Tíminn - 19.08.1986, Qupperneq 6
6 Tíminn
Tíminn
MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri:
Aöstoöarritstjóri:
Fréttastjóri:
Aöstoöarfréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
NíelsÁrni Lund
OddurÓlafsson
Guðmundur Hermannsson
EggertSkúlason
SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.-
Fremst meðal jafningja
Nú stendur yfir hátíðarvika vegna 200 ára
afmælis kaupstaðarréttinda nokkurra þéttbýlisst-
aða. Fyrirferðarmest eru að sjálfsögðu hátíðarhöld-
in vegna 200 ára afmælis höfuðborgarinnar, sem
náðu hámarki í gær á afmælisdaginn sjálfan.
Reykjavík hefur þróast þannig að þar eru
miðstöðvar stjórnsýslunnar og miðstöðvar verslun-
ar og viðskipta í landinu. Þetta hefur orðið til þess
að borgin hefur náð þeirri stærð sem hún er í nú.
Það hefur komið berlega fram í umfjöllun um
afmæli höfuðborgarinnar að þjóðin hefur afhent
henni höfuðborgarhlutverkið og er stolt af ýmissi
starfsemi í verklegum sem menningarlegum efnum
sem þrífast í skjóli stærðar hennar. Hins vegar
hefur oft á tíðum verið bent á þá hættu sem felst í
því ef útþensla borgarinnar verður meiri en hún er
nú þegar, ef hún tekur til sín meira en orðið er af
íbúum landsins alls.
Tíminn hefur oft bent á þá hættu og Framsóknar-
flokkurinn hefur varað við henni. Andstæðingarnir
hafa haldið því fram að þetta væri gert af fjandskap
við höfuðborgina og höfuðborgarbúa og þeim
hefur orðið nokkuð ágengt í þessum áróðri. Staða
Tímans og Framsóknarflokksins er ekki sem skyldi
hér í borginni.
Þetta er á misskilningi byggt. Framsóknar-
flokkurinn hefur ætíð haft á stefnuskrá sinni
jafnvægi í byggð landsins. Jafnvægi þýðir það ekki
að einn sé dreginn fram á annars kostnað. Jafnvægi
þýðir það að við viljum byggja landið allt, nýta
landkosti allra landshluta. Byggðarlög landsins
eiga að starfa á jafnréttisgrundvelli, vera nægilega
öflug til þess að veita íbúum sínum lífsviðurværi og
lífsfyllingu hvert með sínum hætti. Höfuðborgin á
að vera fremst meðal jafningja, slík hefur stefna
Tímans og Framsóknarflokksins verið í gegnum
tíðina.
Það er fullvíst að höfuðborgarbúar skilja það
samhengi sem þarf að vera milli öflugrar lands-
byggðar og öflugrar höfuðborgar þegar rætt er
öfgalaust um þessa hluti. Margir þeirra eiga sinn
uppruna út um landsbyggðina og vilja veg hennar
sem mestan.
Það er ástæðulaust fyrir andstæðinga Framsókn-
arflokksins að gleðjast yfir því að hann sé búinn að
vera í höfuðborginni og nágrannabyggðum. Öfga-
laus stefna hans, sem er framar öðru, stefnan um
manngildi ofar auðgildi, á sama erindi til höfuð-
borgarbúa sem og annarra landsmanna. Það mun
sýna sig áður en lýkur.
Þriðjudagur 19. ágúst 1986
lllllll GARRI
Petra Kelly til
Islands í boði ungra
framsóknarmanna
Hversvegna er Petru Kelly, boðið á SUF þing?
Höfundur Staksteina fjallaöi um það í síöustu viku og Finnur Ingólfsson formaður SUF, skýrði það mál fyrir
sjálfstæðismönnum.
Svo virðist stundum sem það fari
fyrir brjóstið á sjálfstæðismönnum,
að geta ekki stjórnað framsókn-
armönnum.
í Staksteinum Morgunblaðsins í
síðustu viku var fjallað um þing
Sambands ungra framsóknar-
manna sem haldið verður í lok þessa
mánaðar í Hrafnagilsskóla. Þar er
sérstaklega gert að umtalsefni að
SUF, skuli lcyfa sér að bjóða til
þingsins, Petru Kelly, fyrrum þing-
manni Græningja í V-Þýskalandi.
