Tíminn - 03.06.1986, Síða 9
Þriðjudagur 3. júní 1986
Tíminn 9
Hofsós
Óhlutbundin kosning var á Hofs-
ósi eins og áður og eftirtaldir náðu
kjöri: Gísii Kristjánsson, Björn Ni-
elsson, Einar Jóhannsson, Hólmgeir
Einarsson, Anna Steingrímsdóttir.
Raufarhöfn
Sömu framboðslistar voru í þess-
um kosningum og þeim síðustu á
Raufarhöfn og úrsíitin urðu þau
sömu. Á kjörskrá voru 307 og kjör-
sókn var 77,5%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi:.....................78 2
D-listi: ....................42 1
G-listi: ....................52 1
I-listi: ....................61 1
f hreppsnefnd komust af B-lista:
Sigurbjörg Jónsdóttir, Gunnar
Hilmarsson. Af D-lista: Helgi Ólafs-
son. Af G-lista: Hlynur Þór Ingólfs-
son. Af I-lista: Kolbrún Stefánsdótt-
ir.
Þórshöfn
Framfarasinnaðir kjósendur náðu
öruggum meirihluta í Þórshöfn en
þar rugluðu tvö framboð síðustu
kosninga saman reitum sínum á
einum lista. Kjörsókn var 86,2% en
299 voru á kjörskrá:
Úrslit: Atkv. Fulltr.
F-listi:..................175 4
H-listi: .................75 1
í hreppsnefnd voru kjörnir: Jó-
hann A. Jónsson, Jón S. Jóhanns-
son, Ragnhildur Karlsdóttir, Þórunn
M. Þorsteinsdóttir, Árni Kristins-
son.
Egilsstaðir
Sömu framboðslistar voru í þess-
um kosningum og þeim síðustu og
nú kom Óháði listinn inn manni á
kostnað Alþýðubandalagsins en að
öðru leyti voru úrslitin þau sömu.
865 voru á kjörskrá og kjörsókn var
86,2%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi:..................270 3
D-listi: .................163 2
G-listi: ............153 1
H-listi: ............132 1
í hreppsnefnd komust af B-lista:
Sveinn Þórarinsson, Þórhallur Eyj-
ólfsson, Broddi Bjarnason. Af D-
lista: Helgi Halldórsson, Guðbjört
Einarsdóttir, Af G-lista: Sigurjón
Bjarnason. Af H-lista: Þorkell Sig-
urbjörnsson.
Vopnafjörður
Framsóknarflokkurinn hafði
hreinan meirihluta í hreppsnefnd-
inni en missti mann til óháðs lista
sem bauð nú fram og meirihlutann
um leið. Alþýðubandalagið fékk líka
viðbótarmann frá Sjálfstæðisflokki.
Á kjörskrá voru 645.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi:..............196 3
D-listi: ..............73 1
G-listi: .............161 2
H-listi: .............117 2
í hreppsnefnd eru af B-lista:
Kristján Magnússon, Bragi
Vagnsson, Pálína Ásgeirsdóttir. Af
D-lista: Hilmar Jósepsson. Af G-
lista: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur
Ármannsson. Af H-lista: Magnús
Ingólfsson.
Reyðarfjörður
Talsverð breyting varð á framboð-
um fyrir þessar kosningar. Alþýðu-
bandalag og Sjálfstæðisflokkur buðu
fram áfram en Framsóknarflokkur
og óháð framboð skiptust á tvö óháð
framboð. Sjálfstæðisflokkur græddi
mann og Alþýðubandalag tapaði
manni og hinir skiptust á tvo lista.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: ...................127 2
F-listi:....................149 2
G-listi: ...................105 2
H-listi: ....................59 1
I hreppsnefnd sitja nú af D-lista:
Hilmar Sigurjónsson, Sigurbjörg
Hjaltadóttir. Af F-lista: Sigfús Þ.
Guðlaugsson, Jón Guðmundsson.
Af G-lista: Þorvaldur Jónsson,
Helga Aðalsteinsdóttir. Af H-lista:
Þorvaldur Aðalsteinsson.
