Tíminn - 18.04.1984, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR IX. APRII. 19X4
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og
Þórarinn Þórarinsson
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Síöumúli 15, 105 Reykjavík.
Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300.
Kvöldsímar: 86387 og 86306.
Verö í lausasölu 20 kr. en 22 kr. um helgar
(2 blöö). Áskrift 250 kr.
Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaftaprent hl.
Margt er skrítið
í kýrhausnum
■ Þaö eru til ýmsar sögur um uppruna orðtaksins:
Margt er skrítið í kýrhausnum. Ein er sú; að karl nokkur
hafi fylgzt með því, er kýrhaus var krufinn, og hafi
honum þá orðið þetta að orði. Hvað, sem rétt er í þessu,
hefur þetta orðtak haldizt og einkum gilt um sérkenni-
lega hluti eða atvik.
Ótrúlegt er annað en að þetta hafi komið ýmsum í hug,
þegar Albert Guðmundsson hefursem fjármálaráðherra
verið að gera ýmsar kynlegar ráðstafanir.
Albert Guðmundsson kvaddi sér fyrir nokkru eftir-
minnilega hljóðs, þegar hann tilkynnti að gat væri á
fjárlögunum. Þetta voru ekki neitt óvenjuleg tíðindi og
hafa fyrrverandi fjármálaráðherrar leyst slíkan vanda,
þegar hann hefur komið upp, í kyrrþey með félögum
sínum. Albert Guðmundsson þurfti hins vegar á
sjónvarpinu að halda og hafa landsmenn ekki skemmt
sér að öðru meira í góða hríð en Albert og meðráðherr-
um hans, þegar þeir voru að fást við gatið í flóðljósi
sjónvarpsvélanna.
Það undarlega skeði, að heldur lítið bar á Albert í
glímunni við gatið. Þegar leið að lokum, mun hann þó
hafa álitið, að eitthvað þyrfti hann að láta bera á sér.
Hann tilkynnti að hann hefði ákveðið að fella niður
tímabundið vörugjald af gosdrykkjum og ávaxtasafa og
einnig tolla á ýmsum efnum til gosdrykkjagerðar.
Samanlagt munu þessar lækkanir rýra áætlaðar tekjur
ríkisins um 45 milljónir króna.
Þessar ráðstafanir fjármálaráðherra minnkuðu því
ekki fjárlagagatið, heldur stækkuðu það. Um þctta mátti
vissulega segja, að margt er skrítið í kýrhausnum.
Albert Guðmundsson mun líka hafa komizt að raun
um, að hann yrði að gera bragarbót. Hann ákvað að
innheimta vörugjald og söluskatt af kókómjólk, sem
hefur, eins og aðrar landbúnaðarvörur, verið undanþeg-
in báðum þessum gjöldum. Þannig taldi Albert sig geta
aukið tekjur ríkisins lítillega til að vega á móti tekjutap-
inu af lækkun gjalda á gosdrykkjum. Samt hélzt verulegt
fjárlagagat vegna þess tekjutaps.
Það virðist alveg hafa farið framhjá fjármálaráðherra,
að kókómjólkin er hollur drykkur, sem hefur notið
sívaxandi vinsælda hjá börnum og unglingum. Hið sama
verður ekki sagt um hollustu gosdrykkjanna. Hér á
vissulega við hið fornkveðna, að margt er skrítið í
kýrhausnum.
Það er ckkert skylt þessu máli, að komið hefur fram
sú gagnrýni, að óeðlilega hátt verð sé á kókómjólkinni.
Þaö getur vel komið til mála að lækka álagninguna, en
þá eiga börn og unglingar og aðrir neytendur þessa
drykkjar að njóta þess.
Það hefur sjaldan gerzt, að Albert Guðmundssorwetti
hauk í horni, þar sem Mbl. er. Þetta hefur þó gerzt í
kókómjólkurmálinu og gosdrykkjamálinu. Enn á það
við, að margt er skrítið í kýrhausnum.
Atómstöðin
Það er mikill sigur fyrir íslenzka kvikmyndagerð, að
kvikmyndin Atómstöðin eftir Þorstein Jónsson hefur
verið valin til sýningar á hinni opinberu dagskrá
kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í Frakklandi dagana
11.-15. næsta mánaðar.
Engin íslenzk kvikmynd hefur verið áður valin til
slíkrar sýningar. Gerðar eru mjög strangar kröfur
listrænar og tæknilegar til mynda, sem hljóta slíka
viðurkenningu.
