Tíminn - 20.09.1986, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.09.1986, Blaðsíða 13
Tíminn 13 Laugardagur 20. september 1986 VIÐSKIPTALÍFIÐ ílllllll SPÆNSKA AMERIKA Krcppa áþekk heimskreppu fjórða áratugarins ríkir nú í rómönsku Ameríku. Svo segir í nýlegri skýrslu frá Inter-American Development Bank í Washington um efnahag hinna 25 landa hennar. Þótt útfluttar vörur þeirra hafi stórlega vaxið að magni frá 1980, hafa þær fallið svo í verði, (nema helst kaffi), að verð- mæti þeirra hefur orðið litlu meira en áður. Segir það til sín. Á þessum síðustu fimm árum hefur framleiðsla þeirra samtals vaxið um 3,9% að meðaltali, en á undanfarandi tveim- ur áratugum, 1960-1980, jókst fram- leiðsla þeirra hins vegar hröðum skrefum eða um 5,7% á ári. Fólksfjölgun í rómönsku Amer- íku er ör. Afleiðingin er sú, að í henni allri hefur framleiðsla á íhúa að meðaltali dregist saman um nær 8% á íbúa, en misjafnlega mikið eftir löndum, - í 14 löndum um 10% og í 7 löndum, á meðal þerra Argentína og Venezúela, um 15%. Erlendar skuldir rómönsku Amer- íku, um $ 380 milljarðar, síga þess vegna í, en vextir og afborganir af þeim nema um $ 25 milljörðum á ári. Heimsins stærsti banki Banki sá í Tókýó, sem nú er hinn stærsti í heimi, var myndaður 1971 við samruna Dai-Ichi-Banka, og Kangyo-banka, sem urðu að Dai- Ichi Kangyo-banka. í Japan hefur bankinn 360 útibú. Föst viðskipti við hann hafa 130.000 fyrirtæki og 20 milljónir einstaklinga. Dagleg um- setning hans nemur $ 3,5 billjónum ( enskum trilljónum). Koma 650.000 manns í afgreiðslur hans á hverjum degi. Eignir Dai-Ichi Kangyo-banka í lok síðasta fjárhagsárs hans, 31. mars. nema $ 207,2 milljörðum á gengi jens gagnvart dollar í byrjun september. En nteð tilliti til bók- færðs hreins hagnaðar er hann ekki nema hinn 16. í röðinni. Nam hann á síðasta rekstrarári bankans $ 451 milljón. Erlendis hefur Dai-Ichi Kangyo- banki 55 útibú. Er hann sagður halda um 40% útlánsfjár síns utan lands, en hafa af þvt einungis 20% tekna sinna. Hann hefur ekki keypt banka í Bandaríkjunum eins og suntir aðrir japanskir bankar, (Kaup Sumitomo-banka á Bank of Cali- fornia þóttu mikil tíðindi á sínunt tíma). Telur hann sig koma ár sinni eins vel fyrir borö undireigin nafni. Hægari hagvöxtur iðnríkja Efnahags-samvinnustofnunin í París, birtir árlcgar tölur um þjóð- arframleiðslu og þjóðartekjur aðild- arlanda sinna og raunar fleiri. Upp úr þeim mun eftirfarandi taflaunnin, en hún var birt í síðasta hefti World Politics. Hagvöxtur 15 iðnríkja 1960-1973 og 1974-1982 (%) (Gross Domestic Product) Árlegur hagvöxtur 15 iönríkja 1960-1973 og 1974-1982 (%): 1960-1973 1974-1982 Ástralía .....................5,1..............................2,4 Austurríki ...................5,0..............................2,6 Belgía........................5,0..............................1,7 Kanada .......................5,6..............................2,2 Danmörk ......................4,7..............................1,6 Finnland .....................5,0..............................2,6 Frakkland ....................5,6..............................2,7 Vestur-Þýskaland..............4,5..............................1,7 Ítalía........................5,3..............................2,3 Japan.........................9,9..............................3,8 Holland .....................5,4)..............................1,4 Noregur.......................4,4..............................3,5 Svíþjóð ......................4,1..............................1,4 Bretland......................3,1..............................0,7 Bandaríkin....................4,1..............................1,7 Heimild: World Politics skv. OECD National Account Statistics. Viðmiðun er gross domestic protduct. BESTA TRIMMIÐ Iíniinn S. 686300 S. 681866 DJÓÐVIUINN S. 681333 Blaðburður er Síðumúla 15 a 68 63 00 LAUS HVERFI NÚ ÞEGAR: Melhagi Neshagi Fornhagi Kvisthagi Hl Teigagerði og borgar Hafðu samband við okkur Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: RARIK 86104 raflínuvír 300 km. RARIK 86015 þverslár 1714 stk. Opnunardgur: Þriðjudagur 21. október 1986 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 22. september 1986 og kosta kr. 200.00 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík. bílakaup Áætlað er að kaupa um 120 bíla fyrir ríkisstofnanir árið 1987. Lýsing á stærðum og útbúnaði bílanna er að fá á skrifstofu vorri og þurfa þeir bifreiðainn- flytjendur, sem vilja bjóða bíla sína að senda verðtilboð og aðrar upplýsingar til skrifstofunnar fyrir 24. október n.k. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Óskum eftir tilboðum í leigu á bíla- leigubílum fyrir ríkisstofnanir í næstu 12 mánuði. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða tilboð sem berast opnuð kl. 11.00 f.h. 8. október 1986. INNKAUFASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 slMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Hafnarfjörður - Atvinnulóðir Hafnarfjarðarbær hefur tií úthlutunar lóðir fyrir iðnað og annan atvinnurekstur. Nokkrar lóðir (á Hvaleyrarholti og Kaplakrika) eru þegar byggingahæfar, aðrar verða byggingahæf- ar á næstunni. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Bæjarverkfræðings Strandgötu 6, þ.m.t. um gjöld og skilmála. Umsóknum skal skila á sama stað eigi síðar en 3. október n.k. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Bæjarverkfræðingur Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og íslands. í því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og annan fjárhagsstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum, en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstakiega stendur á. Umsóknir um styrki úr sjóönum skulu sendar stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands fyrir 15. október nk. Áritun á íslandi: Mennta- málaráðuneytið, Hverfisgötu 6, 105 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Stjórn Menningarsjóös íslands og Finnlands. 17. september 1986. Útboð bílaleiga Útboð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.