörnsson Erainum,
2. Stefán Konráðsson Víkingi,
34. Tómas Guðjónsson KR.
3.4 Tómas Sölvason KR.
Meistaraflokkur kvenna:
1. Ragnhildur Sigurðardóttír fJMSB,
2. Ásta Urbancic Eminum,
3.4. Sigrún Bjamadóttír UMSB
3.4. Kristín Njálsdóttír UMSB
1. flokkur karla:
1. Kristján Viðar Haraldsson Vfldngi,
2. Bergur Konráðsson Víkingi,
3. Bjarai Bjamason Vflúngi
1. flokkur kvenna:
1. Ehn Eva Grimsdóttír Eminum,
2. Maria Hrafnsdóttír Víkingi,
3.4. Hjördís Þorkelsdóttír Víkingi.
3.4. Gróa Sigurðardóttír Eminum.
2. flokkur karla:
1. Valdimar Hannesson KR,
2. Snorri Briem KR,
3.4. Bjami Hauksson Vfltingi,
3.4. Magnús Þorsteinsson KR.
f 1. flokki karla var hörkukeppni, en
þar voru Víkingar allsráðandi. Jónas
Kristjánsson, punktahæsti maður 1.
flokks fyrir mótið hitti ■ á Berg Konráðs-
son í 2. umferð, og sigraði Bergur
mörgum mjög á óvart 2-1 í mesta
hörkuleik mótsins, 18-21, 25-23 og
21-19, en í oddalotunni hafði Jónas yfir
17-10. í úrslitaleik hittust Kristján og
Bergur og sigraði Kristján 2-1 í hörku-
leik, 19-21, 21-18 og 21-18. -SÖE
Elmar til
Þýskalands
■ Elmar Geirsson, fyrrum
knattspyrnukappi í Fram, Hertha Trier
í V-Þýskalandi og KA er nú á leið til
V-Þýskalands. Ætlar Elmar að taka þátt
í miklum afmælishátiðahöldum í Trier,
og leika þar með gullaldariiði Trier.
Trier er elsta borg Þýskalands, 2000
ára í ár, og verða mikil hátíðahöld þar á
næstunni í tilefni þess. Einn liður í
hátíðahöldum borgarinnar er sá, að lið
Hertha Trier frá 1976 leikur við heims-
meistara V-Þóðverja 1974. Elmar mun
því etja kappi við þá Franz Becken-
bauer, Gerd Múller. Sepp Maier og
fleiri 19. apríl, cn þá á leikurinn að
verða.
Elmar Geirsson lék síðast í íslands-
móti sumarið 1982, þá með KA á
Akureyri. Síðan hefur Elmar æft og
leikið með „old boys“ tiði félagsins.
gk - Akurcyri.
Metin verða
ekki staðfest
■ Allmargir KR-ingar lyftu yfir gild-
andi unglingametum í sínum flokknm í
kraftlyftingum í sveitakeppninni í kraft-
lyftingum um síðustu helgi. Met þessi
fást þó ekki staðfest, þar eð í reglum
kraftlyftinga er, að ekki megi allir þrír
dómarara vera frá sama félagi, sem var
í félagakeppninni.
Einn keppandi hjá KR, Hjalti „Úrsus“
Árnason reyndi að lyfta 342,5 kg í
réttstöðulyftu, en honum mistókst. Sú
þyngd er 2,5 kg meiri en gildandi
heimsmet unglinga.
í sigursveit ÍBA í félagakeppninni
voru Kári Elísson, Freyr Aðalsteinsson,
Víkingur Traustason, Flosi Jónsson, og
Jóhannes Hjálmarsson. { B-sveit KR
sem var í öðru sæti voru Halldór Eyþórs-
son, Viðar Sigurðsson, Matthías Egg-
ertsson, Magnús Steindórsson og Ólafur
Sveinsson. í A-sveit KR sem varð í
þriðja sæti voru Hörður Magnússon,
Hjalti Ámason, Alfreð BjörnssonBirgir
Þorsteinsson og Halldór E. Sigurbjörns-
son.
-SÖE.
Blak í kvöld
■ í kvöld eru tveir leikir í 1. deild
kvenna í blaki. Þróttur og Vöisungur
keppt í íþróttahúsi Vogaskóla klukkan
22.(X), og Breiðablik og Víkingur í
íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi
klukkan 22.00.
- SÖE.
■ Dregið hefur verið í happdrætti
Körfuknattleikssambandsins. Eftirtalin
númer komu upp: 5146,3187,7574,375,
3092, 2715, 2539. Öll hafa númerin í för
með sér utanlandsferð með Samvinnu-
ferðum/Landsýn að verðmæti um 15 >
þúsund krónur.
- SÖE.