Tíminn - 08.10.1986, Síða 6
6 Tíminn
Timinn
MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Fréttastjóri:
Aðstoðarfréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
NíelsÁrni Lund
OddurÓlafsson
Guðmundur Hermannsson
Eggert Skúlason
SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 50,- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-
Nýr lífsstíll
Landssamband framsóknarkvenna hélt nýverið ráð-
stefnu í Keflavík sem bar heitið „Nýr lífsstíll, betra
þjóðfélag“.
Markmið ráðstefnunnar var að vekja umræður um
þær breytingar sem orðið hafa á þjóðfélaginu á allra
síðustu árum og hvernig bregðast skuli við þeim.
í framhaldi af ráðstefnunni hafa framsóknarkonur
gefið út blað sem ber heiti > ráðstefnunnar og í því eru
kynnt sjónarmið þeirra og erindi sem flutt voru á
ráðstefnunni.
í erindi sem Unnur Stefánsdóttir formaður LFK flutti
á ráðstefnunni, lagði hún á það áherslu, að jafna þyrfti
launakjör fólks í landinu, samræma lífeyrissjóðareglur,
gera því auðvcldara að eignast húsnæði og síðast en ekki
síst að hvetja fólk til jákvæðra lífsviðhorfa.
Um þetta atriði sagði Unnur Stefánsdóttir: „Það þarf
að vera sjálfsagður hlutur að einstaklingurinn finni að
hann ber ábyrgð á sjálfum sér og getur fengið miklu
áorkaö með breyttu hugarfari og betri lífsmáta. Á þessu
sviöi getur ríkisvaldið haft mikilvæga forustu. í Noregi
t.d. hefur verið mörkuð opinber neyslustefna og
ríkisvaldið leggur fram fjármuni til að hafa áhrif á hollt
mataræði og hvetur til almennrár heilsuræktar. Það er
tímabært að við íslendingar mótum okkar neyslu-
stefnu.“
Enginn vafi er á því að íslendingar geta á margan hátt
bætt sinn lífsmáta.
Hér ríkir gífurlegt vinnuálag á fólki og lítið er um
frístundir. Af þessu leiðir að fólk hefur ekki tíma eða
gefur sér hann ekki, til að sinna áhugamálum sínum sem
þó hverjum manni er nauðsynlegt að gera.
Ástæða er til að ætla að þetta komi til með að breytast
á næstu árum.
Sjálfsagt er að opinberir aðilar, ekki síst sveitarfélög,
geri sér grein fyrir þessari þróun og komi til móts við
þarfir fólksins m.a. með því að bæta aðstöðu þess til
heilbrigðra tómstundastarfa.
Á síðustu árum hefur áhugi fyrir heilsurækt aukist til,
muna og flestir gera sér ljósa grein fyrir þýðingu þess
að fara vel með líkama sinn og bæta þar með heilsuna.
Gífurlegum fjármunum er varið í heilbrigðisþjónust-
una og fullyrða má að með auknum fyrirbyggjandi
aðgerðum á sviði heilsuverndar má draga stórlega úr
þeim kostnaði. Það er því þjóðhagslega hagkvæmt að
verja fjármunum til átaks á þessu sviði.
Því ber að leggja áherslu á að framlög hins opinbera
til íþrótta og æskulýðsmála dragist ekki saman, því á
þeim vettvangi er hvað best unnið að þessum málum.
Þeim sem best þekkja til þeirra málaflokka og vinna að
framgangi þeirra finnst oft og tíðum þeir mæta litlum
skilningi stjórnvalda varðandi sínar hugmyndir. Þessu
þarf að breyta.
Um þetta sagði Unnur m.a. „Okkur framsóknarkon-
um finnst umræða um velferð fólks andlega og líkamlega
hafa verið allt of lítil, sérstaklega hefur stjórnmálaum-
ræðan mjög lítið beinst að þessum þáttum. Við viljum
hafa frumkvæði að því að koma af stað umræðu um
þessi mál innan Framsóknarflokksins og hefja undirbún-
ing að stefnumörkun“.
Frumkvæði framsóknarkvenna er eftirtektarvert og
full ástæða til að hvetja þær til að halda áfram við þetta
starf.
Miðvikudagur 8. október 1986
Högum okkur eins og
siðuð þjóð
Íslendingum ætlar að takast að
verða sér ærlega til skaminar i
sambandi við leiðtogafundinn.
