Tíminn - 15.10.1986, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.10.1986, Blaðsíða 6
Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjóri: Aðstoðarf réttastjóri: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Guðmundur Hermannsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-. Halda þeir áfram? Þá höfum við heyrt útskýringar beggja leiðtoga stórveldanna þeirra Mikhail Gorbatsjov og Ronalds Reagan á niðurstöðum fundarins hér. Enda þótt skoðanir þeirra á árangri fundarins séu mismunandi er ljóst að þeir eru sáttir við að hafa komið saman til viðræðna og telja að jákvæður árangur hafi náðst á ýmsum sviðum. Við skulum vona að þetta sé rétt og að leiðtogarnir hittist aftur seinna og haldi áfram viðræðum þar sem frá var horfið. í Tímanum í gær birtist grein eftir Þórarin Þórarins- son, fyrrverandi ritstjóra blaðsins. í greininni ræðir Þórarinn leiðtogafundinn og segir m.a.: „Hvað meginniðurstöðu snertir reyndist fundurinn misheppnaður, þ.e. ekki náðist samkomulag um neinn samning eða ramma að samningi, sem gæti orðið grundvöllur samkomulags á fyrirhuguðum Washington fundi. En þótt þetta tækist ekki, væri rangt að telja fundinn árangurslausan með öllu. Par virðist hafa náðst í stórum dráttum samstaða um fækkun kjarnorkuvopna bæði á sviði langdrægra og meðaldrægra eldflauga og jafnvel einnig varðandi skammdrægar eldflaugar og flugskeyti. Þetta getur átt eftir að reynast mikilvægt og verða uppistaða eins mesta afvopnunarsamnings sem gerður hefur verið ef þróunin gengur í þá átt eins og verður að vona.“ Svo virðist eftir því sem lengra líður frá fundinum að meiri bjartsýni gæti með árangur hans en fyrst kom fram á fundum með fréttamönnum. í ávarpi sem Reagan flutti á Keflavíkurflugvelli var hann vongóður um áframhaldandi viðræður leiðtog- anna, og sagði m.a.: „Við stigum stór skref í átt að samkomulagi og við munum halda áfram því verki sem hafið er.“ Gorbatsjov tók í sama streng er hann kvaddi Steingrím Hermannsson forsætisráðherra og lét svo ummælt að „Hann vildi upplýsa forsætisráðherra um það að í raun hefði miklu meiri árangur náðst á fundinum en komið hefði fram og það þyrfti ekki nema smávegis átak til þess að snúa við þessari þróun.“ Það er ánægjulegt til þess að vita að leiðtogarnir telja að fundurinn hafi verið gagnlegur og að þeir vilji ræðast við áfram. Það er ljóst að nauðsynlegt var fyrir leiðtogana að hittast fyrir fund þeirra í Washington til að skýra sínar tillögur og koma þeim fram í dagsljósið. Um þetta segir Þórarinn Þórarinsson í grein sinni sem áöur var vitnað til: „Það hefur áreiðanlega verið hcppilegt að halda þennan undirbúningsfund í Reykjavík í stað þess að efna strax tii fundar í Washington, sem hefði farið út um þúfur. Pá myndu vonbrigöin hafa orðið miklu mciri. Ef til vill má segja, að Reykjavíkurfundurinn skapi biðstöðu, sem gcti reynst gagnleg og leitt til jákvæðrar þróunar, þegar málin skýrast betur og mcira verður hugsað um þau í ró og næði.“ Án efa getur almenningur ráðið miklu um hver niðurstaða þess fundar verður. Það verður bæði í Washington og Moskvu hlustað á vilja fólksins, ekki aðeins í stórveldunum tveim, heldur um allan heim. Þess vegna skiptir þaö máli að fók láti álit sitt í ljós á vígbúnaðarkapphlaupinu. 