Tíminn - 03.06.1986, Qupperneq 15
Þriðjudagur 3. júní 1986
Tíminn
Smásagnasamkeppni Listahátíðar:
SVEINBJORN
HLUTSKARPASTUR
Icemasters, smásaga eftir Svein-
björn I. Baldvinsson, hlaut fyrstu
verðlaun í smásagnasamkeppni
Listahátíðar. Það var hinn kunni
rithöfundur Doris Lessing sem veitti
verðlaunin, en þau nema rúmlega
300.000.00 kr.
Eftir Sveinbjörn hafa þegar komið
út þrjár ljóðabækur. I skugga
mannsins, kom út 1976, Ljóð handa
hinum og þessum, 1981 og Lífdaga-
ljóð birtust 1984. Stjörnur í skónum,
sem er ljóðverk á hljómplötu kom út
1978, en þar voru bæði lög og ljóð
eftir Sveinbjörn. Sjónvarpsleikritið,
Þetta verður allt í lagi, var sýnt 1984
og þá hefur Sveinbjörn þýtt tvær
smásögur eftir Kurt Vonnegut. Svo
ekki er Sveinbjörn byrjandi í faginu.
Blaðamaður Tímans ræddi stutt-
lega við Sveinbjörn í gær og sagðist
hann að vonum ánægður með verð-
launin. Þó væri hvatningin sem í
þeim felst meira virði en peningarn-
ir, þó að þeir kæmu sér að sjálfsögðu
mjög vel. Sveinbjörn er menntaður
í bókmenntafræðum og sagðist hafa
lært þar, hvílíkt ógang það gæti gert
að vera að tjá sig um efni nýrrar
bókar. „Bókin er ætluð til lestrar en
ekki til að vera grundvöllur einhverr-
ar fræðimennsku." Sjálfur sagðist
hann vera nýbúinn að lesa bókina
yfir og væri hann bara ánægður með
útkomuna.
Um þessar mundir er Sveinbjörn
að vinna að handriti að mynd fyrir
íslenska sjónvarpið, þó ekki hafi
verið teknar neinar ákvarðanir um
tökur, enn sem komið er.
Leiðin liggur nú til Los Angeles í
Kaliforníu, þar sem ætlunin er að
leggja stund á nám í handritagerð
fyrir kvikmyndir og sjónvarp, og er
þá ekki annað eftir en að óska
Sveinbirni góðs gengis í henni Amer-
íku og til hamingju með verðlaunin.
phh.
fcveinhjorn I. Baldvinsson tekur við verðlaunum úr hendi Doris Lessing, fyrir sögu sína Icemasters.
m (Tímamynd Sverrir)
Daaskrár-
Sionvarp.
Við /eitum að þáttagerðarfóiki. Fóiki
sem getur komið fram á skjánum, í
beinni og óbeinni útsendingu, samið
kynningar og unnið að gerð sjónvarps-
þátta bœði eftir eigin handriti og
annarra. Ef þú hefur trú á sjáifum þér
íþetta starf, getur unnið sjáifstœtt og
ert drífandi og dugiegur sendu okkur
þá uppiýsingar um þig. Ef við teijum
að þú komir tii greina sem dagskrár-
gerðarmaður, eftir að hafa skoðað
þœr uppiýsingar og efni sem þú
sendir inn, þá munum við kai/a á þig
í prufutöku og gefa þér kost á að
spreyta þig tii reynsiu.
Óskað er eftir að menn útbúi um-
sóknir um þetta starf eftir eigin höfði,
t.d. á myndsnœidum. Umsóknum skai
skiiað fyriró. júní tii sjónvarpsins.
Umsóknum veitt móttaka á símaaf-
greiðsiu Sjónvarpsins, Laugavegi 176.
RiKiSUTVARP/Ð
mTTTiT7rnrrr
laðbera
vantar
# eftirtalin hverfi.
Ármúla
Síðumúla
Lindarbraut
Vallarbraut
Tímlnn
SIÐUMULA 15
©
686300
Málvíkurhátíð
Málvíkurbúar heima og heiman.
Málvíkurhátíðin verður í Skíðaskálanum Hvera-
dölum fimmtudaginn 5. júní kl. 21.00.
Margskonar skemmtiatriði s.s.: Söngur, leikþáttur,
leynigestur og fleira. Mætum öll hress á hátíðina.
Upplýsingar gefur Þórunn sími: 91-24480.
Landssamband framsóknarkvenna
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-86007: Nýbygging verkstæðis- og
geymsluhúss á Selfossi.
Opnunardagur: Miðvikudagur 18. júní 1986, kl.
14.00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Austurveg 44, Selfossi og
Laugaveg 118, Reykjavík frá og með miðvikudeg-
inum 4. júní 1986 gegn kr. 5.000 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir
opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK-
86007 Húsnæði á Selfossi“.
Reykjavík 02. júní 1986
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Atvinna
Viljum ráða bílstjóra með meirapróf til sumar-
afleysinga strax. Upplýsingar gefur Guðmundur
Árnason sími 99-1000.
Kaupfélag Árnesinga.
Bændur
Óska eftir að kaupa ungar kýr eða kvígur með
burðartíma í vor eða sumar.
Upplýsingar í síma 91-667087.
l. I j ít.l
) 11' u.CmL'i ..iiióírwrfrr