Tíminn - 06.04.1984, Side 10
11
10
BARNALEIKTÆKI
ÍÞRÓTTATÆKI
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESSONAR
Suðurlandsbraut 12. Sími 35810
0 !|! Heilbrigðisfulltrúi
Framlengdur er umsóknarírestur um stöðu heil-
brigðisfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur-
svæðis. Staðan veitist frá 1. maí n.k. Laun
samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og
skyldur fer samkvæmt reglugerð nr. 150/1983
ásamt síðari breytingu. Umsækjendur skulu hafa
lokið háskólaprófi í heilbrigðiseftirliti eða hafa
sambærilega menntun.
Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri
störf sendist fyrir 25. apríl undirrituðum, sem
ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits veitir
nánari upplýsingar.
Borgarlæknirinn í
Reykjavík.
FYRIR FERMINGARNAR
Fjölbreytt úrval af skrifborðum
fyrir unglinga og fullorðna.
Sérstaklega gott verð.
Einnig: Svefnbekkir, 4 gerðir.
Vídeobekkir.
Stereobekkir.
Skrifborðsstólar.
Kommóður.
\
Bó kahilluro.fi.
VfÞ Húsgögn og
wX ^ . Suðurlandsbraut 18
^M^+.innrettmgar simi se 900
Wímhm
FÖSTUOAGUR 6. APRÍL 1981
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1981
■ Cíarðar JohannsMiu hrirliði KK
hampar bikarnum glaður i bragði.
Garðar átti frábæran Itik i gxr,
skoraði mikið og tók mörg fráköst.
Það var Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra, heiðursgestur á
leiknum ásamt konu sinni, Kddu
Guðmundsdóttur, sem afhenti bikar-
inn og leikmönnum verðlaunapen-
inga.
Timamvnd Kóbert
íþróttir
umsjón: Samúel Om Erlingsson
Von á hundrað
- útlendingum í Hraungönguna
■ Um næstu helgi fer fram í Bláfjöllum Lava
Loppet skíðagangan, sem er alþjóðleg skíða-
göngukeppni. Von er á um 100 útlendingum til
landsins til að taka þátt í göngunni.. Koma þeir
víðsvegar að svo sem frá Hollandi, Noregi,
Svíþjóð, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Austur-
ríki og fleiri löndum.
Einnig kemur hingað til lands hinn kunni
norski göngumaður hér á árum áður, Harald
Grönningen, en hann var á áratugnum 1960-
1970 margfaldur gull og silvurverðlaunahafi á
Ólympíuleikum og heimsmeistarakeppnum.
Nú tekur hann þátt í almenningsgöngum á borð
við Lava Loppet.
-BL
Höttur réði Emil
■ Höttur á Egilsstöðum hefur ráðið þjálfara
fyrir meistaraflokk sinn í fjórðu deild knatt-
spyrnunnar næsta sumar. Sá er Emil Björnsson,
íþróttakennari og þjálfari.
Emil er kunnur þjálfari eystra, þjálfaði í
fyrra lið UMSB, sem nærri tókst að hnekkja
margra ára einveldi Leiknis frá Fáskrúðsfirði á
sæti í úrslitakeppni 4. deildar. Þá hefur Emil
þjálfað og stjórnað körfuknattleiksliði ÍME í
úrslit 2. deildar í körfuknattleik nokkur ár í röð.
Þá hefur Höttur ráðið yngri flokka og
kvennaflokksþjálfara. Sá er Jón Þór
Brandsson, ættaður úr FH í Hafnarfirði.
-SÖE
Berlin og Dresden
- berjast um a-þýska titilinn
■ Dynamo Berlin og Dynamo Dresden eru
nú sigurstranglegust í a-þýsku knattspyrnunni.
Dynamo Berlín vann um helgina góðan sigur á
Karl Marx Stadt, 4-2, en Dresden gerði marka-
laust jafntefli við Halle.
Berlínarliðið hefur nú 30 stig að loknum 20
leikjum, en Dresdenarliðið hefur 29 stig. Næst
á eftir koma Lokomotiv Leipzig með 26 stig,
Vorwárts Frankfurt og Magdeburg hafa 25 stig
og Karl Marx Stadt 24.
-SÖE
Fallkeppni
2. deildar lokið
■ Fallkeppninni í 2. deild karla í handknatt-
leik er lokið. í síðustu tveimur leikjum í
fyrrakvöld vann Fylkir Reyni 28-21, og HK
sigraði ÍR 27-26.
Lokastaðan varð þessi í neðri hlutanum:
HK............... 26 14 1 11 522-507 29
Fylkir........... 26 8 4 14 484-510 20
ÍR .............. 26 8 0 18 491-541 16
ReynirS.......... 26 5 1 20 553-654 11
ÍR og Reynir falla því í 3. deild, en upp í 2.
deild koma í staðinn Ármann og Þór frá
Akureyri.
