Tíminn - 18.04.1984, Síða 5

Tíminn - 18.04.1984, Síða 5
Friðarpáskar 1984: Stærsta bor- hola í heimi ■ Nýleg könnun hefur leitt í ljós að borhola Sjóefnavinnslunnar á Reykjanesi er stærsta borhola í heimi. Úr holunni kemur orka sem myndi nægja til framleiðslu á 25 til 30 megavöttum og hefur þrýstingur hennar síst minnkað frá því borun hennar var lokið í maímánuði síðastliðnum. Það var Orkustofnun sem stóð að framkvæmd borunarinnar en gufuborinn Dofri boraði. Þvermál holunnar eru 12 tommur en dýpt hennar nemur 1400 metrum. Stærri myndin sýnir yfirbygginguna yfir holunni þegar skrúfað er frá krana á frárennslisæð holunnar. Tímamyndir GE MHL ABSÓKN ■ Friðarvika á páskum stendur nú sem hæst í Norræna húsinu og hefur aðsókn verið mjög góð, að sögn forsvarsmanna hennar. Dagskráin í dag hefst kl. 15 og verður þá m.a. fluttur kafli úr leikriti Olgu Guðrúnar Árnadóttur, Amma þó, auk fleira barnaefnis. Umræðu- fundur um vígbúnað á norðurslóðum hefst kl. 17. Þar verða flutt þrjú framsöguerindi um vígbúnað og varn- arviðbúnað á og í kringum Island. Að erindunum loknum verða pallborðs- umræður. Um kvöldið verður fundur um fjölmiðla og skoðanamyndun, þar sem flutt verður erindi og fulltrúar frá fjölmiðlum segja frá og sitja fyrir svörum. Dagskrá skírdags, sem jafnframt er sumardagurinn fyrsti, er helguð börn- unum. Þar mun Háskólakórinn syngja m.a. og rithöfundarnir Olga Guðrún Árnadóttir og Þórarinn Eldjárn lesa úr verkum sínum fyrir unglinga á öllum aldri. Um kvöldið heldur ís- lenska hljómsveitin tónleika undir stjórn Guðmundar Emilssonar. Á föstudaginn langa verður dagskrá, sem unnin er af læknum og eðlisfræð- ingum og fjallar um áhrif kjarnorku- styrjaldar. Þá er rétt að vekja athygli á sýningu um sama efni í anddyri hússins. Þar eru sýnd áhrif kjarnorku- sprengingar og afleiðingar hennar. Fulltrúar lækna og eðlisfræðinga sitja fyrir svörum síðdegis, svo og félagar annarra samtaka sem standa að friðar- vikunni. Af öðrum dagskrárliðum á föstudaginn langa má nefna gjörning í flutningi Þórs Elísar Pálssonar og blandaða dagskrá um kvöldið. Á laugardag kl. 17 verður dagskrá um framlag kvenna til friðarbaráttu. Þar verða flutt erindi og konur syngja. Kl. 15 sama dag verður skáldadag- skrá, þar sem lesið verður úr nýjum ljóðabókum. Um kvöldið verður svo sérstök dagskrá helguð ungu fólki. Á páskadag verður m.a. sérstök Páskavaka fyrir börn og fullorðna, þar sem flutt verða erindi, tónlist og ljóð. Friðarvikunni lýkur á annan dag páska og kl. 15 þann dag hefst loka- fundur, þar sem m.a. verður rætt um friðarstarfið, hvað sameini og hvað sundri. í fundarlok verður forsætis- ráðherra, Steingrími Hermannssyni, afhent gestabók friðarvikunnar, en í hana hafa ritað nöfn sín allir þeir sem vilja taka undir áskorun friðarpásk- anna 1984. Auk ofangreindra dagskrárliða, fer fram myndlistarsýning í kjallara Norræna hússins alla daga og á hverjum degi geta bæði börn og fullorðnir reynt fyrir sér í sérstakri myndsmiðju. B IASÝNINGAR í vöruhúsi KÁ, Selfossi, miövikudaginn 18. apríl og laugardaginn 21. apríl og í Samkaupum, Njarðvík, miövikudaginn 18. apríl frá kl. 13.00 til 18.00. Á bílasýningunni á Selfossi veröa kynntir Opel Ascona, Opel Corsa og Isuzu Pick-up en Opel Ascona, Opel Corsa og Opei Kadett á sýningunni í Njarövík. VORUHUS KA SAMKAUP n ISUZU HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.