Tíminn - 18.04.1986, Qupperneq 3
Föstudagur 18. apríl 1986
Tíminn 3
Messías fluttur
fjórum sinnum
- á Akranesi, Selfossi, í Keflavík og Reykjavík
fslenska hljómsveitin, Kór Lang-
holtskirkju og fjórir einsöngvarar
undir stjórn Jóns Stefánssonar eru
um þessar mundir að leggja upp í
hljómleikaferð með hið sígilda tón-
verk Handels - Messías. Einsöngv-
arar eru þau Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Sólveig Björling, Garðar
Cortes og Halldór Vilhelmsson. Við
spurðum Jón Stefánsson að þvi' hvar
þau ætluðu að byrja.
„Við verðum með tónleika á
Akranesi í íþróttahúsinu kl. 14.00 á
laugardaginn 19. apríl, því næst
förum við til Selfoss og tónleikarnir
þar verða haldnir í Selfosskirkju
þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30. í
íþróttahúsinu í Keflavík verðum við
miðvikudaginn 23. apríl kl. 20.30 og
að lokum endum við í Langholts-
kirkju í Reykjavík fimmtudaginn
24. apríl kl. 20.30.“
Um hvað fjallar Messías?
„Textinn er allur úr ritningunni.
héðan og þaðan, en myndar Óra-
torían er í þremur þáttum, fyrsti
þáttur er unt spádóma um komu
Mcssíasar og síðan fæðingu Jesú,
annar þáttur er um píslarsöguna og
þjáningar Jesú en krossfestingin er
ekki sérstaklega tekin fyrir. í þriðja
þætti er svo upprisan og þau fyrirheit
sem Messías hefur gefið okkur.
Þetta er mjög „dramatískt" sett upp,
svo að þetta stendur nær óperunni
heldur en margar aðrar óratoríur.
Flestar óratoríur Handels eru reynd-
ar samdar vegna þess að bannað var
að flytja óperur á föstunni, en enginn
gat sagt neitt við því þótt óratoríur
um kirkjuleg efni væru fluttar á
föstunni og það notfærði Handel
sér, og þar sem óperuformið var
honunt mjög tamt, líkjast sumar
óratoríurnar hans óperum."
Er verkið flutt í fullri lengd?
„Nei, ekki að þessu sinni. Lang-
holtskirkjukór flutti Messías í fullri
Jón Stefánsson stjórnar flutningi
Messíasar.
lengd árið 1982 og þá tók það um 3
klukkustundir í flutningi. Við flutt-
um verkið stytt árið 1981 og ætlum
að gera það aftur núna. Þctta er í
fyrsta sinn sem við hjá Langholts-
kirkjukór flytjum verkið í samstarfi
við íslensku hljómsveitina, og að
þessu sinni verðum við með 60
manna kór og 20 manna hljómsveit,
auk einsöngvara þannig að það
verða rúmlega áttatíu manns sem
taka þátt í flutningi verksins."
ABS
Nesprent í Neskaupstað:
Setja nótur með
nýju tölvuforriti
Frá Svanfrídi Hagvaag fréttaritara
Tímans í NeskaupstaÁ
Nú nýlega tók Nesprent í
Neskaupstað í notkun nýtt
tölvutækt músíkletur. Þetta
forrit fyrir setningatölvu
prentsmiðjunnar er frá Lino-
type í Frankfurt, Þýskalandi.
Forritið gefur nýja og
óþekkta möguleika til að
setja nótnabækur hér á landi.
Nótnaletur þetta er búið að
reyna allvel í Nesprenti af
Hlöðver Smára Haraldssyni
setjara, sem einnig er
menntaður tónlistarkennari,
en slík setning er vart á valdi
annarra en tónlistar-
menntaðra manna.
Að sögn Guðmundar Har-
aldssonar prentsmiðjustjóra
er Nesprent nú að vinna að
allstóru verkefni fyrir bóka-
útgáfu í Reykjavík. Það
verkefni er setning á 120
sönglögum og fleiri verkefni
eru framundan nú þegar.
Allur vélakostur prentsmiðj-
unnar var endurnýjaður1983
og eru allar vélar þar nú af
fullkomnustu gerð. í prent-
smiðjunni er unnið margt
annað, þar sem hún þjónar
öllur Austurlandi, svo sem
prentun blaða, bóka og ým-
iskonar smáprents, sagði
Guðmundur Haraldsson að
lokum.
Seðla-
bankinn
til efri
deildar
Fundir voru í sameinuðu þingi og
neðri deild Alþingis í gær og svo
fylgdu almennar stjórnmálaumræð-
ur í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að
þingfundir verði á laugardag til að
vega upp á móti venjubundnum
tímaskorti síöustu þingdagana.
Þessu 108. löggjafarþingi mun að
öllum líkindum slitið næstkomandi
miðvikudag.
I sameinuöu þingi voru afgreiddar
þrjár þingsályktunartillögur þ.á m.
um að Alþingi minnist þúsund ára
afmælis kristnitöku á íslandi árið
2000. í neðri deild var stjórnarfrum-
varp um Seðlabanka íslands afgreitt
til efri deildar og nokkrum öðrum
málurn sem ríkisstjórnin leggur
áherslu á komið áfram til umfjöllun-
ar nefnda. Nokkrar dcilur urðu í
deildinni er Hjörleifur Guttormsson
hvatti til þess að frumvarp um lög-
verndur. á starfshciti kennara og
skólastjóra yrði tekið fyrir á fundin-
um. _ SS
Feröaskrifstofa
ríkisins:
Innbrot
Brotist var inn hjá Ferða-
skrifstofu ríkisins í fyrrinótt.
