Tíminn - 26.06.1986, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 26. júní 1986
Stórgróöi af ferðamönnum:
Gróðinn meiri en
kostnaður landans
- tæplega hundrað þúsund ferðamennn komu í fyrra
Misjafnlega gengur
að lækka taxtana
- sumir hafa hækkað
Hitaveiturnar:
í tengslum við kjarasamninga Al-
þýðusambandsins og atvinnurek-
enda í byrjun árs samþykkti ríkis-
stjórn að beita sér fyrir 7% lækkun
á ýmsum töxtum opinberra þjón-
ustuaðila. Hitaveitutaxtar voru eitt
af því sem lækka átti samkvæmt
þeirri samþykkt. Hins vegar er svo
að sjá að eftirlit með þeim lækkunum
hafi ckki verið sem skyldi, því sumar
hitaveitur hafa óbreytt gjöld, aðrar
hafa lækkað taxtana, en enn aðrar
hafa hækkað þá.
í þessu sambandi má nefna að
hlutfallslegar breytingar á tímabilinu
1. feb. 1986 til 1. maí 1986 eru frá
Gjaldeyristekjur af þjónustu við
erlenda ferðamenn voru rúmlega
þrír milljarðar króna árið 1985.
Aukning frá 1984 er því um nítján
prósent. Inn í þessari tölu eru ekki
„duldar gjaldeyristekjur" en með
þeim áætluðum er líklegt að gjald-
eyristekjurnar hafa verið 3,5 mill-
jarðar króna.
Tekjur íslenskra flugfélaga af far-
Athugasemd
Vegna frétta Tímans í gær, þar
sem sagt var frá innbroti í tollvöru-
geymslu í Hafnarfirði, skal tekið
fram að innbrotið var framið í
geymslur hjá skipafélaginu Ok.
9,4% lækkun og upp á ca. 55-60%
hækkun.
Hitaveita Suðurnesja hefur staðið
sig betur en aðrar hitaveitur í að
lækka því þar nemur lækkunin um
9,4% en hins vegar hefur hitaveitan
á Rangá hækkað taxta sína um
57,7%. Meðfylgjandi tafla sýnir
breytingar á töxtum frá hitaveitun-
um. Þess má geta að villa læddist inn
í töfluna frá Orkustofnun um gjald
frá hitaveitu Selfoss og taka skal
hlutfallstölum þar með varúð. Á
Suðureyri urðu breytingar á rekstri
hitaveitunnar og því er ekki hægt að
sjá marktækan mun þar. ABS
Minjagripaverslun í Reykholti
Frá Magnúsi Magnússyni, fréttaritara Tímans í Borgarfirði:
Fyrir sköminu opnaði ný minjagripaverslun í Reykholti. Það eru þær Ósk Guðlaugsdóttir og Þórný Eiríksdóttir,
sem reka verslunina. Hafa þær m.a. á boðstólum ullarfatnað, ýmisskonar minjagripi og pilsner, en verslunin er í
kráarstíl, mjög smekklega útbúin. Tímamynd-MM
gjöldum erlendra ferðamanna milli
lslands og umheimsins hafa verið
lauslega áætlaðar 1340 milljónir
króna, árið 1985.
Gjaldeyrissala banka vegna ferða-
kostnaðar íslendinga í fyrra var
tæplega 3,2 milljarðar. Það er því
ljóst að íslendingar geta státað af því
að tekjur af viðskiptum við erlenda
ferðamenn hafi nú í fyrsta skipti
numið hærri upphæð en íslendingar
notuðu til ferðalaga erlendis.
Ef litið er til gjaldeyriskaupa
bankanna vegna erlendra ferða-
manna í fyrra kemur í ljós að lang
mest var keypt af dollurum, eða fyrir
943 milljónir króna. Vestur þýsk
mörk voru keypt fyrir 204 milljónir
króna, sterlingspund fyrir 169 mill-
jónir króna og danskar krónur fyrir
126 milljónir krona. Minna var keypt
af öðrum gjaldmiölum.
Þeir ferðamenn sem færðu með
sér gjaldeyrinn til landsins voru
alls rúmlega 97 þúsund. Flestir voru
frá Bandaríkjunum, eða 31.633.
