Tíminn - 15.10.1986, Side 16
Rjúpnaskyttur eru nú víða komnar upp á hálendið þar sem þær elta jólamatinn. Spáð er góðu rjúpnaári og því
ættu flestir að hafa eitthvað upp úr krafsinu. Tímamynd: svernr.
15. október til 22. desember:
Rjúpnaveiðin hófst í dag
Rjúpnaveiðitíminn hófst í
morgun. Samkvæmt heimildum
Tímans ætla margir skotveiðimenn
að halda til fjalla í dag og næstu
daga. Tíminn hafði samband við
Veðurstofu ísiands og spurðist fyr-
ir um veðurhorfur á landinu.
Magnús Jónsson veðurfræðingur
varð fyrir svörum og sagði að gera
mætti ráð fyrir kólnandi veðri og
að nóttin hefði skiiað nokkrum
snjó í fjöll. Sagði hann viðbúið að
á morgun tækju við öllu meiri
umhleypingar og því verra
skotveður.
En það hefur löngum farið sam-
an annatími hjá björgunarsveitum
og rjúpnaskyttum, þar sem þeir
fyrrnefndu hafa þurft að leita að
þeim síðarnefndu. Jón Grétar Sig-
urðsson errndreki hjá Landssam-
bandi Hjálparsveita skáta sagði í
samtali við Tímann í gær að fyrir
utan það að muna eftir skjólgóðum
hlífðarfatnaði þyrftu menn að hafa
meðferðis áttavita, neyðarblys og
landakort og síðast en ekki síst að
gera áætlun sem skilin væri eftir
hcima og einhver vissi um. Nauð-
synlegt er að halda sig við áður-
gerða áætlun, svo ekki verði um
óþarfa leitir að ræða vegna mis-
skilnings. -ES
Vertu í takt við
I imann
AUGLYSINGAR 1 83 00
dag
róttirnar eru á bls. 8 í
Starfsfólk skattstofanna stofnar kjarabaráttufélag:
Borgarstjórn:
Verður
opnunartími
verslana
rýmkaður?
Fyrir borgarstjórnarfundi scm
haldinn verður annað kvöld, ligg-
ur tillaga frá minnihlutaflokkunum
um að endurskoða beri reglur um
opnunartíma verslana í Revkja-
vík. Tillaga minnihlutans er
svona: „Borgarstjórn samþykkir
að fela borgarráði að taka til
endurskoðunar reglur um af-
greiðslutíma verslana í Reykja-
vík með það fyrir augum að
rýmka hann. Við endurskoðun-
ina skal hafa samráð við samtök
hagsmunaaðila."
Tíminn spurði Sigrúnu Magn-
úsdóttur borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins hvers vegna til-
laga af þessu tagi kæmi frá minni-
hlutaflokkunum og sagði hún þá
að til hafi staðið að veita tveimur
verslunum í borginni bráða-
birgðaleyfi til að hafa verslanirnar
opnar á kvöldin. Minnihlutinn
hefði talið, að fyrst á annað borð
væri farið að hreyfa við þessum
málum væri eins gott að endur-
skoða þau í heild sinni og taka í
því sambandi tillit til sjónarmiða
neytenda sem og kaupmanna og
starfsfólks í verslunum. Með
þessu móti sagði Sigrún að öllum
væri veittur sami réttur og hugs-
anlega yrði komið í veg fyrir
flókið undanþágukerfi.
Samkvæmt heimildum Tímans
virðast viðhorf borgarfulltrúa til
opnunartíma verslana í Reykja-
vík ganga nokkuð þvert á flokks-
pólitísk viðhorf, enda margir
ólíkir hagsmunir sem þar togast
á. Fví má búast við fjörugum
umræðum um málið í borgar-
stjórn á morgun. -BG
Verður engin skatt
álagningnæstavor?
Miðvikudagur 15. október 1986
„Okkur - starfsfólki skattstof-
anna - þykir við vera farin að
dragast aftur úr öðrum ríkisstarfs-
mönnum og ætlum því að fara að
berjast fyrir hærri launum. Það er
líka auðvelt fyrir okkur að sjá hve
við erum illa launuð þar sem við
erum með laun allra annarra fyrir
franian okkur allt árið um kring. Við
verðum því áþreifanlega vör við
hvar við stöndum - sem svekkir
okkur kannski enn meira en aðra
láglaunamenn," sagði Trausti Her-
mannsson, starfsmaöur á skattstof-
unni í Reykjavík og einn þriggja
stjórnarmanna í nýstofnuöu starfs-
mannafélagi skattstofanna.
Augljóst virðist að félagarnir ættu
nokkuð sterkan leik að beita upp-
sögnum t.d. nokkru fyrir næstu
skattálagningu.
