Tíminn - 12.09.1986, Side 1

Tíminn - 12.09.1986, Side 1
^ STOFNAÐUR1917 I ínmin w SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986 - 207. TBL. 70. ÁRG. í STUTTU MÁLI... BILVELTA varö um kl. 2.30 í gær við Steingrímsstöðina í Gríms- nesi. Fólksbifreið með fjórum mann- eskjum innanborðs lenti í lausamöl og valt úr af veginum. Engin meiðsli munu hafa orðið á fólki en bifreiðin mun all mikið skemmd. I. PÁLMASON hf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta að ósk fyrirtækisins. I. Pálmason hefur eink- um sérhæft sig í sölu á eldvarnartækj- um og slökkvitækjum. FATASÖFNUN er nú hafin um allt land á vegum Rauða krossins og hefur þegar borist mikið magn af fatnaði til aðalstöðva féiagsins í Reykjavík og eins til margra deilda úti á landsbyggðinni. í fatasöfnuninni í fyrra bárust tæplega 80 tonn af góðum fatnaði og voru fötin send til Afríkuríkja og Nicaragua. Talsverður kostnaður fylgir flokkun og pökkun fatnaðarins og eins flutningum og þó þess sé ekki krafist að fólk leggi fram fé með fötum sem það gefur.létta gefendur mjög undir ef þeir greiða kostnað fatasend- ingar sem er áætl- aður 50 krónur á kíló. BJ hefur lýst ánægju sinni yfir að menn skuli loksins þora að gefa fisk- verð frjálst þó aðeins sé um eina fisktegund að ræða, þe. loðnu, og verðfrelsi gildi aðeins í einn mánuð. I ályktun þingflokks BJ segir að frjálst fiskverð hafi verið eitt aðalbaráttumál Bandalagsins í fjögur ár af þeirri ein- földu ástæðu að það sé forsenda þess að rekstur sjávarútvegsins standi á traustum grunni. BJ hvetur til að verð- ákvörðun allra fisktegunda verði gefin frjáls enda sé það eina varanlega lausnin á sífelldum vanda sjávarút- vegsins. ÞÓR WHITEHEAD sagn- fræðingur hefur verið skipaður próf- essor í sagnfræði við Háskóla íslands af menntamálaráðherra. Þórlaukdokt- ! orsprófi í sagnfræði frá Oxfordháskóla j og hefur verið lektor við Háskóla Islands frá 1978. VERÐBÓLGA í Svíþjóð lækk- aði um 0,1% í ágúst og er nú 3,6% miðað við síðasta ár. Verðhækkanir í júlí námu hinsvegar o,2% Aðalástæð- ur lækkunarinnar var lækkun á olíu- verði og lækkun á vöxtum. Talið er að þessi lækkun verði til þess að ekki þurfi að endurskoða kjarasamninga þessa árs en miðað er við að þeir verði endurskoðaðir ef veröbólgan fari yfir 3,2% á þessu ári miðað við 5,7 á síðasta ári. ROTTUR OG MÝS í júgó- slavneskum fjallaþorpum eru taldar hafa breitt út veiki sem orðið hefur 5 manns að bana og hafa yfirvöld nú fyrirskipað útrýmingu nagdýra á svæð- inu. Veikin, sem leggst á nýrun, hefur nú þegar greinst hjá 18 manns, þar af 12 á síðustu 10 dögum. KRUMMI ... er járnfrúin hefur ryðgað eftir tára- flauminn getur hún alltaf fengið norska olíu ... Metsala hjá lceland Seafood í ágúst í Bandaríkjunum: Fiskverð hækkar um 5-15cent ánæstunni í lágmarki og jafnvel nálægt hættumörkum - Fiskbirgðir vestra Fiskverð hjá iceland Seafood Corporation, sölufyrirtæki Sam- bandsins og Sambandsfrystihús- anna í Bandaríkjunum, hækkar í næstu viku um 5-15 cent á pund eftir tegundum og stafar þetta af síaukinni eftirspurn eftir fiski jafn- framt því sem framboðið héðan að heiman hefur minnkað. Þetta kem- ur fram í viðtali við Eystein Helga- son framkvæmdastjóra Iceland Seafood í Tímanum í dag og