Tíminn - 28.09.1986, Page 5
Sunnudagur 28. september 1986
Tíminn 5
GULLIBETRI
Umsjón: Hjördís Árnadóttir
Ólympíuleikarnir í Berlín 1936:
Sigurhátíð
JESSE OWENS
- þrátt fyrir kynþáttastefnu mótshaldaranna
I lympíuleikarnir í
Berlín 1936 hafa
löngum verið
taldir til mestu
áróðursíþrótta-
móta fyrr og
_____________| síðar. Það sem
fyrst kemur þó upp í hugann
þegar Berlínarleikarnir eru
nefndir á nafn er stórkostlegur
árangur Jesse Owens sem sigraði
í fjórum greinum, 100 m hlaupi,
200 m hlaupi, langstökki og
4x100 m boðhlaupi. Því má
skjóta hér inní að þetta eru
einmitt sömu greinar og Carl
Lewis sigraði í á Ólympíuleikun-
um í Los Angeles 1984. Það sem
merkilegast þótti við afrek Ow-
ens var sú staðreynd að hann var svartur og fór það mjög
fyrir brjóstið á Hitler og hans stuðningsmönnum og
samræmdist alls ekki hugmyndum hans um yfirburði
aríska kynstofnsins. Og hann lét það berlega í ljós með því
að láta það ógert að bjóða Owens til heiðursstúku sinnar
og óska honum til hamingju eins og hann gerði við aðra
sigurvegara á leikunum.
Það er reyndar merkileg staðreynd að Hitler hafði lítið
með undirbúning Ólympíuleikanna að gera. Berlínarborg
hafði fengið leyfi til að halda þá áður en hann komst til
valda og hafði Hitler takmarkaðan áhuga á undirbúningi
þeirra. Það sem hann vildi var að Ólympíuleikunum yrði
valinn staður í Berlín til frambúðar, þar vildi hann byggja
leikvang fyrir 450.000 manns og talaði hann oft um hvílík
skömm það væri fyrir Þýskaland að hafa leikvang sem tæki
aðeins 100.000 manns. Auk þess var hann enginn sérstakur
áhugamaður um íþróttir og var ekkert um það gefið að á
leikjunum kepptu íþróttamenn af „óæðri“ kynstofnum.
En það breytir ekki þeirri
staðreynd að leikarnir voru not-
aðir til að sýna heiminum upp-
byggingu og glæsileika þriðja
ríkisins. Framkvæmd leikanna
var höfð öll hin glæsilegasta og
allt gert til að hrífa gestina. Við
opnunarathöfnina var leikvang-
urinn upplýstur með risastórum
ljóskösturum sem áttu að vera
tákn um mikla tæknilega upp-
byggingu í hinu nýja Þýskalandi.
Þeir voru síðar notaðir til að
leita uppi sprengjuflugvélar
bandamanna er þær flugu yfir
Berlín.
Gera varð ýmsar tilslakanir til
að fá að halda leikana og bæta
álit manna út á við. Reynt var að
sýna fólki fram á að þær ljótu
sögur sem heyrst höfðu frá
Þýskalandi um gyðingahatur
væru ekki sannar, t.d. var gyð-
ingastúlku bætt í þýska liðið og
and-gyðinglegar veggmyndir
voru teknar niður. Þá voru
helstu áróðursblöð fjarlægð af
blaðsölustöðum meðan leikarnir
fóru fram.
Það bjó þó alltaf undir niðri
að sýna fram á yfirburði Þjóð-
verja á íþróttasviðinu og sanna
þar með kenningu Hitlers um að
hinir ljóshærðu og bláeygu aríar
væru æðsta stig „kynstofnapýra-
mýdans“. Það tókst að nokkru
leyti, Þjóðverjar hlutu 33 gull-
verðlaun á leikunum, mun fleiri
en Bandaríkjamenn sem hlutu
næst flest gull. En það var hinn
blakki Owens sem var maður
leikanna og sigraði alla bestu
hlaupara Þýskalands og einnig
Luz Long sem hafði verið
stærsta von Þjóðverja í lang-
stökkinu.
Það að Hitler skyldi ekki sjá
sóma sinn í því að óska Owens
Óumdeilanlega maður
leikanna, Jesse Owens
sigraði m.a. björtustu von
Þjóðverja í langstökkinu.
Frá setningarathöfn Berlínarleikanna, Hitler gengur inn á
völlinn við hlið forseta alþjóða Ólympíunefndarinnar.
Gisela Mauermayer hélt
uppi heiðri heimamanna og
sigraði í kringlukasti,
kastaði 47,63 m.
til hamingju var um allan heim
álitin óíþróttamannsleg fram-
koma og jafnvel hreinn dóna-
skapur. Þær raddir hafa þó
heyrst að hann hafi aðeins verið
að fylgja þeim tilmælum Ólym-
píunefndarinnar að hann byði
ekki íþróttamönnum til heið-
ursstúku sinnar, nefndin hafði
ekki talið það viðeigandi.
En það komu einnig fram
nýjungar á Berlínarleikunum,
nýjungar sem við í dag þekkjum
sem hefðir. f Berlín var í fyrsta
skipti byggt sérstakt Ólympíu-
þorp og boðhlaup með kyndil
sem tendraður var í Grikklandi
var líka hlaupið þar í fyrsta
skipti. Þá voru Berlínarleikarnir
fyrstu „pressuleikarnir" þar sem
blöð, útvarp og hinn nýi fjöl-
miðill sjónvarp fylgdust gjörla
með öllu sem gerðist.
í sumar, 50 árum eftir leikana
voru nokkrir af bestu íþrótta-
mönnunum sem kepptu á
leikunum spurðir um minningar
sínar þaðan. Tilfinningar sínar
sögðu þeir vera nokkuð
blendnar, spennan og gleðin
sem fylgdi góðum árangri var
ofarlega í huga margra en einnig
var rætt um misnotkun og póli-
tískan áróður. En það sem allir
voru sammála um var að stór-
kostlegur árangur Owens væri
það minnisstæðasta af öllu.
Það er athyglisvert að bera
Glæsilegar
fimleikasýningar voru eitt
af því sem gladdi augu
áhorfenda á leikunum.
saman árangur Owens og
hlaupara nútímans. Owens
hljóp 100 metrana á 10,3 sek. og
hafa ber í huga að það var á
malarbraut. Heimsmetið í 100
m hlaupi er 9,93 sekúndur en
það er sjaldgæft að hlaupið sé
undir 10 sek. Og í dag hlaupa
menn á gerviefnisbraut sem veit-
ir mun betri spyrnu en mölin.
Algengur sigurtími í frjáls-
íþróttamótum í Evrópu er 10,20
-10,25 sek svo ljóst er að Owens
hefur verið gífurlega fljótur á
sínum tíma enda er hann talinn
sá albesti og í hópi með Carl
Lewis og nú síðast Ben Johnson
sem á besta tímann í ár 9,95 sek.
mirage
Gæsaskot
cever
Höfum nú fyrirliggjandi hin
frábæru Mirage gæsa-
skot.
38 grömm 42 og 76
magnum
Kaupfélögin um allt
land og sportvöruverslanir
í Reykjavík
VIÐSKIPTAVINIR!
Erum fluttir að Grandagarði 11 (sami sími)
W HF HAMAR
Grandagarði 11
Sími2 21 23