Fáskrúðsfjörður
Óháður framboðslisti bættist í hóp
briggja flokksframboða og hirti
mann af Alþýðubandalaginu. Hinir
flokkarnir héldu sínu. Á kjörskrá
voru 511 og kjörsókn var 90,8%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi:....................133 2
D-listi: ...................123 2
F-listi:.....................83 1
G-listi: ...................112 2
f hreppsnefnd fóru af B-lista: Lars
Gunnarsson, Guðmundur Þorsteins-
son. Af D-listá: Albert Kemp, Sig-
urður Þorgeirsson. Af F-lista: Eirík-
ur Stefánsson. Af G-lista: Björgvin
Baldursson, Sigurður Jónsson.
Stöðvarfjörður
í Stöðvarfirði var óhlutbundin
kosning eins og sfðast. 234 voru á
kjörskrá og kjörsókn var 75,2%
f hreppsnefnd voru kosin: Viðar
Jónsson, Sólmundur Jónsson, And-
rés Óskarsson, Ingibjörg Björgvins-
dóttir, Bryndís Þórhallsdóttir.
Djúpivogur
Kosning var óhlutbundin 1982 en
nú komu fram þrír listar. 275 voru á
kjörskrá og kjörsókn var 81,1%
Úrslit: Atkv. Fulltr.
E-listi:.....................119 3
F-listi:......................69 1
H-listi: ...................55 1
f hreppsnefnd verða af E-lista:
Ólafur Ragnarsson, Eysteinn Guð-
jónsson, Geirfinna Ólafsdóttir. Af
F-lista: Már Karlsson. Af H-lista:
Þórarinn Pálmason.
Höfn
Nýtt óháð framboð kom nú fram
á Höfn og fékk 3 fulltrúa kjörna af
7. Framsóknarflokkurinn missti
mann og Alþýðubandalagið, sem
áður hafði 2 menn, bauð ekki fram
nú. „Fjórða framboðið" náði ekki
inn manni. 979 voru á kjörskrá og
kjörsókn var 83,6%
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi:...............196 2
D-listi: ..............246 2
H-listi: ..............286 3
F-listi:................71 0
Hreppsnefndarmenn verða af B-
lista: Guðbjartur Össurarson, Guð-
rún Jónsdóttir. Af D-lista: Sigur-
laugur Þorsteinsson, Eiríkur
Jónsson. Af H-lista: Stefán Ólafs-
son, Svava K. Guðmundsdóttir,
Guðjón Þorbjörnsson.
Hvolsvöllur
Sömu tvö framboð komu fram nú
og síðast og þau fengu sama fulltrúa-
fjölda. 521 var á kjörskrá og kjör-
sókn var 87%.
Úrslti:
Atkv. Fulltr.
H-listi: .............225 3
L-listi:..............205 2
I hreppsnefnd fóru af H-lista:
Ágúst Ingi Ólafsson, Markús Run-
ólfsson, Helga Þorsteinsdóttir. Af
L-lista: Tryggvi Ingólfsson, Ingi-
björg Þorgilsdóttir.
Stokkseyri
Sömu framboðslistar voru í boði
nú og í síðustu kosningum. Alþýðu-
bandalagið bætti nú við sig manni af
E-lista sem skipaður er alþýðu-
flokks-framsóknar- og áhugamönn-
um. Ákjörskrá voru 354og kjörsókn
var 92%
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: ....................65 1
E-listi:.....................68 1
G-listi: ...................109 3
H-listi: ....................79 2
Hreppsnefndarmenn eru af D-
lista: Helgi ívarsson. Af E-lista:
Vernharður Sigurgrímsson. Af G-
lista: Margrét Frímannsdóttir, Grét-
ar Zophaníasson, Guðbjörg Birgis-
dóttir. Af H-lista: Steingrímur
Jónsson, Eyjólfur Óskar Eyjólfsson.