Tilkynnt var um innbrotið til
lögreglunnar, um nóttina.
Ekki er ljóst hversu miklu var
stolið eða hversu miklar
skemmdir voru unnar á hús-
næðinu. Rannsóknarlögregla
ríkisins hefur málið til rann-
sóknar. Frekari frétta af mál-
inu er að vænta á morgun, þar
sem rannsókn verður þá lengra
á veg komin.
Bakkaflói:
Ennþá er biðstaða í deilu Bakk-
firðinga og Þórshafnarmanna, vegna
þess að hafnarráð hefur hana nú til
umfjöllunar og mun veita ráðherra
umsögn sína áður en endanleg ákvörð-
un verður tekin. Það er ekki ákveðið
hvenær næsti fundur hafnarráðs
verður, en venjulega eru haldnir
fundir mánaðarlega.
Að sögn Þórðar Eyþórssonar hjá
sjávarútvegsráðuneytinu er ástæða
banns við dragnótaveiðum sem sett
var af ráðuneytinu sú, að fara bil
beggja í deilunni, „þar sem Bakk-
firðingar vilja banna dragnótaveiðar
á hafnarsvæðinu eins og það er í dag,
en Þórshafnarmenn vilja ekki hafa
neitt svæði.
Ráðuneytið er alltaf að loka svæð-
um til að skilja á rnilli ákveðinna
veiðarfæra." Dragnótamálin verða
endurskoðuð fyrir allt landið núna á
næstunni, því að ráðuneytið kemur
til með að gefa út dragnótaleyfi fyrir
allt landið fyrir 15. júní og tekur þá
gildi almenn svæðaskipting, því yfir
veturinn er einungis bann við drag-
nótaveiðum á Faxaflóa, á innanverð-
um Breiðafirði og innanverðum
Eyjafirði. Síðustu 2 til 3 árin hefur
verið þokkalegur friður vegna drag-
nótamála en ráðuneytið hefur átt
fjölda funda með mönnum úti á
landsbyggðinni til þess að kanna hug
hagsmunaaðila þar og í framhaldi af
þeim fundum hefur svæðaskipting
verið ákveðin. að sögn Þórðar.
ABS
Frá vinstri: Rafn Sigurðsson, forstjóri Hrafnistu í Reykjavík, Baldvin Jónsson forstjóri D.A.S, Garðar Þorsteinsson
forstjóri Sjómannadagsráðs, Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, Grétar Hjartarson forstjóri Laugarás-
bíós, Þórhallur Hálfdánarson gjaldkeri Sjómannadagsráðs, á hinni nýju hæð Hrafnistu sem bráðum verður tekin í
notkun. Tímaniynd-Svcrrír
Nýtt happdrættisár hjá DAS:
Vinningar að verð
mæti 115,2 millj.
Heildarverðmæti vinninga á nýju
happdrættisári sem er að hefjast hjá
Happdrætti DAS, verður 115,2 mill-
jónir króna.
Utanlandsferðum mun fjölga stór-
lega, eða úr 720 í 1440 á nýja
happdrættisárinu. Vinningar til
íbúðakaupa verða á 600 þúsund
krónur, nema í fyrsta flokki, þar
verða þeir á eina milljón króna.
Vinningar til bílakaupa verða 48 á
200 þúsund krónur hver. Auk þess
verða þrír valdir bílar dregnir út á
árinu. Ford Sierra GL 2000 í júní,
Toyota Landcruiser STW station
HR í desember og loks verður
dregin út Saab bifreið í febrúar á
næsta ári, af gerðinni 900 i.
Aðalvinningur ársins verður dreg-
inn út í apríl á næsta ári. Það er
húseign að eigin vali að upphæð 3,5
milljónir króna. í fréttatilkynningu
frá Happdrætti DAS segir að það sé
von happdrættisins, sem áður, að
stóri vinningurinn falli í hlut viðskipta-
vinar, þó það hafi ekki gerst síðast-
liðin tvö ár. Bent er á að viðskipta-
vinir eiga 70% af miðum happ-
drættisins, á móti 30% sem eru í eigu
happdrættisins.
Afrakstur happdrættisins rennur
til framkvæmda Sjómannadagsráðs.
Nýlokið er við endurhæfingardeild
Hrafnistu í Hafnarfirði með með-
ferðarsundlaug og nuddpotti. Fram-
kvæmdir við að lyfta 5. hæð á
vistmannadeild eru langt komnar.
Þar með bætast við 13 herbergi fyrir
einstaklinga. Fyrirhugaðar fram-
kvæmdir að þessum loknum, er að
endurnýja og endurbæta Hrafnistu í
Reykjavík.
Dattí
hálku
Páskahretið síðbúna fór illa
með marga. Ökumenn lentu í
óhöppum og margir bílar
skemmdust. Gangandi vegfar-
endur fóru ekki varhluta af hret-
inu og hlákunni sem fylgdi í
kjölfarið. Kona var flutt á sjúkra-
hús í fyrrakvöld, eftir að hún datt
á klakabunka í Skipholti í
Reykjavík. Sjúkrabifreið kom
eftir konunni, en meiðsli hennar
reyndust léttvæg. Hún fékk að
fara heim að lokinni rannsókn.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni, er Ijóst að jafnt öku-
menn sem gangandi hafa verið
óbúnir til fótanna og nokkrir því
farið flatt á hálkunni. Vonir
standa þó til þess að nú sé vorið
í grennd og fólk geti því aftur
andað léttar.
Engin
ákvörð-
un tekin