Danir, Bretar og Þjóðverjar voru
um tíu þúsund, en aðrar þjóðir
færri. Síðastliðinn þrjú ár hefur
aukning mælst upp á 34,2 próstent,
og varð milli áranna '84-’85 um
fjórtán prósent.
-ES
, Norðurlandamótið í bridge:
Island komið
í annað sæti
Islenska karlaliðið á Norður-
landamótinu í bridge er í öðru sæti
eftir 7 umferðir en hefur að vísu
lokið leikjum sínum við Finna og
Færeyinga. Kvennaliðið er í 5.
sæti.
I 6. umferð spilaði ísland við
Færeyjar í opnum flokki og vann
25-7, og í 7. umferð vann ísland
Finnland, 17-13. Svíþjóð vann
Noreg naumlega, 16-14 í 7. umferð
meðan Danir unnu Færeyinga 25-0.
Normenn töpuðu líka leik sínum í
6. umferð, gegn Dönum 19-11.
Kvennaliðið vann Dani, 18-12 í
6. umferð og tapaði síðan fyrir
Norðmönnum, 3-25.
í samtali við Tímann sagði Björn
Theódórsson að liðið hefði spilað
ágætlega í leiknum við Finna í gær,
og raunar Færeyinga líka. Þó mót-
staðan væri ekki mikil. Björn leyfði
sér líka að leika sér með uppstill-
ingar í Færeyingaleiknum, Jón
Baldursson og Þórarinn Sigþórsson
spilað saman einn hálfleik, á móti
Sigurði Sverrissyni og Sævari Þor-
björnssyni. I leiknum við Finna
spilaði Sævar annan hálfleikinn
gegn Sigurði.
Staðan er nú sú í opnum flokki
að Danir eru með 133 stig, ísland
122, Svíþjóð 116, Noregur 115,
Finnland 98 og Færeyjar 32. í
kvennaflokki eru Norðmenn efstir
með 130 stig, Svíþjóð 113, Finn-
land 109. Danmörk 96 og ísland 87.
I dag spilar karlaliðið við Dani
og Svía. Mótinu lýkur á föstudag
og er lokaleikur íslenska liðsins við
Norðmenn.
GSH
BREYIINGAR Á GJALDSKRÁM HITAVEITNA
FRÁ 1. FEB. 1986.
Áburðarverksmiðja ríkisins:
Vatnsgjöld í maí Hlutfallsleg hækkun %
--------------- Fasta- frá 1. feb. - 1. maí
kr/mín.l gjald ---------------------------
kr/rúmm á ári á ári rúmm mín.l fastagj.
Hitav. sem hafa lækkaö:
Reykjavik 18.60 4930 2040 -7.0 -6.8 -3.e
Seltjarnarnes 5724 1404 -7.0 -7.1
Mosfellshreppur 18.60 4860 1920 -7.0 -6.9 -7.0
Suðurnes A5.00 11760 1920 -8.2 -0.0 -9.4
Akranes og Borgarfjörður 81.50 19680 -7.0 -6.8
Hvammstangi 28.30 7368 3684 -6.9 -7.0 -7.0
Sauðárkrókur 15.00 3996 -6.3 -7.0
Siglufjörður 62.04 15144 -7.0 -7.0
Blönduós 41.10 10008 900 -4.4 -5.0 0.0
Ólafsfjörður 3540 2100 -3.0 -2.8
Akureyri 56.00 3000 -3.4 0.0
Egilsstaðir og Fellar 41.85 11100 -6.0 -7.0
Flúðir 2664 4812 -7.1 -7.0
Eyrar 42.30 5232 -3.0 -3.1
Þorlákshöfn 54.60 13044 -5-0 4.5
Hitav. með óbr. gjaldskrá:
Bessastaðahreppur 37.25 2304 0.0 0.0
Kjalarneshreppur 38.00 1620 0.0 0.0
Reykhólar 3060 1800 0.0 0.0
Dalvik 16.60 3936 612 0.0 0.0 0.0
Hrísey 5724 3180 0.0 0.0
Brautarholt 1728 1728 0.0 0.0
Hveragerði 3672 2208 0.0 0.0
Hitav. sem hafa hækkað:
Suðureyri * 92.90 9282 16.3
Húsavik 20.10 3828 1680 21.1 20.8 -15.7
Reykjahlið (á rúmm. húss) 30.84 7128 20.0 20.0
Vestmannaeyjar 52.00 4020 2.0 15.9
Rangá 66.00 18600 4200 15.8 19.2 57.7
Laugarás 3996 2.5
Selfoss 20.00 5505 2560 61.3-" -63t9- -62t»
* = Breyting úr hemlagjaldi í rúmmetragj.
