Tíminn - 20.09.1986, Page 20

Tíminn - 20.09.1986, Page 20
Vertu í takt við Timann AUGLÝSINGAR 1 83 00 MARKAMASKÍNURNAR lan Rush hjá Liverpool og Kevin Clarke hjá Southampton í leik liöanna í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem þessir fótknáu framherjar leika hvor gegn öörum. Einvígi þessaratveggja manna mun aö líkindum valda miklum áhuga knattspyrnumanna. Sjá bls. 10. TLminn Laugardagur 20. september 1986 Offituvandamálið einnig á fjöllum uppi: Fjallalömb og fegurðardís ir glíma við sama vandann Offita viröist nú ckki síður að verða stórvandamál hjá fjárbændum en fegurðardísum. Einn bcsti fjár- bóndinn í Skagafirði varö að vonum ókátur yfir því þegar 56 af alls 80 lömbum (70%) sem liann lagði inn í sláturhúsið á Sauðárkróki sl. mið- vikudag voru dæmd í O-llokk (of- fituflokk), sem jvýöir að hann má rcikna með a.m.k. 20 krónum minna fyrir hvert kííó af skrokkum O-lamb- anna, sem í þessu tilfelli gæti þýtt um 20 þús. krónur. Hár fallþungi gæti því orðið fcimnismál í framtíðinni í stað þess að vera stolt hvers fjár- bónda. Haustið 1985 voru aðeins um 8.300 dilkar á landinu fclldir niður í O-flokk vegna of mikillar fitu, eöa um 1,1% af heildarfjölda dilka það haust. Meöalþungi þeirra var um 19,7 kíló. samanborið við 15,6 kg í stjörnuflokknum, 14,6 kg í 1. flokki, 11,1 kg í 2. flokki og 9,5 kg í 3. flokki. Verðfclling vegna offitunnar var um 11,5% á síðasta verðlags- ári. sem miðað við vcrðlagsgrund- völl í júní sl. nám liátt í 20 kr. á kíló. Ekki er búist við að verðfellingin vcrði minni núna í haust nema síður sé. Ef við gæfum okkur að vcrð á I. flokks dilkum verði í kringum 170 kr. kílóið í haust mundi 16 kílóa skrokkur sem færi í 1. flokk skila samtals um 2.720 krónum. en 18 kílóa skrokkur sem lcnti í O-flokki og væri verðfclldur um 11.5% gæfi þá aðeins 2.708 kr. Bóndinn fengi því minna en ekki neitt fyrir viðbót- arkílóin tvö - og er þó ekki búið að taka inn í myndina að væntanlega þarf hann að borga hærri slátrunar- kostnað fyrir þyngri dilkinn. Fyrir neytandann/kaupandann ætti þetta á hinn bóginn að þýða að hann geti með góðri samvisku hent 2 kílóum meira af fitu af þyngri skrokknum en þeim léttari áður en hann borðar hann - og haldið þá eftir úrvalskjöti á diski sínum. Því alþekkt cr að sjálfur vöðvinn af vænum lömbum er mun betri en af horgemlingunum. - HEI Ríkisútvarp/sjónvarp: Lenging dagskrár vegna samkeppni Bylgjan útvarpar allan sólarhringinn um helgar Harðnandi samkeppni er nú á milli útvarpsstöðva og sjónvarps- stöðva. Á fundi Útvarpsráðs í gær voru ákveðnar nokkrar breytingar á dagskrá Ríkisútvarpsins og sjón- varpsins og miða þær að því að lengja dagskrá Rásar 2 og sjónvarps- ins, og gera dagskrána samfelldari. Helstu breytingar eru þær að sjón- varpað verður frá kl. 18:00 alla daga nema fimmtudaga og hefst dagskráin með fréttaágripi á táknmáli, barna- efni og öðru léttu fjölskylduefni til kl. 19:30 en þá hefst fréttatími Sjúkraliðar hafa þegarsagt upp fóstrur eru aö undirbúa uppsagnir Sjúkraliðar sem starfandi cru a höfuðborgarsvæðinu cru að scgja upp störfum sínum og munu uppsagn- irnar taka gildi I. janúar 1987. Trúnaðarmenn vinna að því að safna uppsagnabrél'unum sem skila á inn fyrir fyrsta októbcr. Að sögn Huldu Ólafsdóttur for- manns Sjúkraliðafélags íslands er þátttakan í þessum hópuppsögnum mjög góð. Á sumum deildum væri um 100% samstaða. En það eru fleiri sem huga að uppsögnum heldur cn sjúkraliðar. í skoðanakönnun sent trúnaðarmcnn fóstra hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar létu gera varö- andi hópuppsagnir nú á næstunni til að knýja á um bætt kjör, kom í Ijós að yfir 80% fóstra