Tíminn - 06.04.1984, Qupperneq 2
2
fréttir
FQSJUDAqii^ 6.(.^PRÍ1. 1984
ELDURIAR-
BÆJARKIRKIU
ÞORSKAFUNN LAKARI
í ÁR EN SÍÐASTA ÁR
— þrátt fyrir stórfréttir um gífurleg aflabrögð og fiskgengd
■ l'rátl fyrir stórfréttir af gifurlcguin
allabrögðum og fiskgengd viö vestanvert
landiö cr þorskaflinn og afli annarra
botnfiska heldur lakari í ár en í fyrra, og
var vertíöin þá samt slæm. Halldór
Ásgrínrsson sjávarútvegsráðherra upp-
lýsti á Alþingi í gær, í miklum framhalds-
umræðum um kvútakerfiö, aö botnflsk-
afli togara fyrstu þrjá mánuöi ársins
væri rúm 73 þúsund lestir, en var í fyrra
tæpar 75 þús. Icstir. Þorskafli togaranna
er 40(1 lcstuin lakari í ár en á tímabilinu
jan-mars í fyrra.
I'orskafli bátanna er 12 þús. lestum
minni en í fyrra en þá var hann rúmar 66
þús. lestir, en er rúmar 54 þús. lestir í
ár. Sá afli sem bátarnir hafa veitt, annar
en loðna, er 12 þús. lestum minni en í
fyrra.
Aflaminnkunin er aðallega á Suður-
landi og Reykjanesi en þar kemur á móti
að frá þessum landssvæðum er lang-
stærstur hluti loðnuflotans gerður út.
En fyrstu þrjá mánuðina í ár er
rækjuaflinn 50% meiri en á sama tíma í
fyrra og sama er að segja um hörpudisk.
Þessar bráðabirgðatölur eru frá Fiski-
félagi íslands.
Árni Johnsen hélt því fram að afla
væri hent í stórum stíl og nefndi að allt
að 40% af afla sumra skipa væri hent
fyrir borð þegar um lélegan fisk er að
ræða.
Sjávarútvegsráðherra sagði að ráðuneyt-
ið hefði engar upplýsingar um slíkt
atferli sjómanna og minnti á að slíkt gæti
haft alvarlegar áfleiðingar, m.a. væri
hægt að svipta menn veiðileyfum fyrir að
henda afla, og hefði hann ekki trú á að
slíkt gerðist í miklum mæli.
— kveikt var í rusli
inné í hálfkláraðri
byggingu
■ Elds varð vart í kirkjubyggingu í
Árbæjarhverfi um klukkan liálf níu í
gærkvöldi og var slökkviliðið kvatt á
vettvang. Kveikt hafði veriö í rusli inni
í kirkjuskipinu og lagði mikinn reyk út
um bygginguna scm er enn ekki
fokheld. Tókst fljótlega að ráða niður-
lögum eldsins og þurfti ekki að dæla
vatni inní kirkjuna.
Að sögn Arnþórs Sigurðssonar hafði
verið kveik í einangrunarplasti og
öðru lauslegu drasli og lagði mikinn
reyk frá þessu en engin hætta stafaði af
eldinum. Hjá lögreglunni á Draghálsi
fengust þær upplýsingar að ekkert væri
vitaö um hver ætti sök á þessum eldi
en helst er talið að krakkar hafi kveikt
þarna í.
- b
Aðalfundur
Islands:
HLUTAFE AUKIÐ UM 50%
skipstjóra Karlseyjar
■ Verkfall hefur veriö boðaö frá 11.
apríl n.k. á skipi Þörungavinnslunnar á
Reykhólum, Karlsey, sem notað er til
þangflutninga fyrir verksmiðjuna. Verk-
fallið er boðað af Skipstjórafélagi lslands
fyrir hönd skipstjórans á Karlsey.
Að sögn skipstjórans, Halldórs Stein-
þórssonar, hefur áhöfn Kartseyjar verið
á sérstökum kjarasamningum, en skips-
menn hafa krafist þess að fá aðild að
kjarsamningum sem gilda fyrir áhafnir
flutningaskipa, sem eigendur skipsins
hafa ekki viljað fallast á. Karlsey sagði
hann um 170 tonna skip, sem auk
þangflutninganna annaðist ýmiss konar
aðra flutninga fyrir verksmiðjuna. Taldi
hann því ekki óeðlilegt að sömu kjara-
samningar giltu fyrir áhöfn Karlseyjar
og t.d. fyrir áhöfn flóabátsins Baldurs,
þar sem bæði stærð skipsins og starfsemi
væri nokkuð áþekk. Mun á beinum
launum sagði Halldór ekki mikinn, held-
ur væri um ýmis önnur atriði að ræðá,
sem á milli beri.
Þangskurður stendur yfir mánuðina
maí til október, og er nú unnið að því að
ditta að Karlseynni fyrir sumarúthaldið.
Um 30 manns vinna hjá verksmiðjunni
á þessum háannatíma, sem allir verða
verklausir svo lengi sem samningar nást
ekki miili skipstjórans og viðsemjenda
hans.
-HEI
Fiskveiðibann um páska
nær aðeins til netabátanna
■ Fiskviðibann um páska mun að
þessu sinni aöeins ná til netabáta vegna
tilkomu kvótakerflsins. Sjómenn á neta-
bátum verða nú aö hafa dregið öll net sín
úr sjó kl. 22.00 þann 17. aprfl n.k. og
mega ekki leggja þau á ný fyrr en á
hádegi þann 24. aprfl, samkvæmt reglu-
gerð sem gefin hefur verið út af sjávarút-
vegsráðuneytinu.