Eyrarbakki
Áhugamenn um sveitarstjórnarmál
hafa verið í meirihluta í Eyrarbakka
og þeir bættu nú við sig manni, svo
línur eru skýrar á þeim bæ.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: .....................59 1
E-listi:......................71 1
I-listi: ....................191 5
352 voru á kjörskrá os kjörsókn
var 93%.
Næsta hreppsnefnd verður skipuð
af D-lista: Asta Halldórsdóttir. Af
E-lista: Jóhannes Bjarnason. Af I-
lista: Magnús Karel Hannesson,
Elín Sigurðardóttir, Guðmundur
Einarsson, Stefán S. Stefánsson,
Guðmundur Sæmundsson.
Hveragerði
Sjálfstæðismenn héldu meirihluta
sínum í Hveragerði en aðeins buðu
tveir listar fram að þessu sinni. 956
voru á kjörskrá og kjörsókn var
79,3%
Úrslit: Atkv. Fulltr.
D-listi: .................403 4
H-listi: .................318 3
Hreppsnefndarmenn verða af D-
lista: Hafsteinn Kristinsson, Alda
Andrésdóttir, Hans Gústafsson,
Marteinn Jóhannesson, Ólafur Ósk-
arsson. Af H-lista: Gísli Garðars-
son, Ingibjörg Sigmundsdóttir,
Valdimar I. Guðmundsson, Sigríður
Kristjánsdóttir.
Þorlákshöfn
Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig
manni í Þorlákshöfn og Framsókn-
arflokkur tapaði manni. Nýr óháður
vinstri listi fékk síðan 2 menn, og
framfarasinnar fengu 1 mann. Áður
höfðu boðið fram Alþýðflokkur og
óháðir kjósendur. Á kjörskrá voru
914 og kjörsókn var 78,8%.
Úrslit: Atkv. Fulltr.
B-listi:..................121 1
D-listi: .................249 3
H-listi: .................147 1
K-listi: .................174 2
í hreppsnefnd fóru í Þorlákshöfn
af B-lista: Þórður Ólafsson. Af D-
lista: Einar Sigurðsson, Bjarni
Jónsson, Grímur Markússon. Af
H-lista: Hrafnkell Karlsson. Af K-
lista: Guðbjörn Guðbjörnsson,
Oddný Ríkarðsdóttir.
Hafnarfjörður:
A-flokkarnir
ræða saman
- góðar líkur á samstarf i
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði
bætti við sig þremur mönnum, hlaut
alls fimm menn kjörna í bæjarstjórn
í kosningunum um helgina. „Þeir
eiga leikinn sagði eini Alþýðu-
bandalagsmaðurinn sem náði kjöri,
Magnús Árnason.
Leikur þeirra Alþýðuflokks-
manna hefur þegar verið leikinn.
Guðmundur Árni Stefánsson efsti
maður á lista A-listans sagði í samtali
við Tímann í gær að þegar hefði
verið sent bréf til G-listans, þar sem
farið er fram á viðræður um meiri-
hlutasamstarf í bæjarstjórn. „Það er
bæði fýsilegt og ekki, að ganga til
samstarfs. Það er afskaplega erfitt
að eiga bara einn fulltrúa inni í slíku
samstarfi, en hinsvegar ef málefnin
fá að ráða þá líst mér ekki illa á þessa
tillögu," sagði Magnús Árnason í
samtali við Tímann.
Ótvíræður sigurvegari í kosning-
unum í Hafnarfirði er A-listinn.
Framsóknarflokkur missti sinn eina
mann og Sjálfstæðisflokkurinn tap-
aði einum manni af sínum fimm, og
þar með möguleika á meirihlutasam-
starfi. -ES
Njarðvík:
Meirihluti
D-listans
er fallinn
Framsókn og
Alþýðuflokkur í viðræðum
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í
Njarðvík er fallinn. Flokkurinn
missti einn mann, fékk þrjá fulltrúa
kjörna. Sigurvegarinn í kosningujv-.1
um í Njarðvík er Alþýðuflokkurinn,
sem bætti við sig manni og fékk þrjá
fulltrúa kjörna. Framsóknarflokkur-
inn hélt sínum manni inni þrátt fyrir
nokkurt fylgistap.
