Tíminn - 06.04.1984, Síða 13
FOSTUDAGUR 6. APRÍL 1984
13
umsjón: B.St. og K.L.
Hljómsveitin frumflutti verk eftir ung-
an listamann Hauk Tómasson. Pað var
stórkostlega skemmtilegt, minnti mig á
raddir náttúrunar í maí og júní þá
grösin gróa og blómin brosa á móti
sólargeislunum.
Ætli hljómlistin sé æðst alira
lista, eilíf eins og mannssálin -
í hvaða búningi sem hún skartar?
Um sauðburðinn gekk faðir minn til
anna oft kvölds og morgna. Ég fór
stundum með honum. Er við vorum
búin að reka ærnar úr engjunum upp í
skógarjaðarinn settumst við niður á mosa-
þúfur í Stekkjartúninu áður en farið yrði
heim. Þarna var kyrrlát stund og kær-
komin hvíld eftir rölt um mosaþentbur
og mýrarkeldur. Hér áttu mófuglarnir
hreiður: spóinn, lóan, hrossagaukurinn,
jaðrakinn, krían, þrösturinn og rjúpan í
kjarrinu ofl. fuglar „æfðu lögin undir
konsert morgundagsins" eins og Tómas
kemst svo skemmtilega að orði.
Golan hvíslaði í ilmandi björkinni,
litli fossinn niðaði í gilinu, ærnar jörm-
uðu á lömbin. Stundum heyrðist hestur
hneggja og kýr baula. Frá vatninu hljóm-
aði söngur álfta, himbrima og lóma.
Þessir stóru og fögru fuglar settu svip
sinn á vatnið og umhverfi þess og raddir
þeirra voru uppistaðan í hljómkviðu
náttúrunnar.
Allstaðar var líf, störf og söngur,
ekkert truflaði þennan fagra samhljóm.
Allt var áhugavert, sólskinið, hlýjan
og að hlusta í kyrrðinni. „Hljómlistin
lýsir því sem maður hvorki getur sagt né
þagað yfir'. V. Hugo.
Ætli hljómlistin sé æðst allra lista, eilíf
eins og mannssálin í hvaða búnaði sem
hún skartar?
Og þó það er erfitt að dæma. Ég held
að öll sköpun sé tengd hver annarri,
kraftur, sem sprcngir af sér alla fjötra,
fær útrás með tjáningu í margskonar
myndum.
Nú kom á daginn það sem mig grunaði
þegar ég fór að heiman. ísl. óperan
ætlaði að flytja Rakarann í Sevilla á
föstudagskvöldið. Ég hafði orð á því, að
gaman væri að sjá þetta skemmtilega
verk og áður en ég vissi af var yngri
sonur minn Guðmundur búinn að fá
miða. Og sannarlega varð ég ekki fyrir
vonbrigðum.
Röktum ofan af hnoðanu
í orði og verki
Mágkona mín Aðalbjörg hafði hringt
og sagt að ef ég kæmi í bæinn yrði
saumaklúbbur fyrir okkur systur hjá
henni á laugardeginum. Þær systur mín-
ar og mágkona sem búa í bænum hafa
þann háttinn á að hittast í saumaklúbb
hver hjá annarri þriðju hverja viku yfir
vetrartímann og við sem búum utanbæj-
ar erum velkomnar í hópinn þegar við
erum á ferð og alltaf þykir okkur jafn
gaman að hittast. Mættum við sex syst-
urnar í þetta sinn, tvær gátu ekki komið.
Þarna röktum við ofan af hnoðanu góða
stund bæði í orði og verki og síðan var
drukkið súkkulaði og kaffi með góðri
lyst.
Á sunnudeginum voru málverkasýn-
ingar Hrings Jóhannessonar á dagskrá
og miðdagskaffi hjá yngstu systur minni
Svanlaugu. Og satt aðsegja var þetta allt
eins og ég hefði dottið í lukkupottinn,
svo ánægjulegir voru þessir fjórir dagar
sem ég dvaldi í borginni í þetta sinn.