-SÖE
England vann
■ England vann N-írland í leik í Bretlands-
keppninni í knattspyrnu í fyrrakvöld. Úrslit
urðu 1-0, en leikið var á Wembley. Tony
Woodcock skoraði sigurmark Englendinga.
Þá töpuðu írar fyrir ísraelsmönnum í vináttu-
landsleik í Tel Aviv í fyrrakvöld, 0-3.
Valsmenn áfram!
■ Valsmenn sigruðu Hauka 34-25 í Bikar-
keppni HSÍ í handknattleik karla í fyrrakvöld.
Leikurinn fór fram í kyrrþey í Hafnarfirði.
-SÖE
YFIRVEGAÐUR LEIKUR
— og frábær hittni færdu KR-ingum bikarmeistaratitilinn
— sigruðu Val 94-79
Stórleikur KR-inga gegn Vals-
mönnum í gærkvöld dugði þeim til sigurs
í bikarkeppni KKÍ 1984. Munurinn 15
stig í lokin, 94-79 lýsir góðum leik
KR-inganna, sem komu Valsmönnum í
opna skjöldu með baráttu sinni og
yfirvegun. KR-ingar höfðu yfir á hálfleik
46-42.
Hittni leikmanna í upphafi leiksins
var ekki góð enda mikið í húfi. Eftir 5
mínútna leik voru KR-ingar komnir 6
stig yfir 12-6. Á 11. mínútu komust
Valsmenn síðan yfir 24-23 og það sem
eftir lifði af hálfleiknum var staðan
oftast jöfn. Ásíðustu mínútuhálfleiksins
færðist mikill fjörkippur í KR-ingana og
þeir tryggðu sér fjögurra stiga forskot
fyrir leikhlé, með góðum körfum. En það
var aðeins forsmekkurinn af því sem
þeir sýndu í síðari hálfleiknum. Strax á
upphafsmínútunum náðu þeir 10 stiga
forskoti 56-46. Villuvandræði Kristjáns
Ágústssonar bættu ekki úr skák fyrir
Valsmönnum, en þó tókst þeim að
minnka muninn í eitt stig á 10. rnínútu,
58-57. Frábær hittni KR-inga og góð
leikstjórn Jóns Sigurðssonar, ásamt
mikilvægum fráköstum Kristjáns Rafns-
sonar færðu KR-ingum góða forystu á
nýjan leik. Forystu sem þeir héldu út
leikinn og bættu heldur við hana en hitt.
Valsmenn reyndu pressuvörn í lokin, en
KR-ingar færðu sér hana í nyt og
brunuðu fram hjá henni og skoruðu úr
hraðaupphlaupum. Þegar ekki var
möguleiki á hraðaupphlaupi, róaði Jón
Sigurðsson leik KR-liðsins niður og lét
tímann vinna mcð liði sínu. Þegar KR-
ingar höfðu haldið kncttinum í um 20
sekúndur, tók Jón til sinna ráða og gaf
frábærar sendingar á samherja sína sem
varla gátu annað cn skorað úr skotum
sínum. 15 stiga munur í lokin, 94-79, og
KR-ingar bikarmeistarar í körfuknatt-
leik 1984.
Jón Sigurðsson var yfirburða maður
á vellinum og stjórnaði sóknarleiknum
af sinni alkunnu snilld, hirti fráköst og
leik samherja sína uppi. Kappinn hitti
einnig gríðar vel, eins og allir leikmenn
KR-liðsins, að Kristjáni Rafnssyni
undanskildum, en hann var afar óhepp-
inn með skot sín. Kristján átti samt
stórleik, hirti alls 14 fráköst, flest á
lokamínútunum þegar mest reið á.
Kristján var og góður í vörninni, truflaði
valsmennina mikið og stal kncttinum af
þeim. Garðar Jóhannsson átti frábæran
leik, hitti vel og tók slatta af fráköstum.
Guðni Guðnason átti líka góðan leik og
Ágúst Líndal brenndi aðeins af einu
skoti í leiknum og skoraði 10 stig. Páll
Kolbeinsson var einnig frískur og skor-
aði margar glæsilegar körfur.
Valsmenn vilja áreiðanlega gleyma
þessum leik sem allra fyrst. Þó þurfa þeir
ekki að skammast sín að tapa fyrir
KR-ingunum, sem léku í gærkvöldi sinn
lang besta leik í vetur. Það var helst Jón
Steingrímsson, sem lék af eðlilegri getu,
en aðrir voru nokkuð frá sínu besta.
Stig KR skoruðu: Garðar Jóhannsson 24,
Jón Sigurðsson 21, Páll Kolbeinsson 16,
Guðni Guðnason 15. Ágúst Líndal 10, og
þeir Birgir Guðbjörnsson og Kristján Rafns-
son skoruðu 4 stig hvor.
Stig Vals skoruðu: Jón Steingrímsson 19,
Torfi Magnússon 15, Tómas Holton 12,
Leifur Gústafsson 11, Kristján Ágústsson 10,
Jóhannes Magnússon 10, og Valdemar Guð-
laugsson 2.
