Tíminn - 26.06.1986, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 25. júní 1986
Tíminn 15
Morgunþáttamennirnir 5 eru hið hressasta lið eins og sjá má. Talið frá
vinstri: Kolbrún Halldórsdóttir, GunnlaugurHelgason, ÁsgeirTómasson,
Páll Þorsteinsson og Kristján Sigurjónsson.
Stjörnuspár, matarhorn, get-
raunir, barnaþættir o.s.frv.
Morgunþættir Rásar 2 hefjast
kl. 9 alla virka daga. Á laugardög-
um hefst þátturinn kl. 10 og á
sunnudögum er sofið út og morg-
unþætti sleppt. Umsjónarmenn
morgunþátta eru 5.
Ýmsir fastir liðir eiga sinn fasta
sess í morgunþáttunum. Þar má
t.d. nefna stjörnuspá, afmælis-
dagabók og almanak dagsins. Mat-
arhornið er daglega kl. 10.30 og
endurtekið kl. 11.30. Barnadag-
bókin er fjóra daga vikunnar
(mánud. - fimmtud.) kl. 10.05-
10.20 og er umsjónarmaður
hennar, Guðríður Haraldsdóttir,
með símatíma að henni lokinni á
mánudögum til kl. 20.50. Getraun-
ir eru meðal fastra liða.
Þá eru mörg viðtöl tekin í morg-
unþáttunum og ekki má gleyma að
allt fer þetta frant í beinni útsend-
ingu.
Fimmtudagsumræðan:
Fiskeldi
Fiskeldi hér á landi, og þá fyrst
og fremst laxeldi, er viðfangsefni
fimmtudagsumræðunnar í útvarpi
í kvöld kl. 22.20. Það er Gissur
Sigurðsson fréttamaður sem stýrir
umræðunni.
Um 200 tonn af eldislaxi verða
flutt út í ár og sennilega um 600
tonn á næsta ári. Unt 60 fiskeldis-
fyrirtæki cru nú skráð í landinu og
u.þ.b. 30 stöðvar eru teknar til
starfa. Þetta er því ört vaxandi
atvinnugrein í landinu.
Á þessum tímamótum er ætlunin
að staldra aðeins við og skoða
stöðu þessa atvinnuvegs. Eins og
kunnugt er náðu Norðmenn for-
skoti í laxeldi og nú eru að koma í
ljós ýms atriði, sem gleymdust á
meðan gróðavonin rak menn áfram
með ótrúlegum árangri á fyrstu
árum laxeldisins. Þar má t.d. nefna
mengun af laxeldi, smithættu, sem
leitt hefur til óeðlilegrar lyfjagjaf-
ar, að ógleymdum umhverfis-
þættinum, en laxeldismannvirki
þykja víða lýti ánorskum fjörðum.
Þá verður reynt að gera sér grein
fyrir þróun markaða í framtíðinni,
hver orkuþörfin er og hversu margt
starfsfólk þarf til að sinna störfum
við laxeldi hér, svo eitthvað sé
nefnt.
Útvarp kl. 9.05:
Pétur Pan og Vanda
- í morgunstund barnanna
I gærmorgun hófst í morgun-
stund barnanna í útvarpinu lestur
nýrrar sögu. Það er sagan Pétur
Pan og Vanda eftir J.M. Barrie í
þýðingu Sigríðar Thorlacius. í dag
kí. 9.05 les Heiðdís Norðfjörð
annan lestur sögunnar.
Pétur Pan og Vanda er orðin
sígild barnasaga og í enskumælandi
heimi þekkir hvert mannsbarn
söguna af Pétri Pan, stráknum sem
neitaði að verða fullorðinn. Höf-
undurinn Sir James Matthew Bar-
rie (1860-1937) var skoskur. Hann
skrifaði bæði sögur og leikrit og er
Pétur Pan til í báðum þessum
útgáfum. Upphafið að sögunni um
Pétur Pan, unga piltinn sem berst
hetjulegri baráttu gegn fúl-
mennskulegum áformum kapteins
Hook hins miðaldra og hefur sigur,
var það að Barrie sagði litlum
drengjum sögur. Nokkrar sagn-
anna af Pétri Pan komu síðan á
prent 1902 og árið 1904 voru þær
orðnar að leikriti, sem fært hefur
verið upp í London um jólaleytið
ár hvert síðan, nema hvað stríðsár-
in urðu útundan.