Á mánudeginum fór ég með rútu á
Selfoss og þaðan með bíl heim.
Daginn eftir ljómaði sólin yfir fann-
breiður sjóndeildarhringsins: Búrfellið,
lngólfsfjallið, Hengillinn, Esjan, Botns-
súlur og Kálfstindar jafnvel roðnuðu í
vöngum.
Birkið í garðinum mínum hjúpað
hrímkristöllum glitraði í regnboga litum
og snjótittlingarmr hópuðust í skaflinn
í leit að korni og brauðmolum.
Krummi sat á hesthúsburstinni og
krunkaði hundinum Bokka til ánægju.
Við eigum ríka og gjöfula fóstru en
við skulum einnig krefjast nokkurs af
okkur sjálfum. Ég ber fullt traust til
stjórnvalda að þeim auðnist að leysa
vandamál þjóðarinnar hverju sinni af
skilningi, réttlæti og mildi.
dagskrá útvarps og sjónvarps
Laugardagur
7. apríl
7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bœn. Tónleikar.
Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tón-
leikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Amtriður Guðmundsdóttir tal-
ar.
8.30 Fomstugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephen-
sen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregn-
ir). Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Hrimgrund - Utvarp bamanna. Stjórn-
andi: Sigriður Eyþórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.40 iþróttaþáttur Umsjón: Hermann Gunn-
arssoni
14.00 Listalif Umsjón: Sigmar B. Hauksson.
15.10 Listapopp-GunnarSalvarsson. (Þátt-
urinn endurtekinn kl. 24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál Ásgeir Blöndal Magnús-
son sér um þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón: Einar
Kari Haraldsson.
17.00 Síðdeglstónleikar
18.00 Ungir pennar Stjómandi: Dómhildur
Sigurðardóttir (RÚVAK).
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Helmaslóð. Ábendingar um ferðaleiðir.
Umsjón: Ari Trausti Guðmundsson.
20.00 Fritz Wunderllch syngur lög úr óper
ettum með Sinfóníuhljómsveit Graunkes
Carl Michalski stj.
20.20 Útvarpssaga barnanna: „Dýrin
Rósalundi" eftir Jennu Jensdóttur Þór-
unn Hjartardóttir les.
20.40 Fyrir minnihlutann Umsjón: Árni
Björnsson.
21.15 Á sveitalínunnl Þáttur Hildu Torfadótt-
ur, Laugum í Reykjadal (RÚVAK).
22.00 „Gunnhildurbúrkona“,smásagaeftir
Verner von Heidenstam í þýðingu Helga
Hjörvar. Edda Bjarnadóttir les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passíusálma (41).
22.40 Harmonikuþáttur Umsjón: Bjarni Mar-
teinsson.
23.10 Létt sigild tonlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
8. apríl
8.00 Morgunandakt Séra Fjalarr Sigurjóns-
son prófastur á Kálfafellsstað flytur ritning-
arorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög Strauss-hljómsveitin í
Vínarborg leikur lög eftir Johann Strauss.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls Jóns-
sonar.
11.00 Messa f Akraneskirkju. (Hljóðrituð 25.
mars s.l.). Prestur: Séra Bjöm Jónsson.
Organleikari: Jón Ólafur Sigurðsson. Há-
degistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Vikan sem var Umsjón: Rafn Jónsson.
14.15 Gullöldin f goðsögnum og ævintýr-
um Umsjón: Hallfreður Öm Eiriksson. Les-
arar með umsjónarmanni: Sigurgeir
Steingrimsson og Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir.
15.15 í dægurlandi Svavar Gests kynnir tón-
list fyrri ára. I þessum þætti: Upphaf dæguri-
agasöngs á hljómplötum.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Umvísindiogfræði.Örverurognýting
þeirra í líftækni. Guðni Alfreðsson dósent
flytur sunnudagserindi.
