Tíminn - 12.09.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 12. september 1986
N
JL. ^ Ú ER lokið við gerð
dýrustu sjónvarpsþátta í sögunni,
stutts framhaldsmyndaflokks um
Pétur mikla, sem gerður var í
Sovétríkjunum. Kostnaðurinn við
framleiðsluna fór upp í 22 milljónir
sterlingspunda, og þá er bara
reiknað í peningum. Ýms önnur
vandræði voru nefnilega líka inni í
dæminu. Og svo þegar til kom sló
Pétur mikli ekki einu sinni við
framhaldsþættinum „Sins“ með
Joan Collins í aðalhlutverki þegar
hann var sýndur í Bandaríkjunum,
en það er önnur saga.
Pétur mikli var mikið alþjóðlegt
átak og var ekkert til sparað til að
útkoman mætti vera sem glæsileg-
ust. í hlutverk þessa mikla Rússa-
keisara, sem uppi var 1672-1725,
valdist svissneski leikarinn og Ósk-
arsverðlaunahafinn Maximilian
Schell. Hann er orðinn 55 ára
gamall, en það aftraði honum ekki
frá því að verða ástfanginn upp yfir
haus af rússnesku leikkonunni
Natalya Andreichenko. Hún er
ekki nema hálídrættingur á við
Maximilian í aldri, 28 ára og var á
þeim tíma gift og móðir tveggja ára
barns. Sovésk yfirvöld hafa hingað
til ekki verið neitt sérlega fús til að
liðka fyrir hjónaböndum milli
þegna sinna og útlendinga, en nú
voru þau öll á hjólum og Maximili-
an og Natalya gengu í hjónaband í
júlí í sumar.
Leikstjóranum Lawrence Schill-
er leist samt ekkert á blikuna þegar
í uppsiglingu var annað ástar-
ævintýri yfir járntjaldið í liði hans.
Hann sendi bandarísku leikkonuna
Mollie Wynn snarlega heim til sín,
þegar í Ijós kom að hún var komin
í ástarsamband við rússneska
leikarann Vladimir Ilyin. Auðvitað
tók Mollie til sinna ráða, skildi við
ameríska eiginmanninn sinn og var
á leið til Moskvu til fundar við
elskhugann þegar síðast fréttist.
Og það var ekki nóg með að
Schiller leikstjóra tækist ekki að
hafa hemil á ástarævintýrum
leikaranna sinna. Hann lenti í
útistöðum við framleiðendurna og
var að lokum rekinn, þar sem
kostnaðurinn við myndargerðina
var kominn út yfir öll takmörk.
Hann hefur nú krafist 37 milljóna
sterlingspunda skaðabóta af NBC,
framleiðendum myndarinnar, fyrir
samningsrof, en við leikstjórninni
tók Marvin Chomsky.
Á meðan á öllu þessu gekk urðu
sjónvarpsgerðarmennirnir að búa
við sífellda hnýsni og afskiptasemi
KGB í Sovétríkjunum. Starfsmenn
rússnesku leynilögreglunnar voru
alls staðar nálægir, komu fyrir
hlerunartækjum á hótelherbergj-
um og leituðu jafnvel á leikurun-
um. Það voru aðallega ólöglegar
bókmenntir sern þeir voru á
höttunum eftir, sögðu þeir.
Hollenska leikkonan Renee So-
utendijk kvartaði undan stöðugum
kulda. Sú eina sem aldrei kvartaðþ
var þýska leikkonan Lilli Palmer,
sem var orðin helsjúk af krabba-
meini og dó þrem mánuðum eftir
að myndatökum lauk.
Framleiðendur myndarinnar,
NBC, höfðu borgað sovéskum yfir-
völdum 4 milljónir sterlingspunda
fyrir að fá að taka myndina innan
Sovétríkjanna og héldu að þar
með hefðu þeir tryggt gott samstarf
og helst góðar viðtökur myndar-
innar. En þær vonir brugðust eins
Maximilian Schell leikur Pétur
mikla. Hann vafði sovéska skrifræð-
inu um fingur sér og fékk vilja sínum
framgengt.
