Tíminn - 12.09.1986, Page 3

Tíminn - 12.09.1986, Page 3
Föstudagur 12. september 1986 Tíminn 3 „T rjávaxtarrækt með aðstoð stórsveppa“ Rætt við Sigurbjörn Einarsson um rannsóknir hans á Iðntæknistofnun Hér á öldum áður mun ísland hafa verið skógi vaxið „milli fjalls og fjöru“ eins og Ari fróði komst að orði. En frá og með landnámi hefur skógur á íslandi látið undan síga vegna ágangs manna og sauðkindar og í dag eru varla til hér skógar eða tré sem standa undir nafni. En það hafa alltaf verið til áhugamenn sem viljað hafa snúa þessari þróun við og svo virðist sem áhugi á skógrækt til nytja hafi aukist til muna á síðustu misserum. Einn þessara áhugamanna er Sig- urbjörn Einarsson, jarðvegsfræðing- ur, menntaður frá Noregi, og vinnur hann nú að merkum tilraunum með nýtingu svepprótarsveppa til að auka vaxtarhraða trjáa og minnka afföll þeirra. Tíminn hitti Sigurbjörn að máli á Iðntæknistofnun, þar sem hann vinnur nú að rannsóknum sínum og bað hann að skýra í hverju þær eru fólgnar. Vill bæta fyrir syndir feðranna „bað má segja að ég hafi áhuga á að bæia fyrir syndir feðranna og græða landið, og þá með skógrækt fyrst og fremst,“ sagði Sigurbjörn. „í byrjun sneru rannsóknir mínar að næringarnámi og næringarástandi skógarins á Hallormsstað, og fjár- magnaði ég þær rannsóknir meö Vísindasjóðsstyrk scm mér hlotnað- ist. Fljótlega fór síðan athyglin að bcinast að sambýli stórsveppa og trjáa, scm nefnt hefur vcriðsveppar- ót.“ Sigurbjörn Einarsson, jarðvegs- fræðingur með tilraunaplöntur sínar á Iðntæknistofnun. Á neðri mynd- inni eru stafafuruplöntur sem Sigur- björn hefur haft í sérstakri ræktun undanfarna þrjá mánuði. Stóru plönturnar hafa notið aðstoðar sveppa í uppvcxtinum en þær smáu ekki. Munurinn er sláandi. Tímamynd Gísli Egill Sambýli stórsveppa og trjáa „Sveppir þessir örva upptöku trjánna á næringarefnum og vatni," uppfræðir Sigurbjörn. „Sveppir cru ófruntbjarga lífverur og taka því lífefni frá trjánum, en á móti kemur að þeir framleiða vaxtarhormón og sóttvarnarefni sem þau láta trénu í té. Því eykst vaxtarhraðinn og sótt- varnir trjánna styrkjast. Nú gerði ég tilraun með ræktun lerkis í smituðum jarðvegi frá Hall- ormsstað þ.e. jarðvcgi þar sem sveppir voru til staðar. og bar það saman við plöntur ræktaðar í jarð- vegi án sveppa. Niðurstaðan varð sú að plöntur ræktaðar með sveppa- sambýli hafa mikla yfirburði hvað varðar vöxt.“ Eykur vaxtarhraða og minnkar afföli Sagðist Sigurbjörn telja Ijóst að ræktun trjáa í sambýli með svepp- um hcfði gífurlega mikið að segja fyrir minnkandi afföll trjáplantna og vaxtarhraða þeirra. „í Banda- ríkjunum er talað um 50% minni afföll trjáplantna sem vaxa við þessi skilyrði,“ sagði Sigurbjörn. Og eins og má sjá á neðri myndinni hér til hliðar, eru þrjár plöntur sýnu stærri en hinar. Stóru plönturnar hafa notið sveppanna, en að öðru leyti hafa þessar stafa- furuplöntur fengið nákvæmlega sömu vaxtarskilyrðin í tilrauna- glösum sl. þrjá mánuði. „Markmiðið með þessum til- raunum," heldur Sigurbjörn áfram „er að rækta upp sveppinn til skipulegrar smitunar trjáplantna sem eru í