Tíminn - 18.04.1984, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
5famjöá#:
wfwmt
SPAPStíÓÖJ
SRftð BúÓCup
HAFNAHFJ.
lpfNAfifi,í
æfitfSJÖQUfS
rtFNAR&T
íNÁSFví
HAFNAfif
Mfif&iöous
1
Úrslrtakeppni 2. deildar í blaki:
Reynivík
í 1. deild
■ Um hclgina fóru fram á Akureyri
úrsiitaleikirnir í 2. deild karla í blaki.
KA vann Þrótt Neskaupstað 3-1, og
Samhygð 3-2. Reynivík vann síðan
bæði Þrótt og Samhygð 3-2. Sam-
hygð vann Þrótt 3-0.
KA og Reynivík léku því til úrslita
um 1. deildarsætið. KA komst í 2-0,
með því að vinna fyrstu hrínuna
15-13 og aðra 15-10. Bjuggust þá
flestir við því að eftirleikurínn yrði
KA-mönnum auðveldur, en reyndin
varð önnur. Reynivik vann þriðju
hrinuna 15-1 og þá Ijórðu 15-9. í
fímmtu og síðustu hrinunni náðu
Reynivíkurmenn síðan að tryggja sér
sigur 15-11. Það verður því lið Reyni-
víkur sem leikur í 1. deild að ári, en
KA-menn sitja eftir með sárt ennið,
voru svo sannarlega komnir með
tærnar í 1. deild. Reynivík, er sam-
eiginlegt lið Reynis Árskógsströnd
og Daivíkinga.
-gk/BL
Landsliðin
leika í Adidas
■ Á blaðamannafundi KSÍ á föstu-
dag var frá því greint, að Knatt-
spyrnusamband íslands og Adidas-
umboðið á Islandi hafí gert með sér
samning, um að öll lið KSÍ á þessu
ári muni leika í Adidas-íþróttabún-
ingum. Þetta er 8. árið sem þessir
aðilar gera með sér slíkan samning.
Átta fyrstudeildarlið munu leika í
Adidasbúningum í sumar, ÍA, UBK,
KR, Valur, Fram, KA. Þórog ÍBK.
Þá mun Adidas gangast fyrir vali á
þjálfara mánaðarins í 1., 2. og 3.
deild, og afhenda markahæsta leik-
manni 1. deildar gullskóinn í lok
tímabiisins.
- SÖE
Bjami þnðji
á opna enska
■ Júdókappinn kunni Bjarni Frið-
riksson keppti unt síðustu helgi í
opna breska meistaramótinu í júdó.
Bjami lenti í þríðja sæti í sínum
þyngdarflokki, - 95 kg. Bjarni lagði
Breta og Hollending að velli í keppn-
inni um þriðja sætið, báða á Ippon,
fullnaðarsigri.
-BL
Tþróttir
Crenshaw
fékk græna
jakkann
■ Bob Crenshaw, bandaríski golf-
leikarinn, sigraði um helgina í Mast-
ers keppnina í Augusta í Bandaríkj-
unurn. Þetta var fyrsti meiri háttar
sigur Crenshaw t golfi, en hann hefur
verið atvinnumaður í golfi sl. 12 ár.
Crenshaw lék mjög vel síðasta
daginn, fór á 68 höggum. og tryggði
sér þar með „græna jakkann", hin
kunnu verðlaun f þessari keppni.
Hann varð þar með á undan Tom
Watson. Watson varð annar, réð
ekki við Crenshaw, sem lék á „bir-
die" nokkrar holur í röð, og komst í
fyrsta sætið með frábæru 50 feta
„pútti".
