Tíminn - 19.09.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 19.09.1986, Blaðsíða 11
Tíminn 11 Föstudagur 19. september 1986 lllllllllllllllllllillllllll IÞRÓTTIR Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu: Gíf urlega sterkt sovéskt lið íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur annan landsleik sinn í Evrópu- keppni landsliða næstkomandi mið- vikudag. Leikið verður gegn sovéska landsliðinu á Laugardalsvelii. Sovéska liðið er mjög sterkt, jafnvel sterkara en franska liðið sem lék hér í síðustu viku. Það er skipað sömu leikmönnum og léku í Mexíkó í sumar og þóttu sýna þar afburða- góða knattspyrnu. Þeir leika mjög hratt, með fáum snertingum og eru gífurlega sprettharðir. í Mexíkó töpuðu Sovétmenn fyrir Belgum í 8 liða úrslitum, 4-3 eftir framlengingu en margir höfðu gert því skóna að Sovétmenn yrðu heims- meistarar. í riðlakeppninni íMexíkó kepptu þeir í C-riðli og sigruðu þar Ungverjar 6-0 í hreint stórkostlegum leik. Þá sigruðu þeir Kanadamenn 2-0 og gerðu loks jafntefli við Frakka 1-1. Það er ljóst að leikurinn verður mjög erfiður fyrir íslenska liðið, rússneski björninn er ekkert lamb að leika sér við. En eftir jafntefli íslenska liðsins gegn Frökkunt er þó aldrei að vita hvað gerist. Þó eru Sovétmenn líklega betur viðbúnir mótspyrnu en Frakkar voru því þjálfari þeirra sá leikinn gegn Frökkunum. íslenska liðiö sem leikur gegn Sovétmönnum: Torfason ekki með Forsala á landsleikinn Leikur íslands og Sovétríkjanna í Evrópukeppni landsliða, 3. riðli, hefst á Laugardalsvelli ntið- vikudaginn 24. september kl. 17.30. Forsala aðgöngumiða hefst í dag kl. 12 í Austurstræti og stendur til kl. 18. Þar verður einnig forsala á ntánudag kl. 12-18, á þriðjudag kl. 11-18 og á miðvikudag kl. 12-15. í Keflavík verður forsala í sport- verslun Óskars og á Akranesi í verluninni Óðni. Sala aðgöngu- miða við Laugardalsvöll hefst leikdaginn kl. 12. Evrópukeppnin U-21: Leikið fyrir norðan Annar leikur íslenska landsliðsins í knattspyrnu undir 21 árs í Evrópu- keppninni t'cr frani á Akureyri fimmtudaginn 25. september næst- komandi kl. 17.30. Leikiö verður gcgn Tékkum. Hópurinn sem Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari hefur valið fyrir leikinn er skipaður sömu leikmönnum og léku gegn Finnum fyrr í mánuðinum að því undan- skildu að Viðar Þorkelsson kemur í stað Mark Duffield úr Víði. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum, talan fyrir aftan nafn táknar U-21 landsleikjafjölda: Hermann Haraldsson, Næstved 1 Þorsteinn Gunnarsson Í.B.V. 0 Andri Marteinsson Víkingur 4 Ólafur Þórðarson Í.A. 6 Július Tryggvason Þór 3 Hlynur Birgisson Þór 1 Siguróli Kristjánsson Þór 3 Þorvaldur örlygsson K.A. 0 Ólafur Kristjánsson F.H. 0 Kristján Gíslason F.H. 1 Jón Þórir Jónsson U.B.K. 1 Guðmundur Guðmundsson U.B.K. 1 Loftur Ólafsson K.R. 7 eldri leikm. Gauti Laxdal Fram 1 Jón Sveinsson Fram 3 Viðar Þorkelsson Fram 0 eldri