Gissur Sigurðsson fréttamaður
stýrir fimmtudagsumræðunni í út-
varpi um fiskeldi.
Fimmtudagur
26. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna. „Pétur
Pan og Vanda“ eftir J. M. Barrie.
Þýðandi: Sigriður Thorlacius. Lesari:
Heiðdis Norðfjörð (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tón-
leikar, þulur velur og kynnir.
9.45 Lesiö úr forustugreinum dagblaðanna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Ég man þá tíð“ Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur - Umsjón: Anna Ingólfs-
dóttir og Ýrr Bertelsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Efri árin. Umsjón:
Ásdís Skúladóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Fölna stjörnur“
eftir Karl Bjarnhof. Kristmann Guð-
mundsson þýddi. Arnhildur Jónsdóttir les
(23)
14.301 lagasmiðju.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Á hringveginum - Suðurland.
Umsjón: Einar Kristjánsson, Þorlákur
Helgason og Ásta R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Tónlist eftir Kabalevskí og Ravel a.
„Trúðarnir", svíta op. 26 eftir Dmitrí
Kabalevskí. Sinfóníuhljómsveitin í Gávle
leikur; Rainer Miedel stjórnar. b. Píanó-
konsert í G-dúr eftir Maurice Ravel. Alicia
de Larrocha og Filharmoníusveit Lund-
úna leika; Lawrence Foster stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín
Helgadóttir. Aðstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu Umsjón: Hallgrimur Thor-
steinsson og Guðlaug Maria Bjarnadóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Guðmundur Sæ-
mundsson flytur þáttinn.
20.00 Stundarkorn með Bílurum Um starf
Bandalags íslenskra leikfélaga (BlL) og
leiklistárhátíð norrænna áhugaleikfé-
laga. (Áður útvarpað 20. júní). Umsjón:
Finnur M. Gunnlaugsson. (Frá Akureyri)
20.45 Ljóðasöngur Jessey Norman syngur
lög eftir Georg Friedrich Hándel og Alban
Berg. Geoffrey Parsons leikur með á
píanó. Hljóðritað á tónlistarhátiðinni i
Salzburg sl. sumar).
21.20 Reykjavík í augum skálda. Umsjón:
Símon Jón Jóhannsson og Þórdis Mós-
esdóttir.
22.00 Fréttir, Dagskrá morgundagsins. Orö
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Fimmtudagsumræðan Fiskeldi.
Stjórnandi: Gissur Sigurðsson.
23.20 Frá tónlistarhátíðinni á Salzburg
sl. sumar Shlomo Mintz leikur á fiðlu
tónverk eftir Johann Sebastian Bach. a.
Sónata í g-moll. (BWV 1001). b. Partita i
d-moll (BWV 1004) 4. og 5. þáttur.
(Hljóðritun frá austurríska útvarpinu)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
HT
9.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Ásgeir
Tómasson, Gunnlaugur Helgason og
Kolbrún Halldórsdóttir. Inn í þáttinn flétt-
ast u.þ.b. fimmtán mínútna barnaefni kl.
10.05 sem Guðríöur Haraldsdóttir
annast.
12.00 Hlé
14.00 Andrá Stjórnandi: Jón Ólafsson
15.00 Djass og blús Vernharður Linnet
kynnir.
16.00 Nýræktin Skúli Helgason og Snorri
Már Skúlason stjórna þætti um nýja
rokktónlist, innlenda og erlenda.
17.00 Einu sinni áður var Bertram Möller
kynnir vinsæl lög frá rokktímabilinu,
1955-1962.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnirtíu vinsælustu
lög vikunnar.
21.00 Um náttmál Gestur Einar Jónasson
stjórnar þættinum.