Forsmekkurinn al' |>ví i'ékkst í há-
degisfrettuin litvarpsins í gær.
Fréttaritarinn á Spáni las útdrátt úr
grein í virtu lilaði þar í landi um
undirbúning lundarins og fjallaði
inntak hennar um okur og græðgi.
Lpphaf gullæðisins hólst er síð-
degishluð nokkurt ærði upp doll-
arasult lítilinótlegra sálna með því
að birta óstaðfestar tröllasógur um
hvað hægt væri að græða ofboðs-
lega með því að leigja ibúðir. Aðrir
fjölmiðlar liafa fetað dyggilega í
sporin og margtíundað hiis-
næðisekluna og að háar upphæðir
væru i boði fyrir legupláss.
Gróðapungar ganga á lagið og
falbjóða lnis sín og hila og guð má
vita livað fyrir háar upphæðir. En
sannleikuriiin cr sá að þcgur er séð
l'yrir þiirfum allflestra sein hingað
koma vegna fundarins og ferðaskrif-
stofufólk hefur ekki við að alþakka
fleiri íbúðir eða herbergi og veröið
er ekki hærra en gerist og gengur
ylir mcsta fcröamannatimann á
sumrín.
Fréttir um fréttamenn
AHt fréttaflæðið og fjiil-
miðlahamagangurinn varðandi
fundinn hefur varla veriö um annað
en fréttir og fréttanicnn. Tíndar
eru til allar þeirra tiktúrur, verið er
að setja upp sjónvarpssendistöð
hér og aðra þar, margþvælt er uiu
þann gífurlega fréttamannastraum
sem liggur til landsins og allu þá
stórbrotnu aðstöðu sem þeir þurfa.
Enn sem koinið er hefur fréttaefnið
ekki reynst mikið unnaö í erlenduin
fjöhniðluni cn tiltiningur úr al-
fræðibókum um land og þjóð og
peningagræðgi innfæddra.
Svo skaut gyðingahatur upp koll-
inuni, eða þannig var það túlkað af
þeim sem vilja halda svoleiöis vak-
andi, en því niáli hefur verið hjarg-
aö í horn og vnnandi reyna frétta-
menn ekki mcira til að mistúlka
orð og gjörðir íslenskra ráða-
manna.
Deleríum í Höfða
Draugagangurinn á Höfða hefur
vcrið ærið fréttaclni víða um heim
endu dyggilega undirpúkkað af ís-
lenskum draugatrúarniönnuin.
Flestir íslenskir draugar eiga scr
einhvern uppruna og skýringu. Svo
er ekki um Höföadrauginn. Hann
er enskur að ætt og uppruna. Hann
varð til í viskýsollnum kolli breska
sendiherrans sem bjó í húsinu á
sínum tíma. Sá var búinn að vera
drukkinn í nokkra áratugi þegur
hann forframaðist til sendihcrra-
tignar á íslandi. Eins og allir vita
fer brennivín öllu verr í kollinn á
fólki á íslandi en anuars staðar i
hciminum og síst mun breski tign-
armaöurinn hafa dregið úr vana
sínum þegar hann var sestur aö á
Höfða. Engin furða þótt hann hati
oröiö cinhvers var og skrifaði hann
merkar skýrslur uin draugagang til
utanríkisráöuncytis síns og bað
þess lcngstra orða að hann fengi að
skipta um bústað. Síöan hafa ís-
lendingar haldið sögunni uin
draugaganginn á lofti og er nií
delerium sendiherrans fyrrvcrandi
orðið heinisfrægt.
íslenskir ráðamenn og þeir sem
skipuleggja allt tilstandið hafa
haldið vel á máluni og er engin
ástæða til annars en treysta því að
allar ytri aðstæður hins merku
fundar fari sómasamlega úr hendi.
En fjölmiðlafólk ætti að venja
sig af að gera meira en góðu húfi
gegnir úr því þótt örfáar þúsundir
cmbættisniannu og fréttaliðs koini
til landsins og láta sem allt sé i liers
hönduin þess vegna. Fjöldinu er
síst ineiri en venja-er til þegar
ferðamannastraumurinn er ,hvað
mestur yfir sumarmánuðlna. Besta
landkynningin er aö fólk haldi ró
sinni og uingangist þá útlcndinga
sein hingað konia cins og góðum
og siðuðuin gcstgjöfuni sæmir.
Garri.