17.00 Frá tónleikum Kammersveitar
Reykjavikur í Bústaðakirkju 1. þ.m.
17.45 Erika Köth og Rudolf Schock syngja
lög eftir Gerhard Winkler.
18.00 Um fiska og fugla, hunda og ketti og
fleiri fslendlnga Stefán Jónsson talar.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Bökvit Umsjón: Jón Ormur Halldórs-
son.
19.50 „Segðu mér leyndarmál, svanur",
Ijöð eftir Sigurð Einarsson í Holti Arnar
Jónsson les.
20.00 Útvarp unga fólksins Stjórnandi: Mar-
grét Blöndal (RÚVAK).
20.40 Úrslitakeppni 1. deildar karla í hand-
knattleik Hermann Gunnarsson lýsir frá
Laugardalshöll.
21.15 Kristinn Slgmundsson syngur úr
„Söngbók Garðars Hólm“ eftir Gunnar
Reyni Sveinsson við Ijóð Halldórs Laxness.
Jónína Gísladóttir leikur á pianó.
21.40 Útvarpssagan: „Syndln er lævís og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur les
(9)-
2215. Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins. Hermann Gunn-
arsson lýsir frá Laugardalshöll.
23.05 Djassþáttur - Jón Múli Ámason.
23.50 Fréttir. Dagskráriok.
Mánudagur
9. apríl
7.00 Veðuriregnir. Fréttir. Bæn. Guðlaug
Helga Ásgeirsdóttir flytur (a.v.d.v.) A
virkum degi - Stefán Jökulsson - Kol-
brún Halldórsdóttir - Kristín Jónsdóttir.
7.25 Leikfimi. Jónína Benediktsdóttir
(a.v.d.v.)
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð-
Helgi Þorláksson talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis
Karlsson" eftir Maríu Gripe Þýðandi:
Torfey Steinsdóttir. Sigurlaug M. Jónas-
dóttir les (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10-10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.). Tón-
leikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum
árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Signýjar
Pálsdóttur frá fimmtudagskvöldi
(RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Blue-grass og dixieland-tónlist
14.00 „Litríkur og sérkennilegur Svii -
Fabian Mánson“ eftir Fredrik Ström í
endursögn og þýðingu Baldvins Þ. Krist-
jánssonar sem les (3).
14.30 Miðdegistónleikar
14.45 Popphólfið - Sigurður Kristinsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir
16.20 Síðdegistónleikar
17.10 Síðdegisvakan Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Borgþór S. Kjærnested.
18.00 Visindarásin Þór Jakobsson ræðir
við Guðna Alfreðsson dósent og Jakob
Kristjánsson lifefnafræðing um örverur
og líftækni.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar
19.35 Daglegt mál. Sigurður Jónsson talar.
19.40 Um daginn og veginn Þorsteinn
Matthiasson fyrrverandi skólastjóri talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn J.
Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Bjarndýr á Trölla-
skaga Bragi Magnússon tekur saman
frásöguþátt og flytur. b. Huldumanns-
steinn í Reykjavík Ævar R. Kvaran
leikari les frásögn úr bókinni „Álög og
bannhelgi" eftir Árna Óla. Umsjón: Helga
Ágústsdóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigurbjörns-
son kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er lævís og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur
les (10).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Lestur Passíusálma (42).
Lesari: Gunnar J. Möller.
22.40 Leikrit: „Bókmenntir" eftir Arthur
Scnitzler (Áður útv. 1967). Þýðandi:
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi. Leik-
stjóri: Ævar R. Kvaran. Leikendur: Herdís
Þorvaldsdóttir, Gunnar Eyjólfsson og
Baldvin Halldórsson.
23.20 „Einu sinni var", leikhústónlist op.
25 eftir Peter Erasmus Lange-Múller.
Willy Hartmann syngur með kór og
hljómsveit Konunglega leikhússins I
Kaupmannahöfn; Johan Hye-Knudsen
stj.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
10. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Sigurðar Jónssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð
- Unnur Halldórsdóttir talar.
