Tíminn - 07.10.1986, Side 1

Tíminn - 07.10.1986, Side 1
p H _ STOFNAÐUR1917 Mminn SFJALDHAGI ailar upplýsingar á einum staó í; <£>> fyt!1** i ^ kgu 1 SAMVINNUBANKI jv f ISLANDS HF. ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986-228. TBL. 70. ÁRG. ISTUTTU MALI ■ II | RIKISUTVARPIÐ mun reka útvarpsstöö í samvinnu viö utanríkis- ráöuneytið vegna leiðtogafundarins og veröur útvarpaö á ensku daglega frá klukkan átta á morgnana til klukkan 10-15 á kvöldin frá miövikudagskvöldi til mánudagskvölds. Útvarpað verður á FM 89,3 og þar veröa sagöar fréttir, útvarpaö beint frá ýmsum atburðum í tengslum viö fundinn og milli dagskrár- liða veröa fluttar aualýsingar á ensku og tónlist. Tekið verður á móti fréttum í síma 688188 og á móti auglýsingum hjá auglýsingadeildinni. ALBERT GUÐMUNDS- SON iönaðarráöherra var einn 27 ráðherra víösvegar aö úr heiminum, sem voru viöstaddir setningu 13. Al- þjóöa orkuþingsins í Cannes í Frakk- landi á sunnudag. Fjölmiölar í Frakk- landi hafa sérstaklega getiö komu Alberts á þingið og greindi Albert þar frá íslenskum málefnum, m.a. atvinnu- vegum, orkuiönaöi, og sýningu sem hiö nýstofnaða fyrirtæki Orkustofnun Erlendis hf. gengst fyrir í sambandi viö þingiö, en 20 íslensk fyrirtæki taka þátt í þeirri sýningu. GLASGOW CELTIC, knattspyrnuliðið skoska, hefur leitaó aöstoöar geislunarsérfræöinqa til að rannsaka hvort óhætt sé aö fara til borgarinnar Kiev í Rússlandi og spila þar gegn Dynamo Kiev, en Kiev er aöeins í um 50 kílómetra fjarlægö frá Tjernobylkjarnorkuverinu. Celtic á aö spila viö Dynamo Kiev í Kiev' 22. október og í Skotlandi 5. nóvember. BANDARÍKJASTJÓRN er að undirbúa nýja þjálfunaráætlun fyrir uppreisnarmenn sem berjast gegn stjórn Nicaragua aö sögn tímaritsins Newsweek. Þjálfunin fer fram í her- stöövum í Bandaríkjunum, nánar til- tekið í Georgiu og Noröur Carolinu. Uppreisnarmennirnir eru þjálfaöir í meðferð loftvarnarflauga, léttra skot- vopna, flutningaflugvéla og þyrlna. JESSIE JACKSON, biökku mannaleiötoginn kunni, mun setini- lega ekki koma til íslands vegna leið- togafundarins eins og fyrr haföi verið taliö. Jackson hefur gjarnan haldið sig á þeim stööum í heiminum sem líklegt er að hann geti vakið athygli á baráttu- málum sínum og hann vakti mikla athygli í Genf fyrir ári þegar þeir Reagan og Gorbatsjov ræddust viö í fyrsta sinn. ALLHARÐUR árekstur varö í gær um kl. 19.30 á mótum Suðurlands- vegar og Ofanbyggöarveqar. Bifreið sem kom niður Ofanbyggoarveg ók í veg fyrir bifreið sem var á leið austur Suðurlandsveg. Þrenntvarflutt í slysa- deild. VORUMARKAÐURINNá Eiöistorgi hefur verið seldur og keyptu Sláturfélag Suöurlands og heildversl- unin Sund verslunina sem verður eftir endurskipulagningu rekstrarins opnuð undir heitinu Vöruhúsiö Eiöistorgi. Ebeneser Ásgeirsson mun áfram reka húsgagnaverslun í húsinu. KRUMMI ...ætli það þýði nokkuð að reyna að leigja reiðhjól- ið...? Reagan lendir í Keflavík kl. 19 Hann býr í sendiráöinu. Ekki er komin nákvæm tímasetning á komu Gorbatsjovs Línur eru nú loksins farnar aö skýrast varðandi leiðtogafund þann sem haldinn vcrður áJaugar- dag og sunnudag. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti keniur með þotu bandaríska flughersins - Air foreC' 1 -. Vélin lcndir á Kcflavíkurflug- velli kl. 19.05 á fimmtudag. Ákveð- ið hcfur verið hvcrjir verða í ís- lensku móttökunefndinni. Það verða forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðhcrra, Matthías Á. Mathí- esen, ásamt ráðuneytisstjórum og forsetaritara. Þyrla Landhelgisgæslunnar mun flytja móttökunefndina fram og til baka, en Kcflavíkurvegur vcrður að öllum líkindum lokaður að hluta. Reagan mun halda beint í bandaríska scndiráðið, þar scm hann mun búa á meðan á fundar- ' höldunum stendur. Ekki hefur enn fengist nákvæm tímasetning á komu Gorbatsjovs Sovétlciðtoga, en líklega verður það um klukkan 19 á föstudags- kvöld. Ekki cr enn Ijóst hvort Nancy Reagan kemur mcð manni sínurn. en líkur cru taldar gegn því, þar scm