leikm. Sigfried Hcld landsliðsþjálfari hef- ur valið leikmenn til að leika gegn Sovétmönnum. Hópurinn er skipað- ur sömu mönnum og gegn Frökkum, besti knattspyrnumaður á íslandi, Guðmundur Torfason er enn ekki með og hópurinn er enn aðeins skipaður 15 mönnum. Held stendur enn fast á því að það sé nóg, þá hafi allir varamenn ákveð- ið hlutverk, hver og einn viti hvað bíður hans ef einhverjar breytingar verða gerðar á liðinu í leik, enginn sé „óþarfur" á bekknum. Það hefur mikið verið rætt og ritað um þá ákvörðun Held að hafa leikmennina aðeins 15 og ekki að ástæðulausu, það hlýtur alltaf að vera hagnaður af því að menn fái reynslu í landsleikjum, þó ekki sé nema með því að sitja á bekknum. Það má ekki gleyma því að því fylgja æfingar með landsliðinu og það hlýt- ur að auka styrk liðsins að hafa fleiri á æfingum. En nóg um það. Hópur- inn er skipaður eftirtöldum leik- mönnum, landsleikjafjöldi aftan við nöfn: Markverðir: Bjarni Sigurðsson, Brann 13 Stefán Jóhannsson, K.R. 2 Aðrir leikmenn: Ágúst Már Jónsson K.R. 6 Arnór Guðjohnsen Anderlecht 21 Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart 36 Atli Eðvaldsson Uerdingen 40 Guðmundur Þorbjörnsson Baden 37 Guðní Bergsson Valur 8 Gunnar Gíslason K.R. 23 Ólafur Þórðarson Í.A. 7 Ómar Torfason Luzern 22 Pétur Pétursson Í.A. 29 Ragnar Margeirsson Waterschei 21 Sigurður Jónsson Sheffield Wed. 8 Sævar Jónsson Brann 30 Sigi Held sagði á blaðamanna- fundi í gærkvöld að byrjunarliðið yrði skipað sömu leikmönnum og í leiknum gegn Frökkunum, svo fram- arlega sem allir gengju heilir til skógar. Það eru: Bjarni, Ágúst Már, Arnór, Ásgeir, Atli, Gunnar, Ómar, Pétur, Ragnar, Sigurður og Sævar. Sovéska liðið: SamaliðogáHM Sovéska liðið sem leikur á Laugar- dalsvelli verður valið úr hópi þeirra 20 leikmanna sem skráðir eru hér á eftir. Þetta er sami hópur og var valinn fyrir leiki Sovétmanna í Mexíkó. Meginuppistaðan f liðinu eru leikmenn Dinamo Kiev, alls 11 menn. Þekktastur þessara leik- manna er án efa aldursforsetinn Oleg Blokhin sem er 33ja ára gamall. Hann á að baki 103 landsleiki með sovéska landsliðinu. Sovéski hópurinn er skipaður eftirtöldum mönnum, talan fyrir aft- an nafnið táknar landsleikjafjölda: Markmenn: Rinat Dasaev, Spartak Moskva 64 Viktor Chanov, Dinamo Kiev 3 Aðrir leikmenn: Nikolai Laronov, Zenit Leningrad 3 Aleksandr Chivadze, Dinamo Tbilisi 45 Oleg Kuznecov, Dinamo Kiev 9 Anatolii Demianenko, Dinamo Kiev 49 Alekandr Bubnov, Spartak Moskva 33 Gennadij Morozov, Spartak Moskva 10 Vladimir Bessonov, Dinamo Kiev 59 Pavel Jakovenko, Dinamo Kiev 4 Ivan Jaremchuk, Dinamo Kiev 5 Vasilii Ratz, Dinamo Kiev 5 Vagiz Khidijatullin, Spartak Moskva 23 Sergei Aleinikov, Dinamo Minsk 27 Sergei Gozmanov, Dinamo Kiev 15 Aleksandr Zavarov, Dinamo Kiev 7 Igorj Belanov, Dinamo Kiev 6 Oleg Blokhin, Dinamo Kiev 103 Olek Protasov, Dnepr Dnepropetrovsk 20 Sergei Rodionov, Spartak Moskva 20 Oleg Blokhin Zico í uppskurð