9.00 Fréttir
Laugardagur
7. apríl
15.30 fþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
16.15 Fólk á förnum vegi 21. Sumarleyfi.
Enskunámskeið í 26 þáttum.
16.30 iþróttir - framhald.
18.10 Húsið á sléttunnl - Eldsvoðinn - fyrri
hluti. Bandarískur framhaldsmyndaflokkur.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
18.55 Enska knattspyrnan. Umsjónarmaður
Bjami Felixson.
19.45 Fréttaégríp á táknmáll.
20.00 Fréttlr og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Vlð faðginin. Áttundi þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur i þrettán þáttum. Þýð-
andi Þrándur Thoroddsen.
21.05 Blelki pardusinn snýr aftur (The Pink
Panther Strikes Again). Bresk gamanmynd
frá 1976. Leikstjóri Blake Edwards. Aðal-
hlutverk: Peter Sellers, Herbert Lom, Colin
Blakely og Leonard Rossiter. Clouseau lög-
reglufulltrúi fer að vitja um Dreyfus, fyrrum
yfirmann sinn, sem dvelst á geðveikrahæli.
Hanngrunarsist hvaða ósköpum þessi sak-
lausa heimsókn á eftir að valda en slysast til
að ráða fram úr þeim eins og fym daginn.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
22.45 Tólf ruddar (The Dirty Dozen)
Bandarisk-spænsk biómynd frá 1967. Leik-
stjóri Robert Aldrich. Aðalhlutverk: Lee Mar-
vin, Emest Borgnine, Robert Ryan, Charles
Bronson, Jim Brown og John Cassavetes.
Myndin gerist i heimsstyrjöldinni síðari.
Nokknrm bandariskum hermönnum, sem
dæmdir hafa verið til þyngstu refsingar,
býðst sakamppgjöf gegn þvi að taka þátt í
háskalegum aðgerðum að baki víglínu Þjóð-
verja. Þýðandi Jón O. Edwald. Myndin er
ekki við hæfi bama.
01.15 Dagtkráriok.
Sunnudagur
8. apríl
18.00 Sunnudagthugvekja Jóhanna Sig-
marsdóttir, forstöðukona dvalarheimilisins
Hrafnlstu í Reykjavík, flytur.
18.10 Stundin okkar Umsjónarmenn: Ása H.
Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson.
S$óm upptöku: Tage Ammendmp.
19.05 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáii.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýtingar og dagtkrá.
20.40 Sjónvarp næstu vlku. Umsjónarmaður
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
21.00 Nikuláa Nlckleby. Þriðji þáttur. Leikrit i
nfu þáttum gert eftir samnefndri sögu Char-
les Dickens. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.55 Otcar Peteraon. Kanadisk heimilda-
mynd um djasspíanóleikarann og tónsmið-
inn heimsfræga, Oscar Peterson. I mynd-
inni rifjar Peterson upp minningar frá æsku
sinni og listamannsferii, samferðamenn
segja frá og brugðið er upp svipmyndum frá
hljómleikum meistarans. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
23.00 Dagakráriok.
Mánutjagur
> 9. apríl
19.35 Tommi og Jenni Bandarisk teikpi-
mynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 (þróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son. ,
21.20 Enn lætur Dave Allen móðan mása
Breskur skemmtiþáttur. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson
22.15 Ferðin gleymda (The Forgotten Voy-
age) Bresk sjónvarpsmynd. Elaine Morg-
an færði í leikbúning. 'Umsjón og leik-
stjóm: Peter Crawford. Aðalhlutverk: Tím
Preece. Ungur, sjálfmenntaður náttúru-
fræðingur tekst á hendur könnunarferð
. um eyjar Austur-lndía árið 1854. Hann
hét Alfred Russel Wallace. Eftir nokkurra
ára rannsóknir ritaði hann Charles Dar-
win um niðurstöður sinar og varð það
Darwin hvatning til að gefa út „Uppruna *
tegundanna". I myndinni er ferill þessa
' vanmetna brautryðjanda i náttúruvisind-
um settur á svið og stuðst við bref hans
og dagbækur. Þýðandi Sonja Diego.
