Tíminn - 12.09.1986, Qupperneq 6
6 Tíminn
Föstudagur 12. september 1986
Tímirm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri:
Aöstoðarritstjóri:
Fréttastjóri:
Aðstoöarf réttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
NíelsÁrni Lund
OddurÓlafsson
Guðmundur Hermannsson
Eggert Skúlason
Steingrímur Gíslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-
Staða
stjórnmálaflokkanna
Miklar pólitískar hræringar eiga sér nú stað innan
stjórnmálaflokkanna. Enda skoðanakannanir og prófkjör
á næstu dögum þar sem endanleg framboð þeirra verða
ákveðin.
Staða ríkisstjórnarflokkanna er sterk um þessar
mundir, og hefur raunar verið allt frá upphafi.
I þeim skoðanakönnunum sem farið hafa fram um fylgi
flokkanna hefur Sjálfstæðisflokkurinn haldið sínum hlut
og fylgi hans virðist furðulega fast miðað við hve ólík
sjónarmið eru innan hans til ýmissa landsmála. Það vefst
þannig fyrir mörgum að skilja hvernig sjálfstæðismenn
landsbyggðarinnar geta stutt stefnu frjálshyggjumanna
flokksins sem mest ber á, á Reykjavíkursvæðinu. Þó ber
að taka tillit til þess að reynslan sýnir að sjálfstæðismenn
gefa sig betur fram í skoðanakönnunum en stuðningsmenn
annarra flokka og því fær hann hlutfallslega betri útkomu
í skoðanakönnunum en í kosningum.
Fylgi Framsóknarflokksins er meira á reiki og hefur það
verið mun minna í sumum þeirra kannana sem gerðar hafa
verið en flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Fullyrða
má hins vegar að flokkurinn sé nú í öflugri sókn, enda
árangur af verkum hans í ríkisstjórn að koma í ljós. Þá
má einnig benda á að aðrir flokkar hafa lagst á eitt með
að ófrægja flokkinn og slíkur áróður hefur vissulega mikið
að segja.
Framsóknarflokkurinn hefur ávallt haft það að leiðar-
Ijósi að sýna ábyrgð í sínum verkum enda þótt ýmsar
ákvarðanir sem hann hefur þurft að taka hafi ekki mælst
vel fyrir hjá öllum. Þannig hafa ráðherrar flokksins tekið
á vanda sjávarútvegsins með þeim árangri að stefna hans
í þeim málaflokki nýtur trausts allrar þjóðarinnar. Þá
hefur hann einnig gert sér betur en aðrir flokkar grein fyrir
vanda landbúnaðarins og staðráðinn í að finna lausn á
honum enda þótt það komi hart niður á mörgum. Þegar
til lengdar lætur mun það þó verða þjóðinni til góða.
Húsnæðismálin hafa verið erfið fyrir þjóðina alla, en
meira hefur nú verið gert á þeim vettvangi en nokkru sinni
áður og með nýjum lögum sem tekið hafa gildi má ætla
að verulegur árangur hafi náðst.
Stjórn efnahagsmála hefur verið erfiðasta viðfangsefni
þessarar ríkisstjórnar. Á þeim málum hefur verið tekið af
meiri festu en um langt árabil. Enginn efast um að þar
hafi mikill árangur náðst. Hagvöxtur mun meiri en áætlað
hafði verið, sömuleiðs mun minni viðskiptahalli og
kaupmáttur launa aldrei verið meiri.
Framsóknarflokkurinn getur því óhræddur lagt spilin á
borðið fyrir þjóðina og kvíðir ekki útkomu kosninganna.
Alþýðuflokkurinn virðist vera á nokkurri uppleið og
líkur til að hann endurheimti eitthvað af fyrra fylgi og þá
aðallega frá Alþýðubandalagi og Bandalagi jafnaðar-
manna. Búast má við miklum hávaða frá Alþýðuflokknum
eftir að þing kemur saman til þess að ná athygli fjölmiðla
en sökum þess hve stefna hans er óljós er erfitt fyrir
kjósendur að átta sig á hvað flokkurinn raunverulega vill.
Athygli vekur hve staða Alþýðubandalagsins er veik.
