Tíminn - 18.09.1986, Side 5
Fimmtudagur 18. september 1986
Tíminn 5
Kólnandi sambúð
- Sovétmenn þurfa að fækka í sendiliði sínu fyrir 1. október-
Tilkynning Bandaríkjastjórnar fylgir í kjölfar Daniloffsmálsins
VVashington - Reuter
Bandaríkjastjórn skipaði í gær
svo fyrir að 25 sovéskir starfsmenn
sendinefndar Sovétmanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum skyldu verða á
brott frá Bandaríkjunum fyrir 1.
október næstkomandi. Stjórnvöld
viðurkenndu þó ekki að ákvörðunin
hefði verið tekin í sambandi við
handtöku bandaríska blaðamanns-
ins Nicholas Daniloff í Moskvu.
Bernard Kalb talsmaður utanrík-
isráðuneytisins í Washington sagði
skipunina fylgja í kjölfar yfirlýsingar
Japan:
Refsiaðgerðir
í undirbúningi
Reaganstjórnarinnar þann 7. mars |
síðastliðinn þar sem kveðið var á um
að Sovétstjórnin þyrfti að fækka í
sendiliði sínu hjá Sameinuðu þjóð-
unum þar sem það væri of fjölmennt
og margt benti til að sumir starfs-
mannanna væru viðriðnir njósnir.
Kalb var spurður hvort hér væri
um fyrstu hefndaraðgerðina að ræða
af hálfu Bandaríkjastjórnar vegna|
handtöku Daniloffs og ásökum
stjórnarinnar í Moskvu að hann væri|
njósnari. Kalb neitaði því í fyrstu en
sagði síðar að fréttamennirnir yrðu
sjálfir að ráða í það mál.
Embættismenn höfðu áður sagt
að skipun utanríkisráðuneytisins
ætti að sýna vanþóknun Bandaríkja-
stjórnar á handtöku Daniloffs sem
tekinn var fastur í Moskvu aðeins
viku eftir að Gennady Zakharov,
sovéskur starfsmaður SÞ en þó ekki
meðlimur sendinefndar Sovétmanna,
Handtaka bandaríska blaðamanns-
ins Nicholas Daniioffs hefur svo
sannarlega sett strik í reikninginn í
sambúð stórveldanna.
var tekinn höndum í Bandaríkjun-
um grunaður um njósnir.
Tokyo-Reuter
Sameinuöu þjóðirnar:
Kólumbus út
- Leifur líka - Nú
Sameinuðu þjóðirnar- Reuter
Kristófer Kólumbus hefur verið
til umræðu á þingi Sameinuðu
þjóðanna síðastliðin fjögur ár en
nú hefur honum endanlega verið
sparkað burt af dagskrá aðalþings-
ins.
Það voru nokkur Ameríkuríki
sem komu Kólumbus inní dagskrá
SÞ þegar þau lögðu fram
tillögu þess ei'nis að tekið yrði upp
mál þar sem rökrætt yrði hver fundið
hefði Ameríku. Sú tillaga var
samþykkt.
Á síðustu tíu árum hefur málið
árlega verið tekið upp en engin
samþykkt gerð þar scm uppi eru
skiptar skoðanir um hvcr hafi í
raun fundið Ameríku. Það er
veröur aö spara
nefnilega ekki bara Kólumbus sem
kentur til greina, að sjálfsögðu
kemur Leifur okkar Eiríksson inn
í myndina og það gerir einnig írski
dýrlingurinn Brendan svo og
nokkrir aðrir minni spámenn.
Umræðuefnið sjálft er ágætt en
þar sem SÞ eru eins og margar
aðrar alþjóðastofnanir undir þrýst-
ingi að draga saman seglin hefur
verið ákveðið að láta mál Kristó-
fers, Leifs og Brendans niður falla.
„Ameríka hefur verið fundin.
Engin umræða er nauðsynleg. Mál-
ið er látið niður falla", tilkynnti
Humayun Rasheed Choudhury
utanríkisráðherra Bangladesh og
hinn nýi lorseti aðalþingsins nú í
vikunni.
Stjórn Japans mun á næstunni
ákveða hvaða efnahagslegar refsiað-
gerðir verða teknar upp gegn Suður-
Afríku og verður farið mjög eftir
„pakka“ þeim sem Evrópubanda-
lagsríkin samþykktu nú í vikunni.
Þetta var haft eftir embættismanni í
japanska utanríkisráðuneytinu í
gær.
Naoto Amaki, stjórnandi annarr-
ar Afríkudeildar ráðuneytisins, neit-
aði að segja nánar til um hvenær og
hvernig yrði staðið að refsiaðgerðun-
unt gagnvart Suður-Afríkustjórn
vegna aðskilnaðarstefnu hennar.
Líklegt þykir þó að ákvörðunin um
þetta efni verði gerð opinber í næstu
viku.
Utanríkisráðherrar Evrópubanda-
lagsríkjanna samþykktu í fyrradag
takmarkaðar refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku. Þar er lagt bann við
nýjum fjárfestingum í Suður-Afríku
svo og innflutningi gullmyntar, járns
og stáls frá landinu. Hinsvegar náðu
ráðherrarnir ekki samkomulagi um
að banna innflutning á kolum, helstu
útflutningsvöru Suður-Afríku að
undanskildum gullmálmi.
