Tíminn - 03.06.1986, Qupperneq 3

Tíminn - 03.06.1986, Qupperneq 3
Þriðjudagur 3. júní 1986 Tíminn 3 Sigrún Magnúsdóttir, stingur atkvæði sínu í kjörkassann. Tímamynd: Sverrir. Framsóknarflokkurinn öruggur með mann í Reykjavíik: „Ánægð miðað við heildarútkomuna“ segir Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi „Þegar litið er til þess að Fram- sóknarflokknum vegnaði víða illa í kosningunum getum við ekki verið óánægð með úrslitin í Reykjavík, þótt við hefðum auðvitað viljað fá meira fylgi,“ sagði Sigrún Magnús- dóttir, sem náði kjöri sem borgar- fulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn í kosningunum á laugardaginn. „Því var stöðugt spáð að flokkúr- inn myndi þurrkast út úr borgar- stjórn, sem ekki varð raunin. Kosn- ingabarátta okkar fór seint af stað, en hún var markviss og byggðist á mjög góðu samstarfi frambjóðenda og annarra, sem lögðu baráttunni lið. Ég get ekki stillt mig um að nefna sérstaklega kosningastjórann okkar, Sigrúnu Sturludóttur, sem vann gífurlega mikið og gott starf.“ Samkomulag í verðlagsráöi sjávarútvegs- ins um nýtt fiskverð: Fiskverð hækkar mun minna en áður Laun sjómanna munu hækka um 1,4% þann 1. september Nýtt fiskverð var samþykkt í verð- lagsráði sjávarútvegsins í gær. Fisk- verð hækkar lítið og verðlagstíma- bilið er nú helmingi lengra en áður hefur verið og verður óbreytt fisk- verð til áramóta. Samkomulag varð í nefndinni um þetta og kom ekki til kasta oddamanns eins og vant hefur verið. Þorskur kemur til með að hækka um 0,7% ýsa og ufsi um 0,2%, karfi um 4% og grálúða hækkaði mest eða um 7%. Þá var tekin ákvörðun um að hækka skiptaprósentuna 1. sept- ember næstkomandi og munu þá laun sjómanna hækka um 1,4%. Þetta samkomulag um fiskverð er gert í þeirri trú að litlar verðlagsbæt- ur verði fram til áramóta. Útgerðar- menn treystu sér til að hækka laun sjómanna vegna rninni kostnaðar við útgerð í kjölfar olíuverðslækkun- ar. -gse Maður slasast á veitingahúsinu Broadway: Féll aftur fyrir sig yfir handrið Liggur enn á sjúkrahúsi Maður slasaðist illa í veitinga- húsinu Broadway í Breiðholti á laugardagskvöldið. Hann féll aft- ur fyrir sig yfir stigahandrið og fékk þungt höfuðhögg. Maðurinn var fluttur á Borgarspítalann og liggur þar enn. Tímanum tókst ekki að fá upplýsingar hjá spítal- anum um hvernig manninum heilsast en hjá lögreglunni feng- ust þær upplýsingar að þetta hafi verið töluvert alvarleg meiðsli. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem menn falla yfir handrið í veitinga- húsinu Braodway. Eins og mörg- um er kunnugt er gólfið þar mikið stallað og eru stallarnir girtir af með lágum handriðum. -gse í tilefni kosninganna og sjómanna- dagsins veitum við 15% afslátt af öllum jakkafötum og stökum jökkum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.