Tíminn - 12.09.1986, Side 12

Tíminn - 12.09.1986, Side 12
12 Tíminn Föstudagur 12. september 1986 Endurskoðun laga nr. 109/1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit Vakin er athygli á því að hafin er á vegum stjórnskipaðrar nefndar endurskoðun laga nr. 190/1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Þeir sem kynnu að vilja koma á framfæri skriflegum athugasemdum eða breytingartillögum sendi þær formanni nefndarinnar Ingimari Sigurðssyni, lög- fræðingi, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 15. október n.k., merkt: Endurskoðunarnefnd laga nr. 109/1984, um holl- ustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 10. september 1986. Laus staða Staða yfirfangavarðar við Vinnuhælið á Litla- Hrauni er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinu, fyrir 10. október nk. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 3. september 1986. Starf fjósameistara Starf fjósameistara við tilraunabúið Stóra-Ármóti er laust til umsóknar. Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist til Egils Jónassonar Stóra-Ármóti Hraungerðishreppi fyrir 1. nóvember 1986. Æskilegt að umsækjendur hafi búfræðimenntun. Upplýsingar um starfið veittar í síma 99-1058. Tilraunabúið Stóra-Ármóti Vetrarmaður Vetrarmaður óskast á kúabú í Borgarfirði. Upplýs- ingar í síma 93-5496 eða 93-5401. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð, vinsemd og virðingu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa Jóns H. Oddssonar Þórunnarstræti 106 Akureyri Sigurveig Árnadóttir Árni Jónsson Ólína Steindórsdóttir Sigríður Jónsdóttir Magnús Stefánsson og barnabörn □ Auglýsingadeild hannar auslýsinguna fyrir þig Okeypis þjónusta Evgení Barbukho, yfirmaður APN-fréttastofunnar á íslandi: Um framlengingu sovéska bannsins og afstöðu Bandaríkjanna Þann 8. september sl. var skýrt frá svörum Mikhails Gorbachjovs viö spurningum tékkneska dagblaðsins ,,Rude Pravo“ í sovéska sjónvarpinu. Þar fjallaði sovéski leiðtoginn m.a. um þá stöðu sem afvopnunarviðræður Sovétríkjanna og Bandaríkjanna eru í, sýndi fram á ástæðurnar fyrir því að bandarískir ráðamenn hafna því að gerast aðilar að sovéska banninu við kjarnorkusprengingum, se/n sovéskir aðilar framlengdu einhliða fram til 1. janúar 1987. Nú líður að fundi Eduards Shevardnadze og George Shultz og er því forvitnilegt að kynnast röksemdafærslum sovéska leiðtogans. Mikhail Gorhachjov beindi at- hyglinni fyrst og fremst að þeirri staðreynd, að einhliða framlenging sovéska tilraunabannsins til 1. janú- ar 1987 hefði hlotið víðtækan stuðn- ing um heim allan. Hér kæmu til eftirfarandi sjónarmið og aðstæður: - aldrei áður hcfur ríkt svo almenn viðurkenning á þcirri staðreynd að ekki er hægt að heyja kjarnorku- styrjöld og ekki getur verið um sigurvegara að ræða í slíkri styrjöld, - harkaleg fyrirbæri í hernaðarstefnu Bandaríkjanna hafa opnað augu margra og enginn getur lengur leynt kvíða þess efnis, að hörmungarnar geti í raun átt sér stað. Þögn á kjarnorku- vettvanginum í Genf í fjórða skipti hafa Sovétríkin lýst einhliða yfir stöðvun kjarnorku- sprenginga. Ár hefur liðið án spreng- inga - það er pólitísk og hernaðarleg staðreynd. Þessa stefnu væri hægt að styrkja með samkomulagi um gagn- kvæmt bann við kjarnorkuvopnatil- raunum. M. Gorbachjov taldi með réttu að tilraunir til að stilla upp spurning- unni um að hætta kjarnorkuspreng- ingum gegn spurningunni um niður- skurð kjarnorkuvopna væru óheið- aricgar. Frá því að Genfarfundurinn var haldinn, hefur ekki þokast um þumlung í átt til samkomulags um niðurskurð vígbúnaðar, þrátt fyrir allar tilraunir Sovétríkjanna. Ef báðir aðilar mundu hætta kjarnorkusprengingum, mundi slíkt stuðla verulega að samkomulagi þar að lútandi. Væri tílraunum hætt mundi vígbúnaðarkapphlaupið stöðvast á hættulegasta sviðinu - hvað varðar smíði nýrra tegunda kjarnorkuvopna og fullkomnun þeirra. Þá væri aðeins eftir að taka fyrir þá hlið vígbúnaðarkapphlaups- ins, sem lýtur að magninu og það er auðveldara að fást við hana. Bandaríkin: Þörf á til- raunum til að ganga úr skugga um að vopnin séu áreiðanleg... Hvernig á að taka á þessum rökum Bandaríkjamanna? Mikhail Gorbachjov: Löng reynsla hcfur ieitt í Ijós, að það er hægt að vera viss um að kjarnorkuvopnin eru í lagi án þess að framkvæma sprengingar og að nægir að yfirfara þá hluta sprengjanna og kjarnaodd- anna, sem eru kjarnorkulausir. Frá þvt' 1974 hafa Bandaríkin og Sovét- ríkin ekki sprengt sprengjur, sem eru yfir 150 kílótonn samkvæmt samningi þar að lútandi. Sprengjur, sem fara yfir þessi mörk eru um 70% af kjarnorkusprengjum Bandaríkj- anna og hlutfall þeirra í vopnabúrum okkar er ekki minna. Þetta þýðir að við trúum og þeir trúa á að þessi vopn séu í lagi án prófana. Meginmarkmið tilrauna með kjarnorkuvopn, sem Bandaríkin framkvæma, er að mati Gorbachjovs að smíða nýjar gerðir vígbúnaðar, sem geta lamað skotmörk á jörðinni og í geimnum. Við þessar aðstæður hljómar sú staðhæfing að bann við tilraunum hafi ckkert að segja fyrir lausn þess máls er lýtur að kjarn- orkuafvopnun, ekki trúverðuglega. „Gjaldþrota kenning“ Þegar sovéski leiðtoginn fjallaði um staðhæfingar þess efnis að ómögulegt væri að hafa eftirlit með banni við kjarnorkuvopnatilraun- um, sagði hann slíkar staðhæfingar „gjaldþrota", þarscm vísindin hefðu sannað að hægt væri að viðhafa strangt eftirlit, en Sovétríkin hafa lýst sig fylgjandi ströngu eftirliti. sem byggist á vísindalegum grund- velli, þ.m.t. eftirliti á staðnum. Gorbachjov um horfur á nýjum fundi æðstu manna Sovétríkjanna og Bandaríkjanna Sovétríkin eru fylgjandi því að haldinn verði fundur æðstu manna ríkjanna tveggja, fundi, sem væri verulegt skref fram á við hvað varðar lausn þó ekki væri nema eins eða tveggja brýnustu vandamála er snerta aiþjóðaöryggi. Eftir Genfarfundinn gerðu Sov- étríkin ýmislegt til að samræma afstöðu ríkjanna hvað varðar enda- lok vígbúnaðarkapphlaupsins. Sov- étríkin þekkja ekki afstöðuna „allt eða ekkert". En það er til einskis að halda fund fyrir „ekkert". Samskipt- in eru verðmæt vegna þess árangurs, sem þau gefa. í Sovétríkjunum væntir fólk þess að fyrirhugaður fundur E. Shevar- dnadze og G. Shultz muni varpa Ijósi á hvort möguleikar eru á frekari þróun samskipta Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Ef gengið er út frá þeirri skoðun að ekki sé hægt að fallast á frystingu, ef spurningin um meðaldrægar eldf- laugar í Evropu er komin í strand. ef á að fullkomna strategísk vopn o.s.frv. hvað er þá eftir til að semja um? Fundur æðstu manna kæmi varla að gagni í andrúmslofti hita- sóttarkennds vígbúnaðarkapp- hlaups. þegar spennan eykst og þeg- ar hætt er við gildandi samninga. En ekkert væri auðveldara en að nota fundinn til að afvegaleiða fólk. til að svæfa almenning með sögum um að allt sé í lagi meðan haldið er áfram að reka hættulega stefnu. Og í raun er þetta gert á meðan látið er líta út sem undirbúningur fyrir fundinn sé í fullum gangi. Bjartsýni er mögnuð upp. Látið er líta svo út sem allt sé í lagi fyrir fundinn og með því er e.t.v. verið að reyna að kenna Sovétríkjunum um árangurinn af eyðileggingarstefnu Bandaríkjanna. Sama markmiðiðer líka notað á annan hátt. Þ.e. að látið er í veðri vaka að Sovétríkin hafi komist að þeirri niðurstöðu, að þau komist ekki neitt með ríkisstjórn Bandaríkjanna. Reykjavík 9. september 1986 Evgení Barbukho, yfirniaður APN- fréttastofunnar á íslandi. FÉLAG MltOSSABÆNDA BÆNDAHÖLLINNI HAGATOHGI 107 REYKJAVlK ISLAND Félag hrossabænda auglýsir eftir móttöku slátur- hrossa sem flutt veröa út til slátrunar í byrjun október. Greitt verður grundvallarverð innan 2 mánaða. Skráning fer fram hjá markaðsnefnd, formönnum deilda, kaupfélögum og búvörudeild SÍS í síma 91-28200. Markaðsnefnd F.H.B. Verkefnisstjóri Marska h.f. Skagaströnd, óskar að ráða verkefnis- stjóra í 4-6 mánuði. Starfið snertir framleiðslu, umbúðir, vélvæðingu og frystingu og fleira. Upplýsingar veita Heimir í síma 95-4789, Sveinn 95-4690 og Lárus 95- 47474. Marska h.f.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.