Bandaríkjamenn hafa þegar sent tilkynningu þess cfnis að Rea- gan verði einn í för. Sterkur póli- tískur leikur hjá Sovétmönnum. segja menn. Ronald Reagan mun heimsækja Vigdísi Finnbogadóttur forseta ís- „Ástandið“ í Reykjavík Að vera bíllaus og búa í tjaldi í Laugardalnum er nú það flottasta sem uni getur í Keykjavík. Þá hel'ur tekist að leigja hvoru tveggja oftast fyrir vænan dollarabunka. Hér að ofan getur að líta eitt gylliboðið sem hótclgestum að Hótel Loftleiðum stóð til boða í fyrrakvöld. ’iimmnynd sverrir Prófkjör og framboöslisti á Austurlandi: HALLDÓR FÉKK NÆR 100% í 1.SÆTIÐ mmmammM „Það hefur ekki áður verið hald- ið jafn glæsilegt kjördæmaþing á. Austurlandi síðan ég fór að hafa afskipti af stjórnmálum og mér eldri menn kváðust ekki munaeftir öðru eins. Þarna voru saman komnir tæplega 170 fulltrúar alls- staðar að úr kjördæminu. Eftir að úrslit prófkjörsins lágu fyrir kom í ljós að það er mikil eining um listann, enda held ég að fullyrða megi að það hafi tekist mjög vel til. Það er almenn skoðun manna að þessi framboðslisti - scm er hinn fyrsti sem fram kernur að þessu sinni - hafi mikinn byr. Það er því mjög gott hljóð í okkur og viö eruni bjartsýn," sagði Halldór Ás- grímsson, sjávarútvegsráðherra og þingmaður Austurlands. Halldór sigraði mjög glæsilega - með 157 atkvæði í fyrsta sæti - í prófkjöri sem fram fór um fram- boðslista framsóknarmanna á Austurlandi um helgina. Næstur honum kom Jón Kristjánsson með 91 atkvæöi í 1.-2. sæti, þá Jónas Hallgrímsson með 123 atkvæði í 1.-3. sæti, fjórða var Guðrún Tryggvadóttir með 67 atkvæöi í 1.-4. sæti, þá Þórhalla Snæþórs- dóttir með 75 atkvæði í 1 .-5 sæti og Vigdís Sveinbjörnsdóttir með 89 atkvæði í 1.-6. sæti. Framboðs- nefnd raðaði síðan í 7.-10. sæti listans. Sjá bls. 5. -HEI lands á föstudag klukkan 16:30 til 17. Annars hafa þeir Rcagan og Gorbatsjov báðir óskað eftir. því að fá að vera í friöi að mestu. þar sem þeir munu mikiöfunda mcðráð gjöfum sínum. Gert er ráö fvrir að Gorbatsjov heimsæki forseta Is- lands á laugárdag áður cn lyrsti fundur leiðtoganna hcfst. En þeir munu halda þrjá fundi, tvo á laugardag og einn snemma sunnu- dags. Ronald Reagan mun halda strax hcim á lcið eftir fundinn, en vcgna tímamismunar munu Gor- batsjov og frú verða eitthvað lengur. Þcssar upplýsingar komu fram á fundi framvarðarmahna Reagans og Gorbatsjovs með fulltrúum is- lensku ríkisstjórnarinnarsem liald- inn var í gær. Ekki er cnn ákvcðið hvar Gor- batsjov gistir. -ES Undirbúningur leiðtogafundar: Upplýsingar skortir enn - koma Raisu Gorbatsjovu krefst aukinnar öryggisgæslu Islenskir. bandarískir, og sovéskir embættisménn héldú sameiginlcgan fund seinnipart- inn í gær. þarsem undirhúning- ur fyilr leiðtogafundinn var á dagskrá. lngvi S. lngvnrsson ráöu- nevtisstjóri i utanríkisráðu- neytinu sagði við Tímann eftir fundinn að rætt hafi verið um ýmis fyrirkomulágsatriði og reynt að fá niðurstöðu í ýmsum óleystum málum. Ilann sagöi að búiö væri að ákveða endan- lega að fundarstaðurinn yrði í Höfða og að ekki yrði fundað á ficiri stööum, Hann sagði að enn hefði ekki fengist vitneskja um þaö hvcrjir cða hversu margir yrðu í fylgdarliöum leiötoganna og að cnn hcfði ekki fengist staðfcsting á því hvar Gorbatsjnv hjónijl myndu búa. < Böðvar Bragason lögreglu- sijóri í Reykjavík sugði eftir fundinn, að enn væri ekki búið að ákveða endanlega hver vcrkaskipting milli íslenskra öryggisgæslusveita annars veg- ar og öryggisvarða frá Sovét- ríkjunum og Bandaríkjunum yrði. „Þetta er enn allt í vinnslu," sagði lögreglustjóri. Aðspurður um hversu margir erlendir óryggisveröir kæmu til landsins í tengslum við lundinn sagði hann að það væri ekki gefið upp né vildi hann svara þvf hvort þeir skiptu tugum cða hundruðum. Böðvár sagði að koma Raisu Gorbatsjovu hingað til lands hefði aukin verkefni öryggis- gæslunnar íslensku í för meö sér, en ekki væri um óyfir- stíganlega aukningu að ræða. -BG

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.