Tíminn - 07.01.1986, Síða 2
2Tíminn
Þriðjudagur 7. janúar 1986
Skipin
leggja
úr höfn
■ Fjöldi skipa hefur að undan-
förnu legið við bryggju í Reykja-
víkurhöfn en sjómenn eru nú að
búa skip sín til áframhaldandi
veiða.
Aflakvóti hvers skips fyrir sig
lá fyrir fyrsta janúar og ný fisk-
verðsákvörðun verður birt fyrsta
næsta mánaðar. Margir loðnu-
bátar eru þegar farnir til veiða og
sex togarar munu selja afla sinn í
Englandi og Þýskalandi nú í vik-
unni.
Margt bendir til þess að sala
erlendis á ferskum ísuðum fiski
af íslandsmiðum haldi áfram að
aukast á þessu ári, frá því sem
verið hefur en á síðasta ári var
um að ræða 63 þúsund tonn og
þar af voru seld um 43 þúsund
tonn á Englandsmarkað.
Tímamynd: Árni Bjarna
Aidsveiran breiðist
stöðugtútá íslandi
Breiðdalsvík:
Fjögur
sjúkra-
flug
■ Sjúkraflug frá Breiðdalsvík
voru fjögur á milli jóla og nýárs.
Sveitarstjórinn á Breiðdalsvík
hafði samband viðTímann vegna
fréttar sem birtist þann 3ja janú-
ar, og sagt var að fjogið hefði ver-
ið með drcng, sjúkraflugi. frá
Egilsstöðum. Hið rctta er að
hann fór með vél frá Brciðdals-
vík.
■ „Við erum að finna töluvcrt af
tilfellum þar sem um gömul smit er
að ræða og margt bendir til þess að
dreifingin á Aids sé svipuð hér á
landi og í löndunum í kringum
okkur," segir Sigurður Guðmunds-
son læknir á Borgarspítalanum í
Reykjavík.
„Það gcrir okkur svolítið erfitt fyr-
ir að áætla útbreiðslu veirunnar hér á
landi hversu stutt er síðan farið var
að leita hennar meðal íslendinga en
tilfellunum hefur stöðugt verið að
fjölga."
Til þessa hefur aðeins einn ein-
staklingur greinst með sjúkdóminn
en hann er nú látinn eins og kunnugt
er.
Sigurður segir að símaþjónusta sú,
sem komið var upp til að veita upp-
lýsingar um sjúkdóminn og hvert
fólk gæti leitað, hafi reynst vel en
nokkuð hafi dregið úr hringingum frá
því serr, mest var í nóvember.
„Því er þó ekki að leyna að við
bjuggumst við að hún yrði meira not-
uð og fleiri smittilfelli kæmu í
leitirnar í gegnum hana. Við erum að
vinna úr tölulegum upplýsingum
varðandi fjölda einstaklinga, sem
greinst hafa með veiruna, til að hægt
sé að gera sér einhverja grein fyrir
útbreiðslunni hér og niðurstöðurnar
úr þeirri könnun verða væntanlega
birtar innan skamms.“
Skattprósentan ákveöin:
Fyrirframgreiðslan
65% m.v. síðasta ár
■ Ákveðið hcfur verið að fyrir-
framgreiðsla skatta á fyrra helmingi
ársins 1986 verði 65% af heildar-
sköttum ársins 1985. Það þýðirt.d. að
sá sem hafði 100 þús. krónu skatta í
■ Fimmtán unglingar frá Norður-
löndunum hittust í Lundi í desem-
ber.
í tengslum við kynningarherferð
Norðurlandaráðs var efnt til ritgerð-
arsamkeppni meðal ungs fólks um
norrænt samstarf. Þeim unglingum
sem hlutskarpastir voru í keppninni,
var boðið til fundarins. íslensku
unglingarnir sem fóru eru, Valgerð-
ur María Gunnarsdóttir, nemi í MA
fyrra þarf nú að greiða 65 þús. á fyrri
hclmingi ársins, eða 13.000 kr. á
hverjum gjalddaga.
Áætlað er að tekjur hafi að meðal-
tali hækkað um 36% milli áranna
og Höskuldur Ari Hauksson, nemi í
MR, en ritgerðir þeirra voru valdar
úr íslensku ritgerðunum sem bárust
til birtingar.