Brasilíski knattspyrnumaðurinn Zico hefur nú ákveðið að fara í uppskurð á hné eftir rannsókn sem hann fór í Bandaríkjunum í gær. Ekki mun verða ljóst fyrr en eftir uppskurðinn hvort hann geti haldið áfram knattspyrnuiðkun af fullum krafti, en eins og við sögðum frá í gær hefur hann átt við hnémeiðsli að stríða í rúmt ár og lítið getað leikið. Hann sagði fyrir rannsóknina að hann væri ekki tilbúinn í uppskurð nema ljóst væri að hann næði fullum bata, en nú hefur hann sem sagt ákveðið að láta slag standa. Guðmundur Torfason: besti knattspyrnumaður sem leikur á íslandi og markahæsti leikmaður í 1. deild en ekki í landsliðinu. Tímamynd-Píiur Reykjavíkurmótiö í handknattleik: Fer Atkinson til Aston Villa? Frá Guðmundi Fr. Jónssyni í London: Aston Villa hefur boðið Ron Atkinson framkvæmdastjóra Manchester United þriggja ára samning, en þeir hjá Aston Viiia eru framkvæmdastjóralausir síð- an um síðustu helgi. Atkinson á eftir 2 ár af samningi sínum hjá Manchester United en ekki þykir ólíklegt að hann segi af sér eða verði rekinn á næstu dögum haldi United áfram að tapa. UMSJÓN: Hiördis Árnadóttir BLAÐAMAÐUR KR efst í báðum flokkum Nú sígur á seinni hlutann á Fram-KR 21-25 Reykjavíkurmótinu íhandknattleik. Ármann-Víkingur 22-22 Mótið hófst 6. september og því ÍR-Fylkir Fram-Valur 32-17 22-27 lýkur eftir rúma viku, mánudaginn 29. september, þ.e. í meistaraflokk- Staðan í karlaflokki: um karla og kvenna en þá er eftir KR 4 4 0 0 102-64 8 keppni yngri flokkanna. Valur ÍR 4 4 3 2 1 0 0 2 96-83 7 91-73 4 Úrslit á mótinu til þessa hafa Fram 4 2 0 2 92-97 4 orðið sem hér segir: Víkingur 4 1 1 2 78-87 3 Karlaflokkur: Ármann 4 0 2 0 76-103 2 KR-ÍR 18-13 Fylkir 4 0 0 4 79-109 0 Ármann Valur 19-19 Ármann-ÍR 20-31 K vennaf lokkur: Víkingur-Valur 18-25 Fram-Víkingur 20-10 Fram-Víkingur 25-20 Valur-Ármann 14-18 KR-Fylkir 28-15 Þróttur-KR 11-19 Fram-Fylkir 24-23 Víkingur-Þróttur 26-12 KR-Ármann 31-15 Valur-Fram 19-16 Víkíngur-ÍR 18-15 Ármann-KR 16-21 Fylkir-Valur 24-25 Valur-KR 27-22 Staðan í kvennaílokki: KR Valur Fram Víkingur Ármann Þróttur 3 2 0 1 62-54 4 3 2 0 1 60-56 4 2 1 0 1 36-29 2 2 1 0 1 36-32 2 2 1 0 1 34-35 2 2 0 0 2 23-45 0 Næst verður leikið í Reykjavíkur- mótinu um helgina á laugardag kl. 14 og sunnudag kl. 18.45, þrír leikir í hvort skipti. Keppt verður í Selja- skóla. Fimmtudaginn 25. færist mótið hinsvegar í Laugardalshöll og verður keppt þar fimmtudag kl. 19, laugar- dag27. kl. 14ogmánudag29. kl. 19, þrír leikir í hvert skipti. Á pari - eða hvað? Fyrir skömmu fór fram í Kansas í Bandaríkjunum all sérstætt golfmót. Þar kepptu 7 pör, allt eineggja tvíburar. Að sjálfsögðu var skor hvers pars samanlagt látið gilda í keppninni því enginn treysti sér tii að sjá hvort réttur „helmingur“ af parinu sló alltaf réttan bolta og því hefði ekki verið hægt að telja saman stig í einstaklingskeppni af neinni nákvæmni!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.