23.40 Fréttir i dagskrárlok
r
Þriðjudagur
10. apríl
19.35 Hnáturnar Breskur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi Þrándur Thoroddsen,
Sógumaður Edda Björgvinsdóttir.
19.45 Fréttir á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Fornleifafundur í Suður-Kóreu
Stutt bresk fréttamynd. Þýðandi Bjarni
Gunnarsson.
20.45 Lifið í Beirút Bresk fréttamynd tekin
i Libanon eftir að vopnahlé komst á.
Þýðandi Pálmi Jóhannesson.
21.15 Skarpsýn skötuhjú 10. Maðurinn i
þokunni Breskur sakamálamyndaflokk-
ur í ellefu þáttum gerður eftir sögum
Agöthu Christie. Þýðandi JónO. Edwald.
22.05 Öryggismál sjómanna Umræðuþátt-
ur. Þátttakendur: Guðlaugur Friðþórs-
son, skipbrotsmaður frá Vestmannaeyj-
um, Hannes Þ. Hafstein, framkvæmda-
stjóri SVFÍ, Magnús Jóhannesson settur
siglingamálastjóri. Þórhallur Hálfdánar-
son, starfsmaðursjóslysanelndarog Árni
Johnsen alþingismaður. Umræðum stýrir
Ingvi Hrafn Jónsson. Sjóslysin á þessum
vetri eru í fersku minni. Seinast fórst
vélbáturinn Hellisey við Vestmannaeyjar
með fjórum mönnum 12. mars. örygg-
ismál sjómanna eru því venju fremur i
brennideplí. Grundvallarspurningin í
þessum þætti verður sú, hvað helst megi
gera til að afstýra ósigrum i glímunni við
Ægí.
23.00 Fréttir i dagskrárlok
Miðvikudagur
1 H.april
18.00 Söguhomið. Fiskur á diskinn
Jenna Jónsdóttir flytur eigin frásögu.
Umsjónarmaður Hrafnhildur Hreinsdóttir.
18.10 Afi og bíllinn hans 1. þáttur. Teikni
myndaflokkur frá Tékkóslóvakiu í sjö
þáttum.
18.20 Tveir litlir froskar 1. þáttur. Teikni-
myndaflokkur frá Tékkóslóvakiu í sjö
þáttum. Þýðandi Jón Gunnarsson.
18.25 Elgurinn Bresk dýralifsmynd tekin á
slóðum elgsdýra í Bandarikjunum. Þyð-
andi: Jón O. Edwald. Þulur: Þuríður
Magnúsdóttir.
18.55 Fólk á förnum vegi. Endursýning
21. Sumarleyfi Enskunánpskeið I 26
þáttum.
19.10 Hlé
19.45 Fréttaágrip á tákrimáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýslngar og dagskfa \
20.40 Nýjasta tækni og visindi Umsjón-'
armaður Sigurður H. Richter.
21.20 Synir og elskhugar. Þriðji þáttur
Framhaldsmyndaflokkur í sjö þáttum frá
breska sjónvarpinu. sem gerður er eftir
samnefndri sögu eftir D.H. Lawrehce.
Þýðapdi Veturliði Guðnason.
22.15 Ur safni Sjónvarpsins. Fljótsdals-
hérað Sjónvarpsdagskrá frá sumrinu
1969. Kvikmyndun: Öm Harðarson.
Umsjón: Eíður Guðnason.
23.10 Fréttir í dagskrárlok
9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis
Karisson“ eftir Maríu Gripe Þýðandi:
Torfey Steinsdóttir. Sigurlaug M. Jónas-
dóttir les (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr).
10.45 „Man ég það sem löngu leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um þáttinn.