Þessi viðurkenning er glögg staðfesting þess, að
íslenzk kvikmyndagerð er í mikilli framför. Það má óska
þeim, sem standa að gerð umræddrar kvikmyndar, til
hamingju með vel unninn sigur.
Þ.Þ.
í spegli tímans
„HELL0", SYNGUR LI0NEL RICHIE
- 0G HIÖRTU STÚLKNANNA BRÁÐNA
AF HRIFNINGU, - EN HANN HUGSAR
AÐEINS UM BRENDU, K0NUNA SÍNA
■ Lionel Richie á lög sem eru
efst á vinsældalistum um allan
heim svo sem lagið „Hello", All
Night Long og Penny Lover o.fl.
o.fl.
Rödd hans hrífur aðdáend-
urna svo, að stúlkurnar elta hann
milli borga þegar hann ferðast
um og syngur. Plöturnar hans
renna út, og hann mokar inn
peningum.
„Það er stutt síðan að ég
áttaði mig á því, að ég er stórrík-
ur rnaður," sagði Richie nýlega í
blaðaviðtali. Hann sagðist vera
alveg hissa á þessum látum í
kringum sig, en auðvitað vera
feginn því að fólk vildi kaupa
plöturnar sínar. „Það er verst að
eiga við kvenfólkið, sem þykist
vera - eða heldur aö það sé -
skotið í mér“, sagði hann hálf-
vandræðalegur i viötalinu. „Eg
sem er svo feiminn að ég þorði
ekki sjálfur að segja halló við
hana Brendu, þegar ég sá hana
fyrst, en fékk vin minn til að
biðja hana að koma út með mér.
■ „Nú eigum við fallegt ein-
býlishús og Rolls Roycé - bíl,
en við vorum líka ánægð þegar
við eignuðumst fyrsta bílinn
okkar, sem var ekki mjög
merkilegur.
Nú syng ég lagið mitt „Hello" og
þær taka þetta allar til sín en ég
er bara að hugsa um Brendu.
Lionel hitti Brendu fyrir 14
árum, en þá var hún 17 ára, og
þau giftu sig fljótlega. Hann
segist vera feginn því, að sam-
band þeirra byrjaði meðan hann
var enn óþekktur og fátækur,
því þau hafi reynt saman sætt og
súrt í hjúnabandinu, og það
verði því æ traustara með árun-
um.
Lionel sagðist hafa fengið
hroll í sig þegar kunningi hans í
Hollywood heilsaði honum eftir
giftinguna og sagði sem svo:
„Hæ, I.ionel, varstu að kvænast
í fvrsta sinn? Til hamingju og
megi þú verða hamingjusamur í
mörgum fleiri hjónaböndum!"
Lionel söng og lék hér áður
fyrr með hljómsveitinni „Commo-
dores". Hann geröi lög og texta
sem slógu í gegn og cinnig gerði
hann lög fyrir aðra söngvara, svo
sem Kenny Rogers (Lady) og
Diönu Ross (Endless Night) o.fl.
■ Lionel í hljómplötuupp-
töku. „Ég loka augunum og
hugsa um Brendu",segir hann,
þegar hann er spuröur hvernig
hann fari að þvi að vera svona
heillandi í röddinni.
Er Jack Nichol-
son nú fallinn
fyrir sódavatni?
■ Haft var eftir Jack Nichol-
son, þegar hann veitti Oskars-
■ verðlaunum sínum nr. 2 viðtöku
hér á dögunum, að auövitaö
héldi hann upp á það með því að
„detta ærlega í það".
Jack Nicholson hefur löngum
talað digurbarkalcga um kvnni
sín af vímugjöfum alls konar, og
stundum inætti halda að liann
hefði lítiö annað gert um dagana
en að svolgra áfengi, reykja
maríhúana og taka kókaín í
nefið. Það vakti því ekki litla
athygli um daginn, þegar Jack
mætti í veislu í New York með
sínar eigin veigar, og þær reynd-
ust ekki stcrkari en franskt sóda-
vatn. Og til að vera viss um að
hann yrði ekki uppiskroppa
hafði hann ekki flöskuna af
minni tcgundinni.
Viðsladdir fóru að velta vöng-
um yfir því, hvort um hugarfars-
breýtingu væri orðið að ræða
hjá leikaranum og hann væri
búinn að segja skilið við áfengið.
En kannski hefur hann bara verið
að hvíla sig fyrir næstu lotu.
■ Jack Nicholson ætlaöi greini-
lega ekki að verða uppiskroppa
með veigarnar í partíinu.