Tíminn - 18.04.1986, Side 1

Tíminn - 18.04.1986, Side 1
liii: BANKAMENN hafa samþykkt geröa kjarasamninga viö bankana. At- kvæöagreiðsla félagsmanna f SÍB fór fram dagana 10. og 11. apríl, en kjara- samningarnir voru undirritaöir meö fyrir- vara þann 3. apríl. 3508 voru á kjörskrá. 86% prósent neyttu atkvæöaréttar síns. Af þeim sögöu 2252 já, eöa 74,3%. 647 sögðu nei og er það 21 %. VIÐRÆÐUR HAFA ekki verið boöaöar við flugumferðarstjóra, en þeir neita nú aö vinna eftirvinnu, utan þeirra sem skipaöir eru vaktstjórar. Ekki hefur enn orðio röskun á flugsamgöngum þó aö flugumferðarstjórar hafi neitað aö vinna eftirvinnu. UNDIRMENN á fraktskipum hafa fellt kjarasamningana, í allsherjar at- kvæöagreiöslu innan félagsins. Boöaöur hefur veriö sáttafundur í deilu þeirra næstkomandi þriðjudag. Allsgreiddu 117 atkvæöi og af þeim voru 83 á móti. ÚTfLUTNINGUR DILKA- KJOTS til Bandaríkjanna með milli- göngu fyrirtækisins Pride of lceland er ekki á döfinni. Fram kemur í svari land- búnaöarráöherra viö fyrirspurn Davíðs Aöalsteinssonar á Alþingi aö unnið hafi veriö aö slíkri útflutningstilraun og aö gerö hafi verið drög aö samkomulagi viö fyrrnefnt fyrirtæki um sölu á 80 tonnum af íslensku lambakjöti áriö 1986 oa áfram- haldandi sölu næstu fimm ár. I kjölfar lokatilraunar til aö koma málinu í höfn í janúars.l. mæltu íslenskirsamningsaðilar meö því aö samstarfi viö Pride of lceland yrði slitið. Kjöt sem var sérstaklega valið vegna hinna væntanlegu viðskipta er enn óselt. RADÍÓAMATÖRAR á íslandi eiga fjörutíu ára afmæli í ár. Félag þeirra, „ íslenskir rad íóamatörar" var stof naö áriö 1946. í dag, átjánda apríl, er alþjóölegur dagur radíóamatöra. Islenska félagið er eitt af aðildarfélögum IARU sem eru alþjóðasamtök radíóamatöra. VÍSITALA BYGGINGAR- KOSTNAÐAR hækkaði aðeins um 0,19% milli mars og apríl, en slík mánaðarleg hækkun svarar til 2,3% árs- hækkunar. Vísitalan í byrjun apríl reyndist 265 stig. Undanfarna 3 mánuöi hefur byggingarvísitalan hækkaö um 5,2%, sem jafngildir 22,5% verðbólgu í heilu ári. Allir launaliðir vísitölunnar héldust óbreyttir, og flestir efnisliöir einnig, nema hvaö örlítil hækkun varö á raflagnaefni, málningarefni og einhverju fleiru. MÁL SÓLFARA AK 70 frá Akranesi var tekið fyrir í Sakadómi Reykjavíkur í gærdag. Málinu lauk meö dómsátt, og skal skipstjóri Sólfara greiöa 75 þúsund krónur. Ekki var gerö krafa til þess aö aflinn yröi geröur upptækur. Eftir aö dómsátt var ákveðin fékk Sólfari aö láta úr höfn. Sólfari var staöinn aö ólöglegum veiö- um á Breiðafirði á þriðjudag, þar sem hann var meö netatrossu innan friðaðs hólfs. Eins og Tíminn skýröi frá í gær var báturinn færður til hafnar í Reykjavík, þar sem rannsóknarlögreglan tók mál hanstil rannsóknar. Þaö var síðan afhent ríkis- saksóknaraembættinu til umfjöllunar og aö síöustu var þaö tekið fyrir í sakadómi. KRUMMI „Það lítur út fyrir að Grænlendingar ætli sér að verða loðnir um lófana." Ekkert verður af verkfalli Ófaglært starfsfólk í veitingahús- um féllst á málamiðlunartillögu sem lögð var fram af sáttasemjara ríkisins í gærdag. Atkvæðagreiðsla sem fram fór í gærkvöldi leiddi í ljós að mikill meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði var fylgjandi til- lögu sáttasemjara. Af þcim 657 sem voru á kjörskrá greiddu 223 atkvæði. Tillaga sáttascmjara er í sautján liðum og flestir þeirra snúa beint að kröfum félagsmanna. Þrjú meg- inatriði fengust samþykkt. Lág- launabætur, sem greiddar eru þrisvar á árinu, nema 5.000 krónum, síðan kr. 3.000 og loks 2.500 krónum. Þá má einnig geta þess að námskeið þau sem gefið hafa starfsfólki flokkahækkanir, veita nú þriggja flokka hækkanir í stað tveggja og einnig þarf styttri starfsaldur til þátttöku í þeim. Það er eins árs og þriggja í stað tveggja og fimm ára áður. Það er því ljóst að ekkert verður af boðuðu verkfalli. -ES Þá er að fjarlægja nagladekkin, þar sem vorið er farið að nálgast. Þessi var að vísu ekki að skipta um dekk á flugvélinni sinni enda eru þær víst sjaldan á negldum. Vorverkin, hvar seni er, eru farin að kalla