Tíminn - 07.01.1986, Page 6

Tíminn - 07.01.1986, Page 6
6 Tíminn Þriðjudagur 7. janúar 1986 Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvstj.: GuðmundurKarlsson Ritstjóri: Helgi Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: NíelsÁrni Lund Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Innblaðsstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Misbeiting valds ■ Ekki hefur þáð farið dult, að ýmis öfl í Sjálfstæðis- flokknum hafa alla tíð síðan núverandi ríkisstjórn var mynduð skipulagt sérstaka aðför að Lánasjóði ísl. námsrrránna. Framsóknarmenn liafa verið þarna til varnar og stundum átt í vök að verjast, en þó tekist að koma í veg fyrir að íhaldinu heppnaðist að koma fram áformum sín- um um allsherjar árás á sjóðinn í því skyni að veikja hann og gera hann ófæran um að sinna því mikilvæga hlutverki sem slíkur sjóður hefur að gegna í nútíma þjóðfélagi. Meðan Ragnhildur Helgadóttir var menntamálaráð- herra frá því í maí 1983 fram í október 1985 tókst fram- sóknarmönnum í ríkisstjórninni að sannfæra hana um nauðsyn jákvæðrar afstöðu ríkisstjórnarinnar til Lána- sjóðsins og koma í veg fyrir að markaðshyggjan í Sjálf- stæðisflokknum gengi af Lánasjóðnum dauðum eða magnaði gegn honum hleypidóma og þröngsýni. Því verður ekki annað sagt en að Ragnhildur Helgadóttir hafi stýrt málefnum Lánasjóðs ísl. námsmanna af gætni og hófsemi, enda tók hún meira mark á samstarfsmönn- um sínum úr hópi framsóknarmanna en postulum frjáls- hyggjunnar sem vaða nú uppi í Sjálfstæðisflokknum og núverandi menntamálaráðherra hefur sem ráðgjafa. Með komu Sverris Hermannssonar í stól menntamálaráðherra hafa orðið alvarleg umskipti í þessu efni. Hann gerir sig nú sekan um þá leiðu háttsemi tækifærissinnaðra ráðherra á ýmsum tímum að slá um sig með stóryrðum og láta fyrirgang og fullyrðingar í fjölmiðlum bæta upp innihaldsleysi eða lítið hugsaðar og ranglátar ákvarðanir sínar. Hefur menntamálaráðherra með yfirlýsingum sínum varðandi málefni Lánasjóðsins, stjórn hans og starfslið, valið þá leið að málefni Lánasjóðsins séu rædd með stríðsletri í fyrirsögnum á forsíðum dagblaða í stað mál- efnalegrar umræðu. Það er sú óskastaða sem málefna- litlir ráðherrar og tækifærissinnar í ráðherrastólum stefna að. Sverrir Hermannsson hefur í þessu máli aug- ljóslega valið sér stöðu í þeim hópi. Þá hefur ráðherrann unnið að því sem er áberandi í pólitískri starfsemi Sjálfstæðisflokksins, að ráðast að einstaklingum og starfsliði heilla stofnana, ef slíkt fólk er ekki íhaldinu þóknanlegt. Aðalmarkmiðið mcð skyndilegri árás á Lánasjóð ísl. námsmanna, starfslið hans og framkvæmdastjóra er ekkert annað en að fá tækifæri til þess að rýma embætti og stöður fyrir íhalds- menn. Hér er um pólitíska ofsókn að ræða, nánast pólit- íska hreinsun eins og gerist í einræðisríkjum. Enginn hetjuskapur er fólginn í þess konar aðförum ráðherrans heldur bera þær keim af öðrum eigindum. Ekki er að efa að þessi mál verða rædd þegar þing kemur saman að nýju. Þá mun koma í ljós hvort þing- menn Sjálfstæðisflokksins eru allir sammála ráðherran- um en þó má búast við að háværar mótbárur heyrist ekki frá þeim, enda of margir í þeira röðum sem trúa blint á 'ögmál markaðarins og að þeir einir sem fjármagnið hafa uli njóta þess. Bæði hvað varðar möguleika til náms n á pðrum sviðum. Pví verður vart trúað en að þingmenn annarra flokka .ameinist um að fordæma þannig hugsunarhátt. SAMTÍNINGUR B Mpim tamálaráðherra leysir framkvæmdastjóra LIN frá störfum: I Þau skil sem mér voru gerð af hálfu þessa sjóðs á síðasta « ári fylltu mig vantrausti — segir menntamálaráðherra — Er mjög undrandi á þessari uppsögn, segir Sigurjón Valdimarsson i Menntamálaráðherra Sf; MFM’ TAMAL Sverrír rekur Siguríón ®«r/; S^,.