Ritgerðirnar fimmtán birtust í
fjórða hefti tímarits norrænu
félaganna, „Vi i Norden“, sem kom
út í byrjun desember. íslensku rit-
gerðirnar tvær komu auk þess í jóla-
blaði Norræna félagsins. „Norræn
jól“.
1984 og 1985 og mun skattvísitalan í
ár hækka um sama hlutfall. svo og
skattstigar, persónufrádráttur og
barnabætui.
Tekjuskattsálagning í ár verður
þannig, af skattskyldum tekjum árs-
ins 1985: Af fyrstu 272 þús. kr. greið-
ast 20%, af næstu 272 þús. kr. greið-
ast 31% og svo 44% af því sem um-
fram er 544 þús. krónur. Frá reikn-
uðum tekjuskatti dregst síðan
persónuafsláttur, 47.600 kr. hjá ein-
staklingi (og hvoru hjóna) og 83.300
kr. hjá einstæðum foreldrum.
Samkvæmt þessu verður tekju-
skattur einstaklinga (hvors hjóna)
sem hér segir, miðað við að þeir noti
10% frádráttarregluna: Af 400 þús.
króna tekjum um 34 þús., af 500 þús.
króna tekjum unr 62 þús. og af 600
þús. kr. tekjum um 90 þús. króna
tekjuskattur. Hjá þeim sem eiga
börn koma barnabætur til frádráttar
- eða útborgunar hjá tekjulágum -
10.200 með fyrsta barni og 15.300
með hverju barni umfram það. Að
auki koma 10.200 kr. barnabætur
með hverju barni undir 7 ára aldri.
Barnabætur til einstæðra foreldra
verða sem áður hærri.
Ungum rithöfundum
boðið til Lundar
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík:
Tóku níu kíló
af kannabisefnum
- á árinu 1985
■ Tæplega níu kíló af hassi, rúm-
lega hálft kíló af marijúana, 27
kanabisplöntur, tæpt kíló af
amfetamíni, 24 grömm af kókaíni
og 2223 skammtar af LSD voru
gerðir upptækir úr fórum fíkniefna-
smyglara á árinu 1985. Þetta magn
er afrakstur starfa fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Reykjavík.
Auk þess var lagt hald á fíkniefni
í nokkrum öðrum umdæmum. í
fréttatilkynningu frá lögreglu-
stjóraembættinu í Reykjavík er
tekið fram að verulegt magn hafi
fundist utan Reykjavíkur.
Tollgæslan lagði hald á efni á
Keflavíkurflugvelli. Þá var toll-
póststofan ötul, og kom upp um
nokkur smygl á árinu. Stærstu
fíkniefnasmygl ársins 1985 tengd-
ust öll skipaflutningum. Þá var lagt
hald á umtalsvert magn af fíkniefn-
um á Sciphol flugvelli í Amster-
dam, en þau voru á leið til íslands.
Þar náðust 24 grömm af efni sem
hollenska lögreglan taldi vera
herót'n.
Alls voru 198 mál til rannsóknar
hjá fíkniefnadeildinni. Kærðirein-
staklingar voru 412, og þar af níu
útlendingar. Karlar voru í miklum
meirihluta, eða 333 á móti 79
konum. Af þeim 412 sem voru
kærðir, höfðu 245 komið við sögu
deildarinnar áður, en 167 voru
kærðir í fyrsta skipti.
í Ijós kemur, í fréttatilkynningu
frá lögreglustjóraembættinu, að
langmestur meirihluti þeirra sem
kærður er, eru atvinnuleysingjar,
sjómenn og verkamenn, eða alls
282 af 412. Opinberir starfsmenn,
kærðir fyrir fíkniefnasmygl voru
tólf talsins og verslunarmenn 18.
Rúmlega þrír fjórðu þeirra sem
kærðir voru, voru 21 árs eða eldri.
Með tilliti til þessara talna sem
nefndar eru að ofan, telur lögregl-
an að ljóst sé að kannabisefni hafi
unnið sér fastan sess sem vímugjafi
hérlendis.