á fólk. Flugvélar þurfa ekki síöur umhyggju en önnur farartæki og því ekki að nota góða veðrið og stilla vélinni í anddy ri skýlisins. Tímamynd-Sverrír Viöræöur um skiptingu á loönukvótanum í Kaupmannahöfn: Grænlendingar sigldu viðræðunum í strand Kom mér mjög á óvart, sagöi sjávarútvegsráðherra Skyndilega slitnaði upp úr við- ræðum sendinefnda íslands, Græn- lands og Noregs um loðnukvótann á sameiginlegunr loðnustofnum landanna, en fundahöld voru í gærdagt Kaupmannahöfn. Skyndi- legar tillögur Grænlendinga, sem gengu í þá veru að breyta forsend- um úthlutunarinnar frá því sem verið hefur varð til þess að slíta viðræðunum. íslenska sendinefnd- in er væntanleg heim innan tíöar. Það verður þó að teljast nokkur árangur að ákveðið hcfur verið að fiskifræðingar landanna þriggja munu hittast og ræða nýlegar rann- sóknir á loðnustofnunum. Ekki hefur enn vcrið ákveðið hvenær sá fundur fer fram. Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra sagði í samtali við Tímann í gær að það sem Græn- lendingar hefðu komiö fram með væri algerlega í andstöðu við þau gögn sem fiskifræðingar hér á landi hafa aflað. Skipting á þeim hluta stofnsins sem fiskifræðingar hafa talið óhætt aö vciða var síðast á þann veg að Norðmenn fcngu í sinn hlut fimmtán af hundraði, og lslcnding- ar um 85 af hundraði. Viö lá í fyrra að Grænlendingar fengju lítinn hluta þessa, en af því varð þó ekki. Það-er því ljóst að þeir hal'i ætlað sér nokkurn hluta þcssa árs kvóta. Halldór Ásgrímsson sagði í sam- tali viö Tímann í gær að þetta hcfði komið sér mjög á óvart. „Það cr mjög óvcnjulegt að þegar menn eru hingt komnir í samningum og hafa reynt að ná samningum í mörg ár, aö þá skuli þeir setja samningsstööuna í allt aðra stöðu en skiliö var við hana. Þetta gerir málið miklu crfiðara en það var,“ sagði Halldór. Hann benti á að það væri mikil- vægt að fiskifræðingar skyldu ætla að hittast og ræða ný gögn sem væru fram komin í málinu. „Það konr þó fyllilcga frarn að það var tregða hjá aðilum að fallast á að vísindamenn myndu reyna að vinna upp nýja skýrslu um ástand stofnsins," sagði Halldór. -ES Þjóðartekj- ur aukastog skuldir lækka Endurskoðuð og bjartsýn þjóöhagsspá Nýjasta endurskoðun Þjóðhags- stofnunar á ástandi og horfum í efnahagsmálum bendir til að þjóð- artekjur vaxi allmiklu meira en áður var gert ráð fyrir. Batnandi viðskiptakjör, lækkun olíuverðs og hækkun á fiskverði erlendis veldur þessu. Þetta kom fram í ræðu Stein- gríms Hermannssonar. forsætis- ráðherra á Alþingi í gærkvöldi. Viðskiptahalli vcrður minni en ætl- að varð. þrátt fyriraukinn innllutn- ing í kjölfar tollalækkana. Erlendar skuldir sent hundr- aðshluti af þjóðarframleiðslu munu lækka í fyrsta sinn um árabil og greiðslubyrðin minnka. Þjóð- arframleiðslan mun aukast um 3,5%. Mikil nýsköpun á sér stað í atvinnulífinu og batnandi efnahag verður ráðstafað til að renna flciri stoðum undir atvinnulífið. Ekki verður hlaupið frá því að cndurreisa fjárhag ríkissjóð og cr engin ástæða til að kosningar verði fyrr en á eðlilegum tíma að ári. Ræða forsætisráðherra er birt á bls. 8. Líbýudeilan: Hefndarverk eru hafin Beirút-Kcutcr Breskir borgarar og bresk mannvirki í Líbanon urðu að skotspæni í gær. Árásirnar voru gerðar af hópum sem virtust vera að hefna fyrir þátt Breta í árás Bandaríkjamanna á Líbýu. Lík þriggja útlendinga, sem öll vorutalin verabresk.fundust í hlíðunum austur af Beirút í gær. Þá var breskum sjónvarpsmanni rænt og skotið var að bústað sendihcrra Breta í landinu. Tveir hinna látnu þekktust af myndum en þeir voru báðir kenn- arar er hurfu í síðasta mánuði. Múhameðstrúarhópur er kallar sig „Byltingarsamtök sósíaliskra múhameðstrúarmanna“ lýsti því yfir að þriðji Bretinn hefði verið hengdur í hefndarskyni. Sá var Alec Collett er haldið hafði verið föngnum í rúmt ár. Ekki var þó vitað hvort Collett hefði verið meðal hinna þriggja er fundust í gær þar sem breskir embættis- menn gátu ekki borið kennsl á líkin. Sjá einnig fréttir um átökin á bls. 4 og 5 í dag.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.