6 Tíminn Miðvikudagur 15. október 1986- ■lllllllllllllllllll GARRI liill:l,i|í!TI1" !■' ' ' 1111 Herkostnaður heildsaia i Morgunblaöinu fvrir rtimri viku kom viðtal við nokkra for- svarsmenn Kaupmannasamtak- anna þar sem þeir viku m.a. að samskiptum heildsala og kaup- inanna. Þctta viötal verður Jónasi Gunnarssyni tilefni til greinar sem hann birti í sama blaði ■ gær. Jónas er kaupmaður og formaður Mat- kaupa hf. sem mun vera heildsölu- fyrirtæki í eigu smásala. í grcin sinni segir Jónas m.a.: „í fyrrnefndu hhdaviðtuli er réttilcga bent á að matvörukaup- menn greiði herkostnaðinn afhinni gcgndarlausu samkcppni scm ríkir ímatvöruverslun. Hins vcgarláðist að gcta þess, að það eru aðeins þeir smærri meðal matvörukaupmanna sem greiða hann. Það er opinbert lcyndarmál, að hjá öllum þorra heildverslana er í gildi þrenns kon- ar verð, þ.e.a.s. lægsta verðið fyrír stærstu verslanimar, hxsta fyrír þær minnstu og enn annað fyrir miðlungs stórar.“ Og Jónas heldur áfram: „Þetta gerír það að verkum, að þrátt fyrír sömu álagningu þessara aðila eða jafnvel lægri hjá þcim smæstu, verður verðið hxrra hjá þeim og verður það til þess að hin hráðnauðsynlega þjönusta scm smúíbúðirnar í hinum ýmsu hvcrf- um veita. hlýtur að hvcrfa, ef ekki verður breyting á. Máltækið segir að sjaldan launi kálfur ofeldi. Það virðist nií ætla að sannast, því kálfarnir, sem heildsalar og fram- lciðendur hafa verið að ala á kostn- að hinna smáu, eru nú orðnir svo feitir, að þeir eru farnir að flytja sínar vörur inn sjalfir og þurfa ekki á þeim að halda lengur.“ Alvarlegur áburður Gurri getur ekki betur séð en að hér sé mjög alvarlegur áhuröur á feröinni. Við húum í vclferðar- þjóðfélagi þar sem allir vilja kcppa llllllllllllllilllllllllllll VÍTTOG BREITT ' .Hi|i!lHi!: .' Einn af hverri tegund A Alþingi þarf einn af hverri tegund, segir í ágætum auglýsinga- texta, undir fyrirsögninni „Einn af okkur á þing“. Tegundin sem á við einn af oss er enginn annar en Ásgeir Hannes Eiríksson, „sem kemur beint úr atvinnulífinu í hjarta Reykjavíkur“. Atvinnulífið í hjarta nafla alheimsins er pylsu- sala, sem væntanlegur þingmaður Reykvíkinga hefur gert að ein- hverjum frægasta atvinnuvegi höfuðborgarinnar. Einn af okkur, þ.e. Ásgeir Hannes, er einn þeirra sem taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer um næstu helgi. Þar eru mörg útvalin þing- mannsefnin og slíkum kostum búin að það er einsætt að Reykvíkingar hljóta að senda þau öll á þing. Frambjóðendur í prófkiörinu eru ófeimnir að auglýsa hvílíkar afbragðsmanneskjur eru á ferð. Heilu og hálfu síðurnar í íhalds- pressunni eru lagðar undir þar sem væntanlegir þingmenn lofsyngja ágæti sitt og mannkosti, ef þeir hafa farið fram hjá einhverjum til þessa. Það er greinilegt að ckki dugir fyrir snauða menn að hætta sér í prófkjör hjá íhaldinu. Þaö kostar peninga að auglýsa hæfileika sína og sýna fram á að viðkomandi sé góður og gegn sjálfstæðismaður, liafi alltaf verið og muni verða. En það er einmitt inntak auglýsing- anna. Himnasending í Morgunblaðinu í gær brá fyrir frumleika í frambjóðendaauglýs- ingu. Rúnar Rúnarsson