Tíminn - 08.10.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.10.1986, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 8. október 1986 Tíminn 5 UTLÖND lllllllllllllll lllllllllll lllllllllllllll Skoðanakönnun í Chile: Lýðræðisþörfin mikil - Pinochet forseti er óvinsæll - Efnahagur veldur áhyggjum Santiago-Rciiter Um það bil 70% af Chilebúum eru hlynntir lýðræði og aðeins 13% vilja að Augusto Pinochet verði áfram forseti landsins. Petta kom fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær. Skoðanakönnunin. sem lokið var í júní. sýnir að flestir Chilebúar líta á sig sent miðjufólk í stjórnmálum og afneita bæði öfgum til vinstri og hægri. Aætlað er að þjóðaratkvæða- greiðsla fari fram árið 1Ú8Ú og þar gcti Chilebúar samþykkt eða afneitað frambjóðanda sem herforingja- stjórnin býður fram. „Pinochet yrði fellduref þjóðarat- kvæðagreiðsla færi fram núna," sagði Carlos Huneeus sent stjórnaði framkvæmd skoðanakönnunarinn- ar. Könnunin náði til alls um 900 manneskja í Santiago, höfuðborg landins. og kont þar fram að fólk hafði litlar skoðanir á stjórnarand- stöðuflokkunum. Peir flokkar hafa haft skipulögð mótmæli í frammi síðustu þrjú árin til að reyna að koma Pinochet frá völdum. Þátttakendur í könnuninni gagn- rýndu flestir mjög sprengjutilræði stjórnarandstöðunnar sent og að- gerðir stjórnvalda s.s. fjöldahand- tökur og notkun táragass og vatns til að leysa upp hópa mótmælenda. Stuðningur við Pinochet. scm stjórnað hefur landinu síðan herfor- ingjabyltingin var gerð árið 1973, var mestur meðal mjög fátæks fólks og gamalla kvenna. Fólk var beðið um að gefa hinum níu forsetum landsins einkunn frá einum til sjö og fékk Pinochet þar 3,8, dulítið minna en Salvador Al- lende fyrrum forseti sósíalistastjórn- arinnar sem Pinochet steypti af stóli. Allende var gefið 4,0 í eink- unn. Flestir sem spurðir voru spjörun- um úr í könnuninni sögðust þó hafa meiri áhuga á efnahagslegum vanda- málum þjóðarinnarfrckaren flokka- deilunt. Pinochef forseti Chile er óvinsæll mcðal þjóðar sem þráir lýðræði. Bandaríkin: Greind fylgir stærð Palo Alto, Ralirornia-Rcutcr Há börn gnæfa ekki einungis yfir jafnaldra sína líkamlega séð, þau standa sig að auki betur á greindarprófi. Það var hópur rannsóknarmanna frá Stanford háskólanum í Kaliforníu sem komst að þessari niðurstöðu. Doktor Darrell Wilson sér- fræðingur í barnasjúkdómum og lið hans rannsökuðu sextán þús- und börn á aldrinum scx til sautj- án ára og fundu litla en stöðuga fylgni milli hæðar og gáfna. Niðurstöður Wilsons og félaga birtust í októberhefti bandaríska barnalæknafélagsins (The Journ- al of The American Academy of Pediatrics). Samkvæmt rannsókninni er hæð um 2'Xi af fráviki á grcind- arprófi milli smæstu og hæslu barna. Ekkert frávik fannst milli drengja og stúlkna. Rannsóknarfólkið fann ekki breytingu í fylgni er aldur jókst sem bendir til aö meðferð, svo scm notkun gervivaxtarhormóna, auki ekki greind. Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna: Evrópuför að afloknum Reykjavíkurfundinum Krusscl-Rcutcr George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun skýra utanríkis- ráðherrum NATO ríkjanna frá inni- haldi viðræðna Reagans Bandaríkja- forseta og Gorbatsjovs Sovétlcið- toga daginn eftir að þeim lýkur. Þctta var haft eftir heimildarmönn- um innan Atlantshafsbandalagsins í gær. Schultz kemur til Brussel frá Reykjavík þann 13. októbcrogmun þar ræða við nokkra utanríkisráð- herra NATO ríkjanna. Að sögn heimildarmanna Reuters fréttastof- unnar er ferð hans cinn þáttur í herferð Bandaríkjastjórnar, sem reyndar er þegar hafin, til þess að kynna afstöðu Bandaríkjamanna til heimsvandamálanna. Annar þáttur þessarar áætlunar mun felast í ferð Pauls Nitze, sér- staks ráðgjafa Reagans í afvopnunar- 'málum, og Rozannc Ridgeway, að- stoðarkonu Shultz í málefnum Evr- ópu, til Brussel á morgun þar sem þau munu eiga viðræður við emb- ættismenn hjá NATO Stjórnarerindrekar sögðu í gær að fulltrúar Evrópuríkjanna væru áhuga- samir um viðræðurnar í Reykjavík vegna þess að samkomulag um fækk- un á meðaldrægum kjarnorkueld- flaugum stórveldanna í Evrópu virð- ist ekki langt undan. Það samkomulag myndi þýða Reykjavíkurfundurinn: Hófsemi Reagans mætt með mildri gagnrýni KvUtLT. Sovéska