>^sju ">nVff,- Menntamálaráðherra rekurframkvœmdastjóra LIN „vegna vanrækslu ístarfi“. Sigurjón Váldimarsson: Getstaðið við allt ísambandi við reksturinn. Starfsmenn sjóðsins bregðast hart við: Förum íaðgerðir verði uppsögnin ekki dregin til baka VALDBEITING? ■ Miklu athygli hefur vakið sú skyndiákvörðun menntamálaráð- herra Svcrris Hermannssonar að reka fyrirvaralaust úr starfi fram- kvæmdastjóra l.ánasjóðs ísl. námsmanna. Sagnir hernta að menntamálaráðherra hafi síðustu daga fyrir árantót kallað fram- kvæmdastjórann fyrir sig og gefið honum kost á að segja upp störfum ellegar að honunt yrði sagt upp. í Dagblaðinu 4. janúar er skýrt frá þessu með eftirfarandi orðum: Sverrirrak Sigurjón „Vegna vaurækslu í starfi,“ svar- aði Sverrir Hermannson spurningu I)V. Hvers vegna hann vék frani- kvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna, Sigurjóni Valdimars- syni, úr starfi í gær. Sverrir kvaðst ekki tilgreina fleiri ástæður. Hann biði niður- stöðu úttektar sem frani færi á starfscmi sjóðsins. Hann sagði að í desember hefðu komið upp stór- kostlegar vanáætlanir á gjöldum. „Þannig reiður get ég ekki sætt mig við,“ sagði ráðherrann. Þjóðviljinn segir einnig frá þessari ákvörðun ráðherra þennan sama dag: Sverrir rekur Sigurjón Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra vék Sigurjóni Valdi- marssyni framkvæmdastjóra LÍN fyrirvaralaust úr starfi í gær og til- greinir það sem ástæðu fyrir upp- sögninni að Sigurjón hafi sýnt van- rækslu í starfi. Starfsmenn sjóðsins hafa brugðist liart við þcssari aðför ráðherrans og áskilja sér fullan rétt til aðgerða dragi ráðherrann ákvörðun sína ekki til baka fyrir há- degi á mánudaginn. Strax í gær setti Sverrir Hrafn Sigurðsson viðskiptafræðing í stöðuna til bráðabirgða og honum til aðstoðar í starfi á að vera Itcynir Kristjánsson starfsmaður Hagvangs. „Það er rétt að ég fékk uppsagn- arbréf í dag, en ég get ekki fullyrt hvers vegna ráðherrann tók þessa ákvörðun. Ég tel að það sé ekkert í sambandi við rekstur sjóðsins sein ég get ekki staðið fyllilega við,“ sagði Sigurjón í samtali við Þjóð- viljann í gær. Starfsmenn sjóðsins urðu vitni að því fyrr í þessari viku að ráðherrann sagðist ekkert hafa upp á Sigurjón að klaga, sem skýt- ur skökku við þá ástæðu sem gefin er fyrir uppsögninni. Þeir Svavar Sigurðsson for- maður stjórnar LÍN og Eiríkur Ing- ólfsson komu á fund Sigurjóns i gær í umboði menntamálaráðherra og gengu eftir því hvort hann ætlaði að segja upp að sjálfsdáðum, en þegar hann ncitaði því drógu þeir upp úr pússi sínu bréf ráðherrans sem áður er ncfnt. Starfsmcnn LÍN hafa sent frá sér tvær harðorðar yfirlýsingar vegna þessa máls. Þeir hafa tilkynnt stjórn sjóðsins að þcir inuni ekki vinna yfirviiinu um sinn. Þá telja þeir að þær sakir sem á Sigurjón eru bornar séu fyrst og fremst á ábyrgð stjórnar sjóðsins og fara fram á að hún axli þá ábyrgð. Starfsmennirnir tclja þannig að uppsögnin sé ólögleg og áskilja sér rétt til að grípa til aðgerða vegna hennar. Þeir telja hana siðlausa, og að hún brjóti sterklega í bága við hagsmuni námsmanna. Að sjálfsögðu lætur Mogginn sitt ekki eftir liggja til að skýra frá því sem gerðist og þann 4. janúar hefur hann eftirfarandi eftir mennta- málaráðherra: „Þetta cr ekki skemmtiverk, en ég hlýt að fara eftir samvisku minni og þeim skyldum sem ég tel að á mér hvíli. Hér er á ferðinni millj- arða sjóður og ég get ekki stund- inni lengur horft á hann rckinn öðru vísi en undir stjórn þeirra sem ég hefi ástæðu til að treysta," sagði Sverrir < Hermannsson mennta- málaráðherra í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Þau skil sem mér voru gerð