Þá hefur sjávarútvegsráðuneytið sett
reglugerð um tvö sérstök línu- og neta-
veiðisvæði út af Suðvesturlandi og Faxa-
flóa þar sem allar veiðar með botnvörpu
og flotvörpu verða bannaðar frá og með
5. apríl til og með 15. maí. Sú undantekn-
ing er þó frá því banni að togveiðar
verða heimilaðar þar þá daga um pásk-
ana sem netaveiðar eru bannaðar, eins
og frá er greint hér að framan.
Framangreind línu- og netaveiðisvæði
eru tvö af þeim þrem svæðum sem
ákveðin hafa verið á undanförnum ver-
tíðum. Reglugerð þessi er sett í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir veiðarfæra-
tjón og árekstra milli línu - og netabáta
annars vegar nog togskipa hins vegar.
-HEI
■ Þannig lítur nýja gámaflutningaskip Sambandsins út.
Sambandið kaupir
gámaf lutningaskip
■ Skipadeild Sambandsins hefur fest
kaup á þýska gámaflutningaskipinu
“Lucy Borchard" og verður það afhent
um miðjan næsta mánuð. Kaupverð þess
er um 78 milljónir króna. Nýja skipið er
fyrsta íslenska kaupskipið, sem útbúið
er sérstökum gámagrindum í lestum,
sem auðvelda allan sjóbúnað og auka
öryggi í vörumeðferð. Skipið verður
notað í áætlunarsiglingar milli íslands og
Evrópu og leysir það af hólmi erlent
leiguskip. 13 manna áhöfn verður á
skipinu og burðargeta þess er 3850 tonn.
-GB
— Hagnaður félagsins á síðasta ári var 97.2 milljónir
■ Hlutal'é Eimskipalélags lslands
verður hækkaö úr 60 milljónum króna í
90 milljónir með útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa. Ákvöröun um þaö var tekin á
aðalfundi félagsins, sem haldinn var í
Reykjavík í gær. Hlutafé Eimskips hefur
því aukist úr 19.5 í 90 milljónir króna á
tveimur árum.
Halldór H. Jónsson stjórnartormaður
Eimskips flutti skýrslu stjórnar og kom
þar fram að hagnaður af rekstri félagsins
var 97.2 milljónir króna á árinu 1983.
Velta félagsins á því ári jókst um 83%
frá árinu á undan og námu heildartekj-
urnar 1750 milljónum króna. Ástæður
þessara góðu rekstrarskilyrða má m.a.
rekja til bættra ytri skilyrða, svo sem
lægra olíuverðs, og til betri nýtingar
Hollustuverndin
fylgir ekki lögum
vegna f jársveltis
— segir í ályktun Heilbrigð-
isfulltrúafélags íslands
■ Aðalfundur Heilbrigðisfulltrúafélags
íslands scm haldinn var fyrir skcmmstu
telur það alvörumál að fjárveitingar til
Hollustuverndar ríkisins séu svo naumar
að hún geti ekki sinnt þeim verkefnum
sem henni eru ætluð lögum samkvæmt
og skorar á heilbrigðis og trygginga-
málaráðherra að beita sér fyrir auknum
fjárveitingum stofnuninni til handa. Þá
er í ályktuninni bent á þá hættu sem því
er samfara að dregið sé úr þeim fjölda
sýna af ncysluvörum sem heilbirðisfull-
trúar landsins telja nauðsynlegt að senda
til gerlarannsókna. Ennfremur er bent á
að framlög til cfnarannsókna séu sáralítil
og aðstaða til þeirra engin innan
Hollustuverndarinnar, þrátt fyrir að
efnarannsóknir séu síst þýðingarminni
við heilbigðiseftirlit en gerlarannsóknir
að mati fundarins. -b.
skipastólsins. Heildarflutningar Eim-
skips á síðasta ári námu 669 þúsundum
tonna og er það 18% aukning frá 1982.
Hafa flutningar félagsins aldrei verið
meiri í tonnum talið.
Halldór sagði í ræðu sinni, að frysti-
flutningar í gámum myndu verða auknir
verulega frá því sem nú er og félagið
hefði því ráðist í kaup á rúmlega 200
frystigámum af nýjustu gerð. Sagði
Halldór, að í náinni framtíð mætti gera
ráð fyrir að 40-50% af frystum fiski yrði
fluttur í frystigámum.
Um verkefni ársins 1984 sagði
Halldór, að 20-21 skip yrðu að jafnaði í
rekstri á árinu, eins og í fyrra. Þá sagði
hann að fjárfestingar félagsins yrðu um-
talsverðar á árinu, og nefndi m.a. kaup
á tveimur nýjum gámaskipum fyrir
Skandinavíusiglingar, byggingu flutn-
ingageymslu fyrir frystan fisk og útvegun
nýs lítils frystiskips.
I lok ræðu sinnar lagði Halldór svo
áherslu á að Islendingar héldu vöruflutn-
ingum fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli, en þeir færu ekki til bandarískra
aðila. Slíkt yrði áfall fyrir samskipti
þjóðanna. -GB
■ Halldór H. Jónsson stjórnarformaður Eimskipafélags íslands flytur skýrslu
stjórnar á aðalfundi félagsins í gær. Hörður Sigurgestsson forstjóri fyrirtækisins hlýðir
á.
Allir verda verklaus-
ir ef ekki semst við