Tíminn - 18.04.1984, Qupperneq 1

Tíminn - 18.04.1984, Qupperneq 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miövikudagur 18. apríl 1984 ; 93. tölublað 69. árgangur Siðumúla 15—Posthólf 370 Reykjavik—Ritstjorn86300-Auglysingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Ársfundur Seðlabankans: „BANKARGETA EKN BUST V» HÆKKUN ÚHÁNSVAXTA" l — sagði Jóhannes Norðdal, meðal annars í setningarræðu, ■ „Seðalbankinn mun ekki skipta sér af því, hvaða vexti innláns- stofnanir bjóða, en þær geta hins vegar ekki búist við því, að útlánsvextir verði hækkaðir, þótt þær bjóði nú hærri innlánsvexti. Það verður fyrst að sýna sig, hvað innlánsstofnanir geta boðið í þessu efni og hvaða áhrif hækkaðir innlánsvextir hafa á samkeppnisstöðu þeirra,“ sagði Jóhannes Norðdal, seðlabankastjóri, meðal annars þegar hann ræddi um aukna samkeppni banka og sparisjóða undanfarið í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í gær. Jóhannes sagði, að vissuiega mætti margt ræða varðandi ný viðhorf á lánsfjármarkaði, Hann sagðist ekki efast um, að margir þeirra, sem notið hefðu skjóls óg forréttinda í því miðstýrða, en þó sundurhólfaða banka- og sjóðakerfi, sem hér hefði þróast á undanförnum áratugum, muni líta með nokkrum ugg til þess að verða skipað til sama borðs og öllum öðrum og þurfa að sæta þeim kjörum, sem markaðurinn byði. „En í þessa átt eina getur þróunin stefnt. Til þess bendir ekki eingöngu reynsla okkar sjálfra, heldur ekki síður þróun- in í nágrannaríkjunum, þar sem tánsfjármarkaðurinn er hvar- vetna að taka stakkaskiptum fyr- ir áhrif aukinnar samkeppni og nýrrar tækni, sem hefur breytt peningamarkaðnum meir á ör- fáum árum cn gerst hafði á áratugum þar á undan. Þcssi nýju viðhorf munu þó ekki síst gera kröfur til fjármálastofnana sjálfra og stjórnenda þeirra, sem nú munu þurfa að taka þátt í samkeppni í lánsfjármarkaðnum með allt öðrum og áhættusamari þætti en áður. Um leið fær bankakerfið tækifæri til þess að vcrða leiðandi afl í því að opna hagkerfið fyrir nýjum straumum í viðskiptaháttum og tækni, er munu svipta burt úreltum sjón- armiðum í atvinnumálum," sagði Jóhannes. Um gengismál sagði banka- stjórinn meðal annars: „Seint á árinu ákvað ríkisstjórnin ásamt Seðalbankanum að halda með- algengi krónunnar áfram stöð- ugu út árið 1984, innan 5% marka miðað við gengi í árslok 1983. Allt bendir nú til þess, þegar litið er bæði til gerðra launasamninga og útlitsins í efnahagsmálum að öðru leyti, að hcr sé um fyllilega raunhæft markmið að ræða, og mun Scðla- bankinn fyrir sitt lcyti leggja höfuðkapp á að frá því verði ekki hvikað." JON OG HUBNER SKILDU JAFNIR t'ra Kristjáni Jóhunni Jónvvyni í Ósló: ■ Jón L. Árnason gerði jafn- tefli við Hubner( í 5. umferð skakmótsins í Ósló í gær. Skák- in var vel tefld en nokkuð lokuð og þeir'sættust á skiptan hlut þegar lokið var rúntlcga 20 leikjum. Af öðrum skákurn umferðarinnar er það að segja að Karpov og Adorjan gerðu jafntcflt: Ádorjan bauð jafntcfli i 9. leik þegur teflt hafði verið í 6 mínútur. DeFirmian vann Wedberg; skák Miles og Mak- arichev fór í bið og hefur Miles betri stöðu, og skák Horts og Agdestein fór einnig í bið. Staðan í mótinu er þá sú að Karpov er efstur með 3,5 vinn- inga. í öðru sæti er Miles rneð '3 vinninga og biðskák en hann vann biðskák sína við Hubner úr 4. umfcrð. DeFirmian er með 3 vinnínga í þriðja sæti og í l'jórða sæti er Makaritchcv mcð 2,5 vinninga og biðskák. Jón L. og Adorjan deila 5. sætinu með 2,5 vinninga. - GSH ísfirðingar fá togara: „VIUUM HELDUR ÍSLENSKT HRÁEFNI" — segja nýju eigendurnir ■ Amamesið sem hér er að taka ís fyrir næsta rækjutúr mun áður hafa komist í fréttirnar sem breski togarinn Boston Welvale sem strandaði við Amames við ísafjarðardjúp fyrir nær hálfum öðmm áratug. Af þessum árekstri sínum við Island hefur hann nú hlotið nafn eftir að hann fyrir nokkra var keyptur til Isafjarðar til rækjuveiða