- SÖE
■ íslandsmeistarar FH í handknattleik 1984. Aftari röð frá vinstri: Brynjar Geirsson lukkudrengur og tilvonandi meistaraflokksmaður, Helgi Ragnarsson liðsstjóri, Geir
Hallsteinsson þjálfari, Guðmundur Óskarsson, Guðjón Árnason, Atli Hilmarsson, Krístján Arason, Hans Guðmundsson, Theodór Sigurðsson, Þorgils Óttar Mathiesen,
Magnús Árnason, Jón Erling Ragnarsson, Finnur Árnason og Egill Bjarnason formaður handknattleiksdeildar. I neðri röð frá vinstri, Guðmundur Jónsson „Muggur“ tryggðatröll
liðsins, Sverrir Kristinsson, Guðmundur Magnússon „Dadú“ fyrirliði liðsins, Haraldur Ragnarsson, Pálmi Jónsson, Valgarð Valgarðsson og Sveinn Bragason.
Tímamynd Sverrir
■ „Muggur“ og „Dadú“ virða fyrir sér á myndinni hér til hliðar, lok íslandsbikarsins, en það féll í gólfið
í öllum látunum við afhendingu bikarsins. Ekki er annað að sjá á svip þeirra félaga, en þeir séu ánægðir
með gripinn. Myndin að neðan: „Mikið rosalega er maðurinn handsterkur" gæti Atli Hilmarsson verið að
segja á þessarri mynd. Oliver Steinn bókaútgefandi, hjá Skuggsjá afhendir FH-ingum Listaverkabók Einars
Jónssonar, sem gjöf frá foriaginu, í tilefni af fábærum árangri liðsins.
Tímamyndir Sverrir.
■ Einar Þorvarðarson Val var valinn
besti markvörður úrslitakeppninnar.
Tímamynd Sverrir.
■ Kristján Arason FH, var valinn besti vamarmaður úrslitakeppninnar og
hér sést hann taka við verðlaunagrip sínum.
Tímamynd Sverrir.
■ Besti sóknarmaður úrslitakeppninnar, Þorgils Óttar
Mathiesen FH.
Tímamynd Sverrir.
Lendl vann
■ Forráðamenn félaganna sem höfnuðu í efri hluta úrslitakeppni 1. deildar í handknattleik
í ár tóku höndum saman við undirbúning og framkvæmd úrslitakeppninnar, og gerðu það af
miklum dugnaði, var vel að úrslitakeppninni staðið, og framtakið gleðilegt eftir doðakenndan
vetur hjá HSÍ með „felumótsfyrirkomulagi“. Maður leiksins var vaiinn í hveijum leik, og besti
vamar, sóknar og markmaðurinn eftir hverja umferð. Að úrslitakeppninni lokinni voni valdir
besti markvöiðurinn, besti sóknarmaðurinn og besti vamarmaðurinn í keppninni allri. Tveir
FHíngar urðu hlutskarpastir í sókn og vöm, Þorgils Óttar Mathiesen í sókn og Kristján Arason
í vöm. Valsmaðurinn Einar Þorvarðarson var valinn besti maikvörðurinn. Á myndum Svenis
hér að ofan má sjá kappana taka við fallegum verðlaunadiskum sem veittir vom.
aasai i
■ lvan Lendl frá Tékkóslóvakíu
sigraði i Grand-Prix keppninni í tennis
sem haldin var í Lúxemborg um
helgina. Lendl, sem vann þar með
sinn fyrsta Grand Prix sigur á þessu ári
vann landa sinn, Tomas Schmidt í
úrslitum 64 og 64.
-SÖE
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
13
.r
I
I
I
I
I
Framvann
bikarinn
■ Framstúlkurnar í handknattleik
bættu einum bikar í safnið í gærkvöld
er þær sigruðu ÍR í úrsiitaleik bikar-
keppni HSÍ. Framstúlkurnar unnu
einnig íslandsmótið núna fyrir
skömmu. Sigur Framstúlknanna í
gærkvöld var nokkuð öruggur. Þær
höfðu 5 marka forskot í hálfleik
12-17.
í síðarí hálfleik héldu ÍR-stúlkurn-
ar nokkuð í við meistarana en sigur'
Fram var þó aldrei í hættu. Að
leiknum loknum fengu Fram-stúlk-
urnar afhentan bikarinn eftirsótta.