Sjálfvirkni leysir
starfsmenn af hólmi
„Uppsagnir þær sem koma til
framkvæmda á starfsfólki áburðar-
verksmiðjunnar eru nær eingöngu
vegna sjálfvirks sekkjunarútbúnaðar
sem verið er að kaupa og það leysir
þau verk af hólmi sem eru hvað
erfiðust, svo sem að rogast með 50
kg. poka fram og aftur, og það eru
fáir starfsmenn sem stoppa lengi við
í slíkum störfum," sagði Bjarni
Helgason stjórnarmaður Áburðar-
verksmiðjunnar.
Um skuldir verksmiðjunnar sem
hafa verið í fréttum að undanförnu
sagði Bjarni að þær væru ekki meiri
nú en undanfarin ár, jafnvel þvert á
móti. Áburðarverksmiðjan hefði
alltaf þurft að taka erlend lán því
henni hefði ekki staðið íslensk lán til
boða vegna þess að enginn íslenskur
aðili vildi lána í svo langan tíma, sem
þeir þyrftu á að halda, vegna þess að
þeir lánuðu síðan sínum viðskipta-
mönnum áburðinn í langan tíma.
Bjarni sagði að ýmsar hagræð-
: ingarráðstafanir hefðu verið gerðar
að undanförnu í Áburðarverksmiðj-
unni og væru hertar greiðslur frá
viðskiptamönnum einn liður í því.
Annar liður væri síðan breyting á
framleiðslu verksmiðjunnar, því í
ráði væri að hætta framleiðslu á
a.m.k. tveimur tegundum áburðar,
græðis 2 og græðis 3 og væri það
aðallega gert vegna þess að aðrar
framleiðslutegundir væru mjög líkar
þeim og því óþarfi að framleiða svo
margar svipaðar tegundir. Hins veg-
ar væri verið að prófa framleiðslu á
nýjum tegundum áburðar m.a. hefði
verið blandaður sérstakur áburður
fyrir bændur í Eyjafirði í fyrra.
Þessar ráðstafanir miðuðu allar að
því að létta skuldabirgði erlendra
skulda, en Bjarni sagði að verk-
smiðjan ætti fyrir afborgunum af
erlendum skuldum jafnt nú sem
áður.
Tíminn hafði samband við trúnað-
armenn trésmiða í Áburðarverk-
smiðjunni en trésmiðir og verka-
maður sem með þeim vinnur hafa
allir fengið uppsagnarbréf auk um
20 annarra starfsmanna sem vinna
við sekkjun. Trésmiðir hjá verk-
smiðjunni hafa séð um allar viðgerð-
ir og nýsmíðar þegar hefur þurft á
þeim að halda og eru 5 trésmiðir
fastráðnir og einn verkamaður.
„Það er ekki hagræðingaratriði í
mínum augum að segja upp trésmið-
unum. Við höfum engar skýringar
fengið á því hverjir eiga að taka við
störfum okkar, en það er alveg ljóst
að einhver verður að gera það. Við
getum ekki séð að það yrði kostnað-
arminna að ráða verktaka í þessi
verkefni hér. auk þess sem enginn
verktaki myndi bjóða í sum þau verk
sem við þurfum að vinna hér," sagði
trúnaöarmaðurinn. Trésmiðir í
Áburðarverksmiðjunni vinna nú að
nýsmíði á færibandagangi sem flytur
áburð frá framleiðslustað til sekkj-
unar, en gangur þessi er um 60 m
löng brú. Einnig vinna þeir við að
einangra skemmuloft og að viðgerð-
um en þessum nýsmíðum verður
ekki lokið þegar uppsagnir þeirra
koma til framkvæmda 1. september.
ABS