„Heildarpakkinn er mikilvæg til-
vísun fyrir okkur," sagði Amaki í
samtali við fréttamann Reuters.
Japan er annar stærsti viðskipta-
aðili Suður-Afríku. Stjórnvöld í Jap-
an hafa þegar lagt bann við nýjum
fjárfestingum í Suður-Afríku og einn-
ig bannað sölu á tölvubúnaöi til
lögreglu og hers stjórnar hvíta
minnihlutans. Þá hefur stjórnin
einnig unnið gegn samskiptum á
menningar- og íþróttasviðinu.
Heimsins frægasta bjórhátíð; „Októberhátíðin“ í Múnchen í Vestur-Þýskalandi hefst þann 20. septembcr
næstkomandi þegar borgarstjórinn Georg Kronawitter tappar af fyrstu bjórtunnunni af mörgum sem íbúar
borgarinnar og gestir eiga eftir að tæma næstu sextán dagana.
Búist er við að hundruð þúsunda gesta frá öllum heimshornum láti sjá sig á hátíðinni og vonast skipuleggjendur
hennar til að veðurfar haldist gott svo gestirnir hafi ennþá meira gaman af því að sötra bjórinn úr hinum heföbundnu
bjórkrúsum „Bæjara“ sem sjást hér á myndinni.
Fundur í Stokkhólmi:
Nordurlöndin huga
að undanþágubeiðni
- Verður vegabréfsáritun til Frakklands nauösynleg fyrir Norður-
landabúa? - „Fylgjumst vel meö gangi mála,“ segir Þorsteinn
Geirsson ráðuneytisstjóri
í fréttaskeyti frá fréttamanni Reu-
ters í Stokkhólmi er barst í gær kom
fram að embættismenn frá Svíþjóð,
Finnlandi og Noregi myndu ræðast
við í Stokkhólmi í dag og er tilefnið
sú ákvörðun franskra stjórnvalda að
krefjast vegabréfsáritunar fyrir alla
útlendinga er búa utan Evrópu-
bandalagsríkjanna og Sviss. Rætt
verður um hugsanlegar sameiginleg-
ar aðgerðir gagnvart áritunarskyld-
unni.
Tíminn hafði í þessu tilefni sam-
band við Þorstein Geirsson ráðu-
neytisstjóra í Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu og sagði hann að íslend-
ingum hefði verið sent boð um
þennan fund er hefst í fyrramálið.
Ekki er þó víst að af íslenskri
þátttöku verði þar sem sendiráðs-
starfsmenn í Svfþjóð eru önnun
kafnir, þó er möguleiki á að fulltrúi
frá ráðuneytinu sem nú er í Noregi
bregði sér yfir iandamærin á fund
þennan.
Þorsteinn taldi það ekki skipta
sköpum hvort íslenskur embættis-
maður yrði á fundi þessum eður ei
en bjóst við að íslensk stjórnvöld
myndu fylgjast vel með gangi mála
og sameinast hinum Norðurlöndun-
um þremur í ákvörðunartöku í þessu
máli.
Stjórnvöld norrænu ríkjanna hafa
gagnrýnt ákvörðun frönsku stjórnar-
innar og líklegt þykir að löndin fari
fram á undanþágu frá vegabréfs-
skyldunni. Franska stjórnin setti
regluna um vegabréfsáritun á til að
vemda landið fyrir hryðjuverkamönn-
um og er ákvörðunin bein afleiðing
sprengjutilræðanna í París að
undanförnu.
Sten Andersson utanríkisráðherra
Svíþjóðar sagði í gær að ákvörðun
Frakklandsstjórnar hefði neikvæð
áhrif á samskipti ríkjanna og efaðist
um að áritunarskyldan gerði nokk-
uð gagn í baráttunni gegn hryðju-
verkamönnum.
coopecr
Síur í
flestar vélar
á góðu verði
WÍpM
ewMysmHF
Jámhálsi 2 Sími 83266 T10 Rvk.
Pósthólf 10180
París
springur
París - Rcutcr
Sprengja sprakk í verslun í mið-
hluta Parísarborgar í gær og
virðist ekkert lát ætla að verða á
öldu hryðjuverka sem nú gengur
yfir í París. í gærkvöldi höfðu fimm
manns látið lífið af völdunt sprcng-
ingarinnar og rúmlcga sextíu aðrir
slasast, sumir hverjir mjög alvar-
lega.
Sprcngingin varð í liinu fjölfarna
vcrslunarhverfi Montparnasse og
var hún sú fimmta í röð hryðju-
vcrka undanfarinna tíu daga. Alls
hal'a átta manns látið lífið í spreng-
ingum þessum.
Verslunin þar sem sprengingin
varð er vinsæl mcðái arabískra
innflytjcnda í París. Rúmlcga 160
manns hafa slasast í sprcngingum
þessum en það er hópur arabískra
skæruliða sem lýst hefur spreng-
ingunum á hendur sér.
Lekur
blokkin?
Er heddið
sprungið?
Viðgerðir á öllum
heddum og blokkum.
Eigum oft skiftihedd
í ýmsar gerðir véla
og bifreiða.
Sjóðum og plönum
pústgreinar.
Viðhald og viðgerðir
á Iðnaðarvélum
Vélsmiðja
Hauks B.
Guðjónssonar
Súðarvogi 34
Sími 84110