Markahæstar hjá Fram voru þær
Guðríður Guðjónsdóttir með 10
mörk og Oddný Sigsteinsdóttir með
7. Hjá ÍR skoraði Ingunn Bernódus-
dóttir mest eða 8 mörk. Katrin
Friðriksen skoraði 5. -BL
STJARNAN ÁFRAM
— í bikarnum. Þróttur vann KR 28-27
■ Stjarnan sigraði Gróttu örugglega
26-18, er liðin mættust í 8 liða úrslitum
Síðustu leikir
Færeyinganna
■ f kvöld leika færeysku blakliðin,
sem hér eru í heimsókn, síðustu leiki
sína hér, að þessu sinni. Leikið verður í
Hagaskóla og fyrsti leikurinn hefst kl.
18:30. Þá leikur færeyska úrv'alsliðið við
íslandsmeistara Þróttar. Að þeim leik
loknum leika unglingalandsiið þjóð-
anna, bæði piltar og stúlkur.
í fyrrakvöld mætti færeyska úrvalslið-
ið liði ÍS og sigruðu Stúdentarnir 3-1.
Færeyingarnir unnu hins vegar Víkinga
á sunnudagskvöld 3-1. í fyrrakvöld voru
einnig fyrstu leikir unglingaliða þjóð-
anna. Færeyska piltaliðið sigraði það
íslenska 3-0. Vann í hrinunum 15-2,15-9
og 15-11. íslensku stúlkurnar náðu hins-
vegar að sigra í sínum leik 3-1, 15-7,
15-8, 15-17 og 15-5. -BL
bikarkeppni HSÍ, á Nesinu í gærkvöld.
í hálfleik var jafnt 8-8, en 1. deildarliðið
var sterkara í síðari hálfleiknum eins og
áður segir og tryggði sér sigur. Her-
mundur Sigmundsson var markahæstur
hjá Stjörnunni með 10 mörk, en Sverrir
Sverrisson skoraði mest fyrir Gróttu 5
mörk.
Þá léku einnig KR og Þróttur í 8 liða
úrslitum og sigraði Þróttur með eins
marks mun, 28-27.
Stúlkurnar sigruðu
■ íslenska stúlknaliðið í blaki sigraði
það færeyska öðru sinni er liðin mættust
í Digranesi í gærkvöld. íslensku stúlk-
urnar sigruðu í öllum lotunum og unnu
því 3-0, 15-2, 15-5 og 16-14 í heinunum.
Þá lék HK við færeyskt úrvalslið, en
tapaði naumlega 3-2, úrslitalotan var
mjög spennandi, en henni lauk með sigri
þeirra færeysku, 19-17.
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
FH-INGAR STEIN-
LÁGU FYRIR VAL
—töpuðu með 9 mörkum og eru úr leik í bikarnum
B-Iiði
■ FH-ingar töpuðu öðrum leiknum í
röð í gærkvöld þegar þeir mættu Vals-
mönnum í bikarkeppni HSÍ. FH-liðið
var algjörlega heillum horfið en Vals-
menn börðust vel og áttu sigurinn fylli-
iega skilinn.
Fyrri hálfleikur var jafn, en FH þó yfir
framan af. Undir lokin komust Vals-
menn yfir en Hafnfirðingarnir höfðu þó
eins marks forystu í hálfleik 14-13. Eftir
5 mínútna leik í síðari hálfleik voru
Valsmenn komnir 2 mörk yfir og voru
það mestan hluta hálfleiksins. Svo var
einnig þegar 5 mínútur voru til leiksloka,
en þá var staðan 25-23. Á lokamínútun-
um reyndu FH-ingar ákaft að jafna og
pressuðu á Valsmenn. Þær tilraunir
virkuðu hálf þreytulegar og Valsmenn
nýttu sér hve FH-ingarnir komu framar-
■ Um miðjan mars barst Tímanum
leikjaskrá fyrir Islandsmótið í knatt-
spyrnu sumarið 1984. Mót KSÍ hefjast
12. maí næstkomandi með leik IA og
ÍBV í Meistarakeppni KSÍ, og síðan
hefst íslandsmótið 17. maí með leik
Víkings og KR í 1. deild á Laugardals-
velli.
