Tíminn - 08.10.1986, Page 11
Tíminn 11
Miðvikudagur 8. október 1986
lllllllllllll LESENDUR SKRIFA illllllllilllllll
í tilefni útvarps-
guðsþjónustu
Á sunnudagsmorgni 31. ágúst
1986 hlustaði ég á útvarpsmessu.sem
flutt hafði verið af séra Þorbirni
Hlyn Árnasyni þann 11. júní 1986 í
Borgarneskirkju.
Ekki ætla ég að gera ræðuna í
heild að umræðuefni, enda ekki
ástæða til, en ein var sú setning, sem
vakti mig til nokkurrar unrhugsunar.
Hún er þessi:
„Ekki þurfum vér að bera kinn-
roða fyrir sögu kirkjunnar." (Ég
hygg að hér hafi ég orð prestsins rétt
eftir).
Þetta er alhæfing sem hvetur mig
til að bera fram fáeinar spurningar:
1. Getur nokkur með réttu sagt
slíkt um alla sögu kirkjunnar frá
upphafi?
2. Hefur kirkjan (sem stofnun, og
þjónar hennar), ávalt farið eftir
orðum guðs og starfað í anda
hans?
3. Hvert er upphaf kirkju guðs? Er
hún ekki jafngömul tilveru ísra-
elsþjóðar?
4. Var það ekki sú kirkja sem lét
lífláta Jesú Krist?
5. Var það ekki af völdum kirkjunn-
ar sem krossferðir voru stundað-
ar?
6. Var það ekki kirkjan sem stóð
fyrir athöfnum rannsóknarréttar-
ins í Evrópu?
7. Voru galdrabrennurnar ekki eitt
af verkefnum kirkjunnar?
8. Var það ekki kristin kirkja, sem
ofsótti einn mesta vitfrömuð síð-
ari alda, Giordono Brúnó og lét
síðan brenna hann á báli í Róm á
hinu mikla hátíðarári sínu árið
1600?
9. Er hægt með réttu að halda því
fram, þrátt fyrir þessar og ótal
aðrar ávirðingar kirkjunnar að
ekki þurfi að bera kinnroða fyrir
sögu hennar að einu eða neinu
leyti?
Spyr sá er ekki veit.
I.A.
111
BÆKUR
Bók um heilagt
brjálæði
Komin er út bók eftir Jón Þorleifs-
son sem heitir Heilagt brjálæði. Þar
er fjallað um misskiptingu auðsins í
þjóðfélaginu að fornu og nýju,
vaxtamál, stórútgerðarmenn, al-
þjóðlega auðhringa og fleira.
Á bókarkápu er það boðað að
mannkynið sé í útrýmingarhættu og
fyrir því sjái eiturspúandi
verksmiðjur og kjarnorkusprengjur,
ásamt sífellt fullkomnari drápstól-
um. Þar eru menn einnig hvattir til
að lesa bókina og kynna sér þá hlið
málsins sem „frjáls fjölmiðlun" leggi
allt kapp á að fela fyrir alþýðu
manna, þ.e.a.s. hlið taumlausrar
auðgræðgi og brjálaðrar valdafíknar
svokallaðra athafnamanna sem séu
ófyrirleitnir og ábyrgðarlausir allra
sinna gerða.
Þetta er níunda bók höfundarins
og tæpar 80 blaðsíður. Útgefandi er
Letur hf. í Kópavogi.
-esig
VIÐSKIPTALIFIÐ
ílllllllllllllll
lllllllll
illlillll
FALL NAIRU
í Nígeríu vargengi gjaldmiðilsins,
nairu, í senn felit 26. september sl.
og upp tekið „fljótandi gengi". upp-
boðsgengi. Á vegum stjórnvalda
mun fara fram vikulegt uppboð á
gjaldeyri til vörukaupa. Á fyrsta
uppboðinu var einn bandarískur
dollari seldur á 4,6174 nairu í stað
1,5525 áður. Svarar það til 66,36%
falls nairu. Þessar ráðstafanir munu
vera að ráði Alþjóðabankans, en
Nígería sótti nýlega um $ 450 mill-
jóna lán hjá honurn. Langtímaskuld-
ir landsins erlendis munu nema um
$ 12 milljörðum.
