Tíminn - 23.03.1986, Qupperneq 6

Tíminn - 23.03.1986, Qupperneq 6
6 Tíminn Sunnudagur23. mars 1986 ^ - fóðri með R«sneS'"U Landburðurog mokveiði: besta vertíð í manna minnum þó það séu færri net í sjó en nokkru sinni áður OFANKOM A. skafrenn- ingur, og bíllinn enn kaldur, mjakast upp Grundarbraut í kafaldi, snjórinn þyrlast um ljósastaurana, ruðningar frá því fyrr um kvöldið og myrkur úti. beygir inn Brautarholtið, stopp- ar fyrir utan eitt húsið og flautar klukkan eitt um nótt. Bíður. Fer út og skefur af framrúðunni, horfir upp í gluggana og bíður eftir Ijósi. Annað flaut. Koma út, tveir, á leið í jakk- ana, hrollur og syfja. Og síðan út úr bænum sem steypist niður fjallið, hlíðarnar og endar í frystihúsum og salthúsum sem renna í höfnina þar sem bátarnir liggja bundnir, klaki og snjór og ljósavél- arnar mala. Undir Enninu teikna snjókornin fjarvíddarteikningar á móti bílnurn. Nýi vegurinn heldur sig í hæfilegri fjarlægð frá Hettu Tröllkonu sem nær ekki lengur að kasta í menn grjóti. Og vísan hans Jónasar Hvort á nú heldur að halda í hamarinn svarta inn ellegar út betur - til þín Eggert, kunningi minn? heyrir til horfinni tíð, þó Eggert mari enn í hálfu kafi út í firðinum, varla meiren bein í brúðkaupsskarti. En mennirnir í bílnum hugsa ekki til Eggerts. gamlir þulir komnir á frívakt og veðurstofan tekin við, spáir sex vindstigum af suð-austan. éljagangi og miklum sjó. í gær var bræla og kokkurinn stóð við að steikja kótelettur í tvo tíma, skorð- aði sig fastan og sagaði hrygg með járnsög. Sexhundruð-tonna-veislan og ís á eftir. Bíllinn beygir inn á Landshöfnina í Rifi. rennur og snýst í hálfhring í hálkunni, skríður að bryggjukantin- um. Enginn runnið útaf bryggjunni? I fyrra sótti Egill mannskapinn á rúgbrauðinu í brjáluðu roki og hálku. Hann hafði farið niður í bát fyrr um kvöldið og vissi að bryggjan var eins og gler. Þegar kom að beygjunni sagði hann þeim að vera tilbúna að stökkva út ef bíllinn ætlaði framaf. og þá tók vindurinn í og bíllinn byrjaði að skríða í átt að bryggjukantinum. Panik. Þeir framí stökkva út, Egill reynir að halda bílnum á bryggjunni, Baldi, skip- stjóri, getur ekki opnað rennihurð- ina að aftan, tekst það og stekkur út. Agli finnst bíllinn ætla framaf og hoppar út, en rúgbrauðið er komið það fram á bryggjuna að hann stekk- ur beint í sjóinn, svamlar og býst við bílnum yfir sig, en hann stöðvast við kantinn. Egill í sjónum og bíllinn á bryggjunni. Þeir hinir liggjandi við kantinn. Kóki á öðrum skónum, sleppir sér og kastar honum í sjóinn. hleypur að bátnum, ber stýrishúsið að utan og öskrar: „Ég týndi skónum, ég týndi skónum". Siggi kernur upp og heldur að þeir hafi allir farið í höfnina. Kóki öskrandi og þeir hinir koma labbandi eftir bryggjunni og Egill blautur, með buxurnar niðrum sig, þungar af sjónum. Engin ævintýri nú. Koma á nokkrum bílum, þöglir og þreytulegir, kannski bölvandi. „Djöfull ertu slapplegur. Þú ríður alltof mikið." Daufur hlátur og burðast við að svara. karlamórallinn orðinn lítið annað en vani. og enginn nennir almennilega að vera hetja. Bölv er siður á Sandi, og Sandarar orðljótir langt aftur í ættir. Formenn á Sandi brölta frá landi bölvandi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.