í gær stóðu yfir viðræður milli
Framsóknar og A-listans, um meiri-
hlutasamstarf. „Ég tel mjög góðar
líkur á að við náum sarnan." sagði
Ragnar Halldórsson efsti maður A-
listans. Á fundi með honum var
staddur Steindór Sigurðsson kjörinn
fulltrúi B-listans, og voru þeir að
ræða meirihlutasamstarfið. Steindór
taldi líkurnar góðar. „Ég get ekki
neitað því að þessi úrslit urðu mér
vonbrigði. Við áttum ekki von á
neinum sigrum, en þetta fylgistap
olli vonbrigðum. Alþýðuflokkurinn
vann mjög vel bæði hér og í Kefla-
vík, og það starf virðist hafa skilað
sér,“ sagði Steindór. _ES
Keflavík:
Alþýðu-
flokkur með
meirihluta
- bættu við sig
þremur fulltrúum
Hreinn meirihluti Alþýðuflokks-
ins varð staðreynd í Keflavík. Flokk-
urinn bætti við sig þremur mönnum
og hlaut því alls fimm menn kjörna,
af níu fulltrúum í bæjarstjór’n Kefla-
víkur. Framsókn hélt sínum tveimur
fulltrúum, en Sjálfstæðisflokkur
missti tvo menn, af fjórum. Aðrir
listar náðu ekki inn manni.
„Svona stórum sigri áttum við
ekki von á. Við héldum að það yrði
tæpt á því að fjórði maðurinn færi
inn, en þetta dreymdi okkur ekki
um,“ sagði Guðfinnur Sigurvinsson
fyrsti maður A-listans. Hann tók
fram að ekki væri rétt að þeim hefði
brugðið við að standa skyndilega
frammi fyrir því að vera með hreinan
meirihluta.
„Það var kosið um menn en ekki
málefni, því stefnuskrár allra list-
anna voru mjög svipaðar," sagði
Ingólfur Falsson efsti maður D-
listans, sem tapaði tveimur
mönnum.
Drífa Sigfúsdóttir efsti maður á
B-Iistanum sagðist vera ánægð með
úrslitin. „Við unnum varnarsigur,
sem þakka má miklu og góðu starfi.
Þegar litið er til þess að flokkur sá
sem var með okkur í meirihlutasam-
starfi missti tvo menn, þá getum við
verið ánægð,“ sagði Drífa. -ES
Akranes:
Meirihluti
Sjálfstæðis-
og Alþýðu-
flokks fellur
„Við erum vitanlega ánægð með
þessi úrslit, ekki síst með tilliti til
þess að fyrir fjórum árum tvöfölduð-
um við fylgi okkar hér á Akranesi,
og við héídum þessu fylgi núna,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir efsti
maður á lista Framsóknarflokksins.
Á Akranesi mynduðu Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur meiri-
hluta síðasta kjörtímabil, en misstu
nú þann meirihluta. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapaði 2 mönnum, fékk
tvo í stað fjögurra áður. Alþýðu-
flokkurinn vann hins vegar mann og
fékk tvo menn kjörna, en í bæjar-
stjórn eru alls 7 fulltrúar.
Framsóknarflokkurinn hélt sínum
3 fulltrúum og Alþýðubandalagið
bætti við sig einum og fékk 2 fulltrúa
kjörna. Framsóknarflokkurinn get-
ur því myndað meirihluta með hverj-
um hinna flokkanna sem er. Ingi-
björg Pálmadóttir sagði að enn hafi
ekki verið neitt ákveðið um hverjir
ynnu saman næsta kjörtímabil, en
undirstrikaði að þar myndi bæjar-
heill ráða ferðinni.
