Tíminn - 07.10.1986, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 7. október 1986
Tíminn 5
Verðkönnun NRON:
Mikligarður ódýrastur
í 15 af 19 tilfellum
Mikiigarður var glæsilcgur sigur-
vegari með lægsta verðið á 15 af alls
19 vörutegundum í verðkönnun
sem Neytendafélag Reykjavíkur og
nágrennis, ASÍ og BSRB gerðu i niu
verslunum norðan Suðurlandsbraut-
ar þann 30, september s.l. Meöal-
verð Miklagarðs á öilum 19 vöruteg-
undunum var 11-12% lægra en í
þeim tveim búðum öðrum sem allar
vörutegundirnar fengust í og um 8%
lægra en í Kjötmiðstöðinni á þeim
16 vörutegundum sem þar fengust.
En Kjötmiöstöðin hefur sem kunn-
ugt er aftur og aftur komið mjög vel
út úr verðkönnunum.
Mesti verömunur ntilli verslana
var 55% á Dún-mýkingarefni. eða
frá 45.50 kr. til 70.70 kr. Yfir 30%
verðmunur var á þriðjungi vöruteg-
undanna. sem kömumin náði til.
- HEI
Fernir tón-
leikar
Fcrnir tónleikar verða nú í
vikunni til styrktar Kvenna-
athvarfinu í Reykjavík og mun
Bubbi Mort-hens opna þá alla.
Tvennir tónleikar verða á Akur-
eyri á fimmtudagskvöldið, einir á
Selfossi á föstudagskvöld og síð-
an einir á Selfossi á sunnudag.
Tónleikarnir á Akureyri fara
fram samtímis í Sjallanum og
Dynheimum og munu sömu lista-
mennirnir konta fram á þeim
báðum. Fað eru Bubbi, Bjarni
Tryggvason, hljómsveit Ingimars
Eydal, Skriðjöklar og Stuðkom-
paníið auk dansflokks frá Dans-
stúdíói Alís.
Fyrri tónleikarnir á Selfossi
verða á Hótelinu og þar koma
fram Bubbi, Guðjón Guðmunds-
son og Kristján Hrafnsson, Trinty
og Kikk. Seinni tónleikarnir
verða í Félagsbíói á sunnudag kl.
14.00 og þar koma fram Bubbi,
Guðjón og Kristján og Bjarni
Tryggvason ásamt l'leiri lista-
mönnum.
Allur ágóði af þessum tónleik-
um rennur til Kvennaathvarfsins
til viðgeröa á húsnæði samtak-
anna. Aösögn Viðars Arnarsson-
ar umboðsmanns Bubba
Morthens vantar Kvennaathvarf-
ið tiú um 600 þúsund til að koma
húsnæði sínu í mannsæmandi
horfog vonaðist Viðartil að þessi
upphæð safnaðist á hljómleikun-
um nú í vikunni og lokahljóm-
leikum sem verða í Háskólabíói
18. óktöber.
-Hð-
VEREXyEStA|WRDGTSIA
Vorutcgundir Holtskjör Langh.v. 113 Kjötmióst. Laugalæk 2 KRCN Langh.v.130 Langnoltsval Langh.v. 174 Laugarás Noróurbr. 2 Lakjarkjör Brekkulæk 1 Mikligaróurj SS 1 Sundaval v/Holtaveg jGlæsibæ ÍKleppsv.150 Kism. haesta og lægsta Kr: verós %:
Sirkku molasvkur 1 kg 48,00 44,40 46,50 51,05 48,90 43,10* 44,30 I 47,15 7,95 18,4
Juvel hveiti 2 kp 53.50 53,95 56.35 58,40 57,45 43,50* 54,00 56,20 14,90 34,3
Otahafrámjöl950g 79,50 76,65' 82,70 87,50 77,85 69,90* 90,20 74,90 20,30 29,0
Rivcr ncc hriserjón 454 e 28,90 29,60 29,50 31,40 35,90 29,15 26,85* 35,70 34,70 9,05 33,7
Libbvs tomatsósa 340 g 44,00 42,55 43,00 45,50 44,90 45,10 36,90* 39,60 4.,15 8,60 23,3
SS pvlsusinncp 200 g 35,90 34,40 35,35 36,50 31.60-* 33,00 33,00 36,45 4,90 15,5
Fransmanfr.kanöflur 700 e 102.00 99.90 95,00*- 102,50 98,50 7,50 7,9
Ðraga kaffi. gulur 250 g 104,00 109,50 104,95 114,05 105,00 99,90 91,90* 104,10 92,90 17,60 19,2
Don Pcdrokaffi200g 68,90*- 90,00 92,35 23,45 34,0
Vcx þvottacfni 700 g 72,50 73,10 72,00 77,60 72,90 64,70.*. 67,50 71770 12,90 19,§
Dún mýkingarcfni 11 45,50 4F 66,60 70,70 66,90 66,40 58,95 64,10 66,00 25,20 55,4
Hreinol grznt 0.51 46.50 43.00 46.80 46,80 41,10* 46,80 46,60 5,70 13,9
Lux sápa 85 g 18,90 19,30 17,75 20,00 19,50 19,20 17,50* 20,30 18,05 •3,30 18,9
Vim nestiduft 500 g 35,35 32,85 35,00 43,50 32,65* 41,20 40,55 10,85 33,2
Handy Andv500ml 53,00 * 58,00 58,95 53,90 54,30 53,70 58,00 57,80 5,95 11,2
Sjálftfiii (Fnnn) 0.51 118,60 106,95 119,20 100,50 104,95 96,90 * 118,25 22,30 23,0
Papco WC-pappír. 2 rúllur 37.00 34.35 38,00 40.95 34.00 31.00-* 37.70 38.50 9,95 32,1
Gillette comour rakv.bl.5 nk 190,80 185,30 199,90 169,00* 197,00 191,00 30,90 18,3
Lotus futura domub. 10 stk 71,00 71,45 69,10 72,10 71,30 68,60*- 72,15 72,55 3,95 5,8
Háskóli íslands 75 ára:
50 Apple tölvur
keyptar til H.í.
