Tíminn - 23.03.1986, Qupperneq 23
Sunnudagur23. mars 1986
Tíminn 23
Islendinga-
félagið
Smásaga eftir
Sigurö Ingólfsson
Stofnun íslcndingafélagsins var
þörf framkvæmd og löngu tímabær.
Frumkvöölar að stofnun þcss sáu í
liendi scr að svo félagslega sinnuð
þjóð og félagasækin hefði ckki cnn
um citt fclagið að vclja sem hafði það
umfram önnur að í því rúmuðust all-
ir ÍSlendingar scm væru staddir á
þessari eyju þá stundina. Eins og all-
ar nýjungar hér yfirleitt, fékk félagið
mikinn andbyr í fyrstu. Mönnum
þótti það ekki andskotalaust að hafa
engan keppinaut eða yfirleitt ekkert
fínt að vera í samtökum sem allir
gátu verið í bara fyrir það eitt að vera
Islendingur. Sérstaklega fór þetta
fyrir brjóstið á stjórnmálaflokkun-
um og á meðan félagið var að vaxti úr
grasi linnti ekki látum á síðum
flokksblaðanna um að þetta væri
vafasamur félagsskapur, scm væri
stofnaður til höfuðs flokkunum og
þar með lýðræðinu í landinu. En
smárn sáman tóku þau aðra stefnu og
studdu félagið með ráðum og dáð.
Félagið haföi það eiít á stefnuskrá
sinni að stuðla að því að allir íslend-
ingar hcfðu það sem allra best með-
an þeir eyddu ævi sinni hér á landi.
Þetta var, þótt undarlegt megi
heita mistúlkað og jafnvel rangfært
og ýmsar stjórnmálastefnur teknar
til samjöfnunar, til þcss að svcrta
félagið eða til að hcfja það upp.
En auðvitað hafði félagið sína
mælsku formælendur og þcgar einn
þeirra sagði að tilgangur þcss væri sá
meðal annars að gera þá ríku ríkari.
og þá fátæku ríkari hvar í flokki
sem þeir stæðu var sem vopnin væru
úr höndum þeirra slegin og í margar
vikur var ckki minnst á félagið í rit-
stjórnardálkum.
Og ekki lcið langur tími áður en
allir ritstjórar blaðanna voru gengnir
í félagið og cftir það sigldi það lygn-
an sjó. Flokksbönd riðluöust bæði á
þingi 'sem annarstaöar og vcrk
stjórnmálamanna varð fyrst og
fremst að komast að einni rökréttri
niðurstöðu um mál óháð tiifinning-
ununi eða atkvæðaveiðum og menn
viðurkenndu afdráttarlaust aö annar
aðilinn hafði rétt eða réttara fyrir
sér. Smám saman fóru sjálfsögð mál
í gegnuni þingið sem áður höfðu
strandað þar árum saman þótt allir
vissu að meiri hluti þjöðarinnar væri
þeim fylgjandi.
Það merkilegasta við félagið var.
að þar var aldrei kosin nein stjórn. Á
stofnfundi þess var ákveðið að efna
til aðalfundar, fáeinum árum eftir
stofnfundinn og kjósa þá stjórn. Að
þeim árum liðnum var Ijóst að allir
íslendingar voru gengnir í það og þá
þótti hreinlega hvorki rétt. né ástæða
til að kjósa því stjórn. Tveimur árum
eftir það, eða sem nam einu
kjörtímabili ríkisstjórnar var ákveð-
ið að leggja félagið niður enda hafði
það náð tilgangi sínum. og háværar
raddir væru uppi urn að það vær.i orð-
ið óbúandi í þcssu landi sökurn leið-
inda.
rnirnmi
SHARP ferðatæki verð frá
kr. 7.265.-
SHARP ferðatæki verð frá SHARP vasatölvur verð frá
kr. 17.944.- kr. 496.-
Tíminn er dýrmætur og það er óþarfi að þeytast bæinn ó enda í
örvæntingarfullri leit að fermingargjöfum, því HLJÓMBÆR hefur
gjafirnar sem unglingunum líkar.
Fermingargjafirnar frá HLJÓMBÆ eru framtíðareign. Við nefnum
VASATÖLVUR fyrir námshestana, FERÐATÆKI í útileguna og
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI íunglingaherbergið.
Allt vörur sem endast öll unglingsárin — og vel þaðl
Byrjaðu leitina í Hljómbæ — það gæti sparað tíma
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Sigurður Ingúlfsson.