Tíminn - 26.06.1986, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.06.1986, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. júní 1986 Tíminn 3 Norðurlandaráð- herrar funda Norrænir heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar sitja nú á tveggja daga fundi á Hótel Sögu þar sem rædd eru ýmis sameiginleg málefni Norðurlandanna á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Meðal mála má nefna samvinnu um baráttu gegn AIDS, og gert er ráð fyrir að slysið í Chernobyl og afleiðingar þess verði til umræðu á ráðherrafundinum. í dag verður fjallað um öldrunarþjónustu og munu fulltrúarnir heimsækja Hrafnistu í Hafnarfirði. Þessi mynd var tekin af upphafi fundarins í gær. Tímamynd-Pétur Vilja óperu í tónlistar- húsið Óperudeild Félags íslenskra leikara, hefur sent fjölmiðlum, Davíð Oddssyni, borgarstjóra, Sverri Hermannssyni, menntamála- ráðherra sem og stjórn Samtaka um byggingu tónlistarhúss, yfirlýsingu 24 áhugamanna um óperutónlist- arflutning. Er hún á þessa leið: „Undirrituð lýsa gleði sinni yfir þeim áfanga, sem Samkeppni um byggingu tónlistar- húss er, á leið til þess, að tónlistin fái loks yfir sig langþráð og verðskuldað hús. Jafnframt lýsum við áhyggjum okkar yfir því, ef valin yrði sú leið að byggja hús, sem úthýsir stórum hluta tónlistarlífs, t.d. óperuflutn- ingi, og tefði þannig eðlilega þróun í tónlistarmálum okkar um ófyrir- sjáanlegan tíma.“ Skoðunar- ferð um Grófina Félagið í Grófinni býður til skoð- unarferðar um Grófina kl. 16.30 í dag fimmtudag. Lagt verður af stað frá Bryggjuhúsinu (Álafossbúðinni), gengið verður um „Strandgaden" sem nú er Hafnarstræti og til baka um Tryggvagötu. Rifjuð verður upp saga húsanna og atvik í þeirn rifjuð upp. Sögumaður í ferðinni verður Páll Líndal. Stein- sílan Ný málning frá Málningar- verksmiðju Slippfélagsins Málningarverksmiðja Slippfé- lagsins hefur sett á markað nýja tegund málningar, er ber nafnið Steinsílan. f fréttatilkynningu segir að Steinsílan sé vatnsfælin sílanmálning og að verji múr mjög vel fyrir raka. Hún aðlagi sig vel að múrnum og hleypir raka vel út. Steinsílan er vatnsmálning og fæst í 25 litum í öllum málningar- vöruverslununt á hagstæðu verði. ÓN5MC55UMATIÐ STAÐARFELLI 27-2S-2ýjuní MOTIÐ SETT KL. 22.00 FOSTEDAG MEÐAL SKEMMTIATRIÐA ICY-HÓPURINN HLJÓMSVEITIIV G 0 Ð G Á DISKÓTEK (ÓLI—KIDDI—HLYIVIR) RARIVALEIKTÆKI RARIMAPÍÍSSUA' SÆTAFERÐIR FRA R. S. I. FÖSTUDAG K L. 17.00 STVRKTARFELAG STAÐARFELLS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.