„Við gætum líka boðið ríkissljórn-
inni það, að það komi bara engin
álagning út. Það gæti heldur betur
menntaðir eða ómenntaðir núorðið.
Það er sama hvar er í skattkerfinu,,
það viðurkenna allir að það helst
enginn þar til lengdar. Við erum hér
um 70-80 manns og mannskapurinn
endurnýjast á svona 3 árum. Rennirí-
ið er svo mikið út á hinn almenna
markað. Það þykir ágætis stökkpall-
ur fyrir menn að vinna hérna svona
í 1-2 ár og fara svo í annað, á
endurskoöunarskrifstofur eða til
einkafyrirtækja," sagði Trausti.
Einkafyrirtækin yfirbjóða þá ríkið
til að fá hæfa menn í bókhaldið? „Já,
það er gjarnan boðið í þá, og þarf
svo sem ekki að bjóða hátt til að
yfirbjóða skattstofurnar.“
Á skattstofunni sagði Trausti um
mjög sérhæfð störf að ræða, þannig
að það taki lágmark ár að komast
almennilega inn í þau. Hverfi fólk
síðan eftir þann tíma sé allt unnið
fyrir gíg. Þessa miklu hreyfingu á
starfsliði sagði hann því koma mjög
niður á öllu starfi skattstofunnar og
þeim er þar vinna. „Ég tala nú ekki
um ef það á t.d. að fara að taka
eitthvað á skattsvikunum - þá þarf
að byrja á kerfinu. Byrja á því að
reyna að halda fólkinu til þess að
það sé hægt að halda eitthvað utan
um það sem á að gera hérna. Það
hefst ekki öðruvísi en með því að
hafa hæft og reynt fólk á skattstofun-
um,“ sagði Trausti.
- HEI
KÆTA
ruglað kerfið og kannski hrist eitt-
hvað upp í þeim,“ sagði Trausli.
Félagið sagði hann stofnað sem
hagsmuna- og kjarabaráttufélag.
Aðildarfélagar gætu oröið 130
manns, þ.e allt starfsfólk skattstóf-
anna í landinu, sem er í BSRB.
Háskólamenn eru ekki í félaginu, en
þá sagði hann raunar aðeins að finna
nokkra á skattstofunni í Reykjavík.
„Það vilja engir orðið ráða sig upp
á þau laun sem í boði eru - hvorki
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Áróðri gegn Albert
og Eykon dreift
til gamla fólksins
- leiðbeiningar um hverja setja eigi á listann
Andstæðingar Alberts Guð-
mundssonar iðnaðarráðhcrra í Sjálf-
stæðisflokknum og Eyjólfs Konráðs
Jónssonar hafa nú gripið til róttækra
aðferða fyrir prófkjörið á laugardag,
til þess að hafa áhrif á gamla fólkið
í Reykjavík og leiðbeina því hvernig
framboðslisti sjálfstæðismanna í
Reykjavík verði best skipaður.
Sendur hefur verið listi á elliheimili
borgarinnar þar sem stuðningsfólki
Sjálfstæðisflokksins meðal vist-
manna er bent á hvernig niðurröðun-
in skuli vera í prófkjörinu. Nafn
Alberts Guðmundssonar er ekki á
þessum lista né nafn Eyjólfs Konráðs
og þriðji maðurinn sem ekki er á
iistanum er Rúnar Guðbjartsson.
Listinn sem dreift var er svona: 1.
Birgir ísleifur Gunnarsson, 2.
Friðrik Sophusson, 3. Ragnhildur
Helgadóttir, 4. Geir Haarde, 5.
Vilhjálmur Egilsson, 6. Jón Magnús-
son, 7. María Ingvarsdóttir, 8. Guð-
mundur H. Garðarsson, 9. Bessí
Jóhannsdóttir, 10. Esthcr Guð-
mundsdóttir, 11. Ásgeir H. Eiríks-
son, 12. Sólveig Pétursdóttir.
Talsverð óánægja hefur gert vart
við sig meðal stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins með þau vinnubrögð
sem hér eru stunduð, sérstaklega að
verið sé að reyna að hafa áhrif á það
fólk, sem veikast er fyrir áhrifum af
þessu tagi, þ.e. ellilífeyrisþega.
Tíminn hafði samband við Helenu
Albertsdóttur, sem skipuleggur
prófkjörsbaráttu Alberts Guð-
mundssonar föður síns og spurði
hana hvort þau myndu svara þessu
með því að senda út svipað bréf. „Ef
menn telja sér svona nokkuð til
framdráttar þá þeir um það, en við
höfum ekki og ætlum ekki að senda
út neitt af þessu tagi. Ég tel mig vera
upp yfir það hafna að vera með
svona vinnubrögð," sagði Helena.
Ekki er ljóst úr hvaða herbúðum
leiðbeiningalisti þessi er upprunn-
inn. _bg