lýstu sig tilbúin til að segja upp störfum. Að sögn Margrétar Pálu Ólafs- dóttur trúnaðarmanns hefur meiri- hluti borgarstjórnar sýnt það og sann- að að hann ætli sér ekki að gera neitt til þess að stoppa þær uppsagnir sem að undanförnu hafa verið í gangi þótt það hafi ekki verið hópuppsagn- ir til að knýja á um laun, heldur einfaldlega vegna þess að fólk geti ekki lengur beðið eftir því að stjórn- völd lagi laun þess og leiti því að vinnu annarsstaðar. Á fundi borgarstjórnar á fimmtu- daginn var fyrirspurn minnihlutans unt það hvað meirihlutinn hygðist gcra til þess að koma í veg fyrir hópuppsagnir og aðra erfiðleika scm steðjuðu að þcssum hópum, vegna lélegra launa - vísað frá. „Það er Ijóst að borgarstjórn ætlar ckki að ganga fram fyrir skjöldu til þess að bjarga þessum málum við og því verðum við að fara út í aðgerð- ir," sagöi Margrét Pála. sjónvarpsins. Á eftir fréttatíma fær- ast síðan aðrir dagskrárliðir fram og miðað verður við að dagskrá ljúki um kl. 23:00. Þessar breytingar taka gildi frá og með næstu mánaðamótum en frá og með 25. okt. hefst vetrardagskrá og mun þá innlent efni aukast jafnframt því sem fleiri breytingar cru á döf- inni. Á Rás 2 verður samfelldari dagskrá en áður, þar sem útvarpað verður nú frá kl. 12:00 til 14:00 og athugað veröur nteö möguleika á því að útvarpa á Rás 2 allan sólarhring- inn í framtíðinni. Svæðisútvarpið á Akureyri mun útvarpa framvegis eftir að dagskrá Rásar 2 lýkur kl. 18:00. Sam keppnisaðili Ríkisútvarpsi ns, Bylgjan hafði áður ákveðið að út- varpa allan sólarhringinn um helgar og stefnt er að því að útvarpa alla daga allan sólarhringinn á þeim vígstöðvum. Fyrsti samfelldi sólar- hringurinn á Bylgjunni var síðasta sólarhring. ABS Uppsetningu á endurvarpsbúnaði fyrir Stöð 2 er að mestu lokið. Starfsmenn Pósts og síma hafa síðustu daga lokið við að setja upp búnaðinn og mun nú vera lítið verk eftir til þess að hægt sé að endurvarpa útsendingum til viðtækja. Spurningin er hinsvegar hvenær Stöð 2 verður tilbúin. Tíniamynd Pjelur Happdrætti Háskóla íslands: Keflvíkingur vann fimm milljónir í annað sinn „Vissulega eru þetta litlir mögu- leikar." svaraði Jóhannes Helga- son, framkvæmdastjóri Happ- drættis Háskóla íslands, þegarbor- ið var undir hann hvort ekki væru svimandi litlar líkur á að sami maðurinn fengi tvívegis hæsta vinninginn á trompmiða sem fimm- faldar vinningsupphæðina. Þetta einsdæmi átti sér stað í Keflavík 10. september sl. Vinningshafinn datt í lukkupottinn fyrst áriö 1977, en þá hét hann á ekkju vinar síns að ef hann ynni fengi hún tíunda- hluta vinningsins. „Mér er ekki kunnugt um að hann hafi heitið á neinn í þetta sinn," sagöi Jón Tómasson. umboðsmaður happ- drættisins í Keflavík. Vinningsupphæðin, ein milljón króna scm er hæsti vinningur scnt dregið er um mánaðarlega, kom á trontpmiða og skilaði því eiganda sínum fimm milljónum í vasann. Þetta er í annað sinn sem hinn lukkulegi Keflvíkingur hlýtur fimm milljóna vinning í Happdrætti Há- skólans. „Þetta er gæðapiltur og á allt gott skilið", finnst Jóni, en auðnu er svo sannarlega misskipt. Keflvíkingar spila mikið í happ- drætti, að sögn umboðsmannsins. „en ekkert aflrrigðilega þó. Kefl- víkingar eru yfirleitt heppnir. Og þó hæsti vinningurinn renni ekki alltaf hingað koma alltaf minni vinningar og þeir stóru af og til." Það þykir líka tíðindum sæta, að báðir aukavinningarnir, krónur 20 þúsund hver, fóru til Keflavíkur og Njarðvíkur. Þau númer voru bæði níföld og gáfu því eigendum sínum 180 þúsund krónur. Það er óhætt að segja að heppnin elti Suðurnesjamenn á röndum. Þór

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.