Tíminn - 20.09.1986, Page 5
Laugardagur20.september1986 Tíminn 5
Jón Páll Sigmarsson og Hjalti „Úrsus“ Árnason gera garðinn frægan í Kanada:
SKJRUÐU MED YFIRBURDUM
Á ALÞJÓÐLEGU KRAFTAMÓTI
Erum við Islendingar sterkasta þjóð í heimi? Jón Páll með heimsmet
íslendingar eru stérkasta þjóð
heims. Þetta hefur lengi blundað í
vitund okkar, og Jón Páll Signtars-
son sterkasti maður heims hefur
heldur betur dregið þessa fullyrð-
ingu fram úr íslendingasögunum og
dustað af henni rykið. Einhverjum
kann sjálfsagt að finnast að fullmikið
sé sagt með því að titla íslendinga
sterkustu þjóð heims. Ekki lengur.
Jón Páll og kraftajötuninn Hjalti
„Úrsús" Árnason unnu titilinn fyrir
íslands hönd á móti sem fram fór í
Kanada fyrir rúmri viku.
Léttur sigur íslands
Hin furðu góðu eintök af fornum
víkingaættum þeir Hjalti og Jón Páll
rammi sigruðu auðveldlega í keppn-
inni. Fimm liðum var boðin þátttaka
í keppninni. Lið Bandaríkjamanna,
sem Jón Páll segir að séu alhliða
máttlausir. enda var liðið neðst í
keppninni þrátt fyrir að skarta ein-
hverjum mestu kraftlyftingamönn-
um heinis. Stóra-Bretland hafði ekki
erindi sem erfiði í keppninni. Var
Geoff Capes ekki með Bretum?
„Nei hann tekur ekki þátt í þess-
um mótum. Hann sér til þess að
hvert sinn þegar keppt er í þessum
greinum, þá er hann búinn að setja
upp eitthvert smámót heima hjá sér.
Ætli hann þori,“ segir Jón Páll.
Hjalti „Úrsus“ kunni vel við þessi
orð Jóns Páls og tekur undir þau.
Tvö lið mættu til leiks frá Kanada.
Annað frönsku mælandi og hitt
ensku mælandi. Hvort tveggja sterk
lið. Áður en fulltrúar Kanada voru
valdir voru haldin ein tíu úrtökumót
til þess ð velja hina hæfustu kepp-
endur úr.
Rocky smápeð
Rocky boxari er smápeð miðað
við þá karla sem þátt tóku í mótinu
vestra. Þó var vitnað til hans í
setningarathöfninni, sem var gífur-
lega rafmögnuð. Þegar keppendur
gengu inn í íþróttahöllina þar sem
keppnin fór fram var reykjarhula
eftir öllu gólfinu og drynjandi Rocky
lög ætluðu allt að-æra. En öskur
keppenda voru ekki síður ærandi
þegar lcið á aflraunirnar. Keppt var
í fjórum greinum. Steinakasti, þar
sem 25 kílóa ferköntuðum steini var
kastað úr kyrrstöðu. Okkar víking-
um gekk ágætlega í þessari grein.
Jón Páll rammi varð í öðru sæti með
7,57 metra. „Úrsusinn” varð fjórði
með 6,97. Sigurvegarinn varð Tom
Magee frá Kanada en hann kastaði
rétt rúma átta metra.
Önnur kcppnisgreinin var hné-
beygjulyfta. Ekki eins og sú sem
framkvæmd er í kraftlyftingum,
heldur þurftu menn að lyfta þyngd-
inni um þrjár tomrnur. „Úrsusinn"
varð í þriðja sæti með 900 kíló. en
tveir keppcndur lyftu 925 kílóum.
Jóni Páli gekk ekki sem skyldi í
þessari grein. cnda átti hann við
meiðsli að stríða í fæti. Hann lyfti
þó 650 kílóum og varð áttundi.
„Ég fór meiddur út, var tognaður í
hamstri vinstra megin. þannig að ég
gat ekkert í þessari grein.“ sagði Jón
Páll.
Hjalti átti heimsmetið í þessari
grein þar til á mótinu núna, að það
var bætt um 25 kíló. Heimsmet
Hjalta var 900 kíló.
Heimsmet Jóns Páls
Jón Páll varstjarna þriðju greinar.
Hann setti heimsmet í hjólböru-
akstri. Lyfti hjólbörum með 1,5
tonnum í og fór með þær rúma þrjá
metra. Skömmu áður hafði hann
íarið með 1.4 tonn fimm metra.
„Skríllinn trylltist og heimtaði
heimsmet. Til þess að tryggja það
endanlega ákvað ég að fara í þrjú
þúsund pund. Það tókst, enda var ég
búinn að lofa mótshaldaranum
þessu,“ sagði Jón Páll.