á sérstökum afmæliskjörum
Háskóli Islands hefur keypt 50
Macintosh Plus einmenningstölvur 8
Laser Writer Plus tölvuleisiprentara
ásamt viðbótarbúnaði svo sem harða
diska, aukadrif og prentara. Búnað-
ur þessi vegur samtals 1,3 tonn og
kostaði um 3,5 milljónir króna.
Skýringin á því hversu ódýr þessi
búnaður er, er sá að Apple fyrirtæk-
ið vcitti að meöaltali helmingsafslátt
á þcssum tölvubúnaði í tilefni 75 ára
afmælis Háskólans. Þess má einnig
geta, að Apple tölvufyrirtækið hefur
um nokkurt skeið veitt háskólum
víða í hciminum sérstök kjör, en
afslátturinn sem hér um ræðir cr þar
fyrir utan. Apple fyrirtækið gaf há-
skólanum reyndar 5 tölvur í vor og
einn leiserprentara í vor, og var það
byrjunin á þessum stóru viðskiptum.
Tölvur þessarsem háskólinn hefur
nú eignast fara á mismunandi staði
innan hans. Raunvísindastofnun fær
12, yfirstjórn háskólans 3, rcikni-
stofnun 1. heimspekideild 1, raun-
vísindadeild 8, tannlæknadeild 5,
félagsvísindadeild og Félagsvísinda-
stofnun fá 6, guðfræðideild 7, læknis-
fræði og hjúkrunarfræði 5 og verk-
fræði 2.
Myndin var tekin þegar tölvubúnaðurinn var ailientur, en stærstur hluti hans er nú kominn í notkun
og er mikil búbót fyrir liáskólann.
Fyrsti fram-
boðslistinn
ákveðinn
Á kjördæmisþingi framsókn-
armanna á Austfjörðum sem hald-
ið var um síðustu helgi var endan-
lega gengið frá framboðslista
Framsóknarflokksins í Austur-
landskjördæmi fyrir væntanlegar
Alþingiskosningar.
Er þetta fyrsti framboðslistinn
sem ákveðinn er.
Kosið var í 6. efstu sætin en
uppstillinganefnd raðaði fram-
bjóðendum f 7.-10. sæti.
Eftirtaldir skipa listann:
1. Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, Höfn.
2. Jón Kristjánsson, alþingismað-
ur, Egilsstöðum.
3. Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri, Seyðisfirði.
4. Guðrún Tryggvadóttir, meina-
tæknir, Egilsstöðum.
5. Þórhalla Snæþórsdóttir, útgáfu-
stjóri, Egilsstöðum.
6. Vigdís Sveinbjörnsdóttir, hús-
móðir, Egilsstöðum,
7. Einar Baldursson. framkvæmda-
stjóri, Reyðarfirði.
8. Jóhanna Guðmundsdóttir, skrif-
stofumaður, Breiðdalsvík.
9. Kristinn Magnússon, sjómaður,
Vopnafirði.
10. Þórdís Bergsdóttir, húsmóðir
Seyðisfirði.
1. Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra.
4. Guðrún Tryggvadóttir, meina-
tæknir.
2. Jón Kristjánsson, alþingismað-
ur.
5. Þórhalla Snæþórsdóttir, útgáfu-
stjóri.
3. Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri.
6. Vigdís Sveinbjörnsdóttir, hús-
móðir.