Tíminn - 18.09.1986, Page 1
ISTUTTU MALI
■■■
IÐNTÆKNISTOFNUN hefur
ákveðið að efna til hópferðar, í samvinnu
viö Arnarflug, á matvælasýningu sem
haldin verður í París þann 24. október.
Um 4000 fyrirtæki frá 70 löndum sýna
framleiðslu sína á sýningunni. Hvort ferð-
in verður farin, ræðst af því hvort nægileg
þátttaka fæst.
SAMRÆMD gjaldskrá fyrir aðstoð
við skip á hafi úti hefur verið undirrituð.
Nú lúta bæði varðskip og fiskiskip þessari ,
sömu ajaldskrá. Samkomulagið sem
undirritaö var af Landhelgisgæslunni, í
tryggingarfélögum, LÍÚ, Farmanna- og
fiskimannasambandinu og Sjómanna-
sambandi íslands, gildir í eitt ár.
SMÁRÆKJA í stórum stíl hefur
fundist í afla rækjubáta norðaustur af
Langanesi. Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gripíð til þess ráðs að loka svæðinu frá og
með 19. september, fram til 31. október, |
fyrir rækjuveiðum. Svæðið markast af
línum, sem dregnar eru á milli eftirgreind- |
ra punkta.
1.66°49’10 N-14o28’50 V.
2. 67°19’30 N - 14°27’50 V.
3. 66°59’40 N - 12°56’40 V.
4. 66°50'20 N - 13°05’10 V.
KENNEDYAR eru enn á kreiki. jf
Jósep Patrekur Kennedy annar, elsti
sonur Roberts heitins Kennedy, sigraði
örugglega í forkosningum demókrata í
Massachusetts í fyrrinótt og allt bendir
þvi til að hann nái sæti á þingi í kosning-
unum í nóvember næstkomandi í fulltrú- |
adeild bandaríska þingsins þar sem dem- ;
ókratar hafa ávallt hafttöglin og hagldirnar;
í þessu ríki Kennedyanna.
LÖGREGLAN á Filippseyjum
handtók í vikunni fjóra menn er höfðu í
fórum sínum höfuð af manni. Sá var
drepinn fyrir að fremja Voodoo galdra að
filippseyskum hætti. Einn mannanna fjög-
urra viðurkenndi að hafa hlutað manninn
í sundur oa sagði hann ástæðuna þá að
„galdramaðurinn” hefði valdið dauða eins
ættingja síns með því að hafa uppi
voodooseiðinn „Barang”.
200 EINKARITARAR frá 15
þjóðlöndum sækja tólftu alþjóðlegu ráð-
stefnu Evrópusamtaka einkaritara, sem ;
haldin verður í Reykjavík í fyrsta sinni
dagana 18.-20. september. Um fjörutíu
íslenskir einkaritarar sækja ráðstefnuna,
en íslendingar hafa verið aðilar að sam-
tökunum frá 1983.
RJÚPNASTOFNINN verður
hámarki í ár, ef marka má niðurstöður
fuglafræðinga. Sveiflur verða í stofninum ;
á tíu ára fresti, og er nú komið að;
toppnum á tíu ára sveiflunni. Það er því j
viobúið að veiðimenn hafi erindi sem
erfiði, og í kjölfarið ætti að fylgja að
jólarjúpan verði ódýrari en ella.
ALÞJÓÐLEG ferðakaupstefna
verður haldin i Laugardalshöll, á morgun
og sunnudag. Það er Ferðamálanefndin
Vest-Norden sem efnir til kaupstefnunnar,
en þar munu 75 aðilar kynna ferðamögu-
leika í Færeyjum, Grænlandi og íslandi á
næsta ári, fyrir fulltrúum ferðaskrifstofa í
Evrópu og Ameríku. Búist er við um 80
ferðakaupendum.
KRUMMI
telur að tími sé
kominn til að gefa
þessi kvótalög út á
plötu og vídeó.
Halldór Ásgrímsson:
Vill binda kvótakerfið
í lögum f ram til 1990
- samkomulag um óbreytt lög til ársloka 1987
Endurskoðun á lögum um
stjórnun fiskveiða árin 1986 og
1987 er nú lokið og hafa sjávarút-
vegsráðuneytið, hagsmunaaðilar í
sjávarútvegi, og sjávarútvegs-
nefndir Alþingis, orðið ásátt um að
lögin muni standa óbreytt út gild-
istíma sinn, eða til áramóta 1987/
1988. Þetta var niðurstaða sameig-
inlegs fundar ofangreindra aðila í
gær.
f frétt frá sjávarútvegsráðu-
neytinu kemur hins var fram að
Halldór Ásgrímsson telur reynsl-
una af núverandi fiskveiðistjórnun
það góða að ástæða sé til að
framlengja meginatriði lágaákvæð-
anna um þrjú ár í það minnsta, eða
allt til ársloka 1990.
Halldór var í gær spurður hvort
þær hugmyndir fiskvinnslunnar um
að hún fengi einhvern yfirráðarétt
yfir kvóta myndu rúmast innan
þess ramma scm hann kallaði
„meginatriði núverandi fiskveiði-
stjórnunar". „Ég vil ekkert um það
segja að svo komnu máli enda
tíminn nægur, en aðalatriðið er að
festa þarf fiskveiðistjórnunina í
sessi með ákveðnum hætti þannig
að höfð sé stjórn á flotanum miðað
við afrakstur fiskstofnanna. Ég tel
að ekki hafi komið fram ncinar
tillögur ennþá sem geti leyst þctta
kerfi í meginatriðum af hólmi.