Garra finnst rétt að lofa lesend-
um Tímans að sjá hvernig Morgun-
blaðið hugleiðir þetta mál og einnig
er komið á framfæri athugasemd-
um Finns Ingólfssonar formanns
SUF sem birtist í Morgunblaðinu
s.l. laugardag.
f upphafi greinir höfundur Stak-
steina frá því að Finnur Ingólfsson
hafi sagt í frétt Morgunblaðsins um
þing SUF, að umhverfismál yrðu
stór þáttur á þinginu sem ber
yfírskriftina „Framsóknarflokkur-
inn: Afl nýrra tíma, og sú umræða
væri ástæða þess að Petru Kelly
væri boðið.
Síðan segir í Staksteinum:
Ekki er óeðlilegt að tengja sam-
an Græningja og umhverfísmál,
enda er fíokkur þeirra gjarnan
nefndur „ílokkur umlnerfísvernd-
arsinna“. En þeir, sém fylgjast
með fréttum, ættu að vita, að
Græningjar hafa ekki aðeins áhuga
á umhverfísmálum í þröngum
skilningi, heldur einnig og kannski
ekki síst öryggis- og varnarmálum.
í þeim efnum er stefna þeirra skýr:
Þeir eru andsnúnir aðild Vestur-
Þýskalands að Atlantshafsbanda-
laginu og vilja einhliða kjarnorku-
afvopnun Vesturlanda. Fyrirþessu
hafa þeir barist af miklum ákafa á
undanförnum árum og skipað sér
framarlega í raðir hinna svonefndu
„friðarhreyfínga“. Innan Græn-
ingjaflokksins eru síðan margvís-
legar fylkingar með ólík hugðarefni
og áherslur: þ.á m. hverskyns
draumórafólk og „náttúrubörn “ og
jafn vel andstæðingar þingræðis- og
lýðræðisskipulags.
Sú spurning er áleitin hvaða
þættirístefnu Græningjanna höfða
sérstaklega til ungra framsóknar-
manna. Finnur Ingólfsson segir, að
umhverfísmál verði á dagskrá á
SUF-þinginu, en varla er það eina
ástæðan fyrir boðinu til Græningj-
anna. Nema þá ungir framsóknar-
menn hafí svona litla hugmynd um
raunveruleg stefnumál Græningj-
anna. Eða ætla kannski að sam-
þykkja einhverjar róttækar álykt-
anir um umhverfísmál í víðum
skilningi í anda Græningja, sem
tækju þá jafnvel til kjarnorku-
mála? Er hugsanlegt, að þeir ætli
að breyta um afstöðu til Atlants-
hafsbandalagsins og taka upp stefnu
í anda Græningja? Þetta verður
bara að koma í Ijós, en óneitanlega ,
er það furðulegt að á sama tíma og
Steingrímur Hermannsson, for-
niaður Framsóknarflokksins,
leggur álierslu á samstarf við
stjórnmálaflokka í Alþjóðasam-
bandi frjálslyndra flokka og sækir
þing þeirra, skuli ungliðarnir í
flokknum leita eftir sambandi við
flokk, sem er yst til vinstri í
vestur-þýskum stjórnmálum. Hvað
ætli „bræðraftokki“ Framsóknar-
flokksins í Vestur-Þýskalandi,
Frjálsa demókratafíokknum, fínn-
ist um slíka hegðun? og munu
framsóknarmenn skipa sama sess í
alþjóðasamstarfí eftir Græningja-
ævintýrið?
Það er líka ástæða til að velta
því fyrir sér, hvort ungir framsókn-
armenn viti almennt um það, hvað
vakir fyrir forystu SUF. Einhverjir
þeirra hljóta að spyrja sig, hvort
það sé ekki rétt að eftirláta Al-
þýðubandalaginu og Kvennalistan-
um boð til Petru Kelly og annarra
Græningja. Fróðlegt verður að sjá
hvort þessir menn hafa hugrekki til
að láta undrun sína og hneykslun í
Ijós opinberlega áður en SUF-þing-
ið kemur saman eða á því sjálfu.
Athugasemd Finns Ingólfssonar:
STAKSTEINAR
í GLERHÚSI
/ Staksteinum Morgunblaðsins,
miðvikudaginn 13. ágúst sl., er
eins og svo oft áður kastað stak-
steinum úr glerhúsi og sem fyrr er
grjótkastarinn ekki nefndur. Svo
sem marka má af lestri greinarinn-
ar hefur það farið fyrir brjóstið á
Morgunblaðinu, að ungir fram-
sóknarmenn skuli ætla að móta
stefnu Framsóknarflokksins í um-
hverfísmálum. Framsóknarfíokk-
urinn verður þannig fyrstur ís-
lenskra stjórnmálafíokka til að
móta heilsteypta stefnu í þeim
málafíokki.