Lilli Palmer vissi að hún átti ekki
langt ólifað þegar hún tók að sér
hlutverk móður Péturs mikla í
sjónvarpsþáttunum, en sagði bara:
Himnaríki getur beðið. Hún var
ein af fáum þáttakendum í ævintýr-
inu sem aldrei kvartaði. Þó var hún
alltaf sárþjáð og 3 mánuðum eftir
að upptökum lauk dó hún.
og svo margt annað við þessa
sögulegu sjónvarpsmynd. Sovét-
menn létu sér fátt um finnast um
myndina fullgerða og héldu því
fram að Bandaríkjamenn hefðu
„hollyvúdíserað" þjóðhetjuna
þeirra og farið vitlaust með sögu-
Rússneska leikkonan Natalya
Andreichcnko er nú orðin frú
Schell.
legar staðreyndir.
Sá eini sem virðist hafa siglt
sínum málum heilum í höfn úr
þessu ævintýri er Maximilian
Schell. Hann lét sig hverfa af
vinnustað 11 dögum áður en
myndatökum lauk og bar því við
að hann væri illa haldinn af flensu,
auk þess sem hann hefði skuld-
bundið sig til annarra starfa í
Evrópu. Samt sást til hans nokkru
síðar á götu í Leníngrad ásamt
sinni heittelskuðu Natalyu And-
reichenko.
Sjónvarpsþáttaröð um
PÉTUR MIKLA
dregur ýmsan dilk á eftir sér
lllllllllllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllll
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Háttsettur sov-
éskur embættismaður sagði
að það ylti nú á Bandaríkja-
stjórn hver örlög Nicholas
Daniloffs yrðu en hann situr nú
í fangelsi í Moskvu ákærður
fyrir njósnir. Þessi yfirlýsing
kom í kjölfar þeirra upplýsinga
Reagans Bandaríkjaforseta að
Gorbashev leiðtogi Sovét-
manna hefði svarað beiðni um
aö Daniloff yrði látinn laus.
LONDON - Bretland býst
við að Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna muni hitta kol-
lega sinn frá Sovétríkjunum í
næstu viku eins og áætlað
hafði verið þrátt fyrir rimmu
milli stórveldanna um Daniloff.
JÓHANNESARBORG
— Coretta King, ekkja Martin
Luther King, heimsótti Soweto
í gær, i fylgd baráttukonunnar
Winnie Mandela
FRANKFURT — Forvextir
í Vestur-Þýskalandi breyttust
ekkert í aær þrátt fyrir að því
væri spáð að nú væri að hefjast
útsala á lánsfé út um allan
heim.
MADRID — Skæruliðar að-
skilnaðarhreyfingar Baska til-
kynntu að þeir hefðu skotið til
bana 32ja ára gamla konu,
Mariu Catarain, fyrrum leið-
toga hreyfingarinnar, og út-
hrópuðu hana sem svikara fy rir
að hafa lagt niður vopn sín ári
eftir að hún yfirgaf ETA (Frels-
ishreyfingu Baska) og fékk í
staðinn sakaruppgjöf og snéri
heim úr útlegð frá Mexico og
Frakklandi.
KARACHI - Lögreglan í
Pakistan hefur handtekið ar-
abískan mann á Islamabad-
flugvelli og leitar annars manns
í tengslum við atvikið á vellin-
um í síðustu viku þegar skæru-
liðar rændu flugvél og myrtu
21 mann.
BERN — Fulltrúar 76 landa
tóku þátt í hátíðahöldum í
tilefni af 100 ára afmæli Bern-
arsáttmálans, fyrsta alþjóðlega
sáttmálans um verndun höf-
undarréttar.
BANKOK — Fellibylurinn
Wayne hefur nú orðið meira en
100 manns að bana í Vietnam
og yfir 1000 manns hafa særst.
TEHERAN — Dagblað í
Teheran sagöi í gær að loftár-
ásir íraka síðustu tvo daga,
þar sem a.m.k. 30 óbreyttir
borgarar létu lífið, hefði verið
ætlað að egna írana til ótíma-
bærrar „lokaárásar" í Persa-
flóastríðinu
TEL AVIV — Þrír líbanskir
skæruliðar féllu og fimm nep-
alskir hermenn friðarsveita
Sameinuðu þjóðanna særðust
í Suður-Líbanon í skotbardaga
við hersveitir hliðhollar (sraels-
mönnum.