Tíminn - 28.09.1986, Blaðsíða 19
Sunnudagur 28. september 1986
Tíminn 19
Smurð lík notuð sem meðal
íksmurningur af ýmsu
tagi fyrirfinnst um allar jarðir. A
sumum svæðum hefur sá siður
verið löngu aflagður og aðeins
hefðir og venjur sem minna á þá
fornu hætti, en sums staðar hef-
ur siðurinn lifað fram á okkar
tíma, þó í litlum mæli sé.
Múmíur hafa verið sveipaðar
leyndardómsfullri hulu, því
jafnvel trúað að í þeim byggi
máttur og hver sá er raskaði
grafarró þeirri hlyti verra af.
Egypskri múmíu, en óhöpp
höfðu elt þá er nærri henni
komu, er kennt um að stórskipið
Titanic sökk í sjó. Var það
hennar síðasti grikkur og liggur
hún nú með flakinu á hafsbotni,
en skipið átti að flytja hana á
sýningu.
En þó að múmíur hafi vakið
ugg og hræðslu manna og orðið
skáldsagnahöfunum og kvik-
myndagerðarmönnum ærið
verkefni hafa þær einnig ljáð
læknisfræðinni lið.
Sú trú að egypskar múmíur
hefðu verið smurðar með jarð-
biki eða malbiki leiddi til þess að
kostir þessara efna færðust yfir
á sjálfa líkamana sem smurðir
höfðu verið. Um miðaldir allt
fram á 18. öld voru múmíur
fluttar inn til Evrópu til sölu í
apótekum og lyfjaverslunum og
efnið sem fékkst með því að
mylja múmíuna niður var sagt
hafa mikil læknandi áhrif. Með
tímanum gleymdist að kostur-
inn, sem haldið var að múmíurn-
ar hefðu, væri vegna bjksins og
því fólst gildið í smurðum líkam-
anum sjálfum. Þetta leiddi aítur
til þess að framleiðsla hófst á
smurðum líkömum, „múmí-
um“, óbótamanna, sem teknir
voru af lífi, og þeirra er framið
höfðu sjálfsmorð. Með því var
hugmyndin orðin algild um að
smurður líkami hefði læknandi
áhrif, þrátt fyrir að upphaflega
hefði verið gerð tilraun til að ná
bikinu í lyfjaglös með því að
mylja múmíuna í smátt.
Þrátt fyrir að virtir læknar,
svo sem A. Paré, vísuðu kenn-
ingunni um að múmíur hefði
læknandi mátt á bug strax á 16.
öld, var framleiðslunni haldið
áfram allt fram á 18. öld. Má oft
sjá mælt með efninu í lyfseðla-
safni þessa tíma. í Austurlönd-
um fjær eru múmíur enn seldar
sem lyf, brytjaðar niður í glös, á
lyfjamörkuðunum.
/þj
Tíðkast enn í Austurlöndum fjær
Elsta múmía sem fundist hefur. Hún fannst nærri Kairó í Egyptalandi, sögð vera um 5000 ára gömul og kölluð Nefir.
SKOTVEIÐIMENN
Fæst í kaupfélögum um land allt
og í sportvöru verslunum í Reykjavík