22.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar
Gests.
23.00 Heitar krásir úr köldu striði Reyk-
vískurvinsældalisti frá ágúst 1959, siðari
hluti. Umsjón: Trausti Jónsson og Magn-
ús Þór Jónsson. Fyrri hluti.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttireru sagðarkl. 9.00,10.00,11.00,
15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.15 Svæðisútvarp fyrir Reykja-
vík og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz.
Föstudagur
27. júní
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Marianna
Friðjónsdóttir.
17.25 Krakkarnir í hverfinu (Kids of Deg-
rassi Street) 4. Martin heyrir tónlist
Kanadiskur myndaflokkur í fimm þáttum
fyrir börn og unglinga. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Listapopp 16. júni 1986. Svipmyndir
frá fyrri popptónleikum Listahátíöar í
Laugardalshöll. Kynnir: Jón Gústafsson.
21.15 Sá gamli (Der Alte) Tólfti þáttur.
Þýskur sakamálamyndaflokkur í fimmtán
þáttum. Aðalhlutverk: Siegfried Lowitz.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
22.10 Seinni fréttir.
22.15 Ósýnilega konan (Phantom Lady/
s/h. Bandarisk kvikmynd frá árinu 1944.
Leikstjóri Robert Siodmak. Aðalhlutverk:
Ella Raines og Franchot Tones. Ungur
maður á uppleið er sakaður um morðið á
konu sinni. Fjan/istarsönnun hans veltur
á vitnisburði stúlku sem enginn veit deili
á. Hennar er ákaft leitað, en ýmis Ijón
verða á veginum. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
23.40 Dagskrárlok.
Effco þurrkan læknar ekki kvef
En það er óneitanlega gott að snýta sér í hana
Hún er svo stór og mjúk og
særir nebbann ekki neitt. Svo þegar
kvefið er batnað getur þú notað
afganginn af rúllunni til annarra
hluta, eins og t.d. til að þrífa bílinn,
bátinn, sumarbústaðinn og svo
getur þú að sjálfsögðú notað hana
til algengustu heimilisstarfa.
Það er eitthvað annað að þrífa
með Effco þurrkunni. Hún gerir
heimilisstörfin, sem áður virtust
óyfirstíganleg, að skemmtilegum
leik. Ohreinindin bókstaflega leggja
á flótta þegar Effco þurrkan er á
lofti.
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og verstunum.
Heildsala Höggdeyfir — EFFCO sími 73233
Auglýsing um framlagningu
kjörskrár við kosningu
tii kirkjuþings
Kjörstjórn við kosningu til kirkjuþings hefur sam-
kvæmt lögum um kirkjuþing og kirkjuráð íslensku
þjóðkirkjunnar nr. 48 frá 11. maí 1982 samið
kjörskrá vegna kosningar til kirkjuþings, sem fram
fer í júlí og ágúst nk.
Kjörskráin liggur frammi til sýnis á biskupsstofu,
Suðurgötu 22, Reykjavík, og dóms- og kirkjumála
ráðuneytinu, Arnarhvoli, Reykjavíktil 14. júlí 1986.
Jafnframt verður próföstum landsins sent eintak
kjörskrárinnar að því er tekur til kjósenda úr
viðkomandi kjördæmi.
Kærur tii breytinga á kjörskránni þurfa að hafa
borist formanni kjörstjórnar í dóms- og kirkjumálar-
áðuneytinu fyrir 15. júlí 1986.
Reykjavík 13. júní 1986.
Þorsteinn Geirsson
Þorbergur Kristjánsson
Magnús Guðjónsson.
Til sölu
Hillusamstæða til sölu 3 einingar, einnig er til sölu
hjónarúm úr palesander án dýnu.
Upplýsingar í síma 18300 á daginn en í síma
41082 eftirkl. 17.00.
Laus staða
Kleppsjárnsreykjaskóli óskar að ráða starfsmann
til að annast bókhald og kennarastarf.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí upplýsingar um starfið
gefur Jón Böðvarsson í síma 93-5379.