fréttastofan Tass sagði í gær að Reagan Bandaríkjaforseti hefði gert öllum ljóst að Itann ætlaði að ræða andsovésk málefni á fundi sínum með Gorbatsjov Sovétleiðtoga hér í Reykjavík um næstu hclgi. I frétt Tass var ræða Reagans, sem hann hélt í fyrradag í Hvíta húsinu, tckin sem staðfcst- ing á þessum áformum forsetans. Reagan sagði í ræðu scm hann hélt stuðningsmönnum sínum að fundurinn á íslandi væri „..ekki hugsaður sem undirskriftaathöfn eða fjölmiðlaviðburður heldur sem undirbúningsfundur... möguleiki á að undirbúa hinar alvarlegu við- ræður sem herra Gorbatsjov og cg vcrðum að eiga þegar hann kemur til Bandaríkjanna..." „ísland er bækistöð á leið til leiðtogafundar," sagði forsetinn bandaríski. Reagan lagði einnig að jöfnu afvopnunarmál ogönnuratriði sem hann vildi ræða viö Gorbatsjov og nefndi þar mannréttindamál, stað- bundin átök og gagnkvæm sam- skipti. Tass gagnrýndi Reagan fyrir af- skiptasemi af málefnum er vörð- uðu „...Alganistan og önnur lull- valda ríki". Gagnrýnin á Banda- ríkjaforsetann var þó mildari en oftast áður og var það í samræmi viö aðrar opinberar greinar sém sovéskir fjölmiðlar hafa að undan- förnu birt um samskipti stórveld- anna. Berlínarmúrinn: „Vegghlauparinn11 sendur vestur yfir Ekki virðist hér fara illa á með þeim Eduard Shevardnadze (t.v.) og George Shultz, utanríkisráðherrum stórveldanna tveggja. fækkun sovéskra SS-20 eldflauga og bandarískra Pershing 2 og stýrield- flauga sem staðsettar eru í fjórum Evrópulöndum. Reykjavíkurfundurinn: Vestur-Bcrlín-Reutcr Bandarískur borgari sem austur- þýskir landamæraverðir handtóku unt helgina hcfur vcrið scndur aftur yfir Berlínarmúrinn. Það voru lög- regluyfirvöld í Vestur-Berlín sem frá þessu skýrðu í gær. Hinn 68 ára gamli John Runnings var handtekinn á laugardaginn var þegar hann skokkaði ásamt félaga sínum eftir Bcrlínarmúrnum. Runn- ings og vinur hans voru á austur- þýsku yfirráðasvæði. Runnings náði að hlaupa nokkur hundruð metra cftir hinum fjögurra metra háa hvíta steinsteypuvegg áður en landamæraverðirnir austur- Sovéskir borgarar biðja um sameiningu fjölskyldna þýsku drógu hann og félaga hans niöur og keyröu þá til Austur-Ber- línar. Lögrcglan sagði félaga Runnings cnn vcra í gæsluvarðhaldi. Runnings var mcð aðra uppákomu þegar 25 ár voru liöin frá því að byrjaö var að reisa múrinn. Það afmæli var í ágúst síðastliðnum og þá klifraði Runnings upp á múrinn og hjó í hann með hamri. Það uppátæki var heldur ekki vel séð al' austur-þýskum landamæravörð- um cn Runnings var þó sleppt í það skiptið eftir að hafa fengið viðvörun um að gcra slíkt ckki aftur. Moskva-Rcutcr. Hópur sovéskrá borgara sem að- skilinn er frá ættingjum sínum er- lendis hefur farið þess á leit við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhail Gorbatsjov Sovétleið- toga að þeir ræði sameiningu fjöl- skyldna á fundi sínum hér í Reykja- vík um næstu helgi. I opnu bréfi sem sjö borgarar sendu til leiðtoga stóveldanna tveggja voru þcir hvattir til að ein- beita sér að fleiri málefnum en heimsmálum einum sér. „Svo lengi sem landamæri halda áfram að aðskilja menn og konur, foreldra og börn munu íbúar heims- ins vera eins langt frá hugmyndum um samvinnu og skilning eins og gerst hefur á verstu tímum mann- kynssögunnar," sagði í bréfinu. Bréfið var undirritað af Yuri Bal- ovlenkov, Galínu Gerasimovu, Lev Blitshtcin, Alexander Zhdanov, Al- exander Pereldik, Vladimir Pimon- ov og Elyu Varshavskayu. Þau eiga ættingja í Bandaríkjunum, ísrael, Danmörku og Pcrú. Skotland: HALDISTIHENDUR Glasgow-Rcutcr. Rúmlega tuttugu þúsund manns tóku saman höndum í Skotlandi unt síðustu helgi til að mótmæla kjarnorkuvopnum. Fólk frá borgum, þorpunr og sveitahéruðum, frá Glasgow' til Grangemouth á austuströnd landsins, myndaði alls 45 kílómetra langa keðju, en mótmælin voru skipulögð af foreldrafélagi einu. „Friðarmálcfni eru of mikilvæg til að láta þjóðarlciðtoga cinungis fjalla um þau,“ sagði einn embætt- ismanna Glasgow'borgr í ræðu við upphaf aðgerðanna. Mótmælin voru vel tímasett, nú er aðeins tæp vika þangað til Reag- an Bandaríkjaforseti og Gorbat- sjov Sovétleiðtogi hittast hér í Reykjavík. Þar verðá afvopnun- armál, að venju, ofarlega á baugn-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.