Hins vegar þarf að gera á því
ákveðnar lagfæringar í ljósi reynsl-
unnar eins og hefur verið gert,“
sagði sjávarútvegsráðherra.
„Ég tel mikilvægt að hagsmuna-
samtök og aðrir fjalli um það í tíma
með hvaða hætti fiskveiðistjórnun-
in verði í framtíðinni og að um það
sé vitað nokkur ár fram í tímann.
En það verður að sjálfsögðu verk-
efni Alþingis og næstu ríkisstjórnar
að taka endanlega ákvörðun um
þetta," sagði Halldór.
Aðspurður hvort þessi yfirlýsing
hans nú væri hugsuð sem innlegg í
kosningabaráttu fyrir komandi
þingkosningar sagði Halldór, að
vitanlega væri á ferðinni flokks-
pólitískt mál þar sem Framsóknar-
flokkurinn liafi að mestu staðið
óskiptur að baki þessari fiskveiði-
stjórnun þó ágreiningur hafi verið
um hana í öðrum flokkum.
Hann sagöi að þessi yfirlýsing
væri þó ekki, af hans hálfu. tilraun
til að gera kvótakerfið að kosninga-
máli. „Hins vegar hef ég verið
vanur því síðan ég kom að þessum
málum að setja fram mínar
skoðanir með eins ljósum hætti og
mér er unnt, í þeirri von að það
geti skapað eðlilegan umræðu-
grundvöll, frekar en að bíða og sjá
hvað aðrir segja. Ég hcld að það sé
cðlilegur vinnumáti," sagði Hall-
dór ennfremur.
Varðandi stuðning við stefnu
ráðherrans á nýju þingi á næsta ári
sagði hann að slíkt ylti á því
hvernig það þing yrði samansett.
„Hins vegar sýnist mér, að formað-
ur Alþýðuflokksins ætli sér aö
stjórna flestum ráðuneytum eftir
kosningar og ég á ekki von á því,
ef svo verður, að það verði viskuleg
stjórnun miðað viö þær ræður sem
hann helur haldið. En það má vcra
að hann breyti um skoðun við það
að koma í nýtt kjördæmi," sagði
Halldór að lokum.
- BG
Tímamynd Sverrir
r /. l9
\ i /V'iB
íslenska óperan
í álverinu
fslenska óperan cfndi til kynn-
ingar í matsal álversins í Straums-
vík á því verki sem hún nú sýnir
á fjölum Gamia bíós, Farand-
söngvaranum eftir Verdi. Ein-
söngvarar og kór óperunnar
sungu nokkra þekkta hluta úr
verkinu. „Við höfum áður farið á
vinnustaði til að kynna óperuna
og þau vcrk sem við höfum á
boðstólum," sagði Ólöf Kolbrún
Harðardóttir söngkona í samtali
við Tímann við þetta tækifæri.
„Óperan er mjög fjarlæg mörgunt
og það er von okkar að með
þessu takist að efla áhugann. Það
.gaf mjög góða raun þegar við
sungum hérna í álverinu í fyrra.
Þá komu til að sjá sýningar okkar
um 100 manns héðan.“
Auk Farandsöngvarans er önn-
ur ópera Verdis, Aida, á verk-
efnaskrá íslensku óperunnar.
Sýningum á Farandsöngvaranum
er þó hvergi nærri lokið og verður
hann sýndur á Blönduósi á sunnu-
dag.
Sjá frétt á blaðsíðu 2.
Maöur handtekinn vegna dauðsfalls fatlaðrar konu:
Grunadur um manndráp
- Hinn handtekni hefur viðurkennt að hafa verið í íbúð hinnar látnu um svipað leyti
og talið er að hún hafi látist.
Þrítugur karlmaður hefur verið
handtekinn, vegna gruns um að
hann hafi verið valdur að dauða
31 árs gamallar fatlaðrar konu.
Konan fannst látin f íbúð sinni í
Hátúni á sunnudag og líklega hefur
hún verið látin í rúmlega þrjátíu
klukkutíma áður en ættingjar
hennar komu að henni á sunnudag.
Áverkar reyndust vera á höfði
konunnar og leiddi krufning í Ijós
að þeir áverkar urðu henni að
bana.
Maðurinn sem handtekinn var í
gær hefur við yfirheyrslur viður-
kennt að hafa verið staddur í íbúð
konunnar aðfaranótt laugardags,
nokkru áður en talið er að hún hafi
látist. Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur lagt fram kröfu um gæslu-
varðhald í allt að sextíu daga yfir
manninum og að hann verði jafn-
framt látinn sæta geðrannsókn.
Helgi Daníelsson yfirlögreglu-
þjónn hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins sagði að málið væri skammt
á veg komið, og vildi hann verjast
frekari fregna af málinu. Hann
benti hinsvegar á að rannsókn
hefði hafist um leið og tilkynnt
hefði verið um dauðsfallið til lög-
reglunnar á sunnudag.
Afstaða til kröfu rannsóknarlög-
reglunnar um gæsluvarðhald var
frestað í gærkvöldi fram til dagsins
í dag.
Merki urn einhverskonar átök
var að finna þegar rannsóknarlög-
regla framkvæmdi vettvangsrann-
sókn í íbúðinni. Þegar hefur verið
upplýst að hinn handtekni var í sam-
kvæmi í húsinu þar sem hin látna
kona bjó. Ekki er enn vitað hvað
vakti fyrir manninum, en Ijóst er að
hann braust ekki inn í íbúðina.
- ES