Tíminn - 03.06.1986, Qupperneq 4

Tíminn - 03.06.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn Þriðjudagur 3. júní 1986 FRÉTTAYFIRUT MOSKVA — Rúmlega 200 sovéskir borgarar hafa fengiö leyfi síöustu daganatil aö flytja til fjölskyldna sinna eöa ætt- ingja í Bandaríkjunum. Þetta var haft eftir Yuri Kashlev sem leiddi sovésku sendinefndina á ráöstefnunni í Bern um mannleg samskipti. Kashlev sagði sovésk stjórnvöld hafa fallist á 71 umsókn þar sem um væri aö ræöa allt frá einum upp í þrjá fjölskyldumeðlimi. Kashlev sagöi aö umsóknir um búsetu í öðrum löndum heföi einnig veriö samþykktar. MÍLANÓ — Yelena Bonner lauk í gær sex mánaöa heim- sókn sinni til vestrænna ríkja og hélt til Moskvu. Hún sagöi vio fréttamenn að hún færi einungis til Sovótríkjanna vegna vonar sinnar um aö geta séö aö nýju mann sinn, sovéska eðlisfræðinginn And- rei Sakharov, sem nú dvelst í útlegð í Gorkí. MOSKVA — Andrei Grom- yko forseti Sovétríkjanna sagði viö breska þingmannanefnd aö hótun Bandaríkjastjórnar um aö hætta að viröa Salt-2 sam- komulagið frá 1972 væri stór- hættuleg og mikill pólitískur afleikur. MANILA — Corazon Aquino kallaöi saman nefnd sem setja mun fram stjórnarskrártillögur er ákvaröa munu hvers konar ríkisstjórn situr aö völdum á Filippseyjum í framtíðinni. Aq- uino sagöist vonast eftir aö hægt yrði aö leggja stjórnar- skrána undir dóm þjóöarinnar innan 90 daga. VARSJÁ — Hershöföingi sem er einn æösti maöur pólsku öryggislögreglunnar sakaði Zbigniew Bujak, leiö- toga neðanjarðarsamtaka Samstöðu sem handtekinn var um helgina, um aö hafa átt I samstarfi viö vestrænar leyni- þjónustur. TOKYO — Yasuhiro Nakas- one forsætisráðherra Jaþans lét ekki andstöðu stjórnarand- stæðinga og nokkra sinna manna aftra sér frá því aö leysa upp neöri deild þingsins og boöa til kosninga þann 6. júlí næstkomandi, átján mán- uöum fyrr en áætlað var. WASHINGTON - Tals- maöur Bandaríkjastjórnar neit- aöi fréttum er fóru hratt um japanska og evrópska fjár- málamarkaði um að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti heföi veriö skotinn eða fengið hjartaáfall. „Forsetanum líður veK,.“ sagöi Albert Brashear blaðafulltrúi Hvíta hússins. Karlaveldið í sjónvarpsþáttunum „The A-Team“ riðar til falls: Núer kvenmaður kominn í spilið! Boy George leikur sem gestur í einum þættinum, og þarna eru þeir Boy og Mr.T. aö bera saman hárgreiðsluna. Boy George á að fá 150 þús. dollara fyrir þennan eina gestaleik. Tia Carrera á aö koma lífi í tuskurnar hjá köppunum í „The A-Team“, - en hvernig, það er ennþá leyndarmál. Alla vega er hún auna- ayndi á að horfa, hvað sem leikhæfileikunum líður. Alls staðar eru konurnar komnar til skjalanna, - ekki einu sinni kapparnir í „The A-Team“ fá að vera í friði! Eitthvað á þessa lcið hljóð- aði fyrirsögn í amerísku leik- arablaði, þar sem sagt var frá því, að nú væri þessi sjónvarps- þáttur ekki lengur einungis leikinn af körlum. Nei, nú á að fá fallega skvísu til að hressa upp á þættina. Það er mikil kynbomba, Tia Carrera, sem fær það hlutverk. Tia hefur leikið í margra ára vinsælum þáttum í sjónvarpi „General Hospital", þar sem hún leikur Jade - segir í myndatexta. Þar segir einnig að Tia Carrera komi aðeins fram í einni mynd, þeirri síðustu í syrpu sem nú er verið að Ijúka. Svo ætla menn að ræða málin, hvernig það hafi komið út að láta s'.úikj leika með köppunum í „The A-Team“ og ef niðurstaðan veröur jákvæð þá verður hún ráðin til að vera með í næstu þáttasyrpu. Sá sem vekur mesta athygli í þessum þáttum, er blökku- maðurinn Mr. T. Hann hét áður Lawrence Tureaud en 1970 lét hann breyta nafni sínu löglega og þaðan í frá heitir liann Mr. T. Nú verða menn að kalla mig „Mister“ (herra) seg- ir hann hróðugur, en honum fannst víst eitthvað vanta upp á að menn sýndu honum nógu mikla virðingu, jafn stór og sterkur og hann þó var - og með allar gullkeðjurnar um hálsinn. Gullkeðjurnar og aðr- ir gullgripir Mr. T, sem hann ber í sjónvarpsþáttunum eru áætlaðir yfir milljón króna virði! Aður en Mr. T. varð sjón- varpshetja var hann lífvörður að atvinnu. Hann hefur gætt 42ja auðkýfinga, 19 leikara, 8 bankastjóra, 7 dómara, 6 íþrcftakappa og 3ja stjórn- málamanna. Hann var þá leigður sem lífvörður fyrir sér- stök tækifæri, svo sem fundi, ráðstefnur o.fl. Nú hefur frést að Mr. T. sé orðinn svo stór upp á sig, að meðleikarar hans í þættinum séu orðnir hálf- þreyttir á samstarfi við hann. Þeir hafa beitt hann „þöglu meðferðinni", sem þeir kalla svo, þ.e. að þeir neita að tala við vöðvafjallið Mr. T. og eru það mótmæli þeirra vegna þess að kappinn þeldökki lætureng- an segja sér hvenær hann á að mæta til vinnu. Hann kemur bara þegar honum sýnist svo, og eru þá upptökumenn og leikarar stundum búnir að bíða svo klukkutímum skiptir. Sagt er að stjórnendur „The A-Team“ séu líka orðnir leiðir á samstarfinu við Mr. T.og þeir séu farnir að semja við 300 punda fótboltamann (amerísk- ur fótbolti-rugby), William Perry, sem gengur undir nafn- inu „ísskápurinn“. Hann vill gjarnan vera með í „The A- Team“, en segir þá verði að taka atriðin sem hann leikur í þegar hlé séá fótbolta- vertíðinni. Aðalhetjurnar fjórar í „The A- Team“ eru talið f.v.: Dirk Benedict, Dwight Schultz, Ge- orge Peppard, sem var byrjað- ur að leika í Dynasty (lék Blake Carrington) en vildi heldur fara í þessa þætti. Hann hefur reynt að vera sáttasemj- ari milli Mr. T. og samstarfs- mannanna. Þá er það Mr. T. sjálfur með gullfestarnar um hálsinn og hárgreiðslu sem stæld er eftir Mandinkas-ætt- flokknum í Afríku.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.