MÁLAFL0KKUR
SEM HUGAÞARFAD
Við íslendingar erum að mestu
lausir við dæmigerð mengunar-
vandamál þéttbýlla iðnríkja. Það
er ekki sjálfgefíð að svo muni
verða um alla framtíð. Aðeins með
árvekni og ákveðinni stefnu í stjórn
umhverfísmála getum við bægt
þeim hættum frá, sem mengun
getur haft á lífíð í þessu landi.
Umhverfímálin fléttast mjög sam-
an við efnahagslegar undirstöður
þjóðarbúsins, sérstaklega í land-
búnaði, matvælaframleiðslu og
ferðaþjónustu.
AFHVERJU
PETRA KELLY?
Framsóknarflokkurinn er frjáls-
lyndur flokkur og innan flokksins
er víðsýnt fólk, tilbúið til að hlusta
á og kynnast sjónarmiðum ann-
arra, þó svo, að fyrirfram sé vitað
að þau muni ekki í öllum tilfellum
falla að skoðunum allra fíokks-
manna. Ástæðan fyrir þvíað Petru
Kelly er boðið til íslands á þing
SUF er ekki sú, að skoðanir fram-
sóknannanna og hennar falli saman,
heldur hitt að það er öllum til góðs
að kynnast öðrum sjónarmiðum en
sínum eigin. Ungir framsóknar-
menn hafa fengið fyrirlesara úr
öðrum flokkum t.d. Sjálfstæðis-
ttokknum, á ráðstefnur sínar og
hafa sumir talað þar af nokkurri
skynsemi. Petru Kelly er boðið á
þing SUF til að ræða um umhverf-
ismál, en ekki varnar- og öryggis-
mál. Stefna Sambands ungra fram-
sóknarmanna í varnar- og öryggis-
málum var mörkuð á síðasta þingi
SUF í Vestmannaeyjum, en ungir
framsóknarmenn munu hins vegar
hlusta á Petru Kelly, ef hún hefur
áhuga á að kynna sínar skoðanir á
varnar- og öryggismálum. Það er
alveg ástæðulaus ótti hjá Morgun-
blaðinu að halda að Petra Kelly
breyti varnar- og öryggismála-
stefnu Framsóknarflokksins.
FRAMSÓKNARMENN
MÓTA SÍNA STEFNU
SJÁLFIR
Hægt er að taka undir þau
sjónarmið sem hvað eftir annað
liefur verið hamrað á í Morgun-
blaðinu, að ekki beri að rugla
saman varnar- og öryggismálum
þjóðarinnar og viðskiptahagsmun-
um. Sama gildir um það, að ekki
ber að rugla saman varnar- og
öryggismálum og umhverfísmál-
um.
Petru Kelly er ekki boðið á
þingið tilað móta stefnu Sambands
ungra framsóknarmanna í um-
hverfísmálum, heldur til að kynna
ný sjónarmið, sjónarmið sem fróð-
legt er að kynnast, þó vitað sé að
þau sjónarmið séu mjög mótuð af
þeim heimi sem forystumenn og
þingmenn Græningja í Vestur-
Þýskalandi lifa í. Ungir framsókn-
armenn munu síðan sjálfír ákveða,
hvort þeir vilji gera þau sjónarmið
að sínum. Framsóknarmenn hafa
ekki og munu ekki kaupa sín
stefnumál erlendis frá líkt og Sjálf-
stæðisflokkurinn gerir.
VERNDAÐ HUGMYNDA-
FRÆÐILEGT UMHVERFI
Þau sjónarmið sem fram komu í
þessari Staksteinagrein Morgun-
blaðsins, að halda beri flokks-
mönnum í vernduðu, hugmynda-
fræðilegu umhverfi, hljóta að vera
lesendum Morgunblaðsins og kjós-
endum Sjálfstæðisfíokksins um-
hugsunarefni. Slík sjónarmið hélt
ég að fyrirfyndust aðeins á einum
stað í veröldinni, austuríSovétríkj-
unum. Fróðlegt er að heyra að slík
sjónarmið skulu nú vera orðin
allsráðandi í Sjálfstæðisflokknum.