Tíminn - 18.04.1986, Side 16

Tíminn - 18.04.1986, Side 16
20 Tíminn Ráðstefna - sveitarstjórnarmál Ráöstefna um sveitarstjórnarmál veröur haldin laugardaginn 19. april nk. aö Hótel Hofi í Reykjavík, og veröurdagskráhennareftirfarandi: Ráðstefna frambjóðenda og kosningastjóra 19. apríl 1986. Dagskrá: Kl. 10.00 Setning, Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra. 10.15 Ávarp, Guðmundur Einarsson 10.30 Kynning þátttakenda. 10.45 Ríkisstjórnin og sveitarfélögin, Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra 11.15 Sameiginleg stefnumál a) Atvinnumál b) Æskulýösmál c) Umhverfismál d) Fjölskyldumál 12.15 Matarhlé 13.15 Hópvinna 14.15 Umræður 15.30 Kosningarnar og flokksskrifstofan, Guðmundur Bjarnason, ritari Frams.fl. 15.45 Umræður 16.15 Handbók um kosningastarfið 16.30 Starfiö til kosninga, Magnús Ólafsson 16.45 Umræður 17.15 Ráöstefnuslit 18.00 Móttaka 19.30 Sameiginlegur kvöldveröur Þátttaka í ráðstefnunni óskast tilkynnt flokksskrifstofunni fyrir 12. apríl. Vegna samningar handbókar um kosningastarfið þarf aö tilkynna skrifstofu flokksins heimilisfang og simanúmer kosningaskrif- stofa strax og slíkt hefur verið ákveöiö. Framsóknarflokkurinn Keflavík Fundur verður haldinn í fulltrúaráöi framsóknarfélaganna í Keflavík mánudaginn 21. þessa mán. kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu. Fundarefni: 1. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga í vor. 2. Æskulýðsmál og íþróttamál rædd sérstaklega 3. Önnur mál. Stjórnin. Askorun til eigenda og ábyrgðarmanna fasteigna um greiðslu fasteignagjalda í Reykjavík. Fasteignagjöld í Reykjavík 1986 eru nú öll gjald- fallin. Gjaldendur sem ekki hafa gert skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar, mega búast viö, aö óskaö verði nauðungaruppboðs á eigum þeirra í samræmi viö 1. nr. 49/1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks. Reykjavík 16. apríl 1986. Gjaldheimtustjórinn í Reykjavík. Bændur Til sölu Alfa Laval rörmjaltakerfi 4 ára og meö öllu. Einnig nokkrar kvígur komnar aö burði, og gott hey. Upplýsingar í síma 93-7063. BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568 SAUÐÁBKRÓKUR: ....95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:........96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303 interRent Nýiistasafnið: Tvær skúlptúrsýningar Tvær myndlistarkonur, Ragna Rób- ertsdóttir og Sigurlaug Jóhannesdóttir, sýna um þessar mundir í Nýlistasafninu að Vatnsstíg3B. Þetta eru tværeinkasýn- ingar en þær sýna báðar skúlptúrverk. (Efni: manila. reipi og hrosshár). Þessi helgi er síðasta sýningarhelgin. Opið cr á laugardag og sunnudag kl. 14.00-20.00. Ráðstefna um réttindamál kvenna Framkvæmdanefnd um launamál kvcnna gengst fyrir ráðstcfnu um rétl- indamál kvenna laugardaginn 19. apríl n.k. frá kl. 13.00 til kl. 17.00 í Sóknarsal, Skipholti 50, R. Ráðstefna þessi er ætluð konum í stjórnum og samninganefndum félaga innan ASÍ, BSRB. BHMR og SÍB en er opin öllum konum, sem hafa áhuga á þátttöku. Á ráðstefnunni verður gerður saman- burður á nokkrum réttindaatriðum í kjarasamningum, fulltrúar ASf, BSRB, BHMR og SÍB flytja erindi, fyrirspurnum 1 verður svarað og henni lýkur á almennunt umræðum. Þátttökugjald er kr. 150.00 og í því cru innifaldar veitingar. Myndlistarsýning Sigurðar Þóris Gallery íslensk list, Vesturgötu 17. Nú stendur yfir myndlistarsýningu þar sem 32 myndverk eftir Sigurð Þóri eru til sýnis og sölu. Sýningin er opin alla virka daga frá 9-17.00 en um helgar frá kl. 14.00- 18.00. Gallerí Gangskör á Bernhöftstorfu Fullt gallerí af myndlist. Alltaf ókeypis aðgangur. Opiö virka daga kl. 12.00- 18.00 og um helgar kl. 14.00-18.00. Verið velkomin. Gangskiirungar Föstudagur 18 apríl 1986 DAGBÓK Ljósmyndasýning á Mokka Á morgun, laugard. 