Af framleiðni í
Bandaríkjunum
Framleiðni vex nú hægar í Banda-
ríkjunum en á eftirstríðsárunum.
Frá 1948 til 1965 óx framleiðni vinnu
um 3,3% á ári að jafnaði, en eftir
1965 dró úr vexti hennar. Frá 1977
til 1985 óx framleiðni vinnu að
meðaltali um 0,7% á ári, (en síðasta
árið, 1985 féll framleiðni vinnu um
0,3%, ef landbúnaður er undanþeg-
inn). Skiptar skoðanir eru um ástæð-
ur þessarar framvindu.
Einkarekstur eflist í Alsír
Tekjur Alsír af sölu á olíu og gasi
til útlanda verða í ár um 40% minni
en í fyrra. f árslok 1985 var gjaldeyr-
isforði landsins $ 2,5 milljarðar, en
erlendar skuldir um $ 17 milljarðar.
í efnahagsmálum hefur verið breytt
um stefnu frá dauða Hourari Boum-
edienne. Horfið hefur meira að
scgja verið frá uppskiptingu stór-
jarða smábændum í vil. Hefur land-
eigendum víða verið fengið fyrra
land sitt aftur í hcndur, ekki síst í
strandhéruðunum, en smábændum
hafði sums staðar gengið illa að
nytja það. Hafa sumir landeigendur
efnast vcl og eru kallaðir „millionair-
es du legume". í einkageiranum er
um þriðjungur vinnandi manna og
fer fjárfesting í honum vaxandi. Sett
voru lög 1982, sem hcimila útlendum
félögum að setja upp í Alsír fyrir-
tæki, sem verða sameign þeirra og
innlendra manna. Aðeins eitt stór-
fyrirtæki hefur þó hafist þar handa.
Siemens.
Sameiginleg fyrirtæki
Ráðstjórnarríkjanna
og granna þeirra
Frá því í október í fyrra hafa
Ráðstjórnarríkin samið við allmörg
lönd í Austur-Evrópu, önnur en
Rúmeníu, um sameiginleg fyrirtæki,
sem ýmist verða sett upp í Austur-
Evrópu eða Ráðstjórnarríkjunum.
Flest lúta þau að vélum og rafmagni
og eru flokkuð undir hátækni. At-
hygli vakti á Vesturlöndum, einkum
Bretlandi og Svíþjóð, að 16. apríl í
vor vakti forsætisráðherra Ráð-
stjórnarríkjanna, Ryzhkov, máls á
slíkum sameiginlegum fyrirtækjum
við Japana, en hann mun ekki hafa
hlotið góðar undirtektir.
Stígandi
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRent
ÁSKRIFTASlMI 68 63 00
VERTU I TAKT VIÐ
Tíniatm
Skrifstofumaður
Fjármálaráðuneytið óskar að ráða starfsmann til
LA rru
Tímann
F.KKI FLJÚfíA FRÁ l>FR
ÁSKRIFTARSÍMI
686300
Er öryggi þitt
ekki hjólbarða
virði?
UUMFERÐAR
RÁO
almennra skrifstofustarfa.
Umsóknum sé skilað til fjármálaráðuneytisins fyrir
15. október 1986.
Reykjavík 7. október 1986.
CONTINENTAL
Betri barðar undir bílinn allt árið hjá
Hjólbarðaverslun Vesturbæjar, Ægissíðu 104. Sími
%
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar föður
okkar, tengdaföður og afa
Sigurðar Konráðssonar
Varmalandi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Ertu að byggja upp
líkamann?
Tíminn
SÍÐUMÚLA 15
S686300
Við leitum að
blaðberum til
starfa víðsvegar
um borgina.
Ásendi
Byggðarendi
Tunguvegur
Langagerði
Jakasel
Jórusel
Kaldasel
Kögursel
Litlagerði
Skógargerði
Rauðagerði
Borgargerði
Sogavegur
Einimelur
Hofsvallagata
Melhagi
Neshagi
Fornhagi
Kvisthagi
Ægissíða
Hjarðarhagi
Hafðu samband.
'i.