Tíminn - 15.10.1986, Síða 2

Tíminn - 15.10.1986, Síða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 15. október 1986 Steingrímur Hermannsson: NU ÞARF AD VINNA BETUR EN NOKKRU SINNI FYRR Tímamynd: Pjetur Eins og fram kemur í frétt á forsíðu hefur Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsóknar- flokksins, ákveðið að bjóða sig fram í Reykjaneskjördæmi í næstu alþing- iskosningum. Þetta er ekki skyndi- ákvörðun heldur gerð að vel athug- uðu máli og er tilgangurinn fyrst og fremst að styrkja stöðu flokksins í þéttbýlinu þar sem hann hcfur átt í vök að verjast síðari ár. í viðtali viðTímann lor Stcingrím- ur ekki dult með að honum er eftirsjá að sínu gamla kjördæmi þar scm hann á traust fylgi en það verður ekki á allt kosið og það er Framsókn- arflokknum lífsnauðsyn að efla trú kjósenda í þéttbýli á flokknum og stefnumálum lians. Um þetta sagði Steingrímur Hermannsson. - Ég get ekki neitað því að ég hef mjög miklar áhyggjur af því að fylgi flokksins hrakaði mjög í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Og skoð- anakannanir benda til þess að við stöndum hér höllum fæti, ckki síst í Reykjaneskjördæmi. Að þessu athuguðu hef ég ákveðið að gefa kost á mér til framboðs í Reykjaneskjördæmi. Samtímis hef ég töluverðar áhyggjur af Vestfjarðakjördæmi. Ég vil skilja við mína vini þar sátta og kjördæmið í góðu lagi. Ég vil að þar geti orðið sem víðtækast sam- komulag og ég mun leggja á það áherslu, áður en stillt verður upp listum i þessum tveim kjördæmum að slíkt samkomulag geti tekist og þá líka samstaða um góðan mann, þcircru margir til, sem taki við fyrsta sæti flokksins í Vest- fjarðakjördæmi. Ég hef að vísu aldrci skipt mér af framboðum, nema með því að gefa kost á mér, en ég vil fá tækifæri til að fara vestur og ræða þessi mál við menn af fullkominni hreinskilni og vitanlega er alveg ljóst að þótt ég fari fram í Rcykjaneskjördæmi mun ég verða áfram til takst fyrir Vestfirðinga ef þeir vilja leita til mín. Ég vil taka það fram að mér er Reykjaneskjördæmi að sjálfsögðu mjög kært. Far á ég heima, þar á ég mjög mikið af kunningjum og þar á ég fleiri frændur en nokkurs staðar annars staðar á landinu og ég er viss um að mér mun falla ákaflega vel að starfa í Reykjnncskjördæmi. Vel má scgja að ég verði starfandi fyrir tvö kjördæmi á eftir. En aðalatriðið hjá mér er, að um þetta geti tekist samstaða, bæði hér og líka fyrir vestan. Að því verður að vinna á næstunni, áður en gengið er endanlega frá uppstillingu. Hel'ur þú orðið var við óánægju meðal stuðningsmanna þinna fyrir vestan vegna orðróms um að þú hygðist skipta um kjördæmi? - Já, ég hef orðið var við mikla óánægju stðan þetta kom til tals. Ég met þann stuðning scm mér er þannig sýndur, en ég hef líka heyrt hjá mörgum, þegar þeir segja þú verður að halda hér ál'ram, þú hefur sagt sjálfur að þú viljir vera hér og við höfum reiknað með að það stæði, að þá segja þeir einnig að þeir skilji vel að vandi flokksins í þéttbýl- inu er mjög mikill. Stuöningsmenn mínir fyrir vestan segja að ég þurfi ekkert að hlaupa þaðan þar sem ég á öruggt sæti. Ég hef líka fengið að heyra hjá sumum Vestfirðingum að ég sé þeirra þingmaður og hafi engan rétt tii að fara þaðan. En mjög margir þeirra hafa sýnt þessari ákvörðun minni skilning um leið og þeir tjá mér sína óánægju með að ég bjóði mig ckki fram fyrir vestan. Ef ég væri ekki formaður flokksins mundi ég örugglega halda áfram scm þingmaður Vcstfirðinga. Þetta er aðeins spurning um hvað mér bcr að gera sem formaður flokksins. Er ckki mikið verk fyrir höndum að vinna upp fylgi Framsóknar- flokksins í Reykjarieskjördæmi? - Ég fer fyrst og fremst fram með þeim ásetningi að sýna í verki að Framsóknarflokkurinn er ekki síður þéttbýlisflokkur en dreifbýlisflokk- ur. Ég mun kynna störf og stefnu flokksins í kjördæminu og ég fer fram í trausti þess að allir leggist á eitt að vinna flokknum fylgis í kjör- dæminu. Ég veit að það hefur oft verið unnið vel á þessu svæði en nú þarf að vinna betur en nokkru sinni fyrr. OÓ Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra vildi: Óbreytt framlög til húsnæðismála - en Þorsteinn skar og ríkisstjórnin samþykkti. „Kemur okkur vart illa“, segir Sigurður