19. apríl, opnar Davíð Þorsteinsson Ijósmyndasýningu á Mokkakaffi. Á sýningunni verður eitt- hvað á þriðja tug mynda, allar svarthvítar og allar teknar á götum Reykjavíkur á undanförnum þrem árum. Davíð er Reykvíkingur að eðli og uppruna. Hann fæddist fyrir vestan Læk og sunnan Hringbrautar árið 1948. í rúman áratug hefur hann búið fyriraustan Fjall. Hann hefur tekið Ijósmyndir sem áhugamaður í allmörg ár en hefur ekki hengt myndir sínar á veggi fyrr en nú. Ljósmyndirnar eru tcknar á förnum vegi í gamla bænum og sýna nt.a. hús. malbik og menn, ýmis veöur og bifreiðar mannanna. Þær eru allar teknar á 35 mm filmu. Sýningin stendur næstu þrjár vikur. Sýningum á Myrkri að Ijúka Nú er að Ijúka sýningum leikfélagsins „Veit mamma hvað ég vil?" á spennu- leikritinu Myrkur (Wait Until Dark) eftir Frederick Knott. Aukasýning verður á Galdraloftinu að Hafnarstræti 9 n.k. laugardag 19. apríl. Sýningin verður sú allra síðasta og hefst kl. 20.30. Samtök um sögukennslu: Fundur í Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar Samtök kennara og annars áhugafólks um sögukennslu halda fund í Kennslu- miðstöð Námsgagnastofnunar. Lauga- vegi 166, sunnudaginn 20. apríl kl. 14. fundarefni er: Samfélagsfræði eða saga: Nokkur sjónarmið og álitamál. Framsögumenn verða: Sigþór Magnússon námstjóri og Hrólfur Kjartansson deild- arstjóri. Að loknum framsöguerindum verða almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn. Sænskur gítarleikari heldur tónleika og námskeið Torvald Nilsson. sænskur gítarleikari, hefur frá 13. apríl dvalist hér á landi og licldur tónleika á nokkrum stöðum, auk þess sem liann mun halda námskeið. í dag. föstudag 18. apríl og laugardag- inn 19. apríl, verður Torvald meö „Mast- er Class" fyrir nemendur Tónskóla Sigur- sveins. Sunnudaginn 20. apríl kl. 15.00 heldur hann tónleika í Gerðubergi. Mánudaginn 21. apríl kl. 20.30 verða tónleikar í Norræna húsinu. Þriðjudaginn 22. apríl heldur Torvald Nilsson „Mastcr Class" fyrir nemendur úr Tónlistarskólunt Kcflavíkur og Njarðvík- ur og tónleika um kvöldiö í Njarðvíkur- kirkju kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna verður tónlist allt frá 17. öld til 20. aldar eftir tónskáld m.a. frá Ítalíu, Spáni og Englandi Hollenskur gítarleikari með tónleika á vegum Musica Nova Hollenski gítarleikarinn Wim Hoogew- erf heldur tónleika á vegum Musica Nova á Kjarvalsstöðunt laugardaginn 19. apríl klukkan 17.30. Wim Hoogewerf stundaði nám í gítar- leik í Amstcrdam, París og Kaupmanna- höfn og voru meðal kcnnara hans þcir Dick Visser, Oscar Cáceres, Per-Olof Johanson og Betho Davezac. Hann hefur einkum getið sér gott orð fyrir túlkun samtímatónlistar og komið fram í IRC- AM í París og víða annars staðar í Evrópu. Að þessu sinni er hann á leið til New York. Á tónleikunum á Kjarvalsstöðum leik- ur Wim Hoogewerf tónlist cftir Ton de Leeuv, Francis Miroglio, Joaquin Turina, Michael Tippett, Chiel Mcijering og Tristan Murail. Ekkert þeirra tónverka sem flutt veröa hefur heyrst hérlendis áöur og þau eru flest frá síðustu árum. Breiðfirðingafélagið Reykjavík Vorfagnaöur í Domus Medica laugar- daginn 19. apríl kl. 21. Skemmtinefndin. Aðalfundur Kvenfélaga- sambands Kópavogs Kvenfélagasamband Kópavogs heldur aðalfund í Félagsheimili Alþýðúflokks- ins, Hamraborg 14C í Kópavogi laugar- daginn 19. apríl og hefst fundurinn kl. 9.30 f.h. Opinn fundur verður haldinn kl. 14.00. Fundarefni: Læknir og eðlis- fræðingur flytja erindi er ber yfirskriftina Kjarnorkuvá. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Norræna húsið: „Björnson í Ijósum, litum og tónum" Sunnud. 20. apríl kl. 16.00 verður dagskrá í Norræna húsinu sem nefnist „Björnson í ljóðum. litum og tónum”. Per Amdam talar um Ijóðmæli Björnsons og sýnir litskyggnur frá heimabyggð skáldsins, Raumsdal. Sigríður Ella Magn- úsdóttir óperusöngkonan svngur lög við Ijóð Björnsons og Jónas Ingimundarson leikur undir. Almennur félagsfundur F.í. Almennur félagsfundur verður haldinn í Risinu, Hverfisgötu 105, laugardaginn 26. apríl og hefst kl. 13.30 stundvíslega. Rætt verður um starf Ferðatelags íslands. Fararstjórar Ferðafélagsins sérstaklega beðnir um að mæta. Feröafélag íslands. Hana nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 19. apríl. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Allir Kópavogsbúar velkomnir. Neskirkja Samverustund aldraðra í Neskirkju verður á morgun, laugard. 19. apríl kl. 15.00. Gestir Sigvaldi Kaldalóns ásamt kór og Kristján Guðmundsson, bæjar- stjóri í Kópavogi. „Á ská og skjön“ á Hrafninum Samtökin „Á ská og skjön" halda þriðja fund sinn á Hrafninum, Skipholti 37, i kvöld, föstud. 18. apríi. Fundurinn helst kl. 20.00. Áhugafólk unt félagsmál og mannleg samskipti velkomið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.