Guðjón Guðmundsson efsti mað-
ur á lista Sjálfstæðisflokksins sagði
þá að vonum óánægða með þessi
úrslit, en vildi ekki tjásig um orsakir
þeirra að öðru leyti en því að þar
hefðu bæjarmálin sem slík ekki verið
aðalástæðan, málefnalega hafi þau
staðið vel. „Þarna er ýmislegt annað
sem spilar inn í,“ sagði Guðjón en
vildi þó ekki hafa um það fleiri orð.
-BG
Vestmannaeyjar:
„Tilbúnir að
ræða við
hvernsemer“
- segir efsti maöur D-
listans í Eyjum
„Að missa meirihlutann í bæjar-
stjórn eru okkur mikil vonbrigði
eins og gefur að skilja. En Sjálfstæð-
isflokkurinn er eftir sem áður stærsti
flokkurinn með um 44% atkvæða,
sem er 3. hæsta hlutfall sem flokkur-
inn hefur náð hérna. Við munum
áfram axla þá ábyrgð að vera stærsti
flokkurinn í bæjarstjórninni," sagði
Sigurður Einarsson, efsti maður á
D-lista í Vestmannaeyjum.
Um nýjan meirihluta sagði Sigurð-
ur ekki hafa verið rætt ennþá. „En
við erum tilbúnir að ræða við hvern
hinna flokkanna sem er um það,“
sagði hann. Ástæður fyrir tapi
flokksins taldi hann margar og sam-
verkandi.
„Jú, það mun rétt vera að Fram-
sóknarflokkurinn hafi hvergi bætt
við sig hlutfallslega fleiri atkvæðum
og við erum að sjálfsögðu ánægðir
með það,“ sagði Andrés Sigmunds-
son, bæjarfulltrúi framsóknarmanna
í Vestmannaeyjum. Hvað nýjan
meirihluta snerti kvaðst hann ekki
sjá annað í stöðunni en að þeir þrír
flokkar sem áður voru í minnihlutan-
um muni nú starfa saman, enda séu
þeir þegar farnir að ræða um það.
Ékki væri þó vafi á því að erfitt verði
fyrir næsta meirihluta að vinna sig út
úr þeirri skuldsúpu sem bærinn ernú
í. ,477.88 ii
Pálmi Pálmason
á Húsavík:
Þörf fyrir
nýtt afl í
bæjarmálum
„Ástæðurnar fyrir að við náðum
inn manni tel ég svipaðar og lágu því
til grundvallar að við fórum fram,
þ.e.a.s. að fólk taldi sig sjá þörf fyrir
nýtt afl í bæjarmálunum. Við viljum
virkari þátttöku fólks í bæjarmálun-
um og opnari umræðu," sagði Pálmi
Pálmason sem náði kjöri af Þ-lista á
Húsavík - en þeir líta á sig sem
sigurvegara kosninganna þar.
Hann telur vaxandi tilhneigingu
til þess - sérstaklega á landsbyggð-
inni - að fólk vilji fremur kjósa
menn en flokkslista. „Maður hefur
heyrt það víða, að menn hefðu
jafnvel helst viljað fá upp 20-30 nöfn
sem þeir hefðu mátt númera við í
kosningunum, algerlega óháð öllum
flokkum," sagði Pálmi, - enda væri
það hið eina sanna lýðræði.
Vegna innbyrðis stöðu í bænum
hjá mönnum og jafnvel listum taldi
Pálmi að menn verði að skoða hug
sinn afskaplega vel áður en þeir berji
saman nýjan meirihluta. Eðlilegustu
leiðina til að reyna fyrst telur hann
þó að Alþýðubandalagið ræði við
Alþýðuflokkinn, þ.e. fyrrverandi
minnihlutaflokkar.
„Nýr meirihluti er óskrifað blað.
Ég reikna þó með að Alþýðubanda-
lagið, sem bætti við sig manni, muni
skoða það mál fyrst,“ sagði Tryggvi
Finnsson, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, sem var í meirihluta með
Sjálfstæðisflokki. En báðirflokkarn-
ir misstu mann og þar með meirihlut-
ann.
Tap B-listans sagði Tryggvi hafa
komið á óvart og ekki tkunna skýr-
. ingu á.því. \ -HEII L