11.15 Við Pollinn Ingimar Eydal velur og
kynnir létta tónlist (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Dire Straits á tónleikum 1983 /
Grace Jones syngur
14.00 „Litríkur og sérkennilegur Svíi -
Fabian Mánsson" eftir Fredrik Ström í
endursögn og þýðingu Baldvins Þ. Krist-
jánssonar sem lýkur lestrinum (4).
14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir
16.20 Íslensktónlist
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét
Ólafsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir.
20.00 Barnalög
20.10 Glefsur. Um Tómas Guðmundsson
og Ijóð hans. (Áður útv. 1982). Umsjón-
armaður: Sigurður Helgason. Flytjandi
með umsjónarmanni: Berglind Guð-
mundsdóttir.
20.40 Kvöldvaka a. Almennt spjall um
þjóðfræði Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson
tekur saman og flytur. Að þessu sinni er
fjallað um framliðna og afturgengna og
þjóðtrú tengda þeim. Fanga er m.a.
leitað í Njálu, Laxdælu og fleiri forn-
sögum. b. Karlakór Reykjavíkur syng-
ur Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Jón Þ. Þóf.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er lævís og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur
les (11).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Lestur Passíusálma (43).
22.40 Kvöldtónleikar „Manfred-sinfónía"
eftir Pjotr Tsjaíkovský. Hljómsveitin Fíl-
harmónia I Lundúnum leikur; Riccardo
Myti stj. -Kynnir: Knútur R. Magnússon.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
11. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð
- Bjarni Guðráðsson, Nesi, Reykholtsdal
talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis
Karlsson" eftir Maríu Gripe Þýðandi:
Torfey Steinsdóttir. Sigurlaug M. Jónas-
dóttir les (8).
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.10 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja
11.15 Ur ævi og starfi íslenskra kvenna
Umsjón: Björg Einarsdóttir
11.45 íslenskt mál Endurt. þáttur Ásgeirs
Blöndals Magnússonar frá laugard.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 „Hálft í hvoru“, „Afturhvarf“ og
Barbara Helsingius leika og syngja
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Eg-
ilssonar; seinni hluti Þorsteinn Hann-
esson byrjar lesturinn.
14.30 Miðdegistónleikar
14.45 Popphólfið - Jón Gústafsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 S/ðdegistónleikar Fílharmóníusveit-
in í Osló leikur Pólonesu nr. 2 op. 28 eftir
Johan Svendsen; Kjell Ingebretsen stj. /
Hljórr.sveitin „Harmonien" I Bergen
leikur Sinfóníu í c-moll eftir Edvard
Grieg; Karsten Andersen stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Snerting Þáttur Arnþórs og Gisla
Helgasona.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét
Ólafsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir
20.00 Barnalög
■20.10 Ungir pennar Stjórnandi: Hildur
Hermóðsdóttir
20.20 Útvarpssaga barnanna: „Veslings
Krummi“ eftir Thöger Birkeland Þýö-
andi: Skúli Jensson. Einar M. Guð-
mundsson byrjar lesturinn.
20.40 Kvöldvaka a. „Móðrudalsprestur-
inn“ Sigríður Rafnsdóttir les íslenska
þjóðsögu. b. Hvernig er höfuðborgin í
hátt? Eggert Þór Bernharðsson les úr
bókinni „ísland um aldamótin. Ferða-
saga sumarið 1899“ eftir Friðrik J.
Bergmann prest í Vesturheimi.
21.10 Hugo Wolf-2. þáttur: „Mörikeljóð-
in“ Umsjón: Sigurður Þór Guðjónsson.
Lesari: Guðrún Svava Svavarsdóttir.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er lævís og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur
les (12).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Lestur Passiusálma (44).
22.40 í útlöndum Þáttur í umsjá Emils
Bóassonar og Ragnars Baldurssonar.
23.20 íslensk tónlist Sinfónkihljómsveit
Islands leikur „Ólaf Liljurós", balletttónlist
eftir Jórunni Viðar; Páll P. Pálsson stj.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok