Tíminn - 07.10.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.10.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn SPEGILL lllillllli lllllllllll illllilll Kitty Kelly segir að brosið dugi henni oft vel, þegar liún þarl'að fá fólk til að segja frá. „Það hugsar sem svo, - þessi vinsamlega kona hlýtur að vera meinleysisgrey, svolítið feitlagin og með litað hár, - en ég get verið skaðræðiskvendi, þó ég segi sjálf frá!“ Konan sem „fræga fólkið“ í Ameríku óttast: KITTY KELLEY RITHÖFUNDUR Þ að er sagt að hrollur fari um stjörnurnar í Hollywood og annað frægt fólk í Ameríku þegar það heyrir nafnið Kitty Kelley, - en hún hefur skrifað þrjár ævisög- ur, sem hafa valdið miklu fjaðra- foki. Það eru bækurnar „Jackie 0“ um Jacqueline Kcnnedy Onassis, „The Last Star“ um Elizabeth Taylor - og nú síðast bók um ævintýralegan ævifcril söngvarans Frank Sinatra. Frá því að Sinatra heyrði að Kitty Kelley væri að vinna að ævisögu hans, hefur hann staðið í málaferlum við rithöfundinn og útgefendur til að reyna að stöðva útkomu bókarinnar. Hann hefur nú gefist upp og látið málsóknina niður falla, en sagt er að kostnaður- inn hafi verið kominn yfir 50 mill- jónir króna. Kitty Kelley er Ijóshærð, blá- eygð smávaxin kona á fimmtugs- aldri. Hún er glaðleg í framkomu og sagt er að hún sé afar lagin við að fá fólk til að segja frá. Menn láta blekkjast af góðlegu viðmóti hcnnar, - en hún segir sjálf, að hún sé þrautseig og þolinmóð í upplýs- ingaöflun og eiginmaður hennar, sem ætti að þekkja hana manna best, segir að hún geti barist eins og tígrisdýr þegar því sé að skipta. Eiginmaðurinn heitir Michael Edgley og er líka rithöfundur. Hann hefur sagt í viðtali, að hann geri sér grein fyrir því, að konan sín noti stundum „sinn sexí sjarma" til að kynnast mönnum sem hún þurfi að fá upplýsingar hjá, cn þau lifi í hamingjusömu hjónabandi,“ og ekki er meira um það mál aðsegja," bætti hann við. Kitty hælir sér af því, að „fórnar- lömb“ sín forðist sig eins og heitan eldinn, og taki ekki undir þó hún bjóði góðan dag - hvað þá meir! „Það er af því að ég hef unnið verk mitt vel og hrist upp í minn- ingasjóði þeirra. Já, það hafa hrun- iðmargar beinagrindur út úr leym- skápum - ef svo má að orði komast," segir Kitty Kelley hreyk- in. FÓRNARLÖMBIN Frank Sinatra hefur gefist upp við málsókn, og nú er talað um „blondínuna sem sigraði Sinatra“ Jackie Kennedy Onassis var að vonum óhress yfir að í bókinni „Jackie 0“ var mikið sagt frá kvennafari Kennedybræðra. Elizabeth Tayior var sár yfir frá- sögn Kitty Kelley af móður Eliza- betar og sambandi þeirra mæðgna. Einnig var hún öskuill þegar farið var að rifja upp gömul ástarævintýri. Hundaeigendur sungu „Hún á afmæli í dag!“ Hjón í Ernster í Luxemborg héldu hátíðlegt afmæli tíkurinnar Sophie. Þau sendu myndir af afmælisbarninu og tcrt- unni hennar til vikublaðs og sögðu m.a. í bréfi sem fylgdi myndunum: „Okkur þykir scm tíkin okkar, hún Sophie,, sé alveg sérstök, og þess vegna viklum við hafa mikið við á fyrsta afmælisdegi hennar. Við bökuðum köku, og þar sem Sophic er „Dalmati- an“-tfk, en þeir hundar eru vanalega ljósir með dökkurn blettum, þá langaði okkur til að hafa kökuna í stíl, en kakan varð reyndar dökkbrún með ljósum blettum. Kakan gerði mikla lukku og Sophie át hana upp til agna! Viljið þið fá uppskriftina að hunda- kökunni? Hún er á þessa leið: 300 g hakkað kjöt, 150 g blandað grænmeti, 100 g soðin hrísgrjón, sósulit- ur og harðsoðin egg eru notuð í skreyt- ingu. Yfir kökuna var sctt hlaup úr, matarlími. Kertið var tekið áður en Sophie byrjaði að borða tertuna sína. Efst sést afmælistertan hennar Sophie. Þá stillir Sophie sér upp fyrir uiyndatöku og loks gæðir hún sér á tertunni. Þriðjudagur 7. október 1986 Fjárfrekt grafhýsi yfir Vasa gamla Furðufréttir í Þjóðviljanum vekja að öllu jöfnu ekki mikla athygli, enda eru menn því vanastir að ekki sé mikið mark takandi á því sem talið er prenthæft -á þeim bæ. Fyrir kemur þó að treysta. má því sem málgagnið hefur fram að færa. Um helgina bar óvæntan fróðleik fyrir augu lesenda málgagnsins. Svona lítur hann út í meðferð blaðsins. Vasa maðurinn frægi frá 17. öld sem var grafinn úr Stokkhólmshöfn árið 1961, fær nú að hvíla í til- komumiklu grafhýsi sem kemur til með að kosta 920 milljónir ís- lenskra króna, hvorki meira né minna. Yfirvöld eru með þessari ákvörðun að koma til móts við miklar umræður sem orðið hafa í Svíþjóð um að Vasa gamli „liggi undir skemmdum". Það er Reutcr gantli sem er borinn fvrir fréttinni, og hlýtur hún því að vera áreiðanleg í betra lagi. En sá galli er á að grafhýsiðsemá að kósta hvorki meira né minna en 920 milljónir íslenskra króna mun eiga að reisa yfir mikinn skipsskrokk sem drcginn var úr djúpi utan við Stokkhólm og þykir mikil þjóðarger- semi. Reuter bunar úr sér fréttunum á ensku og þýðendum Þjóðviljans til glöggvunar skal á það bent að mað- urinn frægi sem þeir ætla að láta í grafhýsið dýrmæta mun vera slakleg þýðing á man-of-war, sem útleggst herskip á íslensku, einkum frá fyrri öldum. svo að gild orðabókarskýi ing fylgi með. Það er margt að varast í þessum heimi og jafnvel þjóðviljaskírbentar eru ekki óskeikulir, þótt þeir viti það ekki sjálfir. Landhelgisgæslan: Týr til taks? Verndar Höfða úr norðri Landhelgisgæslan mun að öll- um líkindum verða með skip sitt Tý, rétt fyrir utan Reykjavíkur- höfn. meðan á viðræðum leið- toga Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna stendur. Gunnar Berg- steinsson forstjóri Landhelgis- gæslunnar vildi ekki staðfesta að Týr yrði notaður i þessum til- gangi, en sagði að þeir myndu nota öll sín tæki. Aðspurður um hvort fulltrúar bandarísku og sovésku örygg- isvarðanna yrðu um borð, sagöi Gunnar að hann hefði ekki fengið neinar upplýsingar um það enn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.