„Handleggirnir voru að
slitna af“
Það var ekki átakalaust sem
Hjalti „Úrsús“ heldur
á bikarnum sem vcittur
var fyrir besta sameig-
inlegan árangur á mút-
inu. Jón Páll fékk bikar
fyrir heimsmetið í hjól-
böruakstri. Báðir bik-
ararnir unnust til eign-
ar. Þcir f'élagar geta að
vonum brosað, eftir að
hafa sigrað andstæð-
inga sína mcð nokkrum
yfirburðum.
Tímumynd Pjctur
Jón Páll hefur ekki ver-
ið að ýkja þcgar liann
sagði að litlu hefði mátt
muna að handleggirnir
slitnuðu af. Eins og
myndin ber með sér er
hann marinn heil'tar-
lega. „Grcipin gaf sig
ekki en handleggirnir
voru nærri slitnaðir
af,“ sagði Jón Páll.
Þessi meiðsli fékk Jón
þegar hann var að setja
heimsmetið í hjólböru-
akstrinum, fór með citt
og hálft tonn.
Tímamynd Pjetur
heimsmetið varð að vcrulcika. Jón
Páll sagði í samtali við Tímann að
handleggirnir hefðu nærri slitnað af
sér. Mynd á síðunni sýnir hvernig
Jón er útlcikinn eftir átökin. „Greip-
in gaf sig ekki en það var engu líkara
en að handleggirnir væru að slitna
frá skrokknum,” sagði Jón.
Stingur í læri,
síðustu metrana
Fjórða og síðasta greinin sem
kcppt var í á mótinu var spretthlaup
með 200 punda poka á bakinu. Jón
Páll lenti í öðru sæti í þeirri grein.
Hann hljóp 200 metra mcð hundrað
kílóin á bakinu á 45 sekúndum og36
sekúndubrotum, eða sex hundraðs-
hlutum á eftir sigurvegaranum Tom
Magee. 1 þessu hlaupi réðust einnig
úrslitin. hveryrði stigahæsti einstak-
lingurinn á mótinu. „Á síöustu metr-
unum fann ég fyrir sting í læri og
varð að draga úr hraðanum. Eftir á
sá ég að þaö hafði kostaö mig
sigurinn sem cinstaklingur á mót-
inu,“ sagði Jón Páll.
í öðru sæti í fyrra
Þetta er annaö áriö sem þeir
félagar taka þátt í „Dcfi mark tcn“
mótinu. í fyrra urðu þeir í öðru sæti,
þremur stigum á el'tir sigurvegurun-
urn. Nú aftur á móti sigruðu þcir
með nokkrum yfirburðum. ísland
fékk alls 86,5 stig, lið Ouebec 69,5
stig, liö Stóra Brctlands mcö 67,5
stig, liö Kanada mcð 66,5 stig og
Bandaríkjamcnn ráku lestina meö
33 stig.
Þeir félagar Hjalti og Jón Páll
voru sammála um að eina þjóðin
sem hefði vantað væri Rússar.
Sjónvarpsréttur fyrir
50 cent
„Ég kcypti sjónvarpsréttinn fyrir
50 ecnt, af mótinu áður en ég kom
heim,“ stigði Jón Páll. Það ætti því
ekkert að vera til fyrirstöðu fyrir
íslcnska sjónvarpið, cða Stöö 2 aö
veröa sér úti um réttinn til sýninga á
mynd Irá mótinu, þar sem íslcnd-
ingarnirtvcir voru íaðalhlutvcrkum.
Athygli fjölmiöla úti var mjög
mikil. Sjónvarpsvélar hvert sem
keppendur sncru sérog allar aflraun-
ir myndaöar frá hinum ýmsu sjónar-
hornum. Þeirtvímenningarnorrænu
gengu undir nafninu „Madness-team“,
og sagði Hjalti „Úrsus það vera
arflcifð frá mótinu í fyrra þegar þeir
félagar tóku í fyrsta skipti þátt í
þcssum keppnisgrcinum og hrein-
lega gengu bcrscrksgang.
Sterkasti maður heims
„World strongcst man“ keppnin
verður haldin eftir tvo rnánuði. Þrátt
fyrir mciðsli er Jón Páll farinn aðæfa
fyrir titilvörnina. „Úrsusinn" mun
fara með sem sérlegur aðstoðarntað-
ur. „Ef Nonni mciðist þá gríp ég
kannski í cinhverjar greinar," sagði
Hjalti og glotti. -ES
Ekki eru allar
ferðir til fjár
en ferd í Fjörðinn borgar sig!
Clæsilegustu gólfteppin, flísarnar,
parketiö og hreinlætistækin
færöu hjá okkur á viðráöanlegum
greiöslukjörum.
Og þú ferð ánægður heim.
Útborgun 20%.
Eftirstöðvar í allt að 9 mánuði.