birtirafsér mynd í háalofti hangandi í laki sem á stendur „Rúnar á þing“. Allt kjördæmið er í bakgrunni. Það hlýtur að vera mjög traustvekjandi fyrir frantbjóðanda og er upphróp- unin með auglýsingunni Sjálf- stæöismenn í Reýkjavík. Taka þeir áreiðanlejja ve! við sér og setja himnasendingu sína ofarlega á prófkjörslistann. Enn einn frambjóðandi tilkynnir að hann sé svo gífurlegs trausts verður að jafnvel eiginkona sín ætli að kjósa sig. Vonandi eiga allir franibjóðendurnir svona góða og tillitssama maka. Sumir lukkuriddaranna eru hæ- verskir og biðja aðdáendur sína að kjósa sig í 4. 5. eða 6. sæti. Altur á móti vekur athygli að enginn óskar eftir að lenda í 7. sæti. Það er þó mikið virðingarsæti á próf- kjörslista sjálfstæðismanna t Reykjavík. Síðast þegar kosið var völdu þeir formanni sínum það sæti og dugði t'il ráðherraembættis þótt ekki kæmist hann á þing. Það er spá margra að prófkjör sjálfstæðismanna muni brátt heyra sögunni til. í Reykjaneskjör- dæmi gufaði prófkjör upp og verð- ur ekki notað við listaröðun að þessu sinni. Vel getur svo farið að síðasta prófkjörið í Reykjavík verði um helgina. Eftir það muni flokkseigandafélagið sjá um hverj- ir fá að sitja á þingi. Það eru því síðustu forvöð að auglýsa verðlcika sína fyrir þá sem hvggja á stjórnmálaframa innan Sjálfstæðisflokksins. En þar dugir auglýsingaskrumið best og vonandi er því fé vel varið scm íhaldspress- unni er grcitt fyrir að koma lof- gjörðinni á framfæri. Einn af okkur á þing er kjörorð Ásgeirs Hannesar. og það verða orð að sönnu. oó heUdsala í • 0 I rítírJói** 1 (UmmrssMt ^sSssas agSSSss:. SSSíWSðKSSCI m •fTL&í jiwk “■•I I t**'| írföásMa nm *»&*>***■ að því að fólk búi við sem jafnasta aðstöðu. Litlu hvcrfabúðirnar eru nauö- synlegar, fyrst og fremst vcgna þess að þær veita því fúlki þjónustu sem síst má án hennar vera. Þar er kannski fyrst og fremst um aldraða að ræða, en einnig og ekki síður þá seni af einhverjum ástæðum hafa ekki tök á því að feröast langar vegalengdir til að hagnýta sér þjón- ustu stórmarkaðanna. Þar í hópi geta til dæniis verið þcir sem búa við skerta starfsorku vegna van- hcilsu, einstæðir foreldrar og fleiri. Hér er með öðrum orðum verið að bera það upp á heildsala þessa lands að þeir mismuni viðskipta- vinum sínum á þann hátt að það íþyngi þeitti mest í raun sem síst mega við því. Þeim er borið á brýn að þeir stuðli að því að fólk, sem minnst hefur á milli handanna, þurfi að greiða mest fyrir vörur sínar. Samvinnuverslun og einkaverslun Ljótt er ef satt er, og í huga Garra vekur þetta til umhugsunar um gildi samvinnuverslunar annars vegar og einkaverslunar hins vegar. Eitthvaö yrði sagt ef svona lagað kæmi í Ijós hjá einhverju kaupfélaginu, að ekki sé talaö um Verslunardeild Sambandsins, stærstu heildsölu kaupfélaganna. Það ber einkaversluninni ekki fagurt vitni að áburður á hana af þessu tagi skuli koma fram beint úr hennar eigin röðum. Kannski er þetta skólabókardæmi um það hvert gróðafíknin og kapphlaupið um hagnaðinn geta leitt mcnn? Etir að hafa lesið þetta er Garri eindregiö á því að halda áfram þeim sið sínum að versla í kaupfé- laginu. Garri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.