Vinnubrögð Mótanefndar KSI eru til
mikillar fyrirmyndar. Það eitt, að móta-
skrá sé dreift tveimur mánuðum fyrir
mót sýnir hvílíka alúð nefndin leggur í
störf sín. Mótanefnd KSÍ var brautryðj-
andi í að tölvuvæða niðurröðun íslands-
móts síns, og var fyrsta tölvuútskriftin í
ár sénd liðunum í janúar. Síðan, þegar
athugasemdir frá liðunum og sérstakar
óskir höfðu borist, var skráin keyrð úr
tölvunum að nviu, og þá dreift. Prentuð
lega og skoruðu hvert markið á fætur
öðru án þess að FH-ingar fengju rönd
við reyst. Munurinn í lokin 9 mörk,
33-24 gefur ekki rétta mynd af getu
liðanna.
„Við lögðum allt okkar í þennan leik og
viljinn til að vinna var fyrir hendi" sagði
Hilmar Björnsson þjálfari Vals eftir leikinn.
„Við náðum ekki að rífa okkur upp eftir
lapið á sunnudag. Strákarnir nýttu ekki þau
tækifæri sem þeir fengu. En Valsmennirnir
áttu sigurinn skilinn, þeir börðust mjög vel í
leiknum" sagði Geir Hallsteinsson þjálfari
FH. eftir að hans menn voru slegnir út úr
bikarnum.
Mörk Vals: Valdimar 6, Steindór 6, Stefán
6, Jakob 5, Ólafur H 4, Jón Pétur 4. og
Þorbjörn Jens. 1.
Mörk FH: Atli 7, Sveinn 5, Hans 4, Pálmi
3, Óttar 2 og Guðjón 1.
Mótaskrá KSÍ kemur síðan út
fyrir íslandsmót. Formaður móta-
nefndar er lngi Guðmundsson, og
ásamt honum eru í mótanefnd þeir
Sigurður Hannesson og Helgi Þorvalds-
son. „Við höfum lagt áherslu á að geta
sent liðunum tillögur um niðurröðun
nógu snemma, svo við getum komið út
réttri leikjaskrá fyrir tilsettan tíma. Þetta
eru frábærir menn sem eru með mér í
nefndinni, og með slíka menn sér við
hlið er ekki erfitt að fá hlutina til að
ganga", sagði Ingvi Guðmundsson for-
maður mótanefndarinnar er hann var
inntur eftir því hvernig stæði á þessum
góða gangi mála. „Það munar líka mjög
miklu að geta notað tölvutæknina til
þessara hluta", sagði Ingvi.
-SÖE
■ B-landsliðið í körfuknattleik sigr-
aði í Sparisjóðsmótinu í Keflavík, en
úrslitaleikir mótsins voru leiknir á
sunnudagskvöld. B-landsliðið vann
A-landsliðið í úrslitaleik 87-81. Aðal-
maðurinn í B-liðinu var Haukamað-
urinn Decarsta Webster, sem átti
fjiilmörg fráköst og skoraði grimmt,
svo FIosi Sigurðsson, landsliðsmað-
urinn hávaxni, féll algjörlega í
skuggann.
B-liðið hafði undirtökin lengst af
gegn A-liðinu. 43-38 í hálfleik, og
lauk 87-81. Webster skoraði 28 stig
fyrir B-landsliðið, og Páll Kolbeins-
son 23, Jón Steingrímsson var stiga-
Itæstur í A-iiðinu, skoraði 12 stig,
Flosi Sigurðsson skoraði 11.