jafn- framt að birgðir eru í svo miklu lágmarki hjá fyrirtækinu að nálgast hættumðrk í sumum tegundum. Verð á þorski hækkar í næstu viku um 5-10 cent á pundið og hefur þroskur þannig hækkað um 10% frá áramótum. Ýsa hækkar urn 5 cent. ufsi hækkar um 7 cent sem þýðir29% hækkun frá áramót- um, karfi hækkar um 10 cent sem þýðir 24% hækkun frá áramótum og grálúða hækkar um 15 cent sem þýðir 25% hækkun frá áramótum. Metsala varð í ágúst hjá Iceland Seafood og var 15,2 milljónir doll- ara sem er 16% aukning frá ágúst í fyrra og er þctta stærsti einstaki sölumánuður í sögu fyrirtækisins frá upphafi. Hcildarsalan frá ára- mótum nemur 102,8 milljónum dollara sem er aukning um 17% frá fyrra ári. esig/GSH Sjá blaðsíðu 9 Nú fer í hönd sá tími sem busar í menntaskólunum óttast mest. Eldribekkingar taka þá yngri í samfélag sitt með ofstopa og látum, hrekkjum og grikkjum eða, eins og myndin sýnir, með táknrænum athöfnum, til að sýna lítilsvirðingu sína á nýnemum. Meðbræðrakennd nær oft æði skammt og ekki víst að nemendur í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hafi hugsað leik sinn til enda, er þeir skrýddust hempum Ku Klux Klan og máluðu busa svarta í framan. I helgarblaði Tímans er nánar sagt frá vígslunni. Tímamynd Pctur. Norðmenn: Komu Thatcher til að tárast Margaret Thatcher forsætisráð- herra Breta, hefur fengið frekar óblíðar móttökur í Noregi þar sem hún er nú t' opinberri heimsókn. Fyrst var gerður aðsúgur að henni í Tromsö í gærmorgun og í gær- kvöldi ruddust um 1500 manna hópur gegnum varnargirðingar kringum höll í Osló þar sem Thatc- her átti að sitja heiðurskvöldverð- arboð. Lögregla varð að beita táragasi og kylfum til að dreifa hópnum. Ráðherrar, sendiherrar og for- stjórar klæddir í kjól og hvítt urðu að ganga gegnum táragasskýin að höllinni þar sem kvöldverðarboðið átti að byrja klukkan hálf sex og hvorki Thatcher né Gro Harlem Bruntland forsætisráðherra Noregs höfðu látið sjá sig klukkutíma síðar. Mótmælin í Oslo byrjuðu utan við Ráðhús Osló fyrr um daginn: Sinn Fein leiðtoginn Danny Morri- son hélt þar ræðu, þar sem hann mótmælti íhlutun Breta í málefni Norður-írlands, og aðrir ræðu- menn gagnrýndu Breta fyrir væga afstöðu gagnvart Suður-Afríku. -GSH Alþingismenn í Þjóölífi: Eiður Guðnason er dónalegur - segir Sigríöur Dúna í viðtali íslcnskir þingmenn eru margirhverjirdónalegir í fram- komu og einna verstur er Eiður Guðnason, samkvæmt því sem Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir segir í viðtali við tímarit- ið Þjóðlíf, sem kemur út nú um helgina. f viðtalinu lýsir Sigríð- ur Dúna reynslu sinni á vinnu- staðnum Alþingi og samskipt- um sínum við hina ýmsu þingmenn. í viðtalinu kemur fram að hún telur Eið Guðna- son fremstan í Ilokki hvað dónaskap varðar, en Árni Johnsen hafi Iengi verið slæmur sem og Sverrir Hermannsson. Allir munu þessir menn hafa sýnt Sigríð'i Dúnu hroka og lítilsvirðingu. Aðrir þingmenn einkum Hjörleifur Guttorms- son fá hins vegar háa kurteisis- einkunn hjá þessum þingmanni kvennalistans. í Þjóðlífi er einnig viðtal við Val Arnþórsson stjórnarfor- mann Sambandsins, en þar kemur fram að hann ætlar ekki að fara fram í næstu þingkosn- ingum. -BG

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.