Tíminn - 18.04.1984, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
Hull/Goole:
Ján ....................30/4
Jan.....................14/5
Jan.....................28/5
Rotterdam:
Jan .................... 1/5
Jan.....................15/5
Jan ....................29/5
Antwerpen:
Jan ....................19/4
Jan..................... 2/5
Jan ....................16/5
Jan ....................30/5
Hamborg:
Jan ....................21/4
Jan .................... 4/5
Jan ....................18/5
Jan ..................... 1/6
Helsinki/Turku:
Hvassafell..............28/4
Hvassafell..............23/5
Larvik:
Francop ................23/4
Francop ................ 7/5
Francop ................21/5
Francop ................4/6^
Gautaborg:
Francop ................24/4
Francop ............... 8/5,
Francop ................22/5
Francop .................5/6
Kaupmannahöfn:
Francop ................25/4
Francop ................ 9/5
Francop ................23/5
Francop .................6/6
Svendborg:
Francop ................26/4I
Francop ................10/5
Francop ................24/5
Francop .................7/6
Árhus:
Francop ................27/4
Francop ................11/5
Francop ................25/5
Francop .................8/6
Falkenberg:
Mælifell................ 1/5
Helgafell...............11/5
Gloucester Mass.:
Skaftafell..............24/4
Skaftafell 24/5
Halifax, Canada:
Skaftafell..............26/4
Skaftafell..............25/5
fÍ^
( SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Simi 28200 Telex 2101
Bfllinn í lagi — beltin spennt
bömin í aftursæti.
GÓÐAFERÐ!
fréttir
/ /
LAXELMSIWITALKNAFRÐI
almennur borgarafundur bráðlega boðaður
■ Hreppsnefnd Tálknafjaröarhrepps
barst nú um helgina skýrsla Verkfræöi-
stofu Sigurðar Thoroddsen um byggingu
og rekstur laxeldisstöövar í Tálknafirði
og var hún mjög jákvæð. Gengið er út
frá notkun á því magni af volgu vatni
sem fæst sjálfrennandi í landi Sveinseyr-
ar og Litla-Laugardals, sem talið er að
nægi fyrir 240 tonna laxeldisstöð. Bygg-
ingarkostnaður stöðvar af þeirri stærð er
áætlaður um 77 millj. króna og um 10
manns þyrfti til að reka hana. Virðist
það nokkuð áþekkt og kaup á nýjum bát
og þeim mannskap sem á hann þyrfti.
Hinsvegar er þó gert ráð fyrir því í
skýrslunni að með því að endurnýta
eldisvatnið mætti tvöfalda framleiðslu
stöðvarinnar, sem jafnframt mundi auka
arðsemi hennar að mun. Vatnið sem
gert er ráð fyrir að nota í stöðina er í eigu
hreppsins.
Að sögn Sigurðar Friðrikssonar,
oddvita verður næsta skrefið að boða til
almenns borgarafundar um málið, þar
sem væntanlea verði þá kosið í stjórn
undirbúningsfélags. Hver framvindan
verður mundi síðan ráðast hjá því félagi.
Spurður hvort Tálknfirðingar væru ekki
almennt spenntir og áhugasamir um
framgang málsins kvaðst Sigurður telja
að áhugi væri töluverður, enda væri
þetta óneitanlega freistandi eins og dæm-
ið lýtur út nú. En þaðyrði síðan að koma
í ljós hver vilji manna er að fara út í
framkvæmdir. Um fjármögnun eða lána-
útvegun væri ekkert farið að athuga
ennþá.
í skýrslunni sagði Sigurður reiknað
með eins og hálfs árs undirbúningstíma
frá því framkvæmdir hefjast. Ef strax
yrði hafist handa væri því möguleiki á að
hægt yrði að fara að selja fyrsta laxinn
haustið 1986. Spurður um vaxtartíma
sagði Sigurður t.d. um 2 ár frá klaki þar
til fiskurinn hefur náð um 4 kílóa þyngd.
-HEI
■ Þessi bQI lenti ofan í skurði við Suðurgötu um síðustu helgi og lenti utan í kirkjugarðsvegginn. Ökumaðurinn var á bak og burt þegar lögreglan kom á staðinn
og lék grunur á að hann hefði notið félagsskapar Bakkusar í ökuferðinni. Tínumynd Sverrir
OSKAÐ EFTIR YFIRUTI
UM LAUSASKULDIR1983
—vegna skuldabreytingar fyrir bændur
■ Bankaráð Búnáðarbanka íslands
beinir þeim tilmælum til lánastofnana
að þær sendi nú þegar til Stofnlána-
deildar staðfestingar um lausaskuldir
í árslok 1983 vegna nýlega sam-
þykktra laga frá Alþingi um breytingu
lausaskulda bænda í föst lán. Þá segir
ennfremur í frétt frá ráðinu að æski-
legt sé að lánadrottnar þessarra aðila
séu reiðubúnir til þess að taka við
verðtryggðum lánum í stað lausa-
skulda og er þess vænst að hægt verði
að hefja afgreiðslu á lánunum strax í
byrjun maí mánaðar. Ekki liggur enn
fyrir með hvaða kjörum fjármagn til
skuldbreytingarinnar verður en unnið
er að málinu.
-b.
ATAK TIL STUÐN-
INGS ÚTFLUTNINGI
■ Af hálfu Iðnþróunarsjóðs og Út-
flutningsmiðstöðvar iðnaðarins er nú
hafið sérstakt átak til stuðnings iðnfyr-
irtækjum sem þegar hafa hafið út-
flutning. Einnig er um að ræða aðstoð
og leiðbeiningar fyrir fyrirtæki, sem
hafa í hyggju að hefja markvissan
útflutning.
Sérfræðileg ráðgjöf verður látin í té
af markaðsráðgjöfum danska iðnrek-
endafélagsins, en með þeim munu
einnig starfa innlendir ráðgjafar. Um
20 íslensk fyrirtæki hafa þegar ákveð-
ið að notfæra sér þessa aðstoð.
í frétt frá Iðnþróunarsjóði segir, að
horfur í íslenskum þjóðarbúskap séu
nú með þeim hætti, að varla hafi
nokkru sinni verið ríkari ástæða til að
efla útflutning. Fullvíst sé að mörg
iðnfyrirtæki hafi á boðstólum vöruval
sem vel hæfi til útflutnings.
Þá segir að mörg íslensk fyrirtæki
hafi á undanförnum árum náð góðum
árangri í útflutningi. Þó megi enn gera
betur, ekki síst fyrirtækjum verði
búin viðunandi skilyrði.
-Sjó.
Frá ferða- og bílakynningunni í Miklagarði:
VINNINGUR AFHENTUR
■ Sigurlaug Marinósdóttir, vinningshafi í
Bíla- og ferðagetraun Bifreiðardeildar Sam-
bandsins og Samvinnuferða - Landsýn á ferða
og bílakynningunni í Miklagarði, tekur við
viðurkenningunni úr hendi D.H. Le Bon frá
Opelverksmiðjunum í Þýskalandi. Viðstaddir
athöfnina voru Tómas Óli Jónsson, (lengst
t.v.), framkvæmdastjóri Bifreiðadeildar Sam-
bandsins, og Helgi Daníelsson, fulltrúi frá
Samvinnuferðum - Landsýn.