Mikil óeining ríkir innan flokksins og hver höndin upp á
móti annarri. Það hefur áhrif á fylgi hans sem er lítið um
þessar mundir. Þá hefur líka komið í ljós að Alþýðubanda-
lagið höfðar ekki til ungs fólks sem fjölmennir að
kjörborðinu í næstu kosningum. Ætla má því að sigur
þeirra verði lítill hvenær svo sem kosið verður.
GARRI
Að ofnota hæara heilahvelið
í Staksieinum Morgunblaðsins í
fyrradaj> er fjallað uni ályktun
|)ings ungra jafnaðartnanna um
varnamiál. !>ar mun hafa verið
mörkuð sú stcfna að draga ætti úr
umsvifum varnarliðsins og vinna
að brottför þcss í áföngum.
Staksteinuhöfundur er sem
vænta má á móti þessu og fjallar
um það í nokkru ináli. Garri ætlar
ekki að blanda scr í deilur Morgun-
blaðsins og ungra jafnaðarinunna
uin vamarmál, en í niðurlagi grein-
ar sinnar segir Stakstcinahöfundur:
„Eftir sveitarstjómarkosning-
urnar í vor lýsti Svavar Gestsson,
fomiaður A íþýdubandaiansins,
yfír því, að fylgisaukning Alþýðu-
fíokksins í kosningunum væri i
raun stuðningur við Alþýðubanda-
lagið! Enginn ætti að vera i vafa
um það, að Svavar lítur úlyktun
SUJ-þings um utanríkis- og varn-
armúl sömu augum. Hann tclur að
i henni felist ósk um samstarf við
Alþýðuliandalagið. Hvaða flokkur
annar hefur það á stefnuskrú sinni,
að landið verði vurnarlaust'.’ Enn
cinn steinn hefur verið lagður í það
hrófatildur, sent vinstri menn
kenna við „félagshyggju", þcgar
svo ber undir. “
Félagshyggjan
Hvort Svavar Gestsson metur
stöðuna þannig að ungir jafnaðar-
menn séu á leið yfir í Alþyðu-
bandalagið verður einnig látið
liggja á milli hluta hér að sinni. Kn
ummæli Staksteinahöfundar iiin
félagshyggju þarfnast athugiinar.
Eins og hver heilvita maður veit
felst félagshyggja í því að menn
vilja reyna að leysa úrlausnarefni
þjóðarheildarinnar á grundvelli
samstarfs og samviniiu. Hiín er
andstæða frjálshyggjunnar, sem
Morgunblaðið boðar grimmt þessa
dagana, og felst í því að menn eigi
að kcppast við að troða skóinn
hvcr af öðrum og lítilmagnann í
svaöið. Sú hugmvnd Staksteina-
höfundar að félagshyggja hafi
eitthvað mcð vamarmál að gera er
því þaö sem á umbúðalausri ís-
lcnsku lieitir hrein og klár della.
Hægra ogvinstra
heilahvelið
í sama Morgunblaði birtist hins
vegar athyglisverö frétt. l'ar var
frá því skýrt aö læknar við tauga-
deild háskólasjúkrahússins í Aac-
hen í Vestur-Þýskalandi hefðu með
rannsóknum ieitt það i ijós að
kímnigáfu fólks einskorðist við
hægra heiluhvelið. Jafnfraint því
fundu þeir út að vinstra heilahvelið
annaðist einvörðungu liina röklegu
starfseini heilans.
Þessi niðurstaða er merkileg að
því er varðar réttan skilning á því
sem Staksteinahöfundur heldur
fram í grein sinni. Hann virðist
liafa einhvcrn snefil af einhvers
konar kímnigáfu, sein hirtist í því
að honum finnst það fyndið að
kalla uppsiign vurnarsamningsins
félagshyggju.
Aftur á móti virðist liunn skorta
sitthvað af því sem Morgunhlaöiö
nefnir „hina röklcgu starfsemi heil-
ans.“ Eftir tiílkun Morgunblaðsins
sýnist hann nota hægra heilahvclið
eitt saman en spara þuð vinstra.
Útkoman verður algjör óskapnað-
ur í inálflutningi lians. Svona getur
farið fyrir núinnum ef þeir venja
sig á að hugsa of mikiö til hægri.
Garri.