Unlingalandsliðið vann Suður-
nesjaúrvalið í hörkuleik. Staðan var
47-45 fyrir Suðurnesjaúrvalið í hálf-
leik, en jafnt, 91-91 eftir venjulegan
leiktíma. Unglingamir unnu svo í
framlengingu 103-102. Stigahæstir
unglinganna voru Sigurður Ingi-
mundarson mcð 20 stig. Guðni
Guðnason með 17 og Birgir Mikaels-
son 17. Gunnar Þorvarðarson skor-
aði mesl fyrir Suðurnqsjaúrvalið, 26
stig, og Árni Lárusson skóraði 18.
B-landsliðið sigraði því í mótinu,
A- landsliðiö varð í öðru sæti, og
Unglingalandsiiðið í þriðja.
- Tóo/SÖE
Bikarleikur
í kvöld
■ Einn leikur yerður í bikarkeppn-
inni í handknattleik i kvöld. Víkingur
og KA mætast í Seljaskóla kl. 20.30.
Vikingar verða að teljast nokkuð
öruggir með aff komast áfram í
keppninni þar sem lið KA féll i 2.
deild fyrir skömmu, en Víkingar
höfnuðu i öðru sæti í I. deildinni,
sigruðu meðal annars FH-inga í
síðasta leik mótsins, cins og frægt er
orðið. -BL
-BL
Störf Mótanefndar KSÍ:
HL FVnRMVNDMt
SttURÐUR R 0G ULLÝ BEST
í Víðavangshlaupi íslands, sem var loks um helgina
■ Um helgina var loks hægt að halda
Víðavangshlaup Islands, en tvisvar var
búið að fresta hlaupinu áður. Þó komust
ekki aliir keppendur til Reykjavíkur í
hlaupið og voru keppendur af þeim
völdum nokkuð færri en undanfarið ár,
eða um 150-160.
í telpnaflokki sigraði Guðrún Valde-
marsdóttir ÍR, Lilja Jóna Halldórsdóttir
varð önnur og Anna María Vilhjálms-
dóttir varð þriðja.
í strákaflokki sigraði Gunnar Guð-
mundsson FH, annar varð ísleifur Karls-
son UBK og þriðji varð Ásgeir Ásgeirs-
son UBK.,
í sveitakeppni, fjögurra og tíu manna
sigruðu FH-ingar níu sinnum, ÍR-ingar
fjórum sinnum og HSK vann einu sinni.
- BL
■ Sigurður Pétur Sigmundsson sigur
vegari í Víðavangshlaupi íslands kemur í
mark. Tímamynd Sverrir
Úrslit í einstökum flokkum urðu sem
hér segir:
Karlar: 1. Sigurður P. Sigmundsson
FH. 2. SigfúsJónsson ÍRog3. Hafsteinn
Óskarsson ÍR
í kvennaflokki sigraði Liliý Viðars-
dóttir ÚÍA en önnur varð Rakel Gylfa-
dóttir FH. í þriðja sæti varð Unnur
Stefánsdóttir FH.
í flokki drengja og sveina sigraði
Steinn Jóhannsson ÍR, Bessi Jóhannes-
son ÍR varð annar og Kristján S. Ásgeirs-
son ÍR varð þriðji. Sigurvegari í teipna-
flokki varð Guðrún Eysteinsdóttir FH,
Sara Haraldsdóttir varð önnur og Guð-
rún Ásgeirsdóttir ÍR varð þriðja.
I flokki pilta voru FH-ingar í þremur
fyrstu sætunum. Finnbogi Gylfason
vann, Björn Pétursson varð annar og
Þóroddur Hessen þriðji.
■ Yngri keppendumir í Víðavangshlaupinu leggja af stað
Tímamynd Sverrir
Hlífdarfotnaöur
frá Sjóklœdagerðínni:
!>róaður til að mæta kröfum ísienskra
sjómanna við erfiðustu aðslæður.
VINYL GLÓRNN
ditl í>rælsterltir vinylhúðaðir vinnuvettlingar
mt*ð Sérstökum gripfleti sem geíúr gott tak