ræktun í gróðrastöðvum. Þessir sveppir finnast allvíða í gömlum skógarreitum, en þær plöntur sem ræktaðar eru með nútíma aðferðum og komast ekki í snertingu við sinitaða mold í beðum, þarf að smita. Trjávaxtarrækt Ég er að byrja á því núna að kynna þetta fyrir skógræktarmönn- um og vona að viðtökurnar verði góðar. Áhugi á skógrækt er almennt að aukast, bændur eru að uppgötva hagnýti skógræktar og alntenningur er að snúast á sveif með náttúrunni. Er vonandi að meiri fjármunum verði veitt til þessara mála, en t.d. Skógrækt ríkisins hefur farið illa út úr því fjársvelti sem hún hefur alltof lengi verið í. Það yrði þjóðinni til gæfu ef næsta tískufyrirbæri sem hér grípur um sig, yrði trjávaxtarrækt, nú á eftir vaxtarræktinni," sagði Sigur- björn Einarsson að lokum og brosti. phh Sveitarfélögin: Hafa keypt 100 íbúðir á frjálsa markaðinum Sveitarfélög hafa það sem af er árinu keypt 53 íbúðir á almennum markaði, þar af 29 sem þau hafa endurselt sem verkamannabústaði og 24 sem sveitarfélögin nota sem leiguíbúðir. Að því er fram kemur í Fréttabréfi Húsnæðisstofnunar, er þegar vitað um 35 íbúðir til viðbótar sem sveitarfélög munu kaupa á þennan hátt. Alls verða það því 88 íbúðir a.m.k. sem sveitarfélögin munu í ár kaupa á almennum mark- aði til að nota sem félagslegt hús- næði, til viðbótar við 14 íbúðir sem keyptar voru á þennan hátt árið 1985. Á þessum tveim árum hafa bygg- ingarframkvæmdir verið hafnar við 290 félagslegar íbúðir af alls 656 íbúðum sem Húsnæðismálastjórn hefur heimilað að hefja framkvæmd- ir við árin 1985 og 1986. Af þessum 290 íbúðum sem byrjað er á eru 30 byggðar sem leiguíbúðir sveit- arfélaga. - HEI Samkeppnisstaða íslendinga um stóriðju vafasöm: Eftirspurn eftir afurðum verður minni í framtíðinni eru niðurstöður orkuhóps framtíðarkönnunar „I niðurstöðum orkuhóps fram- tíðarkönnúnar er komist að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að sam- keppnisstaða íslands um staðarval fyrir stóriðju sé allgóð, þá verði staða íslands næstu 5-10 árin lakari en til lengri tíma séð vegna tíma- bundinnar umframgetu í raforku- vinnslu í mörgum iðnríkjum,“ seg- ir m.a. í bæklingi sem Magnús Ólafsson verkcfnisstjóri framtíðar- könnunar hefur gert fyrir landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. „f heild er metið, að vöxtur eftirspurnar eftir afurðum raforku- frekrar stóriðju verði mun hægari í framtíðinni en hingað til, sumpart vegna samkeppni frá nýjum efnum, en sumpart vegna lækkandi hlutdcildar iðnaðar í þjóðarfram- leiðslu margra ríkja og hækkandi hlutdeildar þjónustu. Ef þau stóriðjuverkcfni, sem hafa verið til umræðu hér á landi undanfarin ár, verða öll komin til l'ramkvæmda á næsta aldarfjórð- ungi, mun það hafa afgcrandi áhrif á íslenskt efnahagslíf. En sem stendur er verðlag á helstu afurð- um hennar of lágt til þess að meiriháttar ný stóriðja sé nægilega arðsöm og því ættu ráðamenn ís- lenskra svcitarfélaga að binda von- ir sínar um atvinnuuppbyggingu við aðra mögulcika að óbreyttum aðstæðum," segir orðrétt í bækl- ingnum. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.