Tíminn - 20.09.1986, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.09.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn BDRGARMÁL Skipulagstillögur Framsóknarflokksins: Suður-Mjódd vísað til borgarskipulags Aöalkosningamál okk höndum, segir Alfreð „Aðalkosningamál okkar er nú í góðum höndum, þarsem sérfræðing- ar borgarskipulags eru,“ sagði Al- freð Porsteinsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins eftir að borg- arstjórn hafði samþykkt tillögu hans um að borgarskipulagi yrði falið að endurskoða fyrri nýtingu Suður- Mjóddar í því skyni að styrkja þjónustu- og félagsstarfsemi fyrir Breiðholtshverfi og nærliggjandi út- hverfi Reykjavíkur. ar í góöum Þorsteinsson Við afgreiðslu tillögunnar lét Davíð Oddsson bóka að borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins teldu for- sendur þær sem flutningsmaður gef- ur sér um þetta tiltekna svæði, vera á misskilningi byggðar. Þó féllust borgarfulltrúar Sjálfstæðisilokksins á, að tillögunni yrði vísað til skipu- lagsnelndar og borgarskipulags. Bjarni P. Magnússon lagði ríka áherslu á að Alþýðuflokkurinn styddi tillögu Framsóknarflokksins og hefði sá stuðningur komið fram í stefnuskrá Alþýðuflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. „Ég hef engar áhyggjur af bókun sjálfstæðismanna, heilbrigð skyn- semi segir að þarna hljóti að rísa þjónustukjarni í anda okkar til- lagna,“ sagði Alfreð. Sá kjarni myndi leysa fjöldamörg skipulags- vandamál, t.d. yrði Fossvogsbraut óþörf og hægt yrði að leggja niður Reykjavíkurflugvöll í framtíðinni. Þetta kemur allt í Ijós þegar aðal- skipulag liggur fyrir.“ HIVl Össur Skarphéðinsson: Útivistarsvæði í landi Ölfusvatns - með sérstaka aðstöðu fyrir hreyfihamlaða sérstök áhcrsla verði lögð á að Líkur cru á að Rcykvíkingar muni hafa not af liinu umdcilda og dýra Ölfusvatnslandi miklu fyrr cn ráð var fyrir gcrt. Á fundi borgar- stjórnar á fimmtudagskvöld, báru fulltrúar Alþýðubandalags fram til- lögu um að gcra Ölfusvatnslandið að nýtanlegu útivistarsvæði fyrir lok sumars 1987. í tillögunni er gert ráð fyrir að skapa aðstöðu til útivistar fyrir hrcyfihamlaða og vcrði það gert í samráði við samtök fatlaðra. Tillagan féll í góðan jarðveg og var einróma samþykkt að vísa henni til umhvcrfismálanefndar og stjórnar veitustofnana til um- fjöllunar. hm Össur Skarphéðinsson vill hjálpa Davíð Oddssyni til að nýta land Ölfusvatns sem allra fyrst. HAUSTFERÐ, HELGARFERÐ EÐA ÁRSHÁTÍÐ HÓTEL HYOLSVÖLLUR j Hlíðarvegi 7, 860 Hvolsvelli. Símar (99) 8187 eða (99) 8351. I Skipuleggjum skemmtiferðir og sam- komur fyrir litla og stóra hópa. Dæmi: Farið að morgni frá Reykja- vík í Þórsmörk, einn fegursta stað sunnanlands, komið á Hótel Hvols- völl um kvöldið og þið bregðið ykkur í nuddpott eða sauna. Framreiddur veislumatur og jafnvel slegið upp balli. Gisting, morgunmatur og síðan haldið til baka til Reykjavíkur. Þetta er bara eitt dæmi. Mögu- leikarnir eru margir, t.d. lengri gisting, lengri ferðir, útvegun farar- stjóra, veislustjóra eða skemmti- krafta. Allar veitingar. Leitið upplýsinga. FJ ÖLSK YLDUMÓT Því ekki að halda haustmót fjölskyld- unnar í Þórsmörk? Glæsileg veisla á Hótel Hvolsvelli um kvöldið, gisting og morgunmatur. Ferðir innifaldar. Skipuleggjum fyrir litla og stóra hópa. Laugardagur 20. september 1986 Tillögu Alfreðs