Dómarar í leiknum voru þeir Davíð
Sveinsson og Gunnar Valgeirsson. Davíð
dæmdi mjög vel, en Gunnar var fremur
slakur. Lítils samræmis gætti í dómum hans
og smámunasemin var heldur mikil.
-BL
„SAMSTÆÐUR HÓPUt HAUKASIQPUR
k BAKIKSSUM SKRf' MEISTARAR!
gódur endir á góðum vetri, sagði Jón Sigurðsson — unnu hið reynda lið ÍS 69-57
■ „Ástæðan fyrir því að við náðum
þessum áfanga, að verða bikarmeistarar
í kvöld er fyrst og fremst sú, að hópurinn
er mjög samstæður hjá okkur, menn
hafa lagt sig í þetta, og spila hver fyrir
annan. Enginn reynir að gera meira en
hann getur, við byggjum á því sem við
kunnum og getum," sagði Jón Sigurðs-
son þjálfari og leikmaður KR eftir sigur
KR-inga á Valsmönnum í úrslitum
bikarkeppni KKÍ. „Við vissum í upphafi
þessa keppnistímabils, að við ættum á
brattann að sækja, það var ekki búist við
miklu af liðinu. Því hugsuðum við bara
um einn leik í einu, og reyndum að gera
eins vel og við gátum," sagði Jón.
Og Jón Sigurðsson getur verið ánægð-
ur. Frábær leikur hans og liðsstjórn
sprakk út í gærkvöldi á fjölum Laugar-
dalshallarinnar, og útkoman varð besti
leikur sem KR hefur leikið í vetur. Hver
einasti maður skilaði sínu á vellinum, og
yfirvegunin og hittnin á erfiðum loka-
mínútum leiksins var stórkostleg. Liðið
óx með hverri mínútu, og um leið og
liðið varði forskot sitt, bætti það við í
stigasafnið. Jafnvel yngstu og óreynd-
ustu leikmenn liðsins hittu úr næstum
hverju skoti í lokin.
„Þetta var góður endir á góðum vetri,
ég er mjög ánægður," sagði Jón Sigurðs-
son að lokum, og láir honum enginn.
- SÖE
■ Ungu stclpurnar í Haukum úr Hafn-
arfirði urðu í gærkvöld bikarmeistarar í
körfuknattleik. Þær sigruðu nýbakaða
íslandsmeistara ÍS í úrslitaleik, 69-57,
eftir að hafa haft yfir 35-28 í hálfleik.
Haukastelpurnar voru lengst af yfir í
leiknum. Þær náðu forskoti fljótt, og
hcldu því til hálfleiks. ÍS jafnaði um
niiðjan síðari hálflcik, en síðan sigu
Hafnarfjarðarsnötirnar fram úr að nýju.
Sóley Indriðadöttir var langbest Hauka,
skoraði grimmt og tók fráköst.
Stigin: Haukar: Sóley 32, Svanhildur
Guðlaugsdóttir 16, Sólveig Pálsdóttir
12, Anna Guðmundsdóttir 7, Ásta Ósk-
arsdóttir 2. ÍS: Kolbrún Leifsdóttir 20,
Ragnhildur Steinback 10, Hanna Birgis-
dóttir 10, Kristín Magnúsdóttir 9, Þór-
unn Rafnar 4, Þórdís Anna Kristjáns-
dóttir 4. -SÖE
■ Svanhildur Guðlaugsdóttir fyrirliði Hauka tckur við bikarnum úr höndum Einars
Bollasonar. Tímamynd Róbert
■
Atla skórnir
komnir á
markadinn
■ Eins og skýrt var frá í Tímanum fyrr
í vetur, gerði stórfyrirtækiö Puma, sem
framleiðir íþróttavörur.samning við Atla
Eðvaldsson um að selja íþróttavörur
með nafni hans. Slíkt hefur tíðkast lengi
hjá Pumafyrirtækjunum og fleiri stórfyr-
irtækjum á sömu línu, og eingöngu mjög
frægir íþróttamenn sem hafa tekjur af
slíkum auglýsingasamningum.
Puma ætlar að framleiða þrjár gerðir
af íþróttaskóm, og íþróttabúninga með
nafni Atla. Nú eru knattspyrnuskór með
nafni Atla komnir hingað til lands, Atli
goal, en það útleggst á íslensku sem Atli
mark. Að sögn Ingólfs Óskarssonar,
umboðsmanns Puma á Islandi er um
vandaða vöru að ræða.
Ingólfur sagði, að hann teldi ekki að
Atli hefði svimandi tekjur af því að
auglýsa fyrir Puma, en hins vegar væri
mikill heiður fyrir íslenskan íþróttamann
að vera boðinn slíkur samningur, Atli
væri fyrsti íslendingurinn sem gert hefði
slíkan samning.
-SÖE
Auglýsingamynd fyrir Atla skóna.
gjöftn sem gefiirarö