E. Guðmundsson hjá Húsnæðisstofnun „Eg vildi halda óbreyttu Iramlagi til þessara mála, en Ijármálaráð- herra taldi að þetta yrði fullnægjandi á þennan hátt og það samþykkti ríkisstjórnin," sagði Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra þeg- ar Tíminn ræddi við hann um fyrir- hugaðan niðurskurð á fjárlögum til húsnæðismála um 300 milljónir króna. „Fjármálaráðherra vísar í at- hugasemdir sem nefndin sem samdi frumvarpið lét fylgja með því. Þar var tekið dæmi, aðef Byggingarsjóð- „Þarf að tala við náms- menn fyrst“ í næstu viku mun Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra hefja viðræður við námsmanna- hreyfingarnar um þau drög scm nú liggja fyrir að lögum um ■ námslán. Að því búnu verða drögin og athugasemdir náms- manna lagðar fyrir ríkisstjórn og ræddar í þingflokkunum. „Ég vil ekki tjá mig um þessi drög fyrr en ég hef rætt þau við námsmannasamtökin því ég er búinn að lofa þeim því að hafa samráð við þau áður en loka- ákvarðanir verða teknar. Að því búnu þarf að ræða drögin í ríkis- stjórn því aðeins formaður Fram- sóknarflokksins hefur fengið þau í hendur,“ sagði Sverrir Her- manttsson er Tíminn bað hann um að tjá sig um drögin sem stjórnskipuð nefnd hefur nú skúað til hans.________ABS ur ríkisins fengi einn milljarð frá ríkinu, þá nægði það fyrir þá sem eru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn, en einhver skerðing yrði hjá þeim sem væru að byggja/kaupa í annað eða þriðja sinn. Þetta eru þau rök sem hann er með, en aðalrökin eru náttúrlega þau að ríkissjóður varð einhvers staðar aö bera niður með sparnað. Mitt mat er það að fjármagn það sem byggingarsjóðirnir fá sé viðun- andi, og þó það fullnægi kannski ekki öllum þá verður að taka mið af aðstæðum í þjóðfélaginu" sagði Alexandcr Stcfánsson. „Ég á ekki von á því að þetta eigi cftir að koma illa við okkur. Það getur vel verið að þetta eigi eftir að breyta einhverju cn þá verðum við bara að gjöra svo vel og haga okkur í samræmi við það. Það má bregðast við svona stöðu með ýmsum hætti hér og við höfum oft gert það,“ sagði Sigurður E. Guðmundsson, famkv. stjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, þcgar Tíminn bar undir hann niður- skurðartillögu ríkisins í húsnæðis- málum. „Við höfum ýmsa aðra tekju- stofna, fyrsta lagi okkar eigin tekjur og síðan lántökur frá lífeyrissjóðun- um og skyldusparnaði unga fólksins. En við erum nýbúnir að fá frumvarp- ið inn á borð til okkar og höfum þvf ekki farið nákvæmlega ofan í saum- ana á þessu. En ég er alveg klár á því að við komum til með að hafa það sem viðunandi er. Ég er ekkert kvíðinn yfir því, enda hefur yfirleitt verið séð til þess áður en yfir lýkur, að við hefðum nokkurn veginn nægi- legt fé. Það hefur líka margoft sýnt sig að þessir hlutir geta breyst í meðförum þingsins," sagði Sigurðwr E. Guðmundsson. PUH Skemmtiferðaskipin sem komu til landsins vegna leiðtogafundarins eru nú öll farin aftur. í gær sigldi Bolette út úr Reykjavíkurhöfn og þar með gefst íslendingum ekki lengur færi á að kaupa sér bjórkollu. Tímam.vnd: Margréi Rainbowsamningur til umræðu á þingi Samningurinn um „Rainbow- málið" var tekinn til fyrri umræðu í sameinuðu þingi í gær þegar Matthí- as Á. Mathiesen utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um fullgildingu samnings milli íslands og Bandaríkjanna til að auðvelda framkvæmd varnarsamstarfs ríkj- anna. En stjórnvöld höfðu lagt áherslu á að afgreiða þetta mál hið fyrsta. Talsverðar umræður urðu um þingsályktunartillöguna. Þeir þing- menn stjórnarflokkanna, sem tjáðu sig um málið lýstu yfir stuðningi við samkomulagið og hið sama gerðu þingmenn Alþýðuflokksins. Talsmaður Kvennalistans sagði að þingmenn listans væru andsnúnir samkomulaginu og myndu sitja hjá við afgreiðslu málsins en ekki greiða atkvæði gegn henni. Þingmenn Al- þýðubandalagsins lýstu hins vegar yfir algerri andstöðu við samkomu- lagið og ásökuðu ríkisstjórnina fyrir að stunda hermang með gjörð slíks samnings, því gildistaka hans fæli í sér að hyglað yrði einstökum íslenskum skipafélögum. Síðan var þingsályktunartiHagan samþykkt til annarrar umræðu og vísað til utanrík- ismálanefndar. ÞÆÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.