Þorsteinssonar um nýtingu Suöur-Mjóddar var vísað til skipulagsnefndar og borgarskipulags. Kvennaathvarfiö: Fær 160 þúsund Tillaga minnihlutans var 500 þúsund Ákvörðun borgarráðs um 160 þús- und aukafjárveitingu til Kvennaat- hvarfsins var staðfest í borgarstjórn á fimrntudag. Tillaga minnihlutans um 500 þúsund króna fjárveitingu var felld. Árni Sigfússon borgarfulltrúi og formaður félagsmálaráðs sagði á fundinum, að hann teldi þær 785 þúsund krónur sem borgarsjóður veitti til Kvennaathvarfsins vera nægan stuðning í ár. Árni hafði mælt með 500 þúsund króna auka- fjárveitingu í félagsmálaráði. Sinna- skipti sín skýrði Árni með því að hann hefði fregnað að Kvennaat- hvarfið hafi verið notað til að bjarga húsnæðisvanda kvenna og þannig farið út fyrir starfsvið sitt. Hann teldi ekki fært að styðja þann hluta starfseminnar. Það kom fram í máli fulltrúa minnihlutaflokkanna að fjárþörf Kvennaathvarfsins er um 2 milljónir króna það sem eftir er þessa árs. Þó væri rekstur Kvennaathvarfsins eins hagkvæmur og nokkur kostur væri á. Þeir bentu á að ef Reykjavíkur- borg þyrfti að taka við rekstri at- hvarfsins yrði það borgarsjóði marg- falt kostnaðarsamara. hm Tillaga minnihlutans um skólanefndir: Þetta er nútíminn - í anda lýðræöis og valddreifingar, segir Sigrún Magnúsdóttir „Krafa dagsins í dag er aukið lýðræði og valddreifing. Foreldrar vilja fá að fylgjast með og hafa áhrif á skólagöngu barna sinna. Það er nauðsynlegt að auka tengsl heimila, skóla og sveitarstjórna. Tillaga okk- ar um að skipta Reykjavík niður í sex skólasvæði þar sem kosin verði sérstök skólanefnd, miðar að þessu. Eins og staðan er í dag eru fræðslu- yfirvöld fjarlæg daglegu starfi skól- anna, því umdæmið er það viðamik- ið,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í samtali við Tímann. „Tillaga þessi kemur í kjölfar tillögu sem við í minnihlutanum lögðum fram í borgarráði í sumar. Þar var lagt til að borgarráð kæmi á fót viðræðunefnd um skólamál, skip- aðri fulltrúum allra hagsmunaaðila, þ.e. stjórnmálamanna, kennara, for- eldra og nemenda. Meirihlutinn sá ástæðu til að fresta afgreiðslu þess máls og ekkert bendir til að hann ætli að taka á þvf máli. Það ætti þó ekki að vera erfitt, því tillagan er mjög í anda stefnu Ragnhildar Helgadóttur og Salóme Þorkelsdótt- ur í þessum málum, nema hvað þær vildu ganga heldur lengra.“ Tillögu minnihlutans var vísað til Skólamálaráðs til umfjöllunar. Þar sem verksvið og lögmæti Skólamála- ráðs hefur verið ntjög á reiki lét minnihlutinn bóka að hann teldi málinu vísað til Fræðsluráðs/Skóla- málaráðs. hm Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins vill auka tengsl heimila, skóla og stjórnmálamanna. Borgarstjóm: Gefur út bækling Borgarstjóm samþykkti á fimmtudag tillögu Kvennafram- boðsins um að láta gera aðgengi- legan upplýsingabækling um helstu verkefni borgarinnar, nefndir hennar og ráð, verksvið þeirra, fundarstað og fundartíma o.fl., sem gæti haft hagnýtt gildi fyrir borgarbúa. Þá skulu vera í bæklingnum greinargóðar upp- lýsingar um hvernig einstaklingar og íbúasamtök geti komið málum á framfæri við borgaryfirvöld. Bæklingnum verði dreift inn á öll heimili borgarinnar. Tillagan var samhljóða sam- þykkt og borgarfulltrúar sam- mála um ágæti þessa framtaks. hm

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.