VÍTTOG BREITT
Fjarkennsla og
framhaldsmenntun
Árið 1940 stofnaði Samband ísl.
samvinnul'élaga lítið fyrirtæki scm
þá nefndist Bréíaskóli SÍS. Mark-
nriðið var að auðvclda því fólki,
scm ckki átti heimangengt í skóla.
að stunda nám í þeim greinum sem
hugur þcss stóð til. Þcgar fyrsta
árið hófu 280 manns þar nám í
fjórum námsgreinum.
Bréfaskólinn hcfur starfað sam-
fcllt síðan og veitt tugþúsundum
fólks fjölþætta menntun. Sam-
bandið rak hann citt til 1965, en þá
varð Alþýðusamband íslands með-
cigandi. Árið 1975 bættust fleiri
fjöldasamtök í hóp eigenda,
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands, Kvcnfélagasam-
band tslands og Stéttarsamband
bænda.
Þetta er rifjað hér upp í tilefni af
orðum sem rektor Háskóla íslands
lét falla á laugardaginn í ræðu sinni
á afmælishátíðinni í Háskólabíói.
Þar skýrði hann frá því að nú í
haust myndi hefjast svo kölluð
fjarkennsla á vegum Háskólans.
Fyrsta verkefnið þar verður. að því
er hann sagði, námskeið ti!
kennsluréttinda fyrir réttindalausa
kennara.
Háskólarektor sagði jafnframt
að þar á bæ yrðu menn nú að búa
sig undir aukna fjarkennslu og
jafnvel opinn háskóla þar sem
nemendum væri veitt margvísleg
menntun án tillits til aldurs, búsetu
eða fyrri menntunar. „Með aðstoð
útvarps og sjónvarps, myndbanda-
og tölvutækni er unnt að færa
skólann til nemandans og bæta
aðstöðu nemenda í grunnskólum
og framhaldsskólum hvar sem cr á
landinu,"sagði rektorenn frcmur.
Það skal tekið undir það hér
með háskólarektor að fjarkennsla
á vafalaust rnikla framtíð fyrir sér.
Allir tæknimöguleikar á því sviði
hafa gjörbreyst og Háskólinn hefur
líka breyst að því leyti að hann er
ekki lengur lokuð stofnun fyrir
útvalda heldur opin menntastofn-
un fyrir flesta þá sem þurfa á
menntun að halda. Þctta er í
samræmi við þá þróun sem er að
eiga sér stað hvarvetna á Vestur-
löndum.
En hinu má ekki gleyma að
samvinnuhreyfingin og launþega-
samtökin hafa á liðnum árum sýnt
hrósvert frumkvæði og framtak á
sviði fjarkennslu. Senn líður að því
að Bréfaskólinn hafi starfað í hálfa
öld . og hann hefur unnið ótöldum
fjölda fólks ómetanlegt gagn. Þar
er mikil reynsla á þessu sviði
samansöfnuð, og hana þarf að
nýta. Jafnframt því að Háskólinn
hyggur að fjarkennsiu þarf líka að
styðja vel við bakið á Bréfaskólan-
um.
Annað vakti líka athygli í ræðu
háskólarektors. Hann vék þar að
námi eftir stúdentspróf utan hins
hefðbundna háskólakerfis og sagði
m.a.:
„Aukin þörf er fyrir stutt og
hagnýtt nánr að loknu stúdents-
prófi. Slíkt nám getur hentað ýms-
um ncmendum betur en hið hefð-
bundna háskólanám og það getur
jafnframt hentað betur ýmsum at-
vinnugreinum. Slíkt nám mætti
skipuleggja þannig að kostur væri
á frekara námi við Háskóla
tslands."
Þetta rifjar aftur upp annað og
nýrra framtak á vegum samvinnu-
hreyfingarinnar. Nýbúið er að
breyta Samvinnuskólanum á þann
veg að í framtíðinni verður á
boðstólum í Bifröst nám á tveim
síðustu árum framhaldsskölastigs,
en í framhaldsdeild skólans í
Reykjavík er ætlunin að á næstu
árum hefjist stutt og hnitmiðað
framhaldsnám í viðskiptagreinum
fyrir fólk með stúdcntspróf.
Ef til vill verður ofan á að laga
það nám að einhverju leyti að námi
í Háskóla fslands, í samræmi við
orð rektors. Slíkt verður að koma
í ljós á sínum tíma, en hitt er Ijóst
að samvinnuhreyfingin er einnig á
þessu sviði að svara kalli tímans.
-esig