af hálfu þessa sjóðs á síð- asta ári fylltu mig vantrausti á að vel og skynsamlega væri á málum haldið og er ég þá ekkert að vitna til þeirra mýmörgu kvartana sem manni berast um afgreiðslumáta þessarar stofnunar. Ég vil gera lireytingar og það er verið að at- liuga hvaða breytingar eru skynsamlegar. Nú stendur fyrir dyrunt úttekt á starfsemi og stöðu sjóðsins og tak- markið er að hún taki 3-6 mánuði. Lögin um sjóðinn cru til endur- skoðunar og koma til meðferðar í þessum mánuði. Samhliða útttekt- inni og þegar niðurstöður hennar liggja fyrir verða teknar ákvarðanir og leitað lags um nýjar reglur fyrir starfsemi sjóðsins, cn fyrr vil ég ekki tala um þær ávirðingar sem þarna kunna að vera í starfi. Ég hef þegar skýrt frá þeim von- brigðum sem ég varð fyrir með starfsemi þessa sjóðs á síðasta ári og þeim áfellum sem ég taldi mig liggja undir vegna skila þessa sjóðs og starfsemi. Mér var ekki gerö grein fyrir stöðu mála sem skipti tugum milljóna króna. Við borð lá að ég yrði gerður að brigöanianni gagnvart þúsunduni námsmanna. Þannig ætla ég ekki að láta mig bera upp á sker án þess að hafa í frammi einhver viðbrögð við að rcyna að byrgja brunninn áður en barnið dettur aftur ofan í.“ í fréttinni er síðan viðtal við Sig- urjón Valdimarsson og hefur hann þetta að segja um málið: „Ég cr itijög undrandi á þessari uppsögn." „Það hafa komið fram í hlööum ásakanir á hendur sjóðn- iim og þær eru allar skýranlegar. Ég veit að ég hef sinnt mínu starfi af trúmennsku og axlað þá ábyrgð sem á þessum sjóði hvílir og er því afskaplega hissa á þessum aðgerð- um menntamálaráöherra. í dag komu til mín Auöunn Svav- ar Sigurðsson formaður stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna og Eiríkur Ingólfsson stjórnarmað- ur. Þeir báru mér tilmæli frá menntamálaráðherra um að ég segði þessu starfi lausu. Ég sagði þeim að ég gæti ekki orið við þeim tilmælum. Ég sæi ekki að ég hafi brotið neitt af mér í niínu starfi. Ég hefði gegnt því af trúmennsku mið- að við þær aðstæður sem sjóðnum eru búnar. Þá afhentu þeir mér bréf ráðherra. Ég mun svara því sem getið er uin í uppsagnarbréfinu og að sjálf- sögðu mun ég leita mér lögfræði- legrar ráðgjafar varðandi þetta mál,“ sagði Sigurjón Valdimars- son. Starfsmenn Lánasjóðs létu sitt ekki eftir liggja og í niðurlagi frétt- ar Morgunblaðsins er sagt frá henni og viðbrögðum menntamálaráð- herra: í gær sendu starfsmenn LÍN frá sér ályktanir þar sem m.a. er til- kynnt að þeir taki ekki í mál að vinna yfirvinnu um sinn vegna þess að menntamálaráðherra hefur vik- ið framkvæmdastjóra sjóðsins frá störfum. Þá er brottvikningunni harðlega mótmælt. I lok ákyktun- arinnar segir: „Þar sem svo fauta- lcga er að þessu staöiö áskiljum við okkur fullan rétt til aðgerða, svo framarlega sem ráðherrann dregur ákvörðun sína ekki til baka fyrir hádegi mánudaginn 6. janúar nk.“ „Þeim starfsmönnum sem hafa haft þrek til að vinna alit að 170 klukkustundir á mánuði í yfirvinnu er líklega ráðlagt að taka sér aðeins hlé frá slíkum þrældómi," sagði mcnntamálaráðherra er hann var spuröur álits á þessum ályktunum. „Ég vona að þessar aðgerðir verði löglegar þar sem starfsmenn sjóðs- ins bera niér á brýn lögleysu. Það er Ijarri lagi að ég beygi mig um hársbreidd fyrir slíkum hótunum." Þetta mál á eflaust eftir að draga dilk á eftir sér og vitað er að ein- hverjir þingmanna Frantsóknar- flokksins muni ekki taka því þegj- andi að ráðherra skuli nota vald sitt til að reka fyrirvaralaust úr starfi menn semhafaekkert til saka unn- ið annað en að vera með aðra pólit- íska skoðun en ráðherra.Slík vinnu- brögð geta ckki gengið og eru hættulegt fordæmi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.