VÍTTOG BREITT
Saltaðar síldarviðræður
Nú eru vonir manna um að af
síldarsöltun í einhverju magni
verði í haust óðum að þverra og
kemur þar til þrákelkni Sovét-
manna við að standa við gerða
viðskiptasamninga, að því er sagt
er í flestum hcrbúðum. Allt er í
óvissu um það hvort eða hvenær af
sölusamningum verði milli Síldar-
útvegsnefndar og Protintorg, sov-
éska fyrirtækisins sem séð hefur
um innkaupin á saltsíld í Sovétríkj-
unum. í samningsdrögum þeim
sem Protintorg sendi Síldarútvegs-
nefnd í byrjun vikunnar er boðið
verð sem vitað er að íslendingar
muni ekki sætta sig við og sett upp
fáránleg skilyrði eins og að síldin
komi í svokölluðum hálftunnum,
scm hvergi er hægt að fá í heimin-
um. Ljóst er að verði eftirleikurinn
í einhverju samræmi við það sem á
undan er gengið er útlitið vægast
sagt svart um viðunandi niðurstöðu
þegar formlegir samningafundir
Protintorg og Síldarútvegsnefnd-
ar loksins hefjast.
En menn hljóta að spyrja sig
hvers vegna samningar við Sovét-
menn ganga óvenju illa í ár. Aug-
Ijósar ástæður eru hreinlega efna-
hagslegar, þ.e., að þeint býðst
ódýrari síld t.d. frá Noregi og
Kanada, og Kanadamenn hafa
jafnvel sagt að þeir ntuni afturkalla
ákveðnar veiðihcimildir Sovét-
manna í kanadískri fiskveiðilög-
sögu ef þeir keyptu ekki af þcim
síld. Hins vegar er óvíst hvort
skýringar af þessu tagi duga til að
skýra stefnubreytingu Sovétmanna
í þessum efnum. Þó efnahagsleg
rök vegi ef til vill þyngra á metun-
um nú en oft áður fyrir Sovétmenn
að losna út úr þessum síldarsamn-
ingum, má minna á að í fyrra
greiddu þeir verð fyrir saltsíld, sem
var mun hærra en það verð sem
þeir hefðu þurft að borga fyrir síld
annars staðar frá.
í frétt í Tímanum í gær var talað
við Hermann Hansson kaupfélags-
stjóra á Höfn í Hornafirði og
formann í Félagi síldarsaltenda á
Norður- og Austurlandi. Hermann
sagði þar að orsökina fyrir stefnu-
breytingu Sovétmanna mætti ef til
vill rekja að hluta til íslendinga
sjálfra. í fréttinni er haft eftir
Hermanni. „Það virðist vera íþess-
um viðskiptum yfir höfuð mun
harðari stefna en verið hefur af
þeirra hálfu, og ég veit vitanlega
ekki hvaða endi það kann að hafa.
Það má ef til vill íhuga það að
kannski höfum við Islendingar
boðið upp í þcnnan dans sjálfir
með því að menn hafa sagt það
hátt og í hljóði að þessi viðskipti
mættu vel missa sín.“
Það sem Hermann er með þess-
um orðum að vísa til eru m.a.
yfirlýsingar þingmanna og áhrifa-
manna í sjávarútvegi og viðskipta-
iífi á íslandi, um að viðskiptin við
Sovétmenn, einkum og sér í lagi
olíuviðskiptin, séu íslendingum
óhagstæð og síldarsölur réttlæti
ekki að þeim sé haldið áfram.
í lokuðu samfélagi Sovétríkj-
anna eru slíkar gagnrýnisraddir
teknar bókstaflega og þær spilla
fyrir viðskiptavilja þeirra, sérstak-
lega ef efnahagslegur ávinningur
þeirra er ekki áberandi. Að þvf
leyti er næsta víst að hluta skýring-
arinnar á því hversu treglega hefur
gengið í síldarviðræðum er að leita
í klúðri okkar sjálfra.
Hins vegar er ljóst að eins og
málum er komið í dag geta Islend-
ingar ekki sætt sig við undanbrögð
Sovétmanna og ef þeir breyta ekki
aftur um stefnu hlýtur það að
koma til greina að endurskoða
viðskiptatengsl landanna í víðara
samhengi. Þrátt fyrir augljósa
ávinninga af viðskiptasamningum
til lengri tíma við Sovétmenn hvort
sem það er á sviði olíukaupa eða
fisksölu, eru ytri aðstæður allar
óhagstæðar Sovétmönnum en
hagstæðar íslendingum þessa
stundina, með lágu olíuverði og
mikilli eftirspurn eftir sjávarafurð-
um hvarsem er í heiminum. -BG