fyrir Niðursuðuverksmiðjuna hf. Mynd Finnbogi Neðansjávarmyndavél til netarannsókna: „VIRÐIST GEFA GÓDAN ÁRANGUR" — segir Guðni Þorsteinsson fiskifræðingur ■ Nýr togari bættist í flota ísflrðinga fyrir skömmu og hefur hlotið nafnið Arnarnes. Miðað við smíðaár er skipið að vísu komið eitthvað á þrítugsaldur- inn. Togarinn sem er um 350 tonn smíðaður og gerður út frá Bretlandi uns hann með nafninu Boston Welvale strandaði við Arnarnes við ísafjarðardjúp í kringum 1970. Hann var síðan dreginn niður að Suðurtanga á ísaflrði og seldur þar sem strandgóss. Þar átti skipið þó eftir að fara á hliöina og sökkva áður en hann var tekinn upp til viðgerðar og síðan seldur suður á land. Nú síðast hét hann Ingólf- ur GK og var síðustu mánuðina gerður út á rækjuveiðar. Nýr eigandi er Niðursuðu- verksmiðjan hf. á ísafirði. „Við höfum trú á því að það sé eðlilegra að byggja vinnsluna á íslensku hráefni heldur en að þurfa að kaupa það erlendis frá t.d. af Rússum", sagði Eiríkur Böðvarsson, forstjóri Niður- suðuverksmiðjunnar. Sagði hann skipið hafa veitt um 40 tonn fyrstu þrjár vikurnar þrátt fyrir mjög erfið skilyrði í sjónum. „Þetta er auðvitað ekki nýtt skip, en maður hefur ekki peninga til að kaupa dýrara skip en að búast megi við að það standi undir sér. Svo er heldur engin vissa fyrir því að betur aflist á skip sem kostar kannski 100 millj. króna", sagði Eiríkur. Hann kvað búið að taka togar- ann í gegn þannig að íbúðir áhafnar séu nokkuð vistlegar. En auðvitað verði viðhaldið meira og kostnaðarsamara á svo gömlu skipi. „Já það vantar alltaf meiri rækju og því höfum við flutt töluvert inn af Rússarækjunni. Þetta eru orðin svo mikil afköst - við pillum hér á annað hundrað tonn á viku“, sagði Eiríkur. Hann sagði svipað eiga við víða annarsstaðar, þannig að þótt flotinn mundi tvöfalda rækjuafl- ann þá gerði það ekki meira en að fullnægja þeirri vinnslugetu þeirra rækjuvinnslustöðva sem voru fyrir hendi. „Það þurfti því ekki að fara að bæta við 10-15 nýjum verksmiðjum“, sagði Eiríkur, sem telur með því boðið upp á vissa hættu. Markaðurinn sé nú mjögerfiðuroggeriauknar kröfur eftir því sem framboðið eykst, þannig að nú ríði á að vera með vandaða og góða vöru. „Ég vil ekki fara að dæma neinn fyrirfram. En ætli menn sér að fara að vinna rækju hingað og þangað á álíka hátt og gert var í kringum 1970 þá er hætt við að einhversstaðar vanti á kunnátt- una og að ekki fari allsstaðar of vel“, sagði Eiríkur Böðvarsson. -HEl ■ „Þessitæknivirðistgefagóö- an árangur. Þrátt fyrir að við væram þarna í stuttan tíma og fengjum frekar leiðinlegt veður komum við með töluvert af upp- iýsingum.“ sagði Guðni Þor- steinsson flskifræðingur í samtali við Tímann í gær. Guðni var þá um borð i rannsóknarskipinu Dröfn á heimleið af Breiðaflrði þar sem skipið var við veiðar- færarannsóknir og notaði við þær neðansjávarsjónvarps- myndavél frá Netagerð Vest- fjarða, þá sömu og notuð var við björgunina á TF RÁN. Þetta er í fyrsta sinn sem slík tækni er notuð um borð í íslenskum haf- rannsóknarskipum. Guðni sagði að í ferðinni hefðu verið lagðar ýmsar gerðir af veiðarfærum, m.a. mismun- andi línuefni og flotfylla á net, og rannsakað með sjónvarpsvél- inni hvernig þessi veiðarfæri litu út í sjó. Þá náðust myndir af fiskum við netin og í þeim á einum stað auk þess sem myndir náðust af töluvert stórum haug- um af dauðri loðnu ábotninum. Guðni sagði að það hefði í sjálfu sér ekki komið á óvart, þar sem vitað er að loðna drepst eftir hrygningu, en þó hefði verið merkilegt að sjá þetta með eigin augum. Neðansjávarmyndavélar hafa ekki verið notaðar áður við hafrannsóknir hér en Guðni sagði að þessi tækni væri komin vel á veg í nágrannalöndum okkar, sérstaklega Skotlandi. Hafrannsóknarstofnun hefði hinsvegar oft sótt um fjárveit- ingu til kaupa á svona tækjum en henni hefði ekki verið sinnt.GSH

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.