Tíminn - 15.08.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
SPEGILL
liiliiliiiiili
EMMA SAMMS,
„ENSKA RÓSIN“
í HOLLYWOOD
„Hún
er of sæt
og góð!“
-SEGJA KJAFTA-
KINDURNAR
F lcst cr nú hægt að finna
einni leikkonu til foráttu, þeg-
ar það er aðalefni aðfinnsl-
anna að stúlka sé „alltof sæt og
góð“. Emma Samms, 25 ára
ensk leikkona, sent hefur í
nokkur ár gert það gott í
Hollywood, m.a. leikið í fram-
haldsmyndaflokkum eins og
„General Hospital" og Dyn-
asty“ og er nú í „The Colbys"
(framh. af Dynasty), hefur
oröið fyrir því að ótuktarhóp-
urinn í Hollywood" hefurbyrj-
að hálfgerða hcrferð að þessari
fallegu og Ijúfu leikkonu.
Hún er sögð allt of sæt og
góð, til að það geti verið satt,
og m.a. hafi hún rýrt álit fólks
á „innfæddum" leikurum með
því að vera sífellt að gefa
yfirlýsingar í viðtölum: um að
hún hati eiturlyf, - sé líklega
eina leikkonan í Hollywood,
sem ekki hafi prófað slíkt, -
hún hafi ekki áhuga á áfengi,
æsilegu samkvæmislífi o.s.frv.
„Það er engu líkara en hún
álíti okkur vera bara pakk,“
sagði ein hneyksluð Holly-
woodstjarna.
Sjálf segir Emma, að fólk
hlægi að henni, vegna þess
hvað hún sé saklaus og löghlýð-
in, fari aldrei yfir löstlegan
hraða hvað þá annaði „Ég hef
bara sagt það sem mér finnst í
viðtölum, að ég hati eiturlyf,
áfengi og ólifnað - og ég sé
ekki neitt athugavert við það.
Þetta er mín skoðun. Ég vinn
eins vel og ég get og er ánægð
með hvernig mér gengur í
starfi. Ég er ekkert hrædd við
slúðrið um mig, ég er á góðum
föstum samningi og mér geng-
ur nú allt í haginn."
Emma Samms byrjaði í
„General Hospital“ þegar hún
kom til Hollywood. Hún lék
þá á móti ástralska leikaranum
Tristan Rogers, og þau urðu
ástfangin. Rogers skildi við
konu sína og vildi giftast
Emmu, en hún dró sig þá í hlé
og batt enda á samband þeirra.
Þá varð leikarinn Jon-Erik
Hexum hrifinn af henni og
þau voru að byrja að vera
saman þegar hann varð fyrir
voðaskoti og dó. Það var henni
mikið áfall.
Nú býr Emnta með David
Corwin, sem er 32 ára, og þau
segjast ætla til Englands og
gifta sig þar í haust. Þau liafa
þekkst nokkuð lengi, en Corw-
in er auðugur veitingamaður,
sem sér um veislur og sam-
kvænti.
Emma Samnts segist hafa
skipt um skoðun um „sambúð
fyrir hjónavígslu", en það var
eitt sem hún hafði lýst yfir að
sér þætti óviðeigandi. „Ég áleit
það synd, en ég hef skipt um
skoðun. Sambúð er af hinu
góða, því þá fyrst kynnist mað-
ur og kona raunverulega. En
við ætlum að gifta okkur fljót-
lega," bætti Emma við.
Emma
Samms leik-
kona er ekki
vinsæl hjá
Holly-
wood-
klík-
unni.
I
sumarhitum
II
■ I UN er nokkuð sniðug þessi kisa sem svalar hér
þorsta sínum með því að grípa garðslönguna föstum
tökum með loppunni og fá sér góðan sopa af kalda
vatninu. Þessi kisa heitir Tova og á heima í Kaup-
mannahöfn og eigandi hennar myndaði hana einn
heitan sólardag í sumar.
Tova fær sér að drekka.
I
Föstudagur 15. ágúst 1986
lllllllllllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllllll
FRETTAYFIRLIT
HAMBORG — Talsmaður
vestur-þýska skipafélagsins
Hapag-Llyod sagði umræður í
kanadískum fjölmiðlum um að
skip félagsins hefði smyglað
152 tamilum upp að strönd
Kanada vera „algjöra vit-
ieysu“.
JÓHANNESARBORG
Stjómvöld í Suður-Afríku til-
kynntu um aukin pólitísk átök
og sögðu lögreglumann hafa
særst af völdum handsprengju
sem hent var að lögreqlustöð.
Hin nýju átök hafa verið mest í
kringum skóla I Soweto.
SHARJAN —Sextán áhafn-
armeðlimir íranska olíuflutn-
ingaskipsins Azarpad létust í
loftárás íraka á skipið síðast-
liðinn þriðjudag. Loftárásunum
var einnig beint að öðrum skot-
mörkum við olíuhöfn írana á
Sirrieyju.
SEOUL — Þúsundir löq-
reglumanna umkringdu höfuo-
stöðvar stjórnarandstæðinga í
Suður-Kóreu til að koma í veg
fyrir fjöldaþátttöku í mót-
mælaaðgerðum þar sem mót-
mæla átti pyndingum á stjórn-
arandstæðingum sem í haldi
eru.
Bonn — Jurgen Mrellemann
varautanríkisráðherra V-
Þýskalands sagði yfirlýsingu
P.W. Botha forseta Suður-Afr-
íku, þess efnis að Suöur-Afríka
væri útvörður frjálsa heimsins
gegn kommúnisma, vera
napra móðgun.
Bangkok — stjómvöld í
Víetnam hafa látið lausan
Bandaríkjamann sem fyrir
rúmu ári síðan reyndi að kom-
ast á ólöglegan hátt inn í
landið til að nema unnustu
sína og barn á brott. Það var
hin opinbera fréttastofa Víet-
nam sem frá þessu skýrði.
MADRID — Spænska stjórn-
in hefurgefiðsendinefnd Frels-
ishreyfingar Palestínuaraba
(PLO) rétt á borð við þann sem
aðrir erlendir sendiráðshópar
njóta.
MANILA — Juan Ponce Enr-
ilg varnarmálaráðherra Filipps-
eýja sagðist hafa sannanir fyrir
því að stuðningsmenn Mar-
cosar fyrrum forseta hygðu á
enn eina byltingartilraunina og
ætti hún að eiga sér stað þegar
Corazon Aquino forseti fer til
Bandaríkjanna í næsta mán-
uði.
WASHINGON - Sam-
þykkt öldungadeildarinnar
bandarísku á beiðni Reagans
Bandaríkjaforseta um 100 mill-
jóna dollara styrk til handa
Contra-skæruliðunum í Nicar-
agua hefur nánast tryggt